Dagblaðið - 24.05.1978, Síða 5

Dagblaðið - 24.05.1978, Síða 5
ÐAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 24. MAl 1978. 5 Nú þarf ekki lengur að „hella” í sig kjarki til þess að halda ræðun FARÐll Á NÁMSKEIÐ EÐA GAKKTU í MÁLFREYJUKLÚBB Málfreyjuklúbbarnir eru upprunnir i B andaríkjunum. Það var raunar klúhbur bandarískra kvenna á Keflavíkurflugvelli sem var fyrsti klúbburinn hér á landi og þar kynntust íslenzkar konur starfseminni. Mikill áhugi er meðal íslenzkra kvenna á félagsskapnum og margar á biðlista eftir að komast í næsta klúbb. — DB-mynd Höröur. Við þekkjum öll, er við höfum haldíð giftingar- eða fermingarveizlur eða er boðið i stórafmæli til góðs vinar, að okkur langar kannski til þess að halda ræðu. En það strandar á því að við vitum ekki hvernig á að halda ræðu — og þorum það ekki. Við erum óörugg með okkur. Ef við neyðumst engu að síður til þess að standa upp og segja nokkur orð verðum við að „drekka í okkur” kjark, eins og það er kallað þegar maður „hellir” í sig áfengum drykkjum áður en upp er staðið. Við vitum öll hvernig það getur farið. Nú á timum er óþarfi að „hella” í sig kjarki í formi áfengra drykkja — það er hægt að fara á námskeið til þess að losna við feimni, Dale Carnegie, og það er hægt að ganga í málfreyjuklúbba til þess að læra að koma fram á fundum — til þess að læra að tala án feimni og til þess að læra að þegja — hlusta. Á dögunum var blm. DB boðið að vera á einum fundi hjá málfreyjufélag- inu Kvistinum, sem er annað málfreyju- félagið sem stofnað er hér á landi, átti félagið' ársafmæli. Fyrsta málfreyju- félagið er Varðan i Keflavik en þessa dagana er verið að stofna þriðja klúbb- inn sem er i Reykjavík og heitir Björk. Félagsmenn eru ekki nema þrjátíu í hverjum klúbbi þannig að allir félags- menn séu virkir félagar. Ef fleiri koma til greina verður aðstofna nýjan klúbb. Nú þegar eru komnar nokkrai konur á bið lista eftir að komast i næsta klúbb, stendur aðeins á að þær sem þegar eru félagsmenn séu orðnar „hæfar” til nýrr- ar klúbbstofnunar. Málfreyjur er kvenleggurinn af karla- klúbbi sem til hefur verið i heiminum í mörg ár og heitir Toastmaster á ensku en klúbbar þessir eru upprunnir i Banda- ríkjunum. Málfreyjur nefnast Toast- Mistresses á erlendri tungu en islenzka nafnið er sérlega skemmtilegt og fellur vel að málinu. Málfreyjurnar koma saman tvisvar i mánuði og byggja hver aðra upp í að koma fram og tala. Í upphafi hvers fundar þurfa allir fundarmenn og gestir að standa upp og kynna sig. Nokkrar af fundarkonum sögðu blm. að aðeins þetta hefði næstum reynzt þeim ofraun til að byrja með, svo ekki sé talað um þegar þær áttu að fram- kvæmda einhverja meiri athöfn en að segja nafnið sitt. — En á hverjum fundi eru einhver atriði flutt, á afmælisfundin- um fluttu t.d. þrjár konur látbragðsleik og var Síðan kosið um hver stóð sig bezt. Veitt eru farandverðlaun fyrir bezta frammistöðu. Stundum er „ræðu- keppni ”. Stundum eru ræðurnar um sjálfvalið efni en stundum um fyrirfram ákveðið efni. Eru síðan gefnar ,ein- kunnir” fyrir beztu ræðurnar og tímalengd þeirra. Málfreyjur eiga sér einkunnarorð: „Anda rétt, með þindaröndun, og meina hvert einasta orð sem þær segja.” Kennd eru fundarsköp en næsta fáir, og þá sérstaklega konur, eru vel heima í þvi hvernig halda á fundi svo að þeir fari vel og skipulega fram. Þá er kennt að leita í heimildum og er slíkt mikils virði ef um er að ræða konur sem langar til þess að komast aftur út í atvinnulífið eftir að hafa komið börnum sinum á legg. Forseti málfreyjufélagsins Kvists er Kristjana Kristjánsdóttir og Elin Þórðardóttir er varaforseti. Ýmsir gestir voru á afmælisfundinum á dögunum. Skal þar fyrst nefna Zoe Henning vara- forseta alþjóðasamtaka málfreyjanna en hún var langt að komin, alla leið frá Suður-Afríku. Einnig var á fundinum Þorgerður Guðmundsdóttir forseti Vörðunnar i Keflavík og Steinunn Harðardóttir forseti Bjarkarinnar sem heldur formlegan stofnfund sinn um þetta leyti. A.Bj. „VIÐ EIGUM VIÐ MÖRG VANDAMÁL AÐ STRÍÐA, EN FLEST ERUINNFLUTT” — sagði Zoe Henning varaforseti alþjóðasambands málfreyja „Við erum allar svo ólíkar en samt erum við allar svo likar,” sagði Zoe Frú Zoe Henning, varaforseti alþjóða- sambands málfreyja. DB-mynd Hörður. Henning, varaformaður alþjóðasam- taka málfreyja frá Suður-Afríku á árs- afmælisfundi málfreyjufélagsins Kvistsins í Reykjavík á dögunum. „Mér finnst sönn ánægja að vera komin hingað og sjá að þið eruð aö gera nákvæmlega það sama og við heima i Suður-Afriku.” I heimalandi frúarinnar eru starf- andi þrjátíu og sex málfreyjuklúbbar og hafa þeir starfað undanfarin tíu ár. 1 Suður-Afríku eru töluð tvö mál, enska og afrikans, sem er mál „inn- fæddra”. Sagði frú Henning að henni þætti sem mörg orð i íslenzku væru býsna lik afríkans. Suður-Afrikanar eru blanda af brezkum, þýzkum, hol- lenzkum, flæmskum og frönskum þjóðarbrotum sem þar hafa setzt að á liðnum árum. „Málfreyjuklúbbsstarfsemin hefur hjálpað okkur i Suður-Afríku til þess að komast yftr ýmis vandamál sem við höfum átt við að stríða,” sagði Zoe Henning í samtali við blm. DB. „Starfsemin er öflug og í henni taka þátt bæði hvítarog litaðar konur. Eng- inn kynþáttamismunur er gerður i klúbbunum. Við eigum við mörg vandamál að striða í heimalandi minu en ég held að flest þeirra séu i rauninni komin utan frá," sagði Zoe Henning. Hún er innfæddur S-Afrikubúi og hjúkrunarkona að mennt. Maður hennar er læknir. Hún sagðist hafa unnið að aðstoð við aldraða við að kenna þeim ýmislegt til þess að stytta þeim stundir, eins og saumaskap og handavinnu. Hún á þrjú uppkomin börn og þrjú bamabörn. Frúin hafði hér viðdvöl á leið sinni á málfreyju- þing í Kanada og sagðist hún vonast til þess að fá tækifæri til að heimsækja ísland aftur síðar í sumar. Þá eru væntanlegar hingað til lands þrjár konur frá S-Afríku á leið sinni á al- þjóðaþing málfreyja sem haldið verður í San Fransisco. - A.Bj. Auglýsing Skólastjórastaða og tvær stöður sérkennara við sérkennslustöð að Staðarfelli í Dölum eru lausar til umsóknar. Umsóknir sendist menntamálaráðuneytinu fyrir 16. júní 1978 ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf. Menntamálaráðuneytið 22. maí 1978. Hestar óskast Viljum taka hesta á leigu á timabilinu 1. júni til 15. ágúst nk. til afnota fyrir vistmenn að Reykjalundi. Kunnáttumanneskja sér að öllu leyti um hestana og notkun þeirra. Þeir sem vildu sinna þessari auglýsingu hafi samband við Július Baldvinsson í síma 66200. Vinnuheimilið að Reykjalundi. SIMCA 1100 er einn duglegasti litli fímm manna fólksbíllinn á landinu, sem eyðir 7,56 1. á 100 km. SIMCA 1100 kemst vegi sem vegleysur, enda framhjóladrifinn bfll, búinn öryggispönnura undir vél, gírkassa og benzíngeymi og er u.þ.b. 21 cm. undir laegsta punkt. Þetta er bíllinn sera þú ert að leita að, ekki satt? Hafíð samband við okkur strax í dag. CHRYSLER SIMCA1100 llföKl @ Wökull hf. Armúla 36 - 84366 Sölumenn Chrysler-sal 83330/83454. Kaupmenn Kaupfé/ög Taylor Freezer ÍSVÉLAR fyrirliggjandi Heildverzlun EIRÍKS KETILSSONAR Vatnsstíg 3 Slmar 23472 - 19155.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.