Dagblaðið - 04.04.1978, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 04.04.1978, Blaðsíða 1
4. ÁRG: - ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1978 - 69,TBL. . RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11. - AÐALSÍMI27022. r Árásarflokk- urinn gengur ennlaus: Böröu tennur úr 15 ára pilti „Mál piltanna- eroröiðstór- mál” segir aðstoðaryfir- lögregluþjónn Árásarhópurinn, skipaður fjórum ungum piltum, gengur enn laus í Reykjavík og í gærkvöldi gerði hann árás á 15 ára pilt og lék hann illa. Árásin var gerð rétt fyrir kl. 10 i gærkvöldi á Laugavegi móts við Barónsstíg. Piltarnir fjórir gengu þá í veg fyrir piltinn 15 ára sem var einn á ferð. Börðu þeir hann í andlitið með krepptum hnefum og hlupu á brott. Náðust þeir litlu síðar. Farið var með særða piltinn í slysa- deild og kom i ljós að tönn hafði brotnað og önnur losnað. Sauma varð skurði á innanverðum vörum og pilt- urinn var marinn og bólginn í andliti. „Þetta er sami árásarflokkurinn og gert hefur ótal árásir á fólk í bænum að undanförnu,” sagði Guðmundur Hermannsson aðstoðaryfirlögreglu- þjónn. „Þessir piltar eru hér tíðir gestir, virðast lausir að kvöldi dags þó þeir hafa framið árásir nóttina áður. Um helgar eru þeir fastagestir hér og þá oft fyrir stærri brot, bílaþjófnaði og rúðubrot.” Guðmundur taldi að þennan flokk yrði að stöðva. Fullkomin ástæða væri til að setja þá i geðrannsókn vegna tiðra brota og allir væru þeir orðnir sakhæfir. Guðmundur taldi að fjöldi afbrota þeirra væri orðið „stórmál” eins og hann orðaði það. Skýrslur um afbrot þeirra eru nú sendar rann- sóknarlögreglu ríkisins. - ASt. Rauði krossinn: SETUR UPP FIMMTÍU KR. SPILAKASSA 1 pöntun eru nú nýir spilakassar fyrir Rauða kross íslands, munu þeir gerðir fyrir. 50 kr. peninga. Kassarnir eru' smíðaðir í Englandi eftir finnskri frum- gerð . Enn er ekki vitað hvenær kass- arnir verða tilbúnir. Kassar þessir munu verða settir upp með 10 króna kössunum sem fyrir eru og þeir verða notaðir áfram á meðan 10 króna peningurinn er í gildi. Ekki er enn Ijóst hve mikill fjöldi kassa verður tekinn í notkun, en það fer nokkuð eftir þvi hve vel þeim verður tekið, því þeir verða látnir fjármagna sig að nokkru sjálfir. Tekjum af kössunum verður varið á sama hátt og tekjum af 10 króna kössun- um, þ.e. til deilda Rauða krossins og reksturs hans. Kassarnir hafa verið veru- leg tekjulind fyrir Rauða krossinn, en þegar 10 króna kassarnir voru teknir í notkun í september 1972 var tíkallinn jafnvirði 55 króna nú. Verðbólgan hefur þvi farið illa með þessa tekjulind stofnunarinnar. JH „Útflufningsstopp — þartilþeirræda við okkuríalvöru” — segir varaformaður Verkamannasam- bandsins „Verkamannasambandið mun halda þessu útflutningsbanni áfram þangað til jákvæð viðbrögð fást hjá atvinnurek- endum og alvöru viðræður geta hafizt. Hingað til hafa þeir ekki viljað ræða við okkur i alvöru,” sagði Karl Steinar Guðnason, varaformaður Verkamanna- sambandsins, í morgun. „Þetta er mjög vandasöm aðgerð sem ekki hefur verið reynd fyrr,” sagði Karl Steinar. „Við ætlum að stöðva út- flutning, bæði áls, fisks og búvará, nema hjá þeim atvinnurekendum sem greiða fullar verðbætur. Karl sagði, að nokkr- ir atvinnurekendur í saltfiski greiddu fullar verðbætur. Þá mun innflutningur verða óhindraður, svo og almennt flug. Útflutningsstoppið á að byrja 15. apríl, sem er laugardagur, eða 17. april, mánudag. Engin timamörk verða sett á það. Verkamannafélagið Fram, Seyðis- firði, hefur boðað verkfall frá og með 10. apríl. HH Hvað eru þessir óttalegu grfmuklæddu menn að gera? Jú þeir eru að sprauta hitastokk með grænni málningu. Hvar? I nýju áningarstöð strætisvagna Reykjavikur við Hlemminn. Grein um þá stöð er á bls. 8 — DB-mynd Hörður. Enn slys á Bústaða- vegi Bústaðavegurinn hefur að undan- förnu verið ein mesta slysagildra borgar- innar. 1 gær varð þar enn eitt slysið á mótum Stjörnugrófar. Þar varð ung stúlka fyrir bifreið og slasaðist allnokkuð en þó ekki lífshættulega. Hún viðbeins- brotnaði og fingurbrotnaði, hlaut höfuð- áverka og fleiri meiðsl. Hún er nú í Borgarspítalanum. ASt tæknifræðings komin á götuna Tólf milljón króna bifreið — dýrasta „drossían” á landinu í eigu Kjartans Sveinssonar Þetta er dýrasti bill sem fluttur hefur verið hingað til lands — kostar um 12 milljónir kominn á götuna, eða eins og góða 3 herbergja íbúð. Lystikerra þessi er af gerðinni Lincoln Continental Mark V. Jubilee og er sérstök hátíðarútgáfa Lincoln. Eigandinn er Kjartan Sveinsson tæknifræðingur, sem hefur unnið sér m.a. fyrir þessum bil með því að teikna á að gizka annað hvert hús á SV-horni landsins, auk þess sem hann er eigandi bílaþvottastöðvarinnar Blika. Lincoln Cóntinental Mark V. Jubilee er búinn öllum helztu þægindum sem hægt er að hugs sér í bíl til að skutlast á í vinnuna og heim aftur. Smávægilegt „aukafiff’ framleiðenda er að bjóða öllum kaupendum að fá fangamark sitt skrautmálað á hurðirnar, eins og Kjartan Sveinsson þáði. ÓV/DB-mynd: Bjarnleifur Von að unga fólkið kíki, — venjulegur maður getur i mesta lagi látið sig dreyma um nýjan smábíl fyrir einar tvær milljónir. — DB-mynd Bjarnleifur. i

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.