Dagblaðið - 24.05.1978, Síða 16
16
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 24. MAl 1978.
Auglýsing
um skoðun léttra bifhjóla í lögsagn-
ammdœmi Reykjavíkur.
Mánudagur 22. mai R—1 til R—200
Þriðjudagur 23.maí R—201 t0 R—400
Miðvikudagur 24. maí R—401 til R—600
Fimmtudagur 25. maí R—601 til R—800
Skoðunin verður framkvæmd fyrmefnda
daga við bifreiðaeftirlitið að Bíldshöfða 8, kl.
08.00 til 16.00.
Sýna ber við skoðun, að lögboðin vá-
trygging sé í gildi. Tryggingargjald ökumanns
og skoðunargjald ber að greiða við skoðun.
Skoðun hjóla, sem eru í notkun í borginni,
en skrásett eru í öðrum umdæmum, fer fram
fyrrnefnda daga.
Vanræki einhver að koma hjóli sínu til
skoðunar umrædda daga, verður hann látinn
sæta sektum samkvæmt umferðarlögum og
hjólið tekið úr umferð hvar sem til þess næst.
Þetta tilkynnist öllum sem hlut eiga að máli.
Lögregkistjórinn f Reykjavík, 19. mai 1978
Siguijón Sigurðsson.
Staða
aðstoðarlæknis
við Sjúkrahús Akraness er laus til umsóknar.
Staðan veitist til eins árs, eða eftir nánara sam-
komulagi.
Frekari upplýsingar veitir yfirlæknir sjúkra-
hússins.
Sjúkrahús Akraness.
RÍKISSPÍTALARNIR
Lausar stöður
Staða aðstoðarlœknis við Barnaspítala
Hringsins er laus til umsóknar. Staðan veitist
til 6 mánaða frá 1. júlí nk. Umsóknir er greini
aldur, menntun og fyrri störf sendist Skrif-
stofu Ríkisspítalanna fyrir 21. júní nk.
Upplýsingar veitir yfirlæknir deildarinnar í
síma 29000.
Hjúkrunarfrœðingar og fóstrur óskast til
starfa á geðdeild Bamaspítala Hringsins.
Upplýsingar veitir hjúkrunarstjóri í síma
84611.
Reykjavík 22. maí, 1978.
Skrífstofa Ríkisspítalanna
Eiríksgötu 5, sími 29000.
SUND
FATNAÐUR
• Sundbo/ir
• Sundskýlur
• Sundg/eraugu
• Sundhettur
• Bikinikr. 3.180/-
Allar stærðir
Póstsendum
Heildsala — Smásala
Sportvöruverzlun Ingólfs Oskarssonar
Klnpparstig 44 Simi 11783
Víkursamfélagið kemur út í haust:
„Á eftir ad valda miklum
deilum enda eru margar
persónurnar snariifandr
— segirBárður Halldórsson menntaskólakennari
„Það hafa fáir gert það í seinni tið,
að skrifa á þennan hátt um fólk sem
stendur þeim nær. Ég er nokkuð viss
um að bókin á eftir að valda miklum
deilum, að minnsta kosti hér á Akur-
eyri, enda eru margar persónurnar
snarlifandi, þótt þær séu bundnar í
dulnefni,” sagði Bárður Halldórsson
menntaskólakennari á Akureyri í sam-
tali við fréttamann DB um skáldsög-
una Víkursamfélagið eftir Guðlaug
Arason. Bókin kemur út hjá útgáfu-
félaginu Bókás hf. á tsafirði i haust en
Bárður er annar aðaleigenda Bókáss.
Forlagið var stofnað i fyrra og hóf
starfsemina með því að efna til skáld-
sagnasamkeppni með 250 þúsund
króna verðlaunum fyrir beztu söguna.
brir menntaskólakennarar voru í dóm-
nefnd — þeir Böðvar Guðmundsson
og Vilmundur Gylfason auk Bárðar.
„Okkur bárust 10—20 handrit,
mjög misjöfn að gæðum,” sagði
Bárður í samtalinu við DB. „Það er vel
hugsanlegt að við munum gefa út
tvær eða þrjár af þeim til viðbótar en
þvi miður tókst okkur ekki að koma
Vikursamfélaginu út i fyrra eins og til
stóð.”
Bárður Halldórsson sagði að Vikur-
samfélagið, sem lesin var í útvarp í
fyrra, væri „mjög hörð ádeila á kaup-
félagsvaldið, sérstaklega KEA-veldið
hér norðanlands. Þetta er sósial-realisk
saga sem gerist í samtimanum og er
ekkert af skafið. Þar er miklu bylt og,
eins og ég sagði, þá á bókin vafalaust
eftir að valda miklum deilum og um-
róti hér og annars staðar.” - ÓV
Skólabærínná Laugarvatni:
Aukið
samstarf
skólanna
Skólarnir á Laugarvatni taka næsta
vetur upp aukið samstarf i kennslu. Er
þetta gert til þess að auka það framboð
sem á námsleiðum er og jafnframt
verður betri nýting á húsum og starfs-
fólki.
í vetur sem leið sátu i nefnd kennarar
frá Laugarvatnsskólunum ásamt
fræðslustjóra Suðurlands og fulltrúa úr
menntamálaráðuneytinu. Voru gerðar
tillögur um þessa samvinnu til bráða-
birgða en síöan á að sjá til hvemig til-
raunin gengur og halda áfram ef hún
gefst vel.
Boðið verður upp á 6 námsbrautir ef
næg þátttaka fæst. Er þar um að ræða 2
bóknámsbrautir, hússtjórnarbraut, hús-
stjórnarnámskeið, félagsmála- og
iþróttabraut og uppeldisbraut. Sameigin-
legur námskjami fyrir allar þessar
brautir verður á fyrsta ári i 18 stundir á
viku. Auk þessa halda svo menntaskól-
inn, iþróttaskólinn og héraðsskólinn
áfram þeirri kennslu sem þeir hafa verið
með.
- DS
Enn eykst
frystingin
Þrátt fyrir umræður um mikinn
aflaskort viða um land að undanförnu
hafa frystihús Sambandsins aukið
verulega frystingu ýmissa fisktegunda.
í Sambandsfréttum er haft eftir Sig
urði Markússyni framkvæmdastjóra
Sjávarafurðadeildar að frysting á
botnlægum tegundum í frystihúsum á
vegum SlS hafi numið 9477 lestum,
17% meira en á sama tima í fyrra.
Aukning þorsks nam 13%, ýsu 55%
og steinbíts 36%. Frysting á karfa og
ufsa dróst saman.
Nýbygging Hússtjórnarskóla Suðurlands sem áður hét Húsmæðraskóli Suðurlands.
Myndin er úr bæklingi sem gefinn hefur verið út til þess að kynna starfsemi skólanna.
Duttuárúðu ogskárustí andlíti
Tveir félagar ákváðu á laugardags-
kvöldið að fara saman i Klúbbinn.
Slikt er sjaldnast í frásögur færandi en
þeir munu vafalaust lengi minnast
fararinnar. Gerðust þeir ölvaðir um of
og svo fór að lokum að þeir féllu utan
dyra, lentu á rúðu með þeim afleiðing-
um að báðir skárust í andliti. Hversu
alvarleg meiðslin voru vitum við ekki
en báðir fóru til aðgerða i slysadeild.
- ASt.
Það smíða fleiri
en Slippstöðin...
Sumarið er komið hér fyrir norðan
fjöll. Sólin hefur verið hér í nokkrar
vikur og þær eru engir hettumávar, kri-
umar'sem garga hér í hólmunum.
Og fleiri smíða skip hér á Akureyri en
Slippstöðin. Þessir strákar voru að reyna
farkost sinn i fjörunni við gamla fiug-
planið um helgina. Ekki veit ég hvort
það var með leyfi skipaeftirlitsins en
mjórer mikils visir....
RAFVORUR Sli
LAUGARNESVEG 52 - SlMI 86411
Smurbrauðstofan
BJORNINN
w NjóMgofu 49 - Stmi 15105