Dagblaðið - 24.05.1978, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 24.05.1978, Blaðsíða 8
8 DAGBLAÐID. MIÐVIKUDAGUR 24. MAt 1978. HVAfl VAXANDIFERÐAMANNABÆR Við siðustu kosningar til hrepps nefndar i Stykkishólmshreppi vort aðeins tveir listar í kjöri, listi sjálfstæðis manna og óháðra og siðan listi vinstr, manna. Sjálfstæðismenn og óháðir fengu fjóra fulltrúa og hafa því haft meirihluta í hreppsstjórn. Vinstri menn virðast ekki hafa verið ánægðir með sameiginlegan lista og bjóða því fram lista Framsóknarflokks, Alþýðubanda- lags og lista vinstri manna. Sjálfstæðis- flokkurinn hefur verið sterkur í Stykkis- hólmi og I viðtölum við bæjarbúa kom fram að þeir hallast heldur að því að sjálfstæðismenn og óháðir haldi meiri- hlutanum. íbúar i Stykkishólmi eru nú um 1200 talsins. Þar er atvinnulif nokkuð fjöl- breytt, skelvinnsla mikil og þjónusta. Stykkishólmur er vaxandi ferðamanna- bær og þar er risið glæsilegt hótel. Þá má nefna að dráttarbraut er rekin þar. At- vinnuástandið hefur verið nokkuð gott og jafnt vegna skelvinnslunnar. Sýslu- maður situr í stykkishólmi. Hér á eftir fara viðtöl við efstu menn listanna fjögurra sem í boði eru. Kristfn Bjarnadóttir H-lista: BRÝN ÞÖRF SKÓLABYGGINGAR — nauðsynlegt að kunnugur maður sinni skólamálum „Brýn þörf er fyrir skólabyggingu hér og hefur verið lengi,” sagði Kristin Bjamadóttir kennari, en hún skipar efsta sætið á lista vinstri manna. „Það er þörf* EHertKristinsson D-lista: Skólinn og höfnin efst ábladi — tryggja þarf fjárhagsgrundvöll hótelsins m. U Krisdn Bjarnadóttir: „Að lokinni skóla- byggingu þarf að reisa iþróttahús.” á því að einhver kunnugur skólamálum sinni þeim og reki á eftir. Hótelið hefur verið notað sem bráðabirgðalausn og því er hætt við að menn geri sér ekki grein’ fyrir vandanum því hótelbyggingin er engan veginn sniðin fyrir skólann, auk' þess sem skólinn er fyrir hótelinu. Áfram þarf að halda í málefnum vatnsveitunnar og byggingu heilsu- gæzlu stöðvar. Sjá þarf fram úr rekstrar- vanda hótelsins. Ég hef áhuga á íþrótta- og æskulýðsmálum og á eftir skólabygg- ingunni þarf að risa íþróttahús en slikt er verkefni framtíðarinnar. Hér er fjölbreytt atvinnulíf og jöfn at- vinna þótt ekki séu nein uppgrip. Við eigum síður við sveiflur i atvinnulífinu að striða en aðrir staðir af svipaðri stærð. t Stykkishólmi er auk þess veitt mikil þjónusta fyrir landbúnaðarhéruðin i kring.” - JH Einar Karlsson G-lista: Góðatvinna undirstaða framkvæmda — atvinnu skortir fyrirþá sem hafa skerta starfsorku „Það er undirstaða þess að eitthvað sé gert að atvinnumálin séu í góðu lagi,” sagði Einar Karlsson, en hann skipar efsta sætið á lista Alþýðubandlagsins. „Við erum svo heppin að hafa fjöl- breytta atvinnu hér í Stykkishólmi en þó ber ekki að neita því að okkur vantar at- vinnu fyrir þá sem hafa skerta starfs- orku. Það er krafa hreppsbúa að hrepps- nefndin fylgist með þróun atvinnumál- anna og við höfum kosið nefnd til þess að kanna þróun þessara mála næstu árin. Meginmálið er að atvinnumálin séu á réttri leið en í framhaldi af því má nefna þau verkéfni sem eru í framkvæmd. Dvalarheimili aldraðra er að verða að veruleika, íþróttasvæðið er í uppbygg- ingu og félagsheimilið hefur gerbreytt aðstöðu til þess að sinna félagsmálum. Nauðsynlegt er að hefja byggingU skóla og heilsugæzlustöðvar og væntanlega mun hreppsnefndin glima við þau stór- mál á næsta kjörtímabili. Auðvelt er að telja upp langan óska- lista en jiörfin kemur oft þvert á óskalist- ann. Fjárráð sveitarfélagsins skapast af atvinnumálunum, auk þess sem mikill hluti fjárins fer í lögbundna þætti, en það er fjármagn sem við höfum nánast ekki ráðstöfunarrétt yfir. Sá maður sem starfar í hreppsnefnd verður að vera félagshyggjumaður. Deilumálin eru leyst með viðræðum og samstarfið í hreppsnefndinni hefur verið gott á undanförnum árum. Ég vil að lokum nefna eitt aðaláhuga- mál mitt, það er umhverfisvernd og verndun gamla bæjarins. Miðbænum hefur verið breytt og hann færður til. Við verðum að vernda hið gamla andlit bæjarins og halda þeim hluta lifandi.” - JH Einar Karlsson: „Vernda þarf andlit gamla miðbæjarins.” Dagbjört Höskulsdóttir B-lista: Skólabygging forgangsverkef ni — líklegtað fjárhagur sveitarfélagsins veiði þröngur næstu árin Ellert Kristinsson: veriö unnið.” „Mikið starf hefur „Á næstunni þarf að koma fjármálum hótelbyggingarinnar á traustan grund- völl,” sagði Ellert Kristinsson, en hann skipar efsta sætið á lista sjálfstæðis- manna og óháðra. „Núverandi lánakjör eru slíkum rekstri mjög óhagstæð. Ljúka þarf gatnagerðarframkvæmd- um í bænum og vinna við hafnarfram-, kvæmdir, bæði við aðalhöfnina og í dráttarbrautinni í Skipavik. Þá er fyrir- hugað að hafizt verði handa við skóla- byggingu í sumar og huga þarf að vatns- veitumálum bæjarins. Fyrirhugað er að hefjast handa við byggingu heilsugæzlustöðvar i sambandi við sjúkrahúsið. Systurnar sjá nú um dagheimili og nú er verið að taka í notk- un elliheimili. Fyrirsjáanlegt er að það heimili verður að stækka. Atvinnuásíand hefur verið gott og fjölbreytt atvinnulif. Nauðsynlegt er þó að tryggja fiskverkunarfyrirtækjunum jafnari afla og í því tilliti eru skuttogara- kaup hugsanleg. Við leggjum áherzlu á að mikið hefur verið unnið á síðasta kjörtímabili og svo verður áfram ef núverandi meirihluti fær traust í komandi kosningum.” - JH Dagbjört Höskuldsdóttir: „Þörf er á opnari umræðu um málefni sveitarfclag- anna.” „Við gefum engin kosningaloforð,” sagði Dagbjört Höskuldsdóttir, en hún skipar efsta sætið á lista framsóknar- manna. „Fjárhagur sveitarfélagsins er það þröngur að velja verður og hafna. Næstu ár geta orðið sveitarfélaginu erfið fjárhagslega. Eitt hið mikilvægasta sem við blasir er efling atvinnulifsins og aukin fjöl- breytni. Hér er allmikill iðnaður, skipa- iðnaður og byggingariðnaður, en skel- vinnslan er mikilvægust í sjávarútvegin- um. Nauðsynlegt er að fá stærra og af- kastameira skip til þess að jafna vinnu í fiskvinnslunni. Stykkishólmsbúar hafa þó ekki byggt mikið á sjávarútvegi, þannig að líklegast er að iðnaður taki við' atvinnuaukningunni. Hefja verður byggingu grunnskóla en það verkefni setjum við á oddinn sem forgangsverkefni næstu ára. Ljúka þarf við vatnsveituframkvæmdir, byggja vatnstank og aðveituæð til bæjarins. Halda þarf áfram lagningu slitlags á götur og gagnstéttagerð. Byggja þarf heilsugæzlustöð við sjúkrahúsið. Bærinn þarf og að tryggja sér land fyrir ofan bæinn fyrir fólkvang. Gæta þarf að því að skaða ekki hina gömlu byggð í Stykkishólmi og vernda gömul hús og umhverfi þeirra. Mikil þörf er á opnari umræðu um málefni sveitarfélagsins. Veita þarf fólki innsýn í málefni hreppsins.” - JH Úrslitúr fjórum síðustu kosningum Sjálfstæðismenn og óháðir Vinstri menn Alþýðuflokkur Framsóknarmenn Óháðir kjósendur 1974 1970 1966 1962 321-4 181-3 194-3 188-3 229-3 89-1 100-2 83-1 76-1 47-0 57-1 93-1 103-2 95-2 72-1 Fjórir listar í kjöri JÓNAS HARALDSSON D-listi sjátfstæðismanna og óháðra 1. Ellert Kristinsson framkvæmdastjóri, 2. Finnur Jónsson útgerðarmaður, 3. Hörður Kristjánsson eftirlitsmaður, 4. GissurTryggvason aðalbókari, 5. Sigurþór Guömundsson rafvirki, 6. Kristin Bjömsdóttir húsfrú, 7. Högni Bæringsson verkstjóri, 8. Gunnleifur Kjartansson lögregluþjónn, 9. Einar Magnússon verkstjóri, 10. Kristinn Ó. Jónsson skipstjóri, 11. Gréta Sigurðardóttir hárgreiðslukona, 12. Svanborg Siggeirsdóttir kennari, 13. Vilberg Guðjónsson trésmiðameistari, 14. Bæring EUsson bóndi. B-listi framsóknarmanna: 1. Dagbjört Höskuldsdóttir, 2. Bemt H. Sigurðsson, 3. Hrafnkell Alexandersson, 4. EUn Sigurðardóttir, 5. ína Jónasdóttir, 6. Ólafur Ellertsson, 7. Magndís Alexandersdóttir, 8. Skúli G. Ingvarsson, 9. Jón Guðmundsson, 10. ÞórðurSigurjónsson. 11. Bergur J. HjaltaUn, 12. Jóhannes Björgvinsson, 13. Hermann Bragason, 14. Krístinn B.Gíslason. Framboðslisti vinstri manna 1. Kristin Bjamadóttir kennari, 2. Pálmi Frimannsson héraðslæknir, 3. Davíð Sveinsson húsasmiður, 4. Sveinbjöm Sveinsson útgm., 5. Hanna Jónsdóttir, 6. Björgvin Guðmundsson sjómaður, 7. Fjóla Edilonsdóttir verkakona, 8. Haraldur ísleifsson fiskmatsmaður, 9. Kristján Sigurðsson verkamaður, 10. Bragi Húnfjörð skipasmiður, 11. Guðmundur Lárusson skipstjóri, 12. Rögnvaldur Lárusson vélsmiðameistari, 13. Grétar Jakobsson verkamaður, 14. ólafur Kristjánsson framkvstj. G-listi Alþýðubandalags 1. Einar Karlsson, 2. Birna Pétursdóttir, 3. ólafur H. Torfason, 4. Kristrún Óskarsdóttir, 5. Steinar Ragnarsson, 6. ómar Jóhannesson, 7. Guðrún Ársælsdóttir, 8. Hafdís Knudsen, 9. Þorvaldurólafsson, 10. Hrefna Markan, 1 l.ÓlafurG. Þorvarðarson, 12. Agnes Agnarsdóttir, 13. Snorri Þorgeirsson, 14. Stefán Halldórsson.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.