Dagblaðið - 24.05.1978, Page 28

Dagblaðið - 24.05.1978, Page 28
80 netasærðir laxar veiddust úr netalausri á í fyrra: Vaxandi veiðiþjáfnaður ógnar laxastofninum hér — nefnd skipuð vegna málsins— stórhert veidief tirlit í undirbúningr Þrátt fyrir að laxveiði á Islandi hafi fjórfaldazt á aðeins 20 árum með skipulagi og stórfelldri rækt, steðja ýmsar hættur að laxastofninum og hefur nýlega skipuð nefnd landbúnað- arráðuneytisins undanfarið fjallað um gagnaðgerðir. Sem kunnugt er heldur laxinn sig viða i Atlantshafmu yfir veturinn og hafa strandriki við Norður-Atlantshaf- ið stöðugt meiri áhyggjur af framtíð laxstofnsins og efna m.a. til ráðstefnu um málið í Skotlandi i haust. Veiðimálastjóri íslands, Þór Guð- jónsson, mun væntanlega sækja hana. Þegar litið er til svæðisins alls eru það einkum þrjár hættur sem ógna stofn- inum. Mengun áa í iðnrikjunum, auk- in ólögleg netaveiði við strendur, og áframhaldandi virðingarleysi margra aðila fyrir samkomulagi margra þjóða við N-Atlantshaf um laxveiði I sjó. Fer hún vaxandi. Veiðimálastjóri sagði í viðtali við DBI gær vegna þessa máls að svo virt- ist sem ólögleg laxveiði hér, bæði með netalögnum i sjó og með aðgerðum veiðiþjófa i ánum sjálfum, færðist í vöxt. Sem dæmi um það nefndi hann að í Laxá í Þingeyjarsýslu hefðu 80 veiddir laxar i fyrra reynzt með netaför, þótt engin netaveiði sé leyfð i ánni. Þá væru ótaldir þeir laxar sém festst hefðu i netunum, þeir sem sloppið hefðu stórskaddaðir og drepizt og loks þeir sem gengið hefðu með netaför i ána og til sjávar aftur. Væri fyrirhug- að að herða veiðieftirlit þegar í sumar og enn frekar i nánustu framtíð. Sagði Þór þvi miður of algengan hugsunarhátt hér að líta á slíkan veiði- þjófnað sem smámál. Hins vegar væru hér verulegir þjóðarhagsmunir I veði, bæði í formi sölu veiðileyfa og ýmissar atvinnu, sem skapazt hafi í kjölfar lax- veiðanna hér. Þá gat hann þess að ef um stórfelldan veiðiþjófnað væri að ræða í einhverjum tilvikum, kynni svo að fara að viðkomandi á eða ár væru ofveiddar án þess að skýrslur bentu til þess, með ófyrirsjáanlegum afleiðing- um. Að lokum sagði hann þörf hugar- farsbreytingar gegn sllku. —GJS. AFSPYRNUSLÆ MUR ENDIR Á SANDSPYRNU Bandariskur hermaður á Kefla- víkurflugvelli fór i siðustu viku á nýja GMC-hálfkassabilnum sínum (7000 dala grip) niður i sandfjöru skammt frá Höfnum á Reykjanesi til að reyna „spyrnuna" i sandinum. Skemmti hann sér þar um stund ásamt félaga sinum, og voru þeir sammála um, að með breiðum dekkjum, eins og voru úndir bilnum, væri afspymugaman að spyrna. Svo fór þó á endanum, áð billinn festsist I blautum fjörusandinum. Þeir félagar fóru eftir hjálp. Þegar þeir komu aftur var billinn útlitandi eins og sjá má af myndunum — nær gjörónýtur. Sjórinn hafði tekið hann I faðminn og þrýst honum að DB-myndir: Heimir Stígsson. sér. Ægir konungur var heldur um of harðhentur — húsið á bilnum lagðist saman, hann er allur meira og minna begldur, sandur smaug i hverja rifu og smugu, rúður brotnuðu, sætisáklæði rifnaði og fleira skemmdist. Afspymuóheppilegur endir á sand- spyrnu. -ÓV. Netaveiðin byrjuð í Hvítá í Borgarfinði: FYRSTU ÞRÍR LAXARNIR Á LAND í GÆR Ákært íantík-málinu: Meintar nafnafals- anirá gjaldeyris- umsóknum Eina atriði í rannsókn „Antik”- málsins, sem ástæða þykir að ákæra fyrir eru meintar falskar nafngreiningar i sambandi við gjaldeyrisumsóknir. Annað kemur ekki til álita sem kæruefni. Það sem lýtur að skattahlið málsins verður sent til skattrannsóknardeildar ríkisskattstjóra til umfjöllunar og frekari ákvörðunar. Það var skattrannsóknardeildin, sem upphaflega bað um dómsrannsókn á „Antik”-má!inu. Fór hún fram i saka- dómi Reykjavíkur og tók hartnær tvö ár, enda málið mjög flókið og rannsókn- in umfangsmikil. Antik-málið snýst um innflutning á miklu af antik-varningi á nokkurra ára timabili. Lék grunur á að innkaups- og söluverð þessara hluta hefði verið falsað. Niðurstaðan nú er þó sú, sem fyrr greinir, að aðeins verður ákært fyrir meinta fölsun gjaldeyrisumsókna. Kærði i þessu máli, Björn Vilmundar- son, lét vegna málsins af störfum for- stjóra Ferðaskrifstofu rikisins. -BS/ÓV. Bensínið: ígær og f yrradag — steindautt yfir sölunni í morgun Nokkrir dagar munu nú liða þar til eðlilegt ástand kemst á i bensín- sölumálum á borgarsvæðinu, þvi í gær og fyrradag voru metsöludagar, ef svo má að orði komast. Dagarnir voru reiknaðir frá hádegi til hádegis, þannig að tölur gærdagsins liggja ekki endan- lega fyrir, en ljóst er af viðtölum við olíufélögin að salan var gifurleg báða dagana. Þá hafði blaðið samband við tvær bensinsölur I morgun og var sama svarið á báðum stöðum: Alveg steindautt. Stafar það að sjálfsögðu af því að nú hefur verið leyft að dæla bensíni úr rússneska oliuskipinu, sem beið hér i nokkra daga löndunar. -G.S. Þrír fyrstu laxarnir á þessu sumri bárust á land úr Hvitá i Borgarfirði i gær, en þá hófst netaveiði þar. Að sögn Ásu Björnsson á Hvitárvöllum eru ekki nándar nærri allar lagnir komnar I ána enn, og auk þess hefur orðið vart við sel, sem étur laxinn úr netunum. Annars sagði hún að ekkert hefði verið að marka gærdaginn, það væri ekki fyrr en eftir flóðið i dag að eitthvað færi að sjást hvernig veiðin færi af stað. Bændur við neðanverða Hvitá senda lax sinn aðallega á markað í Reykjavik svo næstu daga gæti nýr lax orðið á boðstólum I verzlúnum. -G.S. Irjólst, úháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ1978. ÓmarValdimars- sonaðstoðar- fréttastjðri Dagblaðsins Ómar Valdimarsson blaðamaður hefur verið skipaður aðstoðarfréttastjóri Dagblaðsins frá og með deginum í dag. Munu hann og Atli Steinarsson skipta með sér verkum I þessu starfi. Dagblaðinu hefur á ferli sinum vaxið svo fiskur um hrygg að álag á frétta- stjóm hefur sífellt aukizt. Ómar Valdimarsson er 28 ára gamall og hefur starfað við blaðamennsku i 9 ár. Hann stundaði nám í blaðamennsku I Svtþjóð og Bandarikjunum. Við Dag- blaðið hefur hann starfað allt frá upp- haft haustið 1975. Dagblaðið býður Ómar Valdimarsson velkominn til nýrra starfa. —JBP— Á raf magns- bíllinn möguleika á íslandi — almennur háskóla- fyrirlestur um málið ídag „Rannsóknir okkar á möguleikum Is- lendinga til notkunar rafmagnsbila felast fyrst og fremst I því að fylgjast með þró- un mála erlendis,” sagði Gisli Jónsson prófessor i viðtali við DB. Á morgun kl. 5 flytur próf. Gísli almennan fyrirlestur um það sem fyrir liggur varðandi raf- magnsbilanotkun. Fyrirlesturinn verður fluttur i stofu 158 í húsi verkfræði- og raunvisindadeildar. öllum er heimill að- gangur. „Frekari rannsóknir okkar hafa verið ókleifar sakir fjárskorts. Við erum að vonast til að fá til landsins fullkominn rafmagnsbíl. Gefið hefur verið I skyn að við fáum aukið fé til að kanna mögu- leika rafmagnsbila hér á landi. Ef fólk sýnir málinu áhuga verður það lyfti- stöng til aðgerða i málinu,” sagði Gisli Jónsson. —ASt

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.