Dagblaðið - 13.01.1978, Side 24

Dagblaðið - 13.01.1978, Side 24
Hæstiréttur: Heimilt að verötryggja kaup- verð á húsi í byggingu Allir dómar í undirrétti hafa fallið á annan veg Hæstiréttur kvað í gær upp merkiiegan dóm í deilumáli um verðtryggingu f járskuldbind- inga í fasteignaviðskiptum. Dómurinn telur að lögin, sem banna verðtryggingu fjárskuld- bindinga án leyfis Seðlabank- ans, ógildi ekki vísitöluákvæði í samningi þeirra aðila sem deildu. Röksemd Hæstaréttar er sú, að samningurinn feli í sér þá skuldbindingu, að þeir inni báðir framlög af hendi á til- teknu tímabili eftir samnings- gerð með þeim hætti, sem samningurinn kveður á um. Oft hefur verið deilt um rétt- mæti alls konar verðtrygginga í frjálsum samningum. Meðal annars hefur þetta atriði komið til álita, þegar kveðið er á um gengistryggingar. Þá hefur fjöldi dómsmála risið um verðtryggingu í samningum um fasteignavið- skipti, þegar húsbyggjandi, og um leið seljandi, tryggir sig gegn hækkun kostnaðar með t.d. vísitöluákvæði. Þetta á auð- vitað einkum við, þegar hús eða ibúðir eru seldar áður en byggt er eða á byrjun byggingarstigs. Flestum lögmönnum var kunnugt um dóm, sem upp var kveðinn í Borgardómi Reykja- víkur hinn 18. sept. 1975, og að honum hefði verið áfrýjað til Hæstaréttar. Þar neitaði kaup- andi að hlita ákvæðum samn- ings um verðtryggingu íbúðar sem gerðu honum að greiða seljanda kr. 517.924.00 auk vaxta. Dómurinn féll kaupanda í vil. Seljandi áfrýjaði til Hæstaréttar. Fjöldi deilumála um þetta efni var látinn bíða úrslita þessa máls fyrir Hæsta- rétti. Seljandi vann málið, sem fyrr segir. Þegar húsið í Hæstaréttar- málinu var selt var það í bygg- ingu. Greiðslur kaupanda skyldu inntar af hendi við lok tiltekinna byggingaráfanga fram að afhendingu, og á öðrum tilteknum tímum allt þar til 6 mánuðir væru frá afhendingu. Voru ákvæði um vísitöluhækkun á greiðslum. Samkvæmt dómi Hæstaréttar voru þær heimilar. Verðbóta var ekki krafizt á greiðslur sem voru inntar af hendi eftir af- hendingu hússins. Haukur Jónsson hrl. var fyrir seljanda en Jóhann Þórðarson hdl. fyrir kaupanda. BS .... hvflíkar móttökur Móttökustjórar af hótelum á Norðurlöndunum þinga þessa dagana á Hótel Loftleiðum. Og hvílíkar móttökur fengu þeir, þegar komið var í hanastélsboð i gærkvöldi. Var víkingur einn mikilúðlegur fyrir í Kristalsal hótelsins, og lét eigi friðlega með brennivfnsflösku girta í beltið og þar að auki við alvæpni. — DB-mynd Ragnar Th.Sig. Langur fiskur úrsjó Sæsímastrengurinn milli íslands og N-Ameríku — Icecan — slitnaði í fyrra- kvöld um áttaleytið. Síma- sambandið við útlönd fékk strax línu í gegnum London í staðinn fyrir hann. „Þetta veldur mjög litlum erfiðleik- um,“ sagði Kristján Rein- hardsson, deildarstjóri hjá Pósti og síma, í viðtali við DB í morgun. Hann taldi að gert yrði við strenginn eftir helgina. Það er Stóra norræna, sem á strenginn og ber að hafa hfann í lagi. DB telur sig hafa góðar heimildir fyrir því, að bátur frá Vestmannaeyjum hafi dregið strenginn upp á síðuna í fyrrakvöld. Skip- verjar settu bauju við strenginn. Telja má víst að hann sé slitinn þarna. Stóra norræna getur því „gengið" að biluninni, þegar við- gerðarskip þess kemur. Bæði talsíma- og telex- og skeytasamband hefur verið fullnægjandi í gegnum London til Norður-Amerfku. Icecan er tengdur .landi í Vestmannaeyjum, en þaðan er radíó-samband til lands. - BS Hallinn hjá ríkinu: Fréttatilkynningin segir ekki alla söguna I fréttatilkynningu, sem fjár- málaráðuneytið sendi út í gær, kemur fram, að gjöld ríkisins um- fram tekjur voru 2,8 milljarðar. Þá á eftir að gjaldfæra fasteigna- kaup, og er þessgetið í tilkynning- unni. „Munar þar mest um kaup ríkisins á Landakotsspítala að fjárhæð 1,2 milljarðar króna, en á árinu voru aðeins greiddar 70 milljónir króna upp í kaupverðið og þær meðtaldar í framangreind- um greiðslutölum gjalda,“ segir í tilkynningunni. Hallinn samkvæmt svonefnd- um A-hluta ríkisreiknings, sem fjallar um fjárreiður ríkissjóðs og ríkisstofnana, virðist munu verða um 4 milljarðar, og þá er B- hlutinn eftir, sem fjallar um rfkis- fyrirtæki og sjóði í ríkiseign. 1 tilkynningunni er aðeins sagt, að halli verði, en ekki hve mikill. Þá kemur fram, að rfkið jók skuldir sínar við Seðlabankann um 3,7 milljarða. - HH Menn eru skuldseigir þrátt fyrir háa vexti Gjaldheimtan fær hálfan ann- an milljarð í dráttarvexti —f yrir árið 1977 Menn eru býsna skuldseigir. Gjaldheimtan f Reykjavfk fær hvorki meira né minna en um hálfan annan milljarð f dráttar- vexti fyrir árið 1977, að sögn Guðmundar Vignis Jósefs- sonar, forstöðumanns Gjald- heimtunnar, f morgun. Guðmundur sagði, að dráttar- vextir, sem hefðu verið skuld- færðir um áramótin, næmu yfir 900 milljónum króna. Við þá bætast dráttarvejctir, sem voru reiknaðir 1. ágúst, yfir 600 milljónir króna. Um áramótin skulduðu menn um 5 milljarða af sköttum ársins 1977 og 2 milljarða af eldri skuldum. Alls voru á lagðir skattar upp á 16-17 milljarða f ár. Skuldir manna námu 5 millj- örðum f byrjun ársins. Guðmundur sagði, að inn- heimtuprósentan væri svipuð og f fyrra. Innheimta væri sein- virk, ef menn tregðuðust við að greiða. Þá yrði að nota lögtaks- aðferðina, sem tæki langan tfma. Dráttarvextirnir eru nú þrjú prósent á mánuði. . HH FÖSTUDAGUR 13. JAN. 1978 Fæðingar- heimilið fyrir aldraða — tillaga Kristjáns Ben. og Alberts íborgarráði Tillaga hefur komið fram f borgarráði um að leggja niður Fæðingarheimilið við Eiríksgötu. Albert Guðmundsson og Kristján Benediktsson, borgarfulltrúar, hafa lagt til að húsið verði tekið til afnota fyrir aldrað fólk. Hliðstæða tillögu hafa þeir borið fram um nýtingu á sjúkrastofum í Heilsuverndarstöðinni, sem nú eru notaðar fyrir skrifstofur heil- brigðiseftiriits borgarinnar á vegum borgarlæknis. Þeir Albert og Kristján benda á þann fjölda aldraðs fólks, sem er alls ekki sjúklingar en af heimilisástæðum er afar erfitt að annast um sem skyldi á heimilum barna og vandamanna. Fyrir þetta fólk vanti sárlega betri aðbúnað en þvf er nú veittur. Með því að taka t.d. hús Fæðingar- heimiiisins undir aldrað fólk verði þessi vandi að einhverju leyti leystur óg húsnæðið mun betur nýtt en nú er. Fram er komið eftir athugun, að á þessu húsnæði er stöðugt lakari nýting með rekstri fæðingarheimilis. Flutningsmenn benda einnig á, að vegna erfiðra heimilisástæðna sé heimilishjálp ört vaxandi deild hjá Félagsmálastofnun borgar- innar en leysi samt ekki vandann sem skyldi. BS Blóðugurog illa leikinn eftir árás Tveir menn sátu f fangageymsl- um lögreglu í morgun vegna árásar á mann sem staddur var við Domus á Laugavegi kl. 3.05 f nótt. Það var. eftirlitsbíll lögregl- unnar sem kom að manninum sem ráðizt hafði verið á. Var hann þá blóðugur og illa leikinn. Lýsti hann tveimur mönnum er ráðizt höfðu á hann og voru þeir hand- teknir stuttu síðar. Mál þetta er enn órannsakað og upplýsist ekki fyrr en löglærðir umfjöllunarmenn mæta til leiks. Sá sem á var ráðizt hlaut umönn- un í slysadeild. Hinir sem á hann réðust fengu gistingu f Hverfis- steini, eins og áður segir. Ófærð austanfjalls ogþoka á heiðinni Slæm akstursskilyrði eru austan fjalls samkvæmt upp- lýsingum lögreglunnar á Selfossi og fóru fjölmargir bflar út af vegna þess í gær. I morgun var grfðarleg hálka á Hellisheiði og mikil þoka bætti ekki úr skák. Starfsmenn vegagerðarinnar lögðu snemma af stað til þess að sandbera veginn yfir Hellisheiði og ætti færð því að batna þegar Ifður á daginn. A.Bj.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.