Dagblaðið - 23.08.1978, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1978.
Bandaríkin:
Koffeín skaðlegt
þunguðum konum
—getur valdið fósturskemmdum efdrukkið ermeira en fjórirbollarafkaffi
ádag
Vestur-
Þýzkaland:
Geislavirkt
gas út í
andrúmsloftið
Geisla virkt gas, svonefnt tritium
komst út i andrúmsloftið vegna bilunar
á loka í kjarnorkurafstöð í Juelich i
Vestur-Þýzkalandi á föstudaginn. Að
sögn stjórnenda stöðvarinnar fóru þó
aðeins um það bil fimm lítrar af gasinu
út í andrúmsloftið af þeim eitt hundrað
og fimmtiu sem komust frá sjálfum
kjamaofninum. Tókst starfsmönnum
stöðvarinnar að einangra meginhluta
gassins. Á meðan á þvi stóð voru þeir i
mikilli geislunarh ;u en að sögn undir
stöðugu ef‘; ef geislun færi yfir
ieytileg mörk sem ekki varð í þessu til-
viki.
Neytendasamtök i Washington
skoruðu nýlega á bandarísk stjórnvöld
að benda þunguðum konum á að
drykkja kaffis, tes og annarra drykkja
sem innihéldu koffein. gæti haft
skaðleg áhrif á fóstrið sem þær gengju
með. Benda samtökin á að samkvæmt
rannsóknum sem lokið sé og meðal
annars hafi verið kostuð af kaffifyrir-
tækjum hafi komið í ljós að er
tilraunadýr hafi neytt sem svarar til
fjögurra bolla af kaffi á dag, hafi
komið fram skemmdir i fóstrum
þeirra. Að sögn hafi einnig komið í Ijós
við þessar tilraunir að meiri
kaffineyzla auki fósturskemmdirnar.
Matvæla- og drykkjareftirlitsstofn-
un Bandarikjanna mun nú kanna
þessi mál. Er þá bæði átt við drykki
sem koffeíni er bætt út í við vinnslu,
eins og ýmsum kóladrykkjum, svo og
kaffis sem unnið sé úr náttúrulegum
jurtum.
Forstöðumaður rannsóknarinnar
sagði að niðurstöðurnar ættu ekki að
koma neinum á óvart. „Þær sýna
aðeins fram á það, sem lengi hefur
verið haldið fram, að þungaðar konur
eiga ekki að neyta neinna dreyfandi
eða örvandi efna, hvorki fastra né
fljótandi."
«aPl£
mxx.
Gf
wm - „... ^ sj
mi!il
Spara umbúð-
imar - lækka
vöruverðið
Ein leiðin sem Bandaríkjamönnum
hefur dottið í hug til að halda niðri
vöruverði er að spara umbúðakostnað.
Bjóða nú nokkrar verzlanir þar vestra
upp á ýmsan niðursoðinn mat i
dósum, með mjög einföldum og
ódýrum merkimiðum. Að sögn eins
helzta forgöngumanns þessa máls væri
hægt að lækka verð á ýmsum vörum
að jafnaði um tíu til þrjátíu af hundr-
aði með þessum hætti ef almennt ýrði
farið að gera slíkt.
Samhliða er þó rétt að geta þess að
varan yrði lélegri. eða gæti orðið það i
það minnsta að áliti sumra viðskipta-
vinanna. Til dæmis má þá taka aðekki
er nein fullvissa fyrir að bitar af
niðursoðnum perum séu allir nærri
jafnstórir i dósinni eða að þurrkur séu
allar nákvæmlega jafnstórar.
Hugmynd um að selja vörur á
þennan hátt mun vera upprunnin i
Frakklandi. Þar hóf verzlana-
keðjufyrirtæki eitt að bjóða ýmsar
vörur lítt eða ekki merktar fram-
leiðendum eða öðrum á lægra verði.
Var þaðárið 1976.
Á myndinni sést er lögreglumaður i borginni Memphis i USA hallar sér
fram á bifreið að skipun félaga sinna. Sá fyrstnefndi var í verkfalli en hinir ekki.
Olli þetta ástand i Memphis nokkrum erfíðleikum vegna þess að það bar upp á
dagana sem aðdáendur rokkstjörnunnar frægu, Elvis Presley, hcimsóttu borgina
tii að minnast þess að citt ár er liðið frá dauða hans. Varð að lokum að kalla út
þjóðvarðliða til að aðstoða þá lögreglumenn sem ekki lögðu niður störf.
Grænland:
GODTHAB ORÐIN
250 ÁRA GÖMUL
Bærinn Godtháb á Grænlandi er tvö
hundruð og fimmtíu ára um þessar
mundir. Er ætlunin að halda afmælið
hátiðlegt frá föstudeginum næstkom-
andi og alveg fram að mánaðamótum.
Það var presturinn og trúboðinn Hans
Egede sem talinn er hafa stofnað Godt-
háb árið 1728. Kallaðist bærinn þá Godt
Haabets Koloni, eða nýlenda hinna góðu
vona. Áætlað er að hátiðahöldin muni
kosta bæjarbúa um það bil tvær milljón-
ir danskra króna eða um eitt hundrað
ntilljónir íslenzkra króna. Er það nokkru
meira en áætlað var er hátiðahöldin
voru ákveðin.
Erlendar
fréttir
Bandaríkin:
Forsetafrúnni helzt
ilia á starfsiiðinu
— vinnudagurinn frá morgni til kvölds, sjö daga vikunnar
Þrátt fyrir fyrri óskir Carters Banda-
rikjaforseta um að starfsmenn hans í
Hvíta húsinu fórnuðu ekki heimilislífi
sinu fyrir starfið virðist Rosalynn eigin-
konu hans ekki haldast vel á starfsfólki.
Ekki er það þó vegna þess að forsetakon-
an þyki svo slæmur húsbóndi. Niður-
staða fólks er aðeins sú að störf i Hvita
húsinu i Washington séu ekki slik að
vinna megi að þeim eingöngu á milli níu
og fimm. Öllu réttara sé að segja að þar
verði að vinna alla sjö daga vikunnar frá
morgni til kvölds.
I siðustu viku hætti rithöfundur einn
að nafni Ann Anderson störfum sinum á
kynningardeild Rosalynn Carter. Er hún
að sögn önnur konan sem gegnt hefur
ábyrgðarstarfi fyrir forsetafrúna og
hættir á siðustu vikum. Hin var Barbara
Heinback, gift kona sem kaus að eyða
meiri tima með fjölskyldu sinni.
gagni með þvi að halda ykkur í góðri
andlegri og líkamlegri þjálfun og um-
gangast fjölskyldur ykkar, börn og
kunningja,” sagði Carter forseti.
Skömmu eftir að Jintmy Carter
Bandarikjaforseti tók við embætti hélt
hann ræðu yfir starfsmönnum sinum
þar sem hann sagðist ekki vilja að fjöl-
skyldulif þeirra truflaðist vegna trú-
mennsku þeirra við hann. „Þið komið
forsetanum og þjóðinni mun meira að