Dagblaðið - 18.05.1978, Page 11

Dagblaðið - 18.05.1978, Page 11
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 18.MAÍ 1978. umsjón með tilraunum þessum telja ekki ólíklegt að munurinn á árangri nemenda eigi eftir að verða enn meiri þegar lengra er komið á námsbraut- inni. Vasatölvurnar hafa sérstaklega komið þeim nemendum að gagni sem vinna hægar eða eru seinni að hugsa en aðrir félagar þeirra. Hingað til hafa þeir oft á tiðum gefizt upp vegna þess að þeir hafa ekki getað fylgzt með en nú hafa þeir skyndilega uppgötvað að þeir geta leyst dæmin á nærri jafn- skjótum tíma og hinir betur gefnu. Reynslan virðist sýna að þá gefist þeim betri tími til að læra reikningsað- ferðirnar sjálfar sem alltaf verður að læra þrátt fyrir vasatölvurnar í hvers mannseigu. Sumir sérfræðinganna taka svo djúpt i árinni að jafna vasatölvunum við tannréttingaspennur eða gleraugu og þeir benda á að engum mundi detta i hug að taka gleraugu af neinum sem þeirra þarfnast. Sérstaklega er bent á að vasatölv- urnar séu ekki tæki sem leysi allan vanda við reikningskennslu en geti ef vel tekst til verið ómetanlegt hjálpar- tæki. Kennarinn verði að taka ákvörðun um hvort hann ætlar að not- færa sér kosti hennar. Ef hann er hik- andi í afstöðu sinni til hennar þá sé eins gott að sleppa notkun hennar alveg. r UM BÆJARMAL HAFNARFJARÐAR Dagblaðið kynnir 12. maí sl. fram- boðin í Hafnarfirði við bæjarstjórnar- kosningarnar 28. mai nk. 1 inngangs- orðum frá blaðinu er rangt og villandi sagtfráforsögu bæjarmálanna, þegar i blaðið er skrifað eftirfarandi: „Sjálf- stæðismenn hafa ráðið bæjarmálum I Hafnarfirði I að minnsta kosti tvo ára- tugi með fimm bæjarfulltrúa og lengi fjóra. Stjórna þeir nú I samráði við óháða borgara...” , Hér hlýtur viðkomandi blaðamaSur að hafa fengið rangar upplýsingar, því að ekki hvarflar að mér að halda því fram, að hér sé hið „frjálsa og óháða” dagblað vísvitandi að mikla ranglega hkit þeirra sjálfstæðismanna og um leið lítillækka aðra, sem tekið hafa þátt í meirihlutasamstarfi um stjórn á málefnum Hafnarfjarðarbæjar um- rætt tímabil. Að þessu gefna tilefni kemst ég því ekki hjá sem formaður Félags óháðra borgara að biðja Dagblaðið að birta eftirfarandi staðreyndir varðandi þetta . mál: Það var árið 1962, sem sjálfstæðis- menn í fyrsta sinni fengu aðild að meirihlutasamstarfi í Hafnarfirði, fyrst á þvi kjörtímabili með Fram- sóknarflokknum, en siðan Alþýðu- flokknum. Árið 1966 verða síðan þau þáttaskil í bæjarmálum Hafnarfjarðar, að stofnuð eru sérstök bæjarmálasamtök, Félag óháðra borgara, sem þá við bæjarstjórnarkosningar hlutu þrjá bæjarfulltrúa eða jafnmarga og Sjálf- stæðisflokkurinn. Tókst siðan sam- starf á jafnræðisgrundvelli 1966— 1970 milli óháðra borgara og sjálf- stæðismanna, og hófst á þessum árum sú blómlega endurreisn á sviði fjár- mála og framkvæmda, sem síðan hefir verið i Hafnarfirði. Á kjörtímabilinu 1970—1974 er Sjálfstæðisflokkurinn utan við meiri- hlutasamstarf, sem þá var myndað af Félagi óháðra borgara, Alþýðuflokkn- um og Framsóknarflokknum. Á yfirstandandi kjörtimabili hefir svo aftur verið samstarf milli óháðra borgara og sjálfstæðismanna, og gengið vel með gifturíkum árangri fyrir bæjarfélagið. Ef hægt er þvi að tala um, að einn flokkur umfram aðra hafi ráðið eða mótað störf og stefnu bæjarstjórnar Hafnarfjarðar undanfarin tólf ár, geta óháðir borgarar ekkert siður eða jafn- vel frekar en sjálfstæðismenn eignað sér forustuna, að minnsta kosti þegar á það er litið að aðild óháðra borgara hefir verið óslitin að meirihlutasam- starfi þessi þrjú kjörtímabil, en ekki hja þeim sjálfstæðismönnum. En að sjálfsögðu er það hvorki sanngjarnt né rétt að eigna einum allt. Kjallarinn Árni Gunnlaugsson sem vel hefir tekist með þá farsælu og jákvæðu þróun mála, sem orðið hefir í Hafnarfirði á þessu tólf ára tímabili. Þar hefir komið til góð samvinna við- komandi samstarfsaðilja, sem leitast hafa við að virða hvor annars sjónar mið. Það er þvi leitt. þegar ónákvæmni i blaðamennsku eins og sú, sem hér hefir orðið að gera athugasemdir við kynni að villa um fyrir fólki. Að öðru leyti ætla ég mér ekki að gera bæjarmál Hafnarfjarðar að frek- ara umtalsefni á jjessum vettvangi. Þó hvet ég fólk til að kynna sér árangur- inn af þeirri merku tilraun, sem gerð var i Hafnarfirði árið 1966 með stofn- un Félags óháðra borgara, félags- skapar sem eingöngu helgar sig bæjar- málefnum. Vonandi verða í framtiðinni víðar á landinu stofnuð slík samtök til starfa á vettvangi sveitarstjórnarmála, með öllu óháð landsmálafiokkunum, sam- tök fólks, sem hefur það meginmark- mið að vinna að velferðarmálum sveitarfélaganna og þegna þess á sem ábyrgastan og heiðarlegastan hátt. Sá skyldleiki virðist mér vera með stefnu Dagblaðsins og okkar óháðra borgara i Hafnarfirði, að við viljum virða og vernda rétt borgarans til að vera „frjáls og óháður", við berjumst fyrir „félagslegu réttlæti og gegn stjórnmálaspillingu”, gagnrýnum það. sem miður fer í þjóðfélaginu, látum ekki fiokksfjötrana hefta frjálsa hugsun, en þjónum sannleikanum i einuogöllu. Ég harma þvi, að umrætt slys skyldi verða i fréttamennsku Dagblaðsins og vona að slikt endurtaki sig ekki. Árni Gunnlaugsson. einstaklings er að hafa nægan mat til þess að framfieyta lífinu. En til þess að íslendingar geti orðið forystuþjóð á þessu sviði verða þeir að hafa einurð til þess að reka þennan einfalda og sanngjarna siðaboðskap og hafa betri skipulagningu á nýtingu allra hinna margvíslegu fiskistofna, sem fáanlegir eru hér við land. í stuttu máli verðum við að forðast að hafa okkur eins og naut í moldarfiagi í þessum efnum, en svo virðist ennþá vera reyndin, ef dæma má af forsiðufrétt í Dag- blaðinu 6. mai sl„ en þar segir m.a.: „að spærlingsbátar hefðu fengið trollin full og hálffull af sild. Þessum afla hefði verið fleygt aftur i sjóinn, en þá var mestur hluti sildarinnar dauðvona og engum til gagns. aðeins til tjóns fyrir sildarstofninn." Ég hefði þvi ekki þurfl að fara 30 ár aftur i timann til þess að finna dæmi um það, hvernig við eigum ekki að haga okkur i þessum efnum, og greinilega eru ennþá einhverjir við sama heygarðs- hornið. Þessu verður að linna. Meira um sjávarútveg Einn er sá þáttur i sjávarútvegi íslendinga, ef upplýsingar stjórnvalda eru réttar, sem löngum hefur þótt vera til fyrirmyndar, og lengi vel var hann sá eini, sem ekki þurfti á hinu ofþróaða styrkjakerfi landsmanna að halda. Ég á að sjálfsögðu við hval- veiðarnar, sem eftir öllum sólar- merkjum að dæma eru sú grein sjávar- útvegs, sem hefur verið stunduð af hvað mestri skynsemi, svo sem flestum er kunnugt. En er hægt að stunda hvalveiðar með ennþá betri árangri en gert hefur verið og nýta hvalafurðir betur? Svarið við þessum spurningum er örugglega jákvætt og skal það nú rökstutt. Árið 1956 veiddu Ameríkanar fyrstir lifandi hval, sem settur var i dýragarð. Siðan hefur sú flókna tækni, sem nauðsynleg er, þróazt smám saman og vitsmunir háhyrninga og kynni manna af þeim hafa leitt til þess, að þessi dýr eru eftirsótt i dýragarða um allan heim. Slík veiði hér við land hefur verið stunduð í litlum mæli með aðstoð útlendinga, en talið er, að veiði- tækni, sem íslendingar ráða yfir, sé ein sú þróaðasta, sem völ er á. Má því vissulega nýta þessa þekkingu og tækni í vissum, takmörkuðum mæli og hafa af henni nokkrar árvissar tekjur. Þessar veiðar koma aldrei til með að hafa mikil bein áhrif á hag rikissjóðs, en hér er um að ræða merkilega hug- mynd, sem hrint hefur verið í fram- kvæmd, og slikar veiðar vekja verð- skuldaða forvitni margra, sem lika getur verið æskilegt, þar eð fieira er verðmæti en peningar. Hitt atriðið er að nýta miklu betur en nú er gert ýmis úrgangsefni hvala og annarra sjávar- dýra, en þau innihalda ýmis gagnleg og verðmæt efni, sem nú er fleygt eins og svo mörgu öðru i sjávarútvegi og landbúnaði, sem kallað er einu nafni „úrgangur". Þennan „úrgang” má nýta og gera að verðmætri vöru á ýmsan hátt, svo sem til lifefna- og lyfjaframleiðslu. Sem dæmi um þaðer, að Danir hafa nýlega gert samning við Bandarikjamenn um að selja þeim insúlin fyrirsamtals 1 milljarð danskra króna á næstu 10 árum, en insúlin vinna Danir úr „úrgangi" (brisi) sláturdýra. Skylt er að geta þess, að Danir eru engir aukvisar i insúlinfram- leiðslu, enda hafa þeir lagt kapp á hana siðan um 1920. En þetta er gott dæmi um það á hvern hátt gera má „verðlausan úrgang” að verðmætri og gagnlegri vöru. ef þekking og vit er til staðar. En þvi miður höfum við íslendingar ekki átt okkar H. C. örsted (1777-1851), en þessi mikli vit- og visindamaður kenndi Dönum, að það væri hluti af fullkomleika visinda að vera þjóðfélaginu gagnleg. Fiskirækt Frá alda öðli höfum við gert ráð fyrir árvissum göngum nytjafisks á miðin við landið og höfum við því ekki þurft aðsjá um ræktun hans. En veiði- tækni okkar hefur orðið svo háþróuð á síðustu áratugum og notkun hennar svo hömlulaus, að mikil hætta er á, að til vandræða horfi. ef ekki verður að gert. Haldi svo áfram, sem horfir. er hætt við, að íslendingar verði að hefja fiskirækt i stórum stil. Slík ræktun nytjafiska er framandi atvinnugrein hér á landi, enda þótt rannsóknir á ræktun vissra tegunda hafi verið nokkrar. Ekki virðist vera seinna vænna að færa út kviarnar og efla þessar rannsóknir verulega og hefja síðan fiskirækt, ef niðurstöður rann- sókna verða hagstæðar. Fóður til slikrar ræktunar þarf að vera mjög gott, sérstaklega i upphafi. og trúlegt er, að hægt sé að framleiða slikt fiska- fóður úr „úrgangi", sem nú er ekki Kjallarinn ViUijálmur G. SHúlason nýttur. Þá er vitað, að minnsta kosti i sumum tilvikum er vaxtarhraði meiri og nýting fóðurs betri eftir þvi sem hitastig er hærra að vissu marki. Til þess að rækta fiskinn við sem hag- stæðast hitastig væri hægt að nota jarövarmann. Verði fiskirækt i stórum stíl hagkvæm, er trúlega hægt að minnka þær sveiflur i afiabrögðum, sem svo mörgum hafa reynzt óhag- stæðar, og afia betra og jafnara hrá- efnis fyrir fiskvinnslustöðvarnar. Járnbræðsla, sem nýtir úrgangsefni Nokkur ár eru siðan byrjað var að ræða um járnbræðslu hér á landi. sem nýtti það úrgangsjárn, er til fellur, og framleiddi úr þvi steypustyrktarjárn. Þær athuganir, sem gerðar hafa verið á rekstrarhagkvæmni og arðsemi slíks fyrirtækis. hafa allar verið á einn veg, eftir þvi sem ég bezt veit. Verður þvi ekki séð annað en að hér sé hægt að slá tvær flugur i einu höggi með því að nota þá mengun, sem úrgangsjárn er. og breyta þvi i nýtanlegt byggingar- efni i stað þess að fiytja það inn er lendis frá. Ég get ekki betur séð en slík fyrirtæki bjóði upp á þá hringrás, sem er hin raunverulega lausn á öllum mengunarvandamálum, en játað skal, að ekki er auðvelt að beita henni alls staðar. En hér er tækifæri til þess að leysa mengunarvandamál, sem trúlega á eftir að valda okkur vaxandi erfið- leikum. á mjög hagkvæman hátt. Til þess að útskýra þessa hringrás nánar skal tekið annað dæmi. Þegar lífrænt efni brennur notast súrefni, sem gengur í samband við það og myndar koltvisýring. Koltvisýringur getur því orðið mengun þar, sem mikill bruni fer fram. Þessa mengun er hægt að nýta með því að rækta jurtir, sem hafa blaðgrænu, en þær nota koltvisýring og mynda lífrænt efni (t.d. tré) og súrefni, sem er öllum æðri lifverum lifsnauðsynlegt. Stórkostlegri hringrás er ekki hægt að hugsa sér. Slík járn bræðsla, sem áður er nefnd, mundi nota töluvert af raforku og gæti hugsanlega greitt hana hagstæðara verði en sá erlendi stóriðnaður, er hér hefur náð að festa rætur. í sambandi við orkuframleiðslu ættu íslendingar aldrei aftur að láta blekkja sig til þess að reisa stórvirkj- anir að mestu leyti fyrir útlendinga á þeirri fölsku forsendu, að kjarnorka muni gera vatnsvirkjanir úreltar og ekki eins hagkvæmar i rekstri. Þessi staðhæfing er ekki einu sinni rétt fyrir svokölluð kjarnorkuveldi, hvað þá íslendinga, sem um alla framtið geta virkjað þær orkulindir, sem hér finnast bæði i fallvötnum og í formi jarðvarma, til hagsbóta fyrir núver andi ibúa landsins og fyrir komandi Rynslóðir. Lyfjaiðnaður Þó að hagvöxtur og fjárhagsleg vel- megun sé mikils virði. geta þó allir verið sammála um. að andlcg og likamleg heilbrigði sé forsenda fyrir þvi, sem öllum hagvexti er mikil- vægara, sem sé lifshamingju. Að minu viti eru allar fyrirbvggjandi aðgerðir í viðasta skilningi og heilsuvernd sá þáttur. sem leggja ber höfuðáherzlu á. En vitað er. að einkum á siðustu ára tugum hefur þáttur lyfja í allri heil brigðisþjónustu vaxið verulega og á örugglega eftir að aukast. enda er hægt að ná glæsilegum árangri með réttri notkun lyfja. En þvi miður er einnig hægt að valda miklu heilsutjóni með þeim, ef þau eru misnotuð. en hvorki er staður né stund til þess að fara nánar út i þá sálma. Þau lyf, sem notuð eru hér á landi, eru að langmestu leyti innfiutt sem svokölluð sérlyf, en innfiutningsverð- mæti lyfja- og lækningavara á árinu 1977 var um 1300 milljónir króna. Nú er að visu litið eitt af lyfjum framleitt innanlands, en þátt innlendrar lyfja- framleiðslu þarf að stórauka og er óhjákvæmilegt að hefjast nú þegar handa. Að visu þarf að nota erlend hráefni til framleiðslunnar, en þau eru öll fáanleg á frjálsum markaði og verð- mætaaukning við að breyta hráefninu i nothæf lyfjaform er mikil. Þekking til þessarar framleiðslu er fyrir hendi innanlands og með þvi að auka hlut innlendrar lyfjaframleiðslu má spara mikinn erlendan gjaldeyri, veita lyfjafræðingum og aðstoðarfólki þeirra aukið atvinnuöryggi og lækka lyfjaverð að mun. Mjög margt, sem of langt mál yrði að tiunda hér, bendir til. að lyfjaiðnaður myndi henta islenzkum aðstæðum einstaklega vel. Hann sómir sér þvi vel með öðrum þáttum, sem renna myndu styrkum stoðum undir þjóðholla stefnu i atvinnumálum. Vilhjálmur Skulason prófessor

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.