Dagblaðið - 24.05.1978, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 24.05.1978, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1978. 11 Danmörik: Engin eitur- lyf fundust í Kristjaníu v«ð rannsókn Kristjanía, hverfið i Kaupmanna- höfn sem íbúarnir vilja kalla fririki og hafa utan við þjóðfélagskerfið, komst i fréttirnar fyrir siðustu helgi þegar lög- reglan réðst þar inn klukkan sex um morguninn oggerði húsrannsókn. Að sögn lögreglunnar var aðgerðin, sem meira en fimmtíu lögreglumenn tóku þátt í, framkvæmd vegna ábend- ingar frá ónefndri manneskju um að töluvert af eiturlyfjum væri í umferð í Kristjaníu. Árangur varð hins vegar enginn af leitinni. Ekki fannst eitt einasta gramm af neinskonar vimulyfjum og var þeim tæplega fjörutíu manns, sem færðir höfðu verið til yfirheyrslu, sleppt að henni lokinni. Að sögn mun ekkert hafa komið fram við leitina eða yfirheyrsluna sem benti til að eiturlyf hefðu verið í umferð i hverfinu fyrir leit lögreglunnar. Ekki eru þó allir sannfærðir um að íbúar Kristjaniu séu alveg lausir við eiturlyfjapláguna. Margir meðal þeirra sjálfra telja að lögreglan fari ekki með rétt mál þegar hún segist hafa fengið ábendingu frá ónefndri manneskju. Hið rétta sé að grein í einu Kaupmannahafnarblaðanna hafi vakið lögregluna til starfa. í greininni sagði að ibúar Kristjaniu, sem flestir væru á móti eiturlyfjum, hefðu tekið til þess ráðs að reyna að uppræta neyzlu og sölu efnanna sjálfir. Húsrannsóknin í Kristjaníu fór að sögn fram án átaka milli íbúa og lög- reglu en slikt hefur orðið við fyrri at- burði af sama tagi. Ekki varð þó hús- rannsóknin alveg árangurslaus því nokkrir þeirra sem fundust voru út- lendingar sem dvöldust ólöglega i landinu eða voru eftirlýstir i heima- landisinufyrirafbrot. Örk friðarins er eitt af þekktari húsunum i Kristjaniu i Kaupniannaholn. Sérstok áherzla var lögð á að leita eiturlvfja þar en árangurinn varð enginn. — ()(.. 7 Er unnt að gera borgina okkar skemmtilegri? Nýlega birtist lesendabréf i Dag- blaðinu þar sem höfundur hélt því fram að Reykjavík væri leiðinleg borg. Ekki er ég alveg sammála höfundi. Reykjavík er a.m.k. falleg borg og yfir- leitt finnst manni það sem fallegt er jafnframt skemmtilegt. Hins vegar mætti vera meira lif í henni Reykjavík og vissulega mætti margt gera svo borgin okkar yrði skemmtilegri. Óneitanlega hefur borgin orðið daufari með hnignun gömlu mið- borgarinnar. Þar er nú allt liflaust eftir að venjulegum vinnutima lýkur. Hér áður var ólgandi líf i miðbænum á kvöldin. Þar var hvert kaffihúsið við annað, unglingarnir mæltu sér mót í miðbænum, gengu „rúntinn” o.s,frv. Þar áttu margir elskendur sitt fyrsta stefnumót. Nú er öll rómantik horfin úr miðbænum. Og það sem verra er. Ekkert í borginni hefur komið i staðinn. Nú er varla unnt að fá sér kaffisopa niðri i bæ eftir kl 9 á kvöld- in. Vissulega er þetta mikil afturför. Það er nauðsynlegt að lífga miðborgina við á ný. Sennilega verður borgarstjórn að gera eitthvað í þvi efni. Margt kemur til greina. Borgin gæti stuðlað að útihljómleikum í Austurstræti ávsumarkvöldum. Hún gæti staðið fyrir leiksýningum í hent- ugu húsnæði í miðborginni, hún gæti tekið Fjalaköttinn á leigu og komið þar upp starfsemi sem drægi fólk að. Þá myndi á ný verða grundvöllur fyrir rekstri kaffihúsa í miðbænum. En það þarf fleira að gera til þess að setja meira lif í borgina okkar og gera hana skemmtilegri. Hér áður fyrr áttum við einnig Tívoli. Þá fóru fjöl- skyldur með börn sín I þann skemmti- garð og áttu þar góðar stundir saman. Nýlega flutti ég tillögu i borgar- stjórn um að borgin athugaði hvort unnt væri að koma á fót á ný skemmti- garði í Reykjavík. Tilllagan var sam- þykkt með 15 samhljóða atkvæðum. Skemmtigarður i Reykjavik mundi lífga verulega upp á borgina og verða vinsæll hjá ungu fólki, fjölskyldum og raunar öllum Reykvíkingum, ef vel tækist til með stofnsetningu hans. Raunar er ekki um neinn stað að ræða i dag i Reykjavík sem dregur fjöl- skyldufólk að sér, nema þá helzt Blá- fjöllin, en ekki vilja allir Reykvíkingar renna séráskíðum. 1 skemmtigarði ættu að vera veit- ingasalir, leiktæki ýmiss konar, útisvið fyrir hljómleika og leiklist, aðstaða fyrir minigolf, keiluspil o.fl. Jafnvel væri hugsanlegt að hafa sundlaug i slikum garði. Starfsemin ætti bæði að vera innan og utan dyra. Myndlist og önnur menningarstarfsemi ætti einnig aðrúmast þar. Hugsanlegt væri að byggja hrein- lega yfir ákveðinn hluta garðsins. Ég tel að Reykjavíkurborg ætti að byggja garðinn sjálfan en síðan mætti láta einkaaðila byggja upp ýmsa starfsemi garðsins og reka hana. Skemmtigarðinn mætti byggja upp i áföngum eftir þvi sem fjármagn leyfði. Það er vissulega mikil þörf á úti- vistarstöðum í borginni. i rauninni ættu útivistarsvæði með gróðurreitum að vera sjálfsögð i hverju ibúðarhverfi. Einnig þarf borgin að gera meira fyrir hin náttúrulegu útivistarsvæði i Reykjavik. Þar er Elliðaárdalurinn efstur á blaði. Mikið er skrifað al' öll- um stjórnmálaflokkum um nauðsyn þess að gera Elliðaárdalinn að úti- vistarsvæði Reykvíkinga. En ef borgarbúar ætla að leggja leið sina að Elliðaánum á sumardegi eru þeir \ Kjallarinn Björgvin Guðmundsson reknir burtu af laxveiðimönnum. Nauðsynlegt er að opna Elliðaárdal inn almenningi og leyfa fólkinu að horfa á laxveiðar og fegurð dabins. Þarna vantar göngustíga og aðra aðstöðu.-Elliðaárdalurinn á ekki að vera fyrir fáa útvalda heldur fyrir all- analmenning. Björgvin Guðmundsson borgarfulltrúi. — á lögum um grunnskóla að Hafnar- fjörður verði áfram sem hingað til sér- stakt fræðsluhérað með sérstakan fræðslustjóra." Þá stendur og i samþykkt bæjar- stjórnar Hafnarfjarðar: „Þá vill bæjarstjórn benda á að hún telur eðlilegt að ein sameiginleg fræðsluskrifstofa starfi fyrir Reykja- nesumdæmi en að verkefni hennar verði kennslufræðilegs eðlis, svo sem námsstjórn, eftirlit með störfum skól- anna, leiðbeiningastörf fyrir kennara, skólastjóra og skólanefndir, nám- skeiðahald, tilraunakennsla og fleira.” Samþykkt bæjarstjórnar Hafnar- fjarðar ber það með sér að bæjarfull- trúar hafa ekki kynnt sér hin nýju lög mjög rækilega en samþykktin er gerð áður en nokkur reglugerð við grunn- skólalögin er gefin út. Þegar grunn- skólalög og ákvæði eldri laga um sama efni eru borin saman kemur i ljós að grunnskólalögin taka engin þau völd af sveitarstjórn sem hún hafði áður samkvæmt eldri lögum. Það var þvi með öllu óþarft að breyta lögum til þess að fullnægja óskum bæjarstjórnar Hafnarfjarðar samkvæmt framan- greindri samþykkt, þar sem allt sem farið var fram á þar rúmaðist innan gildandi laga. Hafnarfjörður var sér- stakt fræðsluhérað skv. eldri lögum en er nú sérstakt skólahverfi skv. grunn- skólalögum. Á þessu tvennu er í raun enginn munur vegna þess að i lögum um grunnskóla táknar orðið skóla- hverfi það sama og orðið fræðsluhérað táknaði í eldri lögum, þegar um er að ræða sveitarfélag sem rekur tvo eða fleiri grunnskóla. |- Kjallarinn HelgiJónasson fræðslustjóri Fræðslustjóri Hafnarfjarðar Þeir sem sömdu grunnskólafrum- varpið „stálu” nafninu fræðslustjóri og notuðu það yfir annars konar starf en það sem fræðslustjóri Hafnar- fjarðar annaðist. Undirritaður gegndi starfi fræðslustjóra Hafnarfjarðar all- an þann tima sem það starfsheiti var til og þekkir þvi starfið i smáatriðum. Starf fræðslustjóra Hafnarfjarðar var unnið samkvæmt sérstöku erindisbréfi og starf fræðslustjóra samkvæmt grunnskólalögum er unnið samkvæmt sérstakri reglugerð. Hér er um gerólik störf að ræða. Sem dæmi má nefna að fræðslustjóri Hafnarfjarðar gerði kröfur um greiðslur úr ríkissjóði fyrir hönd Hafnarfjarðarbæjar en fræðslu- stjóri Reykjanesumdæmis tekur við slikum kröfum og úrskurðar að hve miklu leyti þær skuli greiddar úr ríkis- sjóði. 1 grunnskólalögum er gert ráð fyrir að i stað þess „fræðslustjóra” sem Hafnarfjarðarbær hafði ráðið á sínum tíma yrði ráðinn skólafúlltrúi. 1 greinargerð með grunnskólafrumvarp- inu var rætt um þær fræðsluskrifstof- ur sem Kópavogur og Hafnarfjörður höfðu komið upp og talið eðlilegt að þær yrðu reknar áfram með sömu verkefnum ogáður. Fræðsluskrifstofa Reykjanesumdæmis og samskipti við Hafnarfjörð Þegar fræðslustjóri var ráðinn til starfa í Reykjanesumdæmi í byrjun árs 1976 voru jafnframt lögð niður starfsheitin „fræðslustjóri Kópavogs" og „fræðslustjóri Hafnarfjarðar”. Þessum störfum er þó haldið áfram á báðum stöðum undir nýjum starfs- heitum sem er bæði sjálfsagt og eðli- legt og i fullu samræmi við grunn- skólalög. Strax í byrjun íókst mjög gott samstarf við skólayfirvöld i Kópa vogi en i fyrstu voru samskiptin við yfirvöld i Hafnarfirði nokkuð tlókin þvi mál þaðan voru send menntamála ráðuneytinu og þaðan til fræðslu- stjóra. Þessi boðleið var þó fljótlega lögð niður og tekin upp eðlileg sam- skipti. Samstarfið við skólana i Hafnarfirði hefur alla tíð verið mjög gott og hið sama er nú að segja um samskiptin við starfsmenn Hafnar- fjarðarbæjar. Skólanefndin i Hafnar- firði (sem kallar sig ennþá Fræðsluráð Hafnarfjarðar) vinnur að öllu leyti i samræmi við lögin um grunnskóla á sama hátt og aðrar skólanefndir í um- dæminu og fer á engan hátt inn á verksvið fræðsluráðs, enda verkefni fræðsluráðsins þess eðlis að til þess er ekki tilefni. Eins og áður er sagt eru samskipti fræðslustjóra Reykjanesumdæmis við skólana og starfsmenn Hafnarfjarðar- bæjar að öllu leyti með eðlilegum hætti. Fræðslustjóra eru send þau mál til afgreiðslu og úrskurðar sem ætlast er til samkvæmt lögum. Auk þess er Hafnarfjarðarbær aðili að allri þeirri þjónustu sem fræðsluskrifstofa Reykjanesumdæmis býður fram um- fram hið lögboðna hlutverk. Lokaorð Nú hefur grunnskólalögunum verið breytt á þann veg að menntamálaráð- herra er heimilt að stofna fræðsluum- dæmi i Hafnarfirði. Ef af því verður þarf bæjarstjórn að taka að sér hlut- verk landshlutasamtaka og kjósa fræösluráð fyrir Hafnarfjörð. Fræðsluráðin heyra ekki undir lands- hlutasamtökin og þá ekki heldur undir bæjarstjórn. Þetta kemur ekki að sök þar sem fræðsluráðin starfa eftir sér stakri reglugerð og hafa ekkert með rekstur skóla að gera eða önnur af greiðslumál þvi fræðsluráð hefur ekki úrskurðarvald i neinu máli. Bæjar stjórn þarf eftir sem áður að kjósa skólanefnd, þar sem ekki er gert ráð fyrir þvi i lögunum að fræðsluráð ann- ist hlutverk skólanefndar. Verði sérstakur fræðslustjóri settur yfir Hafnarfjörð þá verður hann sam- kvæmt lögum embættismaður ríkisins og heyrir beint undir ráðuneytisstjóra menntamálaráðuney tisins. F ræðslu- skrifstofa Hafnarfjarðar verður þvi að starfa áfram i óbreyttri mynd og verður þvi kostnaður sá sem af emb- ætti fræðslustjóra i Hafnarfirði hlýst hreinn viðbótarkostnaður án þess að til komi nokkur ný þjónusta. Bæjarstjórn Kópavogs er i sömu að stöðu og bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Þar hefur aldrei komið til tals að óska eftir þvi að Kópavogur verði sérstakt fræðsluumdæmi. Þvert á nióti sam þykkti bæjarstjórn Kópavogs hinn 14. april sl. „að skora á Alþingi að fella framkomið frumvarp um breytingu á grunnskólalögum.” Afstaða bæjarstjórnar Kópavogs er tekin að fenginni reynslu af lögum um grunnskóla. Samþykkt bæjarstjórnar Hafnarfjarðar er hins vegar gerð áður en nokkur reynsla var fengin af fram- kvæmd laganna og áður en nokkur reglugerð við lögin var gefin út. Helgi Jónasson ' fræðslustjóri Reykjanesumdæmis. /

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.