Dagblaðið - 18.05.1978, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 18.05.1978, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1978. Spurning dagsins 3 \ segir að íbúar Fossvogshverfis verði fyrir ónæði af völdum gesta sem heimsækja Bústaði, félagsheimili Bústaöakirkju. Opið bréf til borgarstjóra og borgarstjórnarmeirihluta: SÖLUSKÚR VÍKIFYRIR BÍLASTÆÐUM — Vantar þjónustumiðstöð í austurhluta Fossvogs „Ég undirritaður gat ekki komið þvi við að mæta á fundi sem borgar- stjóri hélt fyrir Fossvogshverfi og þar með missti ég af umræðunum um málefni okkar hér t austanverðu Foss- vogshverfi. Þar ber hæst að losna sem fyrst við söluhúsið sem stendur á lóð Marklands 2 og er engum til þjónustu en stendur á miklu umferðarhorni þar sem Ósland og Bústaðavegur mætast. Þar skapast oft hættuástand þegar margir bílar stöðva þar og oft er þar mikið af börnum sem sækja að svona sölustöðum. Mér skildist á svari borgarstjóra að eitthvert samkomulag hefði verið gert við eiganda skúrsins að hann fengi að reisa hann á lóðinni vegna heilsu- bres'ts, þar sem hann gat ekki stundað algenga vinnu, og tel ég ekki eftir þann greiða, en nú eru forsendurnar fyrir þvi leyfi brotnar þar sem eigandinn er látinn. Það er búið að velta þvi til og frá i borgarstjórn á síðastliðnu kjörtimabili hvert skuli flytja skúrinn. Það er bara ekki fullnægjandi fyrir okkur þar sem við ætlum að hefja framkvæmdir við bifreiðastæði við götuna sem fyrst á þessu ári. Þetta er aðalforsendan fyrir því að skúrinn sé fluttur tafarlaust af lóðinni, svo að hægt sé að byrja á framkvæmdum. Það er fleira sem kemur til hjá okkur sem búum hjá þessum söluskúr. Við verðum fyrir ónæði af völdum fólks, sem cr að slangra i kringum skemmtistaðinn Bústaði á kvöldin. Hermann Ragnar taldi réttilega að hann gæti ekki ráðið utandyra, hann hefði nóg með það sem væri innan- dyra, og tel ég það mjög eðlilegt. Samastaður þessa fólks verður þá skúrinn og umhverfi hans, bæði fyrir og eftir lokun, og er það stundum ófögur sjón að sjá það og heyra, auk ónæðis, sem við höfum af hávaða sem fylgir þessu. Ég mun óska eftir verzlunarmiðstöð í austurhluta Fossvogshverfis sem þjónaði hverfinu á sama hátt og Grimsbær þjónar vesturhluta hverfisins. Þetta gæti verið í athugun á næsta kjörtimabili en svör við þessu vil ég skýr og þar sem þetta þolir enga bið. vænti ég svars strax. Ef það er óframkvæmanlegt, verðum við að snúa okkur til annarra aðila og fá þá til liðveizlu I vanda okkar og verður það ekki sársaukalaust fyrir alla, en hver er sér næstur i þessu máli sem fleiru. Virðingarfyllst, með kveðju og góðri fyrirgreiðslu Magnús Einarsson, Marklandi 2, Reykjavík. Dýravinir— dýravinir— dýravinir— dýravinir— dýravinir— dýravinin Enginn menning- arauki að geltandi hundum Á keyrslu minni um Njarðvík um nokkuð langan tima hefi ég farið margar ferðir um bæði plássin, hitt menn að máli, séð og heyrt í kringum mig. Er ég því nokkuð vel kunnugur þessum málum sem öðrum þar i bæ. Mér finnst það enginn menningar- auki, i vaxandi og kannski finum bæj- ar- og sveitarfélögum, að þegar maður keyrir um helztu umferðargöturnar koma tveir til þrir hundar í einu, snar- ólmir og geltandi utan í bílinn, en svo vill þaðoft vera í Njarðvík. Að sögn blaðanna er þetta svipað viða annars staðar. En sagan er þó BORN EIGA EKKIAÐ HAFA HUNDA OG KETTIFYRIR LEIKFÖNG Vegfarandi í Njarðvík skrifar: Hundavinir — kattavinir o.s.frv. Falleg eru orðin og oft heyrast þau og sjást í fjölmiðlunum. Og mikið eru þeir orðnir margir þessir elskulegu vinir dýranna, ekki vantar það. Svo er það annað mál, hvort dýrin hafa sjálf not- ið þeirrar miklu vináttu sem svokallað- ir eigendur þeirra og elsku vinir eru svo hrifnir af, með sjálfum sér. Það virðist vera mjög í tízku að hafa hunda og ketti og þykir vist afar fínt. Bömin heimta að hafa hund og kött til að leika sér að. Og foreldrarnir segja að bömin þurfi að fá hund og kött og ekki stendur á að uppfylla óskirnar. Mikið er að gera fyrstu dagana. En dýrðin vill oft dofna fljótt og önnur leikföng þykja heppilegri, sem meira er gaman að. En þó er gott að eiga þessi dýr, að nafninu til, og losa sig eins fljótt við þau og mögulegt er. Skiptir þá litlu máli hvert þau flækjast, svöng og köld. Kettirnir eru skriðandi inn í hvern útikofa sem þeir komast í, hund- arnir geltandi og gjammandi utan i fólki og farartækjum, hræða börn og eldra fólk sem ekkert veit hvaðan þessi dýr koma eða hvenær þau bita. ekki öll. Það eru til fleiri tegundir af dýravináttu inni en hér hafa verið nefndar. Við hús eitt er stendur hjá annarri mestu umferðargötunni í Innri-Njarðvik, þar sem ég keyri oft fram hjá, eru tveir hundar við hús- hornið. bundnir hvor i sitt band, ca 8—10 metra langt. Þegar bílar og fólk fer framhjá hlaupa þeir geltandi með miklum látum i áttina að þeim sem um götuna fer og hamast fastir I böndun- um. Ég hefi sérstaxlega nú á þessum ný- liðna vetri, þegar ég hefi farið þar framhjá, fylgzt með þessum vesalings dýrum sem þar hafa verið bundin úti i öllum veðrum frá morgni og langt fram á kvöld. Þar hafa hundakvalirnar staðið bundnar i snjónum, á klakan- um, í aurbleytunni. Mér hefur oft á tíðum legið nærri að stanza bilinn minn, fara út, skera á böndin og taka þessa húshornahunda með mér og láta þá hverfa fyrir fullt og allt, frá þeirri dýravináttu sem þeir hafa langtimum búið við. Þarna á litlum bletti við húsið leggja hundarnir frá sér saur og þvag, mánuð eftir mánuð. Mér hefur verið tjáð, að nokkur börn eigi heima í þessu húsi. Hefi ég oft á minum ferðum séð börn á svæði hundanna. Það rpá nærri geta hvers konar þrifnaður það er. Og ef svo væri að hundarnir hafi ekki verið hreinsaðir, sem jafnvel má reikna með, þarf ekki að lýsa nánar hvaða hollustu og hreinlæti er þar um að ræða. Fólk verður fyrir ágangi hundanna Fólk sem erindi hefur átt að þessu húsi hefur sagt frá því að það hafi orð- ið fyrir ágangi hundanna, án þess þó að þeir hafi skaðað það. Og þeir sem ekki kæra sig um hundavaðal á sig hafa orðið frá að hverfa. Það sem hér hefur verið sagt er sýn- ishorn af þeirri svokölluðu dýravin- áttu sem vaðið hefur uppi nú á síðustu og verstu timum. En sem betur fer eiga þar ekki allir hluta að máli. Þeir eru margir sem fara vel með sin hús- dýr og láta ekki aðra verða fyrir ágangi né óþrifum frá þeim. Sagt er að lög og reglur séu til um , hundahald í Njarðvíkurbæ og maður sé ráðinn þar til að sjá um að þær regl- ur séu haldnar. Hvarer hann? Hvarer ’ dýraverndunarfélag Njarðvikurbæjar? Hvar eru heilbrigðiseftirlit og heil- brigðisnefnd Njarðvikur? Væri ekki gott aðgera eitthvað til úrbótar?" Hundurinn er bezti vinur manns- ins og getur ekki án mannsins ver- ið. En eins og brcfritari bendir réttilega á er það eitt að eiga hund ekki nög til þess aö vera „dýravin- ur”. DB—mynd Björgvin. Hvaða prúði leikari finnst þér skemmti- legastur? (Spurt á Barnaheimilinu við Tjarnar- eötu). Sigga Ásta Árnadóttir, 3 ára: Loðni karlinn, hann er langskemmtilegastur. Sástu þegar hann kom og blés í einn. það var langskemmtilegast. Henning, 3 ára: Piggy er lang- skemmtilegust, hún er svo vitlaus. Svo cr hún lika svakalega fcit. Ragnheiður B. Árnadóttir, 4 ára: Froskurinn finnst mér skemmtilegastur. Hann er líka svakalega sætur og svo talar hann alltaf langmest. Hilmar Guðmundsson, S ára: Skemmtilegastur er tröllið. Hann étur alltaf alla hina prúðu leikarana. Kristin M. Ágústsdóttir, S ára: Froskurinn, hann er svo svakalega skemmtilegur, hann er lika svolitið sætur. Hann hefur aldrei frið fyrir hin- um. þeir eru alltaf að hrekkja hann. Helga Vala Helgadóttir, 6 ára: Kermit. hann er svo skemmtilegur og skritinn. Svo gerir hann alltaf svona 0g svona og svo fer hann stundum i fýlu. V

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.