Dagblaðið - 18.05.1978, Side 24
<
Stof nfundur leigjendasamtakanna í kvöld:
Löggjöf sem kemur f
veg fyrir spákaup-
mennsku lóða og íbúða
— er meðal þess sem væntanlegt leigjendafélag vill beita sér fyrir
Stofnfundur samtaka leigjenda
verður í Alþýðuhúskjallaranum við
Hverfisgötu í Rvík í kvöld kl. 20.00.
Á fundinum verður skýrt frá
störfum undirbúningsnefndar stofn-
fundar leigjendasamtakanna, gerð
grein fyrir hugmyndum nefndarinnar
um fjármál samtakanna, gerð grein
fyrir starfi starfshópa sem myndaðir
voru á undirbúningsstofnfundi og sett
lög fyrir félagið.
Uppkast að lögum hefur verið
samið og verður lagt fyrir stofnfund-
inn i kvöld. Þar kemur fram að mark-
mið fólagsins er m.a. að vinna að lausn
húsnæðisvanda leigjenda. gæta hags-
muna þeirra i hvívetna, vinna að
skipulagðri uppbyggingu leigu-
húsnæðis og vinna að bættum
aðbúnaði leigjenda og almennum
framförum hvað varðar umhverfis-
mál þéttbýlis. Félagið vill einnig beita
sér fyrir setningu löggjafar sem
„tryggi rétt leigjenda gagnvart leigu-
sölum og komi i veg fyrir spákaup-
mennsku lóða og ibúða,” eins og segir
í uppkastinu.
Félagið hyggst ná takmarki sinu
m.a. með ráðgjafa- og upplýsinga-
starfi, útgáfu blaða og rita, funda-
höldum og þátttöku í opinberri
umræðu um húsnæðismál, sérstaklega
innan verkalýðsfélaganna og i sam-
starfi við þau. Félagið skal hafa sem
nánasta samvinnu við verkalýðssam-
tökin, segir einnig í lagauppkastinu. ÓV.
FERMINGARVEIZLAISVO TIL HVERJU HUSI
...og þarna er fermingarbörnum óskað til hamingju. — DB-myndir Magnús Skúlason.
— skrúðhús Eyrar-
bakkakirkju allt of
b'tiðþegarl9börn
voru fermd
Prósessían gekk sem leið liggur austur
Búðastíg frá samkomuhúsinu að kirkj-
unni.
Fyrir nokkru siðan voru 19 börn
fermd i Eyrarbakkakirkju og muna
menn vart að fleiri börn hafi vcrið l’ermd
þar i einu. Vegna þess hve skrúðhúsið
við kirkjuna er litið urðu börnin að
skrýðast kyrtlum sínum i samkomuhús
inu. Þaðan gengu þau svo fylktu liði til
kirkju ásamt presti og meðhjálpara og
var krossmark borið fyrir göngunni. i
kirkjunni var nánast hvert sæti skipað
og i sumum bekkjum var þröngt setið.
Athöfnin stóð i nærri tvær klukku-
stundir og var hún öll hin hátíðlegasta
og framkoma fermingarbarnanna þeim
til mikils sóma. Að guðsþjónustu lokinni
hélt hver til sins heima þar sem kaffið og
terturnar biðu og má segja að ferm-
ingarveizla hafi verið íh.u.b.öðru hverju
húsi á Bakkanum þennan sunnudag.
Veður var með bezta móti á Eyrar-
bakka, sólskin og 10 stiga hiti, þannig að
allt varð til þess að gera fermingarbörn-
unum daginn eftirminnilegan. Sóknar-
prestur á Eyrarbakka er sr. Valgeir Ást-
ráðsson.
MK
Skákmótiðí
LasPalmas:
Tæknilegur
möguleiki
á sigri
Friðriks
í mótinu
Friðrik Ólafsson fékk frestað skákinm
. við Sanz, sem tefla átti í 14. umferð
skákmótsins i Las Palmas. Það var háls-
bólga. sem bagaði Friðrik. Hann gerði
sér þó vonir um að geta teflt við Sanz i
dag, sem annars er fridagur keppenda.
Tukmakov sigraði Larsen igær. Hann
er þvi efstur með 10 1/2 vinning, þegar
ein skák er ótefld hjá honum og Sax.
Staðan hjá öðrum er þessi: Stean 9 v„
Sax hefur 8 1/2 v. og biðskák við Pan-
chenko. 'Mariotti. Miles og Vesterinen
hafa 8 1/2 v. Csom er með 7 v. og bið-
skák viðCorral.
Friðrik er enn með 9 v. og óteflda
skák við Sanz. Siðasta umferðin í mót-
inu verður tefld á morgun. Þá teflir Frið-
rik við Larsen.
- BS
Laugardalslaugarnar
opna aftura
Laugardalslaugarnar verða komnar I
sumarbúning, þegar þær opna aftur á
laugardaginn eftir viðhald og lagfær-
ingu.
Um 600 þúsund manns sækja þessar
laugar á ári hverju. Nærri má geta að
þetta ánægjulega álág veldur eðlilegu
sliti á ýmsum hlutum og tækjum. Gott
laugardag
veður þarf til þess að hægt sé að vinna
að viðhaldinu utan húss. Þegar sólin
skin eru laugar mest sóttar.
Laugarleysið er léttbært, þegar allir
vita að verið er að gera laugarnar betri
með nauðsynlegu viðhaldi. Það fer vel á
þvi að opna þær aftur þann dag sem fara
skal til laugaraðfornum sið. -BS
Samninganefnd ASV óskar allsherjarverkfalls 1. júní nk.:
vSemjum ekki um
reykinn frá Geir...”
„Við sendum ályktunina út i gær og
svör við henni þurfa aðberast fyrir 24.
mai," sagði Pétur Sigurðsson forseti
Alþýðusambands Vestfjarða i viðtali
við DB i morgun, en samninganefnd
ASV samþykkti á fundi sinum í gær
að fara fram á það við aðildarfélög sin
að þau boði til allsherjarverkfalls 1.
júni nk.
„Á fundi okkar þar sem 36 af 41
fulltrúa voru mættir rikti mikill
einhugur,” sagði Pétur ennfremur.
„Þar heyrðist engin hjáróma rödd og
ég tel að það spegli alveg viðhorfið og
að viðbrögð aðildarfélaganna verði
eftir því.”
„Atvinnurekendur hér hafa ekki
verið til viðtals um samninga og sagt
að við gætum beðið eftir heildar-
samningum,” sagði Pétur ennfremur.
„Það teljum við hins vegar alls ekki,
vel sé hægt að semja hér sérstaklega.
Við viljum ekki semja um þann reyk
sem Geir hefur verið að senda frá sér,
enda teljum við það ætlun hans að
ekki sé hægt að semja um það. Svo
ætlar hann að koma eins og frelsandi
engill og breyta þeim vitlausu lögum
sem þeir settu og enginn fer eftir."
HP.
fifálst, áháð dagblmð
FIMMTUDAGUR 18. MAÍ1978.
12175 khzeða 24,6
metrar:
Kosningaút-
varpættiað
heyrastí
nágranna-
iöndum
íslendingar I nágrannalöndum okkar
og sjómenn á kaupskipum og fiskiskip-
um á fjarlægum miðum ættu að geta
notið spennings kosninganóttanna, þ.e.
aðfaranótta 29. maí og 26. júni nk.
Að sögn Kára Jónassonar, frétta-
manns hjá útvarpinu, verður útvarpað
kosningaútvarpi á stuttbylgju frá kl. 22
kosningakvöldin bæði og stendur það
fram eftir nóttu. Þess skal getið að
hádegisfréttir útvarpsins eru ævinlega
sendar út á stuttbylgju á sömu bylgju-
lengd og nú er notuð, þ.e. 12175 khzeða
24.6 metrum.
Vinir og kunningjar hér heima ættu
að láta vini sína og ættingja erlendis vita
um kosningaútvarpið og bylgjulengdina,
því eflaust eru landar erlendis ekki síður
áhugasamir um gang mála en þeir sem
heimasitja.
- JBP
Framboðslisti
SFV í Austur-
landskjör-
dæmi
Framboðslisti Samtaka frjálslyndra
og vinstri manna i Austurlandskjör-
dæmi hefur verið lagður fram. Á
listanum eru eftirtaldir menn: 1. Andri
ísaksson prófessor, Kópavogi, 2. Ágústa
Þorkelsdóttir húsfrú, Refsstað, Vopna-
firði, 3. Guttormur Sigfússon, bóndi,
Krossi, Fellum, 4. Elma Guðmundsdótt-
ir húsfrú, Neskaupstað, 5. Emil Emils-
son kennari, Seyðisfirði, 6. Arnþór
Magnússon bifreiðastjóri, Reyðarfirði,
7. Sigrún Hermannsdóttir hjúkrunar-
kona, Höfn i Hornafirði, 8. Hrafnkell
Kárason vélfræðingur, Egilsstöðum, 9.
Sigurður Ananíasson matreiðslumaður,
Djúpavogi, og 10. Ástráður Magnússon
húsasmíðameistari, Egilsstöðum.
Við síðustu alþingiskosningar fengu
Samtökin 491 atkvæði og engan mann
kjörinn.
A.Bj.
B-listi ekki
F-listi
Meinleg villa slæddist inn í grein og
viðtöl við frambjóðendur fyrir bæjar-
stjórnarkosningarnar á Egilsstöðum í
bláðinu í fyrradag.
Listi Framsóknarmanna var þar titl-
aður F-listi, en er auðvitað B-listi.
DB biður velviröingar á þessum mis-
tökum.