Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 24.01.1978, Qupperneq 5

Dagblaðið - 24.01.1978, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. JANUAR 1978. /*"....... 5 V SIMINN GERIR „RAZZIUM GEGN ÓLÖGLEGUM TALrOG FARSTÖÐVUM Radíóeftirlit Pósts og síma lét til skarar skríða um helgina gegn eigendum lítilla farstöðva og talstöðva. „Við fengum vissar upp- lýsingar um ólöglegar stöðvar hjá nokkrum aðilum," sagði Gústaf Arnar, yfirverkfræð- ingur hjá Pósti og síma, í sam- tali við fréttamann DB í gær- morgun. „Það varð til þess að farið var af stað, útvarpsafl mælt í nokkrum stöðvum og rásafjöldi." Gústaf sagði afleiðinguna hafa orðið þá, að nokkrar stöðvar hefðu verið teknar úr umferð. Þær hefðu verið með aukabúnaði — þ.e. fleiri rásum en leyfilegt er — eða sterkari en gert er ráð fyrir. „Svona farstöðvar til almenningsnota mega ekki vera sterkari en hálft vatt,“ sagði Gústaf, „en þess eru dæmi að þær hafi mælzt allt upp í átta vött. Slíkt aukið afl getur valdið truflun- um fyrir almenna útvarps- og sjónvarpsnotendur, jafnvel þannig að menn heyri orðaskil heima í stofu hjá sér.“ Hann taldi líklegt, að um helgina hefði eitthvað verið gert upp- tækt af smygluðum farstöðvum, en slíkar munu vera nokkuð í umferð hérlendis. Lagaheimild er fyrir því að gera ólöglegar stöðvar upp- tækar, sekta eigandann um allt að 10 þúsund krónur og svipta hann leyfi til notkunar slikra stöðva um lengri eða skemmri tíma. Maður nokkur, sem samband hafði við DB vegna þessa máls í morgun, sagði starfsmenn Radíóeftirlitsins hafa hrotizt inn í bíla til að leita að stöðvum, sem þeir teidu ólöglegar. Gústaf Arnar sagði stna menn hafa fyrirmæli um að taka engar stöðvar nema með le.vfi eigenda, en hins vegar hefðu þeir lagaheimild til að ganga að þeim hvenær sem væri. Neit- uðu eigendur starfsmönnum Radíóeftirlitsins um aðgang að stöðvunum, væru þeir þar með búnir að fyrirgera rétti sínum til að halda stöðvarnar og mætti þá taka þær umsvifalaust. -ÖV Maj-Britt Imnander rektor norrænu alþýðu-akademíunnar Maj-Britt Imnander, fyrrum forstjóri Norræna hússins í Reykjavík, tók um áramót við starfi rektors Norrænu alþýðu- akademíunnar í Kungálv Svíþjóð. Majö-Britt tekur við starfinu af Svíanum Birni Höjer, sem verið hefur rektor akademíunnar frá upphafi, eða í tíu ár. Hann er nú rektor Tollare-lýðháskólans i Svíþjóð. Norræna alþýðuakademían i Kungalv er rekin samhliða og i húsnæði Norræna lýðháskólans, sem kostaður er af fjórum Norðurlandanna, Noregi, Dan- mörku, Svíþjóð og Finnlandi. Hlutverk akademiunnar er að halda námskeið af ýmsu tagi fyrir fullorðna á Norðurlöndum. Sl. ár voru þar haldin um 20 námskeið, sem um 500 manns tóku þátt í. Fyrir ári síðan setti mennta- málaráðherranefnd Norðurlanda nýjar reglur um starfsemi aka- demíunnar og í nóvember stað- festu ráðherrarnir nýjan samn- ing um samstarf akademíunnar og lýðháskólans í Kungálv, að því er segir í „Landkánning", ársriti nemendasambands Norræna lýð- háskólans i Kungálv. -ÓV Maj-Britt Imnander, sem tekið hefur við starfi rektors Norrænu alþýðuakademíunnar í Kungálv i Svíþjóð. íslenzk yfirvöld sögð áhugasöm um norrænt sjónvarpogútvarp Sjónvarp næðist á fiski- miðum og afdölum íslands 1 '> wtt***] ':W Æ* Br Í í Á* m fy'f /m 1 / fl — Gervihnattasjónvarp sem þangað næði myndi spara milljarða í uppsetningu eigin dreif ikerfis „Engin áform eða áætlanir eru uppi um það að lengja útsend- ingartíma sjónvarpsdagskrárinn- ar eða byggja upp útsendingu tvö- faldrar dagskrár" segir í kaflan- um um Island i skýrslu ráðu- neytisstjóranefndarinnar nor- rænu sem nú stjórnar rannsókn- um og undirbúningi að norrænu sjónvarpi og útvarpi um gervi- hnött. Skýrsla þessi var lögð fram á ráðherrafundi, sem haldinn var á Húsavík í sumar og fer innan skamms fyrir Norðurlandaráðs- fund í Osló. „Tæknilega séð geta um 98% íbúa á tslandi náð sjónvarpssend- ingum, en á mörgum stöðum eru gæði útsendingarinnar léleg og hættan á truflunum mikil, þar sem dreifikerfið er byggt upp á ódýran hátt. Fyrir liggja áætlanir um úrbætur á dreifikerfinu svo og áætlanir sem miða að því að sjónvarpssendingar náist á helztu fiskimiðum umhvefis landið. Nauðsynlegt dreifikerfi verður þó dýrt bæði i uppsetningu og rekstri, þar sem aukning kerfis- ins sem næði til flestra íbúa landsins er talin kosta 5-60 millj- ónir danskra króna (1870 til 2245 milljónir íslenzkra króna). Aætlað er að kerfi sem nægði til sendinga sem næðust á fiski- miðunum kosti svipaða upphæð. Þess vegna er á íslandi fylgzt með miklum áhuga með allri þróun mála varðandi sendingu um gervi- hnött“ segir í skýrslunni. Síðan er skýrt frá því að hljóð- varpi sé dreift um landið á lang- bylgju, og truflanir frá erlendum stöðvum séu tiðar. Einnig á því sviði virðist gervihnattatæknin opna athyglisverðar úrlausnir. „Síðan í október 1975 hefur 20% dagskrárefnis sjónvarps verið sent út í lit. Byggjast þær sendingar á myndsegulbandi og erlendu dagskrárefni. Áætlanir eru uppi um litvæðingu í stúdiói 1977 til 1978 og útvegun nauðsyn- legra tækja til útsendingar og framleiðslu litmynda. Reiknað er með að hið aukna framboð sjónvarpsefnis, sem hugsanlegt væri gegnum Nordsat og síðar með hugsanlegum gervi- hnetti á 31. gráðu vestlægrar lengdar, muni auka áhuga hjá stórum hluta íbúa Islands" segir í skýrslunni. - ASt. Bókhaldið í lag hjá Rifsbúum I vetur verða gerðir út 15 bátar frá Rifi og þegar eru 11 bátar byrjaðir á veiðum. Af þessum ellefu bátum eru þrír á netum. Afli hefur verið tregur hjá netabátum en mjög þokka- legur hjá línubátum, 4-6 tonn í róðri, og næg atvinna hefur verið á staðnum. Sú nýlunda hefur verið tekin upp á Rifi að sett hefur verið á laggirnar bókhaldsskrifstofa, sem tveir menntaðir menn i faginu standa fvrir, þeir Jóhann Lárusson frá Rifi og Samúel Olafsson. Sú þjónusta sem þeir veita er mjög nauðsyn- leg fyrir sjávarplássin. - Hafsteinn/JH ENGIN BREYTING í HASSMÁUNU Engin breyting hefur orðið á fikniefnamálinu sem verið er að rannsaka hjá fíkniefnadeild lögreglunnar, að sögn Guð- mundar Gígju, lögreglumanns í morgun. Þrír liðlega tvítugir menn sitja enn í gæzluvarðhaldi vegna málsins, sern snýst um innflutning og dreifingu á hassi og amfetamíndufti. Að sögn Guðmundar liggur enn ekki Ijóst fyrir um hversu mikið magn er að ræða. Rannsókninni er haldið á- fram. Hún verður siðan send sakadómi í ávana- og fikniefna- málum til meðferðar. - ÖV Vélhjólasendill óskast núþegar BIAÐIÐ Þverholti 11, sími27022 MEISTARASAMBAND BYGGINGARMANNA minnir félagsmenn sína á árshátíðina 27. janúar nk. á Hótel Borg. Miðasala er hafin á skrifstofu félags- ins í Skipholti 70.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.