Dagblaðið - 24.05.1978, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1978.
19
Hljómsveitin CIRKUS er komin saman á ný
Helmingurinn nýir meðlhmr
Fyrstu dansleikirnir verða haldniráAusturlandi um næstu helgi
Man nokkur ennþá eftir hljóm-
sveitinni Cirkus? Ef svo er þá skulu
þeir hinir sömu gladdir með þeirri
frétt að hljómsveitin er nú komin
saman á ný eftir árs hlé frá störfum.
Reyndar er það hlé ekki óslitið því
að meðlimir Cirkuss komu saman i
nóvember síðastliðnum og tóku að
æfa frumsamið efni. Árangur þeirra
æfinga hefur ekki verið kunngerður
opinberlega ennþá.
Nokkrar breytingar hafa orðið á
liðsskipan Cirkuss síðan hljómsveit-
in hætti um mánaðamótin april/maí
i fyrra. Davið Karlsson trommar nú
með Haukum og Helgi Magnússon
hljómborðsleikari er á Akureyri og
leikur þar með hljómsveitinni
Jamaica.
Hinir þrír, Sævar Sverrisson og
bræðurnir Þorvarður og Örn
Hjálmarssynir, stofna nú Cirkus
aftur ásamt Árna Sigurðssyni gítar-
leikara og söngvara, sem áður lék
með Deildarbungubræðrum, Jó-
hanni Kristinssyni hljómborðsleik-
ara, áður í Mezzoforte og Sigurði
Reynissyni trommuleikara. Þannig
skipuð mætir hljómsveitin sem sagt
til leiks um næstu helgi.
„Við byrjum starfsemina að sjálf-
sögðu á Austurlandi,” sagði Sævar
Sverrisson söngvari er hann tilkynnti
um endurfæðingu Cirkuss. „Við
verðum á Seyðisfirði nú á föstu-
daginn og kvöldið eftir í Félagslundi
á Reyðarfirði.
Við erum búnir að fá talsvert að
gera í sumar,” bætti Sævar við. „Satt
að segja er ég alveg undrandi á þvi
hve vel menn hafa tekið þvi að við
værum að byrja aftur. Ég hafði ekki
hugmynd um að við hefðum verið
svona vinsælir á sínum tíma."
Um músikstefnuna hafði Sævar
Sverrisson það að segja að Cirkus
myndi nú einbeita sér að léttri og
góðri stuðmúsik — danstónlist fyrir
fólkið öðru nafni.
„Við ætlum að lauma einu og
einu frumsömdu lagi inn á milli en
þau verða alveg í stíl við annað sem
við flytjum,” sagði Sævar.
Tveir af nýju meðlimunum, þeir
Jóhann Kristinsson og Sigurður
Reynisson, eru með öllu óþekktir i
poppbransanum. Jóhann hefur þó
lítillega komið fram með hljómsveit-
inni Mezzoforte — jazzhljómsveit
sem Friðrik Karlsson gítarleikari
Tívoli veitir forstöðu. Sigurður er
sonur Reynis Sigurðssonar slag-
verksleikara Sinfóníuhljómsveitar
tslands, sem reyndar leikur með á
stórum hluta þeirra hljómplatna sem
út koma hér á landi. Að sögn Sævars
er Sigurður stórgóður trommuleik-
ari, þó að nýliði sé.
Talsvert langt er um liðið síðan
Cirkus var stofnaður. Fyrstu mán-
uðina léku meðlimirnir reyndar
CIRCUS — Fremstur er trommu-
leikarinn Sigurður Reynisson. Fyrir
aftan hann eru, frá vinstri talið: Sæv-
ar Sverrisson, Jóhann Kristinsson,
Árni Sigurðsson, Örn Hjálmarsson
og Þorvarður Hjálmarsson. DB—
mynd. Ragnar Th. Sigurðsson.
Brunaliðið dregur
fram faraldsfótinn
Veiðurá Norðurlandi tvær næst helgar
Nú glymur lifandi tónlist um
ganga Tónabæjar, skömmu eftir að
endanlega er búið að ganga af staðn-
um dauðum. Diskótekið stendur
autt og yfirgefið, en úti á dans-
gólfinu athafnar sig hópur vel þekkts
íslenzks tónlistarfólks. Megn
hákarlsfýla er í salnum og bréf utan
af istoppum liggja á við og dreif.
Tónlistin er eldfim — Brunaliðið er
að æfa sig undir innrás sína á
Norðurlandið um næstu helgi og
aðalfæða meðlimanna er hákarl og
emmessis.
„Þessu ferðalagi okkar lýkur ekki
fyrr en eftir verzlunarmannahelgi.
Að vísu koma nokkur göt inn i —
við spilum ekki um hverja helgi, en
Rauðhettumótið verður enda-
punkturinn hjá okkur, ” sagði
Magnús Kjartansson Brunaliðs-
stjóri er Dagblaðið kom í heimsókn
til þeirra Tónabæinga á mánu-
daginn.
Fyrsti dansleikur ferðarinnar
verður haldinn á föstudagskvöldið
kemur á Húsavík. Kvöldið eftir
verður skemmtunin endurtekin á
sama stað og sama tíma, en síðan
flytur Brunaliðið sig yfir til Akureyr-
ar og leikur í Sjálfstæðishúsinu á
sunnudagskvöldið.
Þetta verður eins konar kosninga-
hátið I Sjálfstæðishúsinu,” sagði
Magnús. „Tölur úr bæjarstjórnar-
kosningunum þar verða lesnar upp
jafnóðum og þær berast.”
Nú, fimmtudaginn 1. júní verður
Brunaliðið aftur i Sjálfstæðishúsinu,
kvöldið eftir í Freyvangi, á laugar-
daginn á Hofsósi og sunnudags-
kvöldið 4. júní á Siglufirði. Eftir þá
törn liggur leiðin síðan suður á
bóginn og efnt verður til plötu-
kynningar í veitingahúsinu Klúbbn-
um á þriðjudaginn 6. júní. Lengra
vildu Brunaliðsmennirnir ekki rekja
áætlun sina, en kváðu hana miklu
lengri.
„Við leikum ekki á Vestfjörðum
né Austfjörðum, nema viðunandi
tilboð berist þaðan. Aðra fjórðunga
ætlum við að heiðra með nærveru
okkár,” sögðu Brunaliðsmennirnir,
ogMagnús bættivið:
„Auk þessa verðum við á alls kyns
mótum um landið i sumar. 17. júní
verðum við á Arnarhóli i Reykjavik,
og i byrjun júlí á móti sem verður
haldið í einhverjum dal inn af Eyja-
firði. Æ, ég man ekki nafnið á daln-
um i svipinn.... ætlihann heiti bara
ekki Eydal.”
„Eða skandal,” skaut Þórhallur
Sigurðsson, Laddi, inni.
Auk þeirra tveggja eru i Bruna-
liðinu Pálmi Gunnarsson. Sigurður
Karlsson, Ragnhildur Gísladóttir,
Þórður Árnason og Magnús Eiríks-
son. Sigrún Hjálmtýsdóttir getur
ekki verið með vegna anna.
Meginhluti þeirra laga, sem
BRUNALIÐIÐ — Frá æfingu
Tónabæ. DB—mynd: Ragnar Th.
Brunaliðið hyggst bjóða upp á i
ferðalaginu, er íslenzkur. Að sjálf-
sögðu verða öll lögin af Brunaliðs-
plötunni leikin, svo og Lummulög,
Mannakornalög, músik af plötu
Halla og Ladda og fleira og fleira.
Útgáfudagur nýju Bruna-
liðsplötunnar var mánudagurinn 22.
maí. Um miðjan þann dag var fyrsta
upplag plötunnar, tvö þúsund
eintök, uppselt hjá útgáfunni. Vonir
standa til að hægt verði að fá aðra
sendingu utanlands frá fyrir helgi.
Henni verður umsvifalaust dreift.
Sem sagt: Brunaliðið er komið á
grenjandi túr. Það er vissara að fara
að viðra sparifötin. -ÁT.
Ný 12 laga p/ata
BLATT ONT BLATT
TÓNAáf^ an
AKUREYRI
SÍMI (96) 2-21-11