Dagblaðið - 24.01.1978, Page 13

Dagblaðið - 24.01.1978, Page 13
12 I DAGBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. JÁNÚAR 1978. DAGBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 24. JANUAR 1978. Sþróttir Iþróttir Iþróttir íþrottir Iþróttir Iþróttir Sþróttir Iþróttir I Axel í tíunda sæti — Einar í 16. og Gunnar í 24. — yfir markhæstu leikmenn íVestur-Þýzkalandi Þrír íslenzkir leikmenn eru meðal 24 markhæstu leikmanna í 1. deildinni vestur- þýzku. Axel Axelsson hjá Dankersen er markhæsti leikmaðurinn hjá því liði. Hefur skorað 53 mörk í 13 leikjutn. Þar af 24 úr vítaköstum. Hann er í tíunda sæti á listanum. Einar Magnússon hjá Hannover er í 16. sæti með 43 mörk, þar af 11 úr vítum, en hefur leikið mun færri leiki en aðrir, sem eru á listanum. Gunnar Einarsson, Göppingen, er í 24. sæti með 39 mörk — sex víti. Hlé var gert á 1. deildar-keppninni í Vestur-Þýzkalandi rétt fyrir jólin vegna undirbúnings lands- liðsins fyrir HM. Markahæstu leikmenn voru þá þessir: Fyrst er leikjafjöldinn — flestir með 13 leiki — síðan mörkin og hve mörg þeirra hafa verið skoruð úr vítaköstum. 1. Lavrnic (Derschlag) 13 83/53 2. Frank (Milbertshofen) 13 73/29 3. Krstic (Dietzenbach) 13 63/32 4. Bucher (Göppingen) 14 63/21 5. Don (Húttenberg) 13 62/48 6. Möller (Nettelstedt) 12 61/20 7. v. d.Heusen (Rheinhausen) 13 61 8. Wunderlich (Gummersbach) 13 56/21 9. Ehret (Hofweier) 12 55/7 10. Axelsson (Dankersen) 13 53/24 11. Klúhspies (GroBwallstadt) 12 52/14 12. Deckarm (Gummersbach) 13 52/13 13. Lúbking (Nettelstedt) 13 47/19 14. Kemmler (Neuhausen) 12 45/8 15. Pelster (Rheinhausen) 12 45/32 16. Magnusson (Hannover) 9 43/11 17. Schobel (Hofweier) 12 43/12 18. Wehnert (Dietzenbach) 13 43/12 19. Klenk (GroBwallstadt) 12 42/15 20. Ufer (Derschlag) 13 42/1 21. Capra (Rheinhausen) 13 42/11 22. Krause (Kiel) 10 40/21 23. Westebbe (Gummersbach) 13 39 24. Einarsson (Göppingen) 13 39/6 25. Meisinger (GroBwallstadt) 12 38/6 26. Meffle (Hofweier) 12 38/7 27. Dr. Miller (Neuhausen) 13 38/10 28. Waltke (Dankersen) 13 38/11 29. Ohly (Húttenberg) 13 37 30. Spengler (Húttenberg) 13 37/1 31. Salzer (Neuhausen) 13 37/11 íþróttir Frægur kappi til A. Villa Aston Villa kéypti í gær Tommy Craig, fyrirliða Newcastle, fyrir 250 þúsund sterl- ingspund. Þessi skozki landsliðsmaður, eem áður lék með Sheff. Wed. — fyrst Aberdeen — hefur verið óánægður hjá Newcastle síðan Bili McGarry tók þar við stjórninni. Meðal annars svipti McGarry hann fyrirliðastöð- unni. Harry Haslam, framkvæmdastjóri Luton Town, sagði í gær starfi sínu upp hjá félag- inu til þess að taka við Sheffield United. Haslam er 55 ára og hefur staðið vel fyrir sinu hjá Luton, in.a. komið liðinu i 1. deild, þó sú viðdvöl yrði stutt. Framkvæmdastjóri Sheff. Utd., Jimmy Sirrell, var rekinn i október — og tók þá aftur við Notts County, sem hann hefur rétt við á ný. Sheffield-liðið hefOr ekki haft stjóra síðan og gengið hroða- lega að undanförnu. Fengið á sig fimm mörk í leik í síðustu þremur leikjunum. Fyrst gegn Arsenal, síðan Bolton á heimavelli, og á laugardag í Sunderland. Kevin Keegan hjá Hamburger SV var í gær dæmdur í átta leikja bann fyrir að slá mótherja í vináttuleik á gamlársdag. Keegan varði ekki mál sitt fyrir vestur-þýzku aga- nefndinni en það er regla í V-Þýzkalandi að leikmaður, sem rekinn er af velli, fái átta leikjabann. Eftir frábíera matarveizlu ] Þið eruð knattspyrnumenn og þess vegna eruð þið hingað komnir. Til að Já Í. leika knattspyrnu. *v-—_________ || Knattspyrnu Vinir mínir. Nú skal ég útskýra málið -,— Heiner Brand hjá Gummersbach var einn bezti handknattleiks- maður Véstur-Þýzkalands árið 1977 — og mun verða einn af lykilmönnum vestur-þýzka landsliðsins á heimsmeistaramótinu í Danmörku, sem hefst á fimmtud. Brand skoraði 25 mörk í lands- leik.jum á síðasta ári cn Vestur-Þjóðverjar léku 18 landsleiki — þar af tvo við ísland — unnu 11. gerðu þrjú jafntefli og töpuðu fjórum. Hinn síðasti var gegn Pölverjum í Göppingen og þýzka liðið vann stórsigur 29-19. A Olvmpíuleikunum í Montreal var vestur-þýzka liðið i fjörða sæti og gæti orðið meðal fremstu liða á HM. INP-mvnd Sven Simon. Olafur leikur ekki á HM í Danmörku —og m jög vafasamt að lón leiki Olafur Einarsson, Víkingi, handarbrotnaði í landsleiknum við Norðmenn á sunnudag og getur ekki tekið þátt í heims- mcistarakeppninni í Danmörku. Þá er fyrirliði íslenzka liðsins, Jón H. Karlsson, einnig meiddur og alls ekki víst að hann geti leikið á HM. Jón er slæmur í fæti auk þess, sem hann á við meiðsli að stríða í baki. Hann var slæmur í gær og er jafnvel talið, að um brjósklos sé að ræða í bakinu. Ef það er revndin eru litlar líkur á þátttöku Jóns í HM. íslcnzka liðið hélt áleiðis til Arósa um hádegið í dag með viðkomu í Kaupmanna- höfn. Þar kcmur Janusz Cher- winski til móts við liðið og verður ákveðið í samráði við hann hvort leikmönnum, einum eða tveimur, verður bætt í íslenzka HM- hópinn. Frestur til að tilkynna breytingar rennur út á hádegi á morgun. Líklegt er að leitað verði til Páls Björgvinssonar, Víkingi, eða Jóns Hjaltalíns Magnússonar, Lugi, ef bætt vcrður í HM-hópinn — jafnvel beggja. Ölafur Einarsson fékk slæmt Göngumót í Skálafelli Fyrsta göngumót vetrarins á skíðum hér sunnanlands fór fram í Skálafelli á laugardag. Hrönn sá um keppnina. Keppendur voru 8. og einn þeirra, Pál Guðbjörnsson, keppti fvrir Knattspvrnufélagið Fram. Það er í fvrsta sinn, sem kcppandi frá Fram tekur þátt í skíðamóti. Páll var áður i Skíða- félagi Reykjavíkur. Urslit urðu þau, að Ingólfur Jónsson, SR, sigraði með nokkr- um vfirburðum. Gekk vegalengd- ina, 12 kílómetra, á 42:16.1 mín. Guðmundur Sveinsson, SR, varð annar á 45:09.5 mín. í þriðja sæti varð Bragi Jónsson, Hrönn, á 46:15.1 mín. Páll Guðbjörnsson, Fram, varð fjórði á 47:55.5 mín. og í fimmta sæti kom Björn As- grímsson, Siglufirði, á 48:30.4 mín. stuð á hönd í landsleiknum en í fvrstu var þó talið, að aðeins um hin venjulegu meiðsli handknatt- lciksmanna va>ri að ræða. Ölafur lék til loka og það var ekki fyrr en seint á sunnudagskvöld, að honum versnaði mjög. Við röntgenmvndatöku kom í Ijós, að tvö hein í handarbaki voru brotin. Oheppnin hefur elt Olaf í sam- bandi við HM. Fvrir keppnina í Austurríki í fvrra veiktist hann og gat ekki leikið nema einn leik — síóasta leikinn við Tékka um þriðja sætið í keppninni. . Olafur fór ineð isienzka lands- liðinu til Arösa og mun fylgj- ast með leikjum íslands þar i riðl- inum — en svo eru miklar líkur að hann koini heim. Hönd hans var sett í gips í gær og hann verður að minnsta kosti með það í 15 daga. Þetta er ekki f.vrsta áfallið, sem íslenzka landsliðið verður fyrir. Ölafur Benediktsson, mark- vörður, getur ekki leikið á HM vegna meiðsla, sem hann hlaut á olnboga. Var skorinn upp við þeim nfeiðslum og skurðurinn tökst ekki nögu vel. Því hefur mjög verið slegið upp í dönskum bliiðum, að Olafur leiki ekki á HM og segja dönsku blöðin, að íslenzka landsliðið verði af þeim siikum mun veikara en talið var uppbaflega. Þá hafa Danir einnig skrifað talsvert um, að bezti varnarmaður Islands, Ölafur H. Jónsson. Dankersen, leiki ekki i heimsmeistarakeppninni. 35 þúsund fyrir tíu rétta í 21. leikviku féll niður einn leikur og útisigur Birmingham í Liverpool varð þess valdandi, að engum tókst að gizka rétt á alla 11 leikina. Með 10 rétta leiki reynd- ist 21 röð vera. og komu kr. 35.000 fyrir hverja. Með 9 rétta voru 239 raðir og vinningar fvrir hverja röð kr. 1.300. Vinningur fvrir 9 réíta verður sendur strax til þeirra vinnings'hafa. sem hafa skilmerkilega merkt sína seðla. HÆTTU EKKIA NEITT Á STEINGÓLFI í 0SLÓ — íslenzka landsliðið sigraði norska meistaraliðið Refstað 2248 f gærkvöldi „Það voru ákaflega ruddalegir leikmenn í norska meistaraliðinu Refstad og leikurinn við það i gærkvöld var slakur og leiðin- legur,“ sagði Axel Axelsson, þegar blaðið ræddi við hann í morgun. „Það var furðulegt hjá Norðmönnum að bjóða upp á þær aðstæður, sem fyrir hendi voru í „íþróttahúsinu", sem leikið var í en Icikurinn var háður í Osló. Steingólf — hættulegt — og þar rúmast ekki nema um 100 áhorf- endur. Við hættum ekki á neitt við þessar aðstæður en unnum þó öruggan sigur, 22-18. Þó var erfitt að komast hjá hörkunni. Menn taka ósjálfrátt á móti, þegar harkalega er brotið á þeim og það var til þess, að margir fengu að fjúka út af. í norska meistaralið- inu voru fjórir leikmenn, sem léku í landsleiknum á sunnudag," sagði Axel ennfremur. Norska liðið skoraði þrjú fyrstu mörkin í leiknum en íslenzka landsliðið jafnaði í 5-5. Komst siðan yfir í 8-6, 10-6 og staðan í hálfleik var 12-9 fyrir Island. í síðari hálfleiknum var munurinn oftast tvö til þrjú mörk fyrir is- lenzka liðið, 14-11, 15-13, 18-16 og 20-18 svo einhverjar tölur séu nefndar. Fjögurra marka sigur í lokin, 22-18. Kristján Sigmundsson varði mark Islands í fyrri hálfleik og Gunnar Einarsson í þeim siðari. Þeir fengu á sig níu mörk hvor og vörðu allþokkalega — einkum Urslit í 1. deildinni í Hollandi á sunnudag urðu þessi: Amsterdam — Venlo 3-0 Volendam — NEC 2-0 Telstar — Haag 0-1 Deventer — Sparta 1-2 Roda — PSV Eindhoven 0-0 Fe.venoord — Twente 0-2 NAC Brcda — Haarlem 2-1 Arnheim — Ajax 2-2 Utrecht — AZ ’67 0-0 Staða efstu liða PSV 21 16 Twente AZ ’67 Ajax Sparta Gunnar. Allir leikmenn Islánds tóku þátt í leiknum nema þeir Jón H. Karlsson og Ólafur Einarsson, sem eiga við meiðsli að stríða — og markvörðurinn Þorlákur Kjartansson. Þeir Þorbergur Þorbergur Aðaisteinsson — markhæstur í gærkvöld. Aðalsteinsson, Víking og Gunnar Einarsson, Göppingen, sem ekki léku í landsleiknum á sunnudag, stóðu sig prýðilega í leiknum — ákveðnir í að sýna hæfni sína. Þorbergur var markhæstur ís- lenzku leikmannanna í leiknum. Skoraði fimm mörk og Gunnar kom næstur með fjögur mörk. Þorbjörn Guðmundsson og Axel Axelsson skoruðu þrjú mörk hvor — Axel tvö úr vítaköstum. Geir Hallsteinsson og Janus Guðlaugs- son tvö hvor, og þeir Björgvin Björgvinsson, Bjarni Guðmunds- son og Einar Magnússon eitt mark hver. Hjá Refstad var Ingebretsen markhæstur með fimm mörk og Furuseth skoraði fjögur. Stonesreyndi við heimsmet Suleiman Nyambui, Tanzaníu, náði öðrum bezta tíma, sem náðst hefur innanhúss í 2ja milna hiaupi á móti í Los Angeles á laugardag. Hljóp vegalengdina á 8:18.0 mín. Henry Rono, Kenýa, varð annar á 8:18.3 mín. og Nick Rose, Brctlandi, þriðji á 8:20.3 mín. Heimsmetið er 8:13.2 mín. sett af Emile Puttemans, Belgiu, 1973. í míluhlaupi sigraði Thomas Wessinghage, V-Þýzkalandi, Filbert Bay, Tanzaníu, á Ioka- metrunum. Hljóp á 3:59.7 mín. Ba.vi hljóp á 4:00.5 mín. Mike Boit, Kenýa, sigraði í 880 jarda hlaupi á 1:50.5 mín. Landi hans Omwanza hljóp á 1:50.6 mín. Gunther Lohre, V-Þýzkalandi, og heimsmethafinn innanhúss, Mike Tuliy, USA, stukku báðir 5.40 í stangarstökki en Lohre sigraði á færri tilraunum. Dwight Stones, USA, stökk 2.26 m i hástökki en tókst ekki að setja nýtt heimsmet, 2.32 m. Heims- methafinn Greg Joy, Kanada, stökk 2.21 metra. Olympíumeist- arinn í langstökki, Arnie Robinson, stökk 8.01 metra í lang- stökki og Milan Tiff, USA, 16.69 m í þrístökki. Skemmtilegir úrslitaleikir í badminton þeirra ungu Opið unglingamót í badminton var haldið í TBR-húsinu við Gnoðarvog sunnudaginn 22. jan. sl. Keppt var í tvenndar- og tví- liðaleik og voru þátttakendur frá TBR, KR, ÍA, Val og Víkingi. Urslitaleikir voru skemmtilegir og jafnir og margir oddaleikir. Urslit í einstökum flokkum. voru sem hér segir: Tátuflokkur (12 ára og yngri): Karítas Jónsdöttir og Iris Smára- dóttir ÍA unnu Rannveigu Björns- dóttur og Þórdísi K. Bridde TBR, 15-10, 12-15, 15-7. Hnokkar (12 ára og yngri); Arni Þ. Hallgrímsson og Ingólfur Helgason ÍA unnu Þórð Sverris- son og Snorra Ingólfsson TBR, 15-0, 15-0. Hnokkar og tátur tvenndarleikur: Þar unnu Haraldur Sigurðsson og Þórdís Erlingsdóttir TBR, þau Árna Hallgrímsson og Karítas Jónsdóttur tA, 15-10, 15-11. Meyjar (12-14 ára): Þar unnu þær Elín Bjarnadóttir og Elísabet Þórðardóttir TBR þær Drífu Daníelsdóttur og Þórdísi ErlingSdóttur TBR, 9-15, 15-9, 15- 9. Sveinar (12-14 ára): Haukur Birgisson og Tryggvi Ölafsson TBR unnu Þorstein Hængsson og Smára Ríkharðsson TBR 8-15, 15-4, 15-10. Sveinar og meyjar, tvenndarleik- ur: Þorsteinn Hængsson og Mjöll Daníelsdóttir TBR unnu Þórhall Ingason og Ingunni Viðarsdóttur IA 15-8. 15-2. Telpur (14-16 ára): Kristín Magnúsdóttir og Bryndís Hilmarsdóttir TBR unnu þær Örnu Steinsen og Sif Friðleifs- dóttur KR 15-4, 15-0. Drengir (14-16 ára): Þorgeir Jóhannsson TBR og Gunnar Jónatansson Val unnu Skarpheðin Garðarsson og Gústaf Vífilsson TBR 17-18, 15-9, 15-10. Piltar (16-18 ára): Broddi Kristjánsson og Guð- mundur Adolfsson TBR unnu Reyni Guðmundsson og Ágúst Jónsson KR 15-10, 15-0. Piltar og stúlkur, tvenndarleikur: Guðmundur Adolfsíon og Kristín Magnúsdóttir TBR unnu Reyni Guðmundsson og Sif Friðleifs- dóttur KR 15-8, 15-7. McGovérn eftir 10 ár með Clough: „Þekki varla manninn” „Ég er ekkert sérstakt fyrir Clough þó ég hafi leikið fyrir hann í tíu ár. Ég stend ekkert nær Clough nú en er ég var 18 ára. Satt að segja þekki ég varla manninn. En þannig á það að vera. Það er rétta af- staðan milli framkvæmdastjóra og leikmanns." Sá, sem ^nælir þessi orð er John McGovern, hinn 28 ára fyrirliði Nottingham Forest á leikvelli. Hann hefur nær undantekningarlaust leikið undir stjórn Brian Clough, stjóra Forest-liðsins. Fyrst hjá Hartlepool, síðan hjá Derby, Leeds og nú Nottingham Forest. Ferill hans sem knatt- spyrnumanns er óvenjulegur og snjall. Hann var 15 ára, þegar hann lék i fyrsta sinn í knattspyrnu- leik — og þá var hann lítill og grannur. Kennari hans, Henry Smith, sagði við hann: „Mundu eftir orðum mínum, John, knattspyrna er ekki fyrir þig.“ En hún varð — og er það. John McGovern uppgötvaði þegar hann var í heimsókn hjá ömmu sinni, að hann lék betur en drengirnir í nágrenninu — drengir, sem höfðu sparkað og skallað frá því fæturnir gátu borið þá. Hann hætti í skólatil að gerast fyrsti atvinnu- drengurinn hjá Hartlepool — smáborg á austurströnd Eng- lands skammt frá Sunderland og Newcastle. Hjá því félagi var ungur þjálfari, sem var að stíga sín fyrstu spor á því sviði, Brian Clough. Hafði orðið að hætta knattspyrnu ungur á hátindi frægðar sinnar sem miðherji Sunderlands og Eng- lands, en hafði byrjað að leika með Middlesbro. Seldur fyrir stórpening til Sunderland. Brian Clough sýndi strax mik- inn dugnað — gekk á krárnar i bænum til að biðja menn að kóma og sjá leiki Hartlepool. I fyrsta skipti í sögu Hartlepool komst knattspyrnufélag bæjar- ins á blað. Komst upp í 3. deild 1967 en féll strax niður árið eftir. Brian Clough var farinn — farinn til Derby. Það var 1967 og John McGovern fylgdi honum fyrir sjö þúsund sterl- ingspund. Undir stjórn Clough vann Derby sig strax upp í 1. deild — eða 1969 — og 1972 var lið félagsins Englandsmeistari. Don Revie hætti hjá Leeds og gerðist landsliðseinvaldur Eng: lands. Leeds ,,keypti“ Ciough frá Brighton, því áður hafði hann farið frá Derby vegna ágreinings við stjórn félagsins. Þegar Clough kom til Leeds lét hann það verða sitt fyrsta verk að kaupa McGovern frá Derby. En Clough náði ekki strax ár- angri með lið Leeds — og vár rekinn eftir 44 daga. Stjórnar- menn Leeds hljóta síðan að hafa harmað það glapræði sitt. McGovern lék fjóra leiki í aðal- liði Leeds en var ekki valinn í það eftir að Clough fór. „Ég hefði eins getað verið heima og fengið launin send i póstinum. Þetta var hræðilegur tími en sem betur fer tók Clough við Nottingham Forest og keypti mig frá Leeds til Forest.” segir McGovern. Hér? I snjónum Brian Clough til hægri ásamt Peter Tavlor. sem hefur fvlgt honum gegnum árin einsog McGovern. Aðalþjálfari Forest. John McGovern Nottingham Forest. fyrirliði Og eitt af ævintýrum knatt- spyrnunnar hófst í Notting- ham. I fyrra komst félagið upp í 1. deild — varð í þriðja sæti i 2. deild, þegar Iið Bolton hrundi í lokin—og Clough og McGovern voru á ný komnir í 1. deild. Ævintýrið heldur áfram. Forest hefur sex stiga forustu í 1. deild eftir leikina á laugar- dag. John McGovern er aftur á toppnum sem fyrirliði liðsins og maðurinn bakvið hinn snjalla framvarðaleik liðsins ásamt Archie Gemmill, sem Clough kevpti frá Derby. Þeir eru alls staðar á vellinum og mottó Forest er: Sókn er bezta vörnin. „Höldum við velli? Fólk er alltaf að reikna með að eitthvað bresti hjá okkur — en ennþá er ekkert, sem bendir til þess. Við höfum ekki orðið vari við pressu annarra liða. Ef til vill kemur hún, en við höfum leik- menn. sem geta tekizt á við hana." segir McGovern. 21. LEIKVIKA — LEIKIR 21. JANÚAR 1978 VINNINGSRÖÐ: 011 — X21 — 121 — 111 1. VINNINGUR: 10 réttir — kr. 35.000.- 3084 31265 32791 40150(1/10.4/9) 40708(2/10.6/9) 5790 31754 32890 40185(1/10,4/9)+ 40861(1/10,4/9) 30591+ 31840 33860 40360(1/10.4/9) 41147(1/10,4/9) 30800 32693- 32231(1/10,1/9) 40589(1/10.4/9) 41239(1/10.4/9) 2. VINNINGUR: 9 réttir — kr. 1.300.- 2066+ 31003+ 32134+ 33128+ 34155+ 40184(2/9) + 30516+ 31036+ 32914+ 33129+ 34159+ 40223+ • 40779 + 30948+ 31632+ 33100+ 33403+ 34199+ 40744+ 41090(2/9) + Handhafar nafnlausra seðla ( + ) verða að frainvísa stofni eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna f.vrir greiðsludag \inninga. sem er 7. febrúar. Þeir vinningshafar í 2. vjnningi, sem eiga aðra seðlai en hér eru taldir, og ekki hafa fengið vinningin í pósti hinn 1. fehrúar. vinsamiegast hafi samband við skrifstofu Getrauna, sitni 91-85690. Ka'rufrestur er til 13. féhrúar kl. 12 á hádegi. Ka>rur skulu vera skriflegar. Ka'rueyðuhlöð fásl hjá umboös- mönniim og aðalskrifstofunni. Vinningsuppba'ðir í I. vinningi geta hckkað. ef ka'rur verða teknar til grcina. GETRAUMR — íþróttamiðstöðin — REYKJAVÍK

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.