Dagblaðið - 19.06.1978, Blaðsíða 32

Dagblaðið - 19.06.1978, Blaðsíða 32
Fjórir ungir menn frá Dalvík týndir — fóru útá 10 feta plastbát — munir hafa rekið úr bátnum t morgun var enn ófundinn 10 feta plastbátur, sem fjórir piltar frá Dalvík, allir á aldrínum 16—18 ára, fóru á frá Dalvík til Hríseyjar aöfaranótt 17. júní. Siðan hefur látlausl verið leitað á .landi úr lofti og á sjó, og er nú næsta vonlitið talið að báturinn sé ofansjávar. í gær fannst eina árin sem í bátnum var og einnig fannst bæði skóklossi og stakkur sem tilheyrðu ungmennunum. Piltarnir fjórir eru allir til heimilis á Dalvík. Þeir voru saman á götum úti um kvöldið og aðfaranótt 17. júní. Síðan sáu lögreglumenn á Dalvik á eftir þeim á bátnum úti á Eyjafirði og fylgdust með þeim í sjónauka unz þá bar í hafnargarðinn við Hrísey. Er í Ijós kom að báturinn kom aldrei til Hriseyjar var skipulögð leit hafin. Siðan hafa 20—30 bátar leitað á firðinum, SFVÍ menn og sjálf- boðaliðar beggja megin Eyjafjarðar gengið látlaust um fjörur og farið á sjó með landi þar sem ógreiðfært er fót- gangandi. Ár bátsins rak í gær undan Yztabæ í Hrísey og fatnaðurinn, sem um var getið fannst norðan við höfnina í Hrísey. Þar hafa síðan froskmenn leitað og slætt hefur verið með nót og er þeirri leit haldið áfram, jafnframt því sem enn er skyggnzt um með ströndum fram og svipazt um úr lofti frá botni Eyjafjarðar út á Grímseyjarsund. Leitarskilyrði hafa verið mjög góð, varla gárað á fjörðinn allt frá þvi að leitin hófst. ASt/HP. frfálst, úháð dagblað MÁNUDAGUR 19. JÚNÍ 1978. Aðstoðar- flugmálastjóri til Flugleiða Leifur Magnússon aðstoðarflugmála- stjóri var meðal þeirra 19, sem sóttu um stöðu flugrekstrarstjóra hjá Flugleiðum, en núverandi flugrekstrarstjóri, Jóhann- es Einarsson, er á förum til starfa hjá Cargolux. Kosningaslagurinn: Fólk í ferðahug færupp- hringingu — þvínúá enginnað sleppa úr landi öðruvísi enað gera skyldu sína við kjörborðið DB þekkir nokkur dæmi þess að hringt hafi verið í fólk sem ætlað hefur utan og minnt á að það ætti eftir að kjósa. Hefur verið boðin fram aðstoð hafi hennar verið þörf. Ekki er vitað hvar stjórnmála- flokkarnir fá greiðlega upplýsingar um fólk í ferðahug. Hafa þeir a.m.k. stundum haft undir hönd- um skrá yfir þetta fólk og notað hana til að „smala” eftir. Nú þegar sækja stjórnmála- flokkamir fastar í kosningasmölun en þeir gerðu jafnvel á kjördaginn sjálfan í byggðakosningunum í maímánuði sl. Getum var leitt að því, að úrslit byggðakosninganna hafi að einhverju leyti ráðist af áhugaleysi fylgismanna, einkum stærstu flokkanna. Þá hefur einnig heyrzt talað um dugleysi kosningastjórna. Virðist alveg ljóst, að nú verður kosninganótin hraðar dregin og að nú eigi helzt enginn að sleppa við að kjósa. BS. Þorkell ogGrjótaþorp: UESIR MOGGA- PORTINU! Nýjar breytingar voru gerðar í Grjótaþorpinu í morgun. Þá lét Þorkell Valdimarsson girða lóð sína vestan við Morgunblaðshúsið og ræmu út í Fischerssund. Með þessu lokast bilastæði sem starfs- fólk fyrirtækja í Morgunblaðshús-' inu hefur notað. „Þessar aðgerðir beinast að Morgunblaðinu sem stofnun,” sagði Þorkell. „Þeir verða að greiða fyrir leigu bilastæða sem öðrum er gert að borga skatta og gjöld af. Ef semst um leigugjald verður lóðin opnuð aftur.” —GS. NÝR MEIRIHLUTI — samt skein sólin ekki Einbeittsér að drykkjunni Þrátt fyrir ölvunina um þjóðhá- tiðina reyndist róleg helgi hjá rannsóknarlögreglumönnum ríkis- ins. Töldu menn helzt að menn hefðu einbeitt sér svo að drykkj- unni aö glæpamálin hefðu niður fallið. Einn minni háttar þjófnaður var kærður í vesturborginni síðla á föstudag. Rannsóknarlögreglu- menn fundu þjófana með þýfið litlu síðar. —ASt Hér er hluti meirihluta nýrrar borg- arstjórnar að halda hátlðlegan 17. júni. Fremst á myndinni Sigurjón Pétursson^pjörgvin Guðmundsson og kona hans, aftar Þór Vigfússon og hátiðahöldum þessum. Og samt skein kona hans. Þetta var I fyrsta skipti í sólin ekki þennan dag fremur en svo hálfa öld, sem annar meirihluti en oftáður. Sjálfstæðisflokks var i sviðsljósinu I DB-mynd Bjarnleifur. Greenpeace í hvalnum Náttúruverndarmenn úr lónuðu í kringum hvalinn sem dreginn Greenpeace-samtökunum komu á var upp. Ljós- og kvikmynduðu þeir skipi sínu, Rainbow Warrior, i Hval- allt sem fram fór, en höfðust ekkert fjörð sl. föstudag, þar sem verið var frekarað. að draga myndarlegan hval upp í Á myndinni má sjá gúmbát rennuna. Greenpeace við hvalinn skammt frá Settu Greenpeace-menn út gúmbát bryggjunni við hvalstöðina. með fjórum mönnum innanborðs og ÓV/Ljósm: JónÓlafeson. Skv. þvi sem blaðið fregnaði fyrir helgina, mun umsókn Leifs hafa vegið þyngst, enda maður með mjög viðtæka þekkingu á flugmálum. Verði af ráðn- ingu hans mun hann sennilega óska eftir að fara i ólaunað leyfi hjá ríkinu, a.m.k. fyrst um sinn. —G.S. Neskaupstaður Talsverttjón íbruna Töluvert tjón varð í bruna á Neskaup- stað 17. júní er eldur kom upp i Raf- tækjavinnustofu Kristjáns Lundbergs að Hafnarbraut 22. Slökkviliðinu var til- kynnt um eldinn kl. 17.15 en raftækja- vinnustofan er á efri hæð hússins, sem er steypt en klætt trétexi að innan. Nánast allt sem brunnið gat á efri hæðinni brann en slökkviliðinu tókst að bjarga neðri hæðinni að mestu, en þar er raftækjaverzlun. Þar urðu aðeins nokkr- ar skemmdir af reyk og litils háttar af vatni. Að sögn lögreglunnar á Neskaupstað bjargaði það miklu hve slökkviliðið var fljótt á staðinn og veður var mjög gott. Slökkvistarf tók um þrjá stundarfjórð- unga. Skemmdir hafa ekki verið full- kannaðar, en Ijóst er að lager og tæki, sem voru í viðgerð á raftækjavinnustof- unni hafa eyðilagzt. Tjónið hefur þvi orðið talsvert. Hátiðahöldin á Neskaupstað fóru ró- lega fram að sögn lögreglunnar en ölvun unglinga var þó talsverð er líða tók á kvöld. —JH. Auglýsingar frá flokkum Auglýsingar þær frá Sjálfstæðis- flokknum, sem birtust neðst á nokkrum síðum Dagblaðsins á föstudaginn og aftur i dag, eru eins og hverjar aðrar auglýsingar, sem Dagblaöið birtir frá stjórnmálaflokkunum. Sé um áróður að ræða í slíkum auglýsingum, hefur Dag- blaðið þá reglu, að auðkenna þær sér- staklega með orðinu „auglýsing". Þetta orð féll niður með auglýsingum Sjálf- stæðisflokksins á föstudaginn, en á að fylgja þeim i dag. Menn eru því beðnir um að túlka ekki þessar auglýsingar á þann hátt, að Dagblaðið hafi tekiö flokkspólitíska afstöðu af einhverju tagi.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.