Dagblaðið - 18.05.1978, Qupperneq 4
4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 18. MAt 1978.
SKOTHRIb Á BÍLALEIGU-
BÍLA A HÁLENDINU
Kvikmyndatökumenn BBC undirbúa
nú af kappi gerð myndarinnar „Út í
óvissuna”, sem kvikmynduð verður á
tslandi i sumar. Myndin er gerð eftir
sögu rithöfundarins Desmond Bagley.
Undirbúningurinn felst m.a. í því að
BBC hefur leigt 10—15 bíla hjá Bila-
leigu Akureyrar og fengið bifvélavirkja
þaðan að auki til að gera við fyrir-
hugaðar byssukúluskemmdir á bílunum.
en talsverð skothrið er i sögunni.
BBC hefur sérstaklega óskað eftir þvi
við bilaleiguna, að nokkrar framrúður
fylgi nýjum Opel, sem notaður verður.
Þá hefur BBC einnig óskað eftir sér-
staklega lengdum Land-Rover með
talstöð og kæliskáp, en í sögunni segir
frá því er söguhetjan fær sér kaldan bjór
úr skápnum á Sprengisandi miðjum, að
þvi er Akureyrarblaðið Dagur hefur eftir
forstjóra Bilaleigu Akureyrar.
NÝKOMIÐ:
Ódýrir sumarkjólar.
Verð aðeins kr. 7.900.00
ELIZUBÚÐIN
Skipholti 5.
GARÐABÆR
Kennarar
Vegna fjölgunar nemenda og breytinga eru
lausar til umsóknar við Flataskóla Garðabæ
stöður almennra kennara, handmennta-
(pilta), tónmennta-, líffræði-, teikni-, dönsku-
og hjálparkennara.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð í skól-
anum, hjá skólastjóra og yfirkennara í síma:
42756.
Skólastjóri
Dagblaðið vantar umboðsmann í
Hveragerði
frá 1. júní. Upplýsingar hjá Sigríði Kristjáns-
dóttur í síma 99-4491 og afgreiðslunni í síma
91-22078.
WMBIXDIB
„Út í óvissuna” verður framhalds- fyrir að gerð þáttanna Ijúki í vetrar- fengnir í myndina og leikur stærsta hlut-
myndaflokkur hjá BBC og er gert ráð byrjun. Nokkrir islenzkir leikarar verða verkið Ragnheiður Steindórsdóttir.-ÓV.
Félagísl. stórkaupmanna 50 ára:
„Haf tastef nan engum f hag”
— segja stórkaupmenn
Félag islenzkra stórkaupmanna er
hálfrar aldar gamalt um þessar
mundir. Það var stofnað 21. maí 1928.
í tilefni af því var boðað til blaða-
mannafundar sl. miðvikudag þar sem
núverandi formaður FÍS, Jón
Magnússon, kynnti starfsemi félagsins
og rakti stuttlega sögu þess.
Jón Magnússon sagði að félagið
minntist afmælisins með ýmsum
hætti. Það gefur m.a. út veglegt af-
mælisrit og efnir til hátiðarfundar á
Hótel Loftleiðum á afmælisdaginn.
Þar mun Gunnar Tómasson hag-
fræöingur flytja erindi um islenzk
efnahagsmál og svara fyrirspurnum
frá fundarmönnum. Um kvöldið
verður afmælishóf á Hótel Sögu.
í Félagi islenzkra stórkaupmanna
eru um 200 fyrirtæki, flest þeirra i
Reykjavik, Hafnarfirði og Kópavogi.
Einnig eru nokkrir meðlimir á Akur-
eyri, ísafirði og Vestmannaeyjum. Á
vegum félagsins er rekin skrifstofa sem
veitir félagsmönnum ýmsa þjónustu.
FÍS gætir hagsmuna félaga i gjald-
þrotamálum og veitir upplýsingar um
lánstraust fyrirtækja. Innan félagsins
starfar sérstakur lánasjóður, Fjár-
festingarsjóður stórkaupmanna, og er
um helmingur félaga meðlimur í
sjóðnum og hefur lánastarfsemi hans
farið mjög vaxandi á undanfömum
árum.
Stórkaupmenn lögðu áherzlu á
nauðsyn þess að verzlun væri frjáls á
íslandi og töldu haftastefnu i
verzlunarmálum engum i hag. Þeir
sögðu að krafan um frjálsa verzlun
væri ekkert einkamál kaupmanna og
heildsala heldur hagsmunamái allra
islenzkra neytenda. G M
„»*****"
Dr. Freilikh prófessor ásamt túlki sínum, Ingibjörgu llaraldsdóttur, við veggspjald tilhevrandi kvikmynd Eisenstcins, Októ-
ber. DB—mynd: Bjarnleifur.
MÍR SÝNIR TEIKNINGAR OG
KVIKMYNDIR EISENSTEINS
— þar á meðal tvær myndir sem ekki hafa verið sýndar héráður
Félagið Menningartengsl íslands og
Ráðstjórnarríkjanna gengst á næstunni
fyrir sýningum og fyrirlestrarhaldi um
sovézka kvikmyndagerðarmanninn
Sergei Eisenstein. Af þvi tilefni er kom-
inn hingað til lands dr. Semjon Israilev-
itsj Freilikh þrautmenntaður fræðimað-
ur á sviði kvikmyndagerðar og -sögu.
Hann heldur fyrirlestur í kvöld i húsa-
kynnum MÍR að Laugavegi 178 og ræð-
ir um sovézka kvikmyndagerð frá upp-
hafi til vorra daga.
1 janúar síðastliðnum voru liðin átta-
tíu ár frá fæðingu Sergei Eisenstein.
MÍR efndi þá til sýninga á nokkrum
kvikmyndum hans og hafði jafnframt á
prjónunum að sýna teikningar Eisen-
steins og ýmiss konar efni um ævi hans
og störf. Af því gat þó ekki orðið fyrr en
nú vegna þess, hve þetta sýningarefni er
vinsælt og af þeim sökum erfitt að fá það
til landsins.
Á laugardaginn kemur verður sýnd i
Laugarásbíói kvikmyndin Verkfall. Hún
er fyrsta myndin, sem Eisenstein lauk
við, frumsýnd i janúar 1925. Ekki er vit-
að til þess að Verkfall hafi áður verið
sýnt hér á landi, né heldur myndin Gam-
alt og nýtt frá árinu 1929. Sú kvikmynd
verður sýnd að Laugavegi 178 auk fleiri
kvikmynda eftir Eisenstein. Þar verður
sýningunni á teikningum meistarans
jafnframt komið fyrir.
Flestar teikningarnar, sem sýndar
verða, eru eftirmyndir af frumdrögum
Eisensteins. Dr. Freilikh hafði þó með
sér nokkrar frumteikningar, sem verða
sýndar á laugardag, sunnudag og mánu-
dag. Eisenstein var afkastamikill teikn-
ari og liggja eftir hann um þrjú þúsund'
myndir frá ýmsum timum.
Dr. Semjon Ísrailevitsj Freilikh próf-
essor er hámenntaður á sviði kvik-
myndalistarinnar. Út hafa komið eftir
hann margar bækur um kvikmyndir og
hann hefur skrifað nokkur kvikmynda-
handrit. Hann er doktor í listfræði og
hefur lokið prófum í sagnfræði, heim-
speki og bókmenntum.
—ÁT—
Kef lavíkurganga 10. júní nk.:
„Þjóðin hefur aldrei
verið spuið sérstaklega..."
„Það er sérstaklega mikilvægt nú þeg-
ar kosningar eru í vændum, enda hefur
þjóðin aldrei verið spurð um þetta mál
sérstaklega,” segir i tilkynningu frá Sam-
tökum hernámsandstæðinga, þar sem
landsmenn eru hvattir til þess aö taka
þátt i Keflavikurgöngu sem samtökin
efna til laugardaginn 10. júní nk.
Gengið verður frá hliðum her-
stöðvarinnar á Keflavikurflugvelli og
sem leið liggur um Hafnarfjörð og
Kópavog til Reykjavikur. Áð verður
nokkrum sinnum á leiðinni og efnt til
útifunda.
Göngunni lýkur á hefðbundinn hátt
með útifundi á Lækjartorgi.
-HP.