Dagblaðið - 06.05.1978, Síða 24
Verður nýtt TívoV
stofnad í Reykjavík?
1 borgarstjórn hefur komið fram
tillaga um að kannað verði hvort haegt
sé að koma á fót skemmtigarði i
Reykjavík. Það var Björgvin
Guðmundsson sem bar þessa tillögu
fram á fundi borgarstjórnar hinn 27.
april sl. Hann leggur til að borgar-
stjórn samþykki að fela borgarráði að
kanna möguleikana á því að hrinda
V ...................... ............
slíkri hugmynd í framkvæmd.
„Hvað sem liður bifreiðaeign, húsa-
kosti, sólarlandaferðum og öðrum mis-
munandi sjálfsögðum og eftirsóttum
hlutum tel ég nú fyllilega tímabært að
huga í fullri alvöru að slikum
skemmtigarði i höfuðborginni,” sagði
Björgvin Guðmundsson i viðtali við
DB. Hann taldi eðlilegt að Reykja-
víkurborg ætti frumkvæði að þeirri
könnun. Síðar mætti ræða það, hvort
borgin yrði framkvæmdaaðili og/eða
eignaraðili að meira eða minna leyti.
í þessu sambandi má geta þess að í
einhverjum frægasta skemmtigarði
heims, Tívoli í Kaupmannahöfn, er
rekstur skemmtitækja og veitinga-
aðstaða leigð einkaaðilum.
Ennþá muna margir vel eftir Tívolí-
garðinum sem um nokkurra ára skeið
var rekinn hér i Reykjavik. Hann var
vinsæl tilbreyting í borgarlífinu fyrir
unga og aldna þótt rekstur hans yrði
ekki langærri en raun bar vitni. Nú
verður það rætt hvort rétt þyki að
kanna möguleika á því að koma á fót
nýju Tívoli i Reykjavík. BS
„Fómariömb”
lægöarinnar
Fátt er eins andstyggilegt og að arka móðurinni gott að aka kerrunni í hlað,
heim I vindi, regni, og kulda eins en barnið hefur lítið orðið vart við þetta
og var i gærdag. En heima bíður hlýjan fjárans óveður sem við vorum orðin
og þá verður nýja platan sett á fóninn og næsta óvön.
steikin á pönnuna. Og liklega þykir — DB-myndir R.Th.Sig.
Rannsókn handtökumálsins erhaldið áfram
— Haukur einn í gæzluvarðhaldi
Rannsókn „handtökumálsins” heldur
áfram hjá rannsóknarlögreglu rikisins.
Haukur Guðmundsson fyrrum lög-
reglumaður er enn í gæzluvarðhaldi.
Ekki eru aðrir i gæzluvarðhaldi vegna
þessa máls.
Ekki er DB kunnugt um að neitt
nýtt hafi komið fram í málinu til viðbót-
ar þvi sem áður hefur verið skýrt frá í
fréttum. Það er sannað með játningum
að Haukur Guðmundsson fékk tvær
stúlkur í lið með sér við að leggja gildru
fyrir Guðbjart Pálsson og Karl Guð-
mundsson til þess að hann gæti látið
handtaka Guðbjart og saka hann fyrir
smygl.
Þetta var liður í rannsókn, sem hann,
ásamt Kristjáni Péturssyni, deildarstjóra
i tollgæzlunni á Keflavikurflugvelli, var
að gera á meintum fjármálaumsvifum
Guðbjarts.
Nokkru fyrr en handtakan var hinn 6.
des. 1976 hafði Haukur leitað liðsinnis
stúlku við að leggja einhverja gildu fyrir
Guðbjart. Sú stúlka hætti við öll áform í
þá átt. Hefur hún við rannsókn skýrt frá
þessu.
Haukur Guðmundsson viðurkenndi
þetta ekki fyrr en við samprófun á fram-
burði þeirra beggja. Þá viðurkenndi
hann þessa fyrirætlan sem koma átti
til framkvæmda nokkru fyrr en hand-
takan fór fram með aðstoð huldu-
meyjanna tveggja.
-ÓV/BS.
————^
Greenpeace-samtökin hugsa sér til hreifings:
Rainbow Warrior kemur hingað í júníbyrjun
— fulltrúi samtakanna, AlanThornton, heldurfund hérá landiá mánudag
„Skip okkar, Rainbow Warrior
mun ekki verða sent á hvalveiðimiðin
við ísland fyrr en í júní en við munum
reyna að kynna sjónarmið okkar Is-
lendingum og islenzkum stjórnvöldum
fyrír þann tíma,” sagði Brandes upp-
lýsingafulltrúi Greenpeace-samtak-
anna í London, í viðtali við Dagblaðið
í gær en samtökin efna til blaða-
mannafundar á mánudaginn kemur
um fyrirhugaðar aðgerðir samtakanna
V
til þess að koma í veg fyrir hvalveiðar
hér við land.
„Tala skiðishvala við ísland er alls
ekki vituð og því finnst okkur það
töluvert hættuspil að ákveða svo og
svo stóra kvóta sem leyfilegt á að vera
að veiða,” sagði Brandes ennfremur.
„Við munum því beita öllum ráðum
til þess að hindra veiðar íslenzku hval-
veiðibátanna, nema að islenzk stjórn-
völd gripi i taumana og banni hval-
veiðar við landið”.
Greenpeace-samtökin eru samtök
áhugafólks um verndun hvalastofna i
heimshöfunum og hafa þeir fengið fé
til starfsemi sinnar með frjálsum fram-
lögum einstaklinga um heim allan.
„Við erum með þrjá báta i gangi
núna, tvo notum við til þess að hindra
veiðar Sovétmanna og eru þeir bátar á
Hawaii og i Kanada,” sagði Brandes
ennfremur. „Þriðja bátinn Rainbow
Warrior höfum við svo i Evrópu og
munum beita honum til þess að hindra
veiðar íslendinga ef stjórnvöld vilja
ekki skipta sér af málinu.”
Áhöfn Rainbow Warrior er 22
menn, allir sjálfboðaliðar af níu
þjóðernum. Hefur bátunum verið
beitt þannig, i viðskiptum við hval-
veiðimenn til þessa, að þeim er siglt
milli hvalveiðiskipanna og hvalanna
og auk þess eru bátarnir búnir út-
búnaði, sem fælir hvalina frá.
HP.
frjálst, nháð daghlað
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1978.
„Má ekki bjóða
löggunniþýfi?”
Bjartsýni sumra manna ríður ekki við
einteyming. Þannig var með einn sem
vék sér að tveim einkennisklæddum lög-
regluþjónum á götu úti og bauð þeim til
kaups sitt lítið af hverju, samlagningar-
vél, nælonsokka og hljómplötur. Eitt-
hvað fannst laganna vörðum þeir
kannast við svipinn á kauða og báðu
hann þvi að koma meðsér á stöðina. Við
rannsókn þar reyndist allt það er lög-
regluþjónunum hafði verið boðið þýfi og
var það ekki i fyrsta sinn sem kauði
hafði verið tekinn með slikt. Þvi meiri
þótti mönnum. þess vegna bjartsýnin
en þjófnum var lítið skemmt þegar
hann fékk gistingu í fangaklefa.
-DS.
Hvað á að gera
um helgina?
Boðið upp
á ókeypis
kappreiðar
Hestamannafélagið Fákur býður
öllum sem vilja að horfa ókeypis á kapp-
reiðar sem fram fara á svæði félagsins að
Viðivöllum við Elliðaár i dag klukkan 3.
Þarna fer fram firmakeppni félagsins
og i henni taka þátt um 150 firmu.
Verður því hægt að sjá margan
gæðinginn spretta úr spori. Áhugafólk
um hestasport er allt velkomið án
aðgangseyris.
ASt.
Mjög mikil umfeið
íReykjavíkígær.
Menngómaðir
ívínkaupum
fyrirunglinga
Umferðin um miðbæ Reykjavíkur var
óvenjumikil i gærdag um fimmleytið
enda ein helgi nýliðin og önnur fram-
undan. Að sögn Páls Eirikssonar aðal-
varðstjóra lögreglunnar gekk þó allt að
mestu slysalaust fyrir sig enda voru
allir hans menn á útopnu eins og hann
sagði.
Er nú orðin venja að lögreglan hafi
menn á vakt við vínbúðirnar á hverjum
föstudegi til að gæta að því hverjir
kaupa vín fyrir unglinga undir aldurs-
takmörkum. Sagði Páll að því miður
væri nóg af mönnum, sem gerðu slíkt,
stundum af tómri fáfræði, þvi þeir gerðu
sér ekki grein fyrir að þetta væri brot á
lögum og lægju við því sektir. Fyrir
þetta þyrfti að komast með samvinnu
I blaða og lögreglu.
-DS.
Þóráframí2. deild
Þór á Akureyri hélt sæti sínu í 2. deild
íslandsmótsins i handknattleik, sigraði i
síðari leik sinum gegn Breiðabliki 28-
23 á Akureyri á fimmtudag. Þór vann
siðari leikinn fyrir sunnan, 19—18.
^ Kaupið S
BANKASTRÆTI8