Dagblaðið - 23.08.1978, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1978.
7
Nicaragua:
Skæruliðar tóku þing-
húsið og fimmtíu gísla
— þar á meðal innanríkisráðherrann, þingmenn og f rænda forsetans
Vinstri sinnaöir borgarskæruliðar
tóku i morgun þinghúsið i Mið-
Amerikuríkinu Nicaragua og tóku
jafnframt um það bil hundrað gisla,
jafnvel hundruð samkvæmt sumum
heimildum. Flestir þeirra eru þing-
menn sem voru á fundi er ræningj-
arnir brutust inn. Þar á meðal er einn
frænda Somoza forseta sem ríkt hefur
síðastliðin fjörutiu ár ásamt fjölskyldu
sinni i Nicaragua.
Borgarskæruliðarnir sem tóku þing-
húsið eru sagðir tuttugu að tölu. Sam-
kvæmt heimildum í Nicaragua krefj-
ast þeir tíu milljón dollara lausnar-
gjalds fyrir gisía sína og þess að um
það bil eitt hundrað pontisKum tóng-
um í Nicaragua verði sleppt úr fang-
elsi. Einnig vilja þeir fá umráð yfir
flugvél til að komast til Mexíkó,
Panama eða Venezuela.
í byggingunni sem tekin vareru auk
þingsala ráðuneyti sem fara með inn-
anlandsmál og fjármál og er innan-
rikisráðherrann meðal þeirra sem
fangnir eru hjá skæruliðunum.
Fljótlega eftir að ljóst var að skæru-
liðarnir höfðu tekið bygginguna var
hún umkringd af herlögreglumönnum
í brynvörðum bifreiðum. Var skipzt á
skotum. Að sögn sjónarvotta hættu
herlögreglumennirnir að skjóta þegar
skæruliðarnir stilltu gíslum sínum við
glugga byggingarinnar. Erkibiskupinn
í Managua hefur að sögn tekið að sér
að reyna að ná samkomulagi milli
aðila. Hafa hann og annar biskup farið
inn í þinghúsið og rætt við mannræn-
ingjana. Skæruliðarnir heimiluðu
fimmtán særðum gislum að fara út úr
byggingunni og voru þeir fluttir á
sjúkrahús. Samkvæmt óstaðfestum
heifnildum féll einn herlögreglumaður
í átökunum.
1 hópi gíslanna eru eins og áður
sagði innanríkisráðherrann, varafor-
seti þingsins og fjöldi þingmanna, þar
á meðal frændi Somoza forseta. Auk
þess er þar mikill fjöldi starfsmanna
stjórnarinnar og nokkur hópur frétta-
manna.
Borgarskæruliðarnir í Nicaragua
stóðu fyrir svipuðum aðgerðum árið
1974. Þá tóku þeir gísla og hertóku
einkaíbúð eina. í hópi gislanna voru
erlendir sendimenn, háttsettir opinber-
ir starfsmenn og kaupsýslumenn.
Fengu þeir þá eina milljón dollara og
tlugvél sem flutti skæruliðana til
Kúbu. í siðasta mánuði skutu skæru-
liðarnir eldflaug að forsetabygging-
unni en skotið hitti ekki. Önnur eld-
flaug lenti á herskólabyggingu rétt við
forsetabygginguna.
Svo virðist sem Somoza og fjöl-
skylda hans séu nokkuð að missa tök
sín í Nicaragua. Hafa verið þar nokkr-
ar óeirðir og verkföll á undanförnu
Bandaríkin:
Sjö ára
strákur
fyrir
dómara
— fyriraðstela
plastbyssu
fyrir
hundrað krónur
Sjö ára drengur var nýlega talinn
sekur um að hafa stolið plast-
leikfangabyssu úr verzlun einni í
borginni Winona í Minnesotaríki í
Bandarikjunum. „Með þessu viljum
við reyna að koma því inn hjá barninu
að á þennan hátt er ekki rétt að hegða
sér,” sagði dómarinn er hann var
krafinn skýringar á verknaðinum. Á
þann hátt væri líka auðveldast að fá
heimild til að kanna forsögu barnsins
og kannski á þann hátt hjálpa því.
Að sögn lögmanns þess, sem
skipaður var verjandi hins sjö ára pilts,
kosta réttarhöldin upp undir fimm
hundruð dollara eða um það bil jafn-
virði hundrað og þrjátiu þúsund
króna.
Lögreglumaðurinn, sem handtók
piltinn, er hann varð uppvis að
þjófnaðinum, sagðist handtaka alla
sem brytu þannig af sér, ef þeir hefðu
náð fimm ára aldri. „Eg tel að þá viti
þeir hvað um sé að ræða og það undir-
strikast i huga þeirra ef þeir eru krafðir
skýringa á gerðum sínum af dómara,”
sagði lögreglumaðurinn.
Ástralía:
Mánuðiað
gera við
fangelsið
Aðalfangelsið i Sidney í Ástraliu mun
verá svo illa farið eftir óeirðirnar sem
urðu þar í fyrrakvöld að marga mánuði
mun taka að koma þar öllu i samt lag.
Urðu margir fanganna að eyða siðustu
nótt i sótfylltum fangageymslum án
nokkurra almennra þæginda. Öll snyrti-
tæki, hillur og húsgögn voru rifin laus
og notuð fyrir barefli i óeirðunum.
Ætlað er að upphafsmenn ólátanna
verði. sóttir til saka en talið er að þeir
hafi verið um það bil fjörutíu. Þrjátiu
fangar slösuðust í fyrrakvöld. þar af
brenndust sautján er fangarnir báru eld
að byggingunni.
'
URÐU AÐ HÆTTA
VIÐ HUNDRAÐ
MÍLNA SUNDIÐ
Tvær bandariskar sundkonur urðu að gefast upp við að synda samfleytt eitt hundrað mílur — rétt um
eitt hundrað sextiu og fimm kilómetra — nýlega. Önnur þeirra, Diana Nyad, tuttugu og átta ára
gömul, haföi ekki gert annað síðan snemma i fyrravetur en búa sig undir sundið. Hún varð að hætta
þegar hún hafði lokið tæplega helmingi leiðarinnar frá Kúbu til Florida.
Hin konan, Stella Taylor, fjörutiu og sex ára gömul, stóð sig aftur á móti mun betur og átti aðcins
eftir átján mílur að markinu er hún varð að gefast upp. Lagði hún upp frá Bahamaeyjum áleiðis til
Florida.
Munu bæði veður og vindar hafa valdið því að sundkonurnar hættu. Nokkrum erflðleikum var bundið
að halda hákörlum i hæfilegri fjarlægö frá konunum og þurfti önnur þeirra, Stella, að fara þrisvar upp
úr sjónum og um borð i bát vegna hákarla. Finn þeirra lét sig ekki fyrr en búið var að skjóta hann.
Hvorug sundkvennanna lét að þvi er virtist nokkuð á sig fá þó hákarlarnir væru nærri þcim.
Vinsældir Elvis Presley heitins rokksöngvara, sem lézt fyrir liðlega einu ári, eru
ávallt miklar. Staðfesting þess fékkst nýlega þegar vaxmynd af honum með gitar-
inn i höndunum var sett upp í safni Madame Tussaud í London. Þykir slikt ávallt
mikill heiður og nokkuð góður mælikvarði á frægð viðkomandi.
Nixon segist
geta greitt
skuldir sínar
Nixon hefur beðið stuðningsmenn unarsjóðinn,” sagði Johnson. Að sög'n
sína að hætta fjársöfnun sér til stuðn- hans var helzti lögfræðikostnaðurinn,
ings og segist geta greitt sjálfur þann sem Nixon þurfti sjálfur að greiða, sá
lögfræðikostnað sem hann varð fyrir sem féll er hann reyndi að koma í veg
vegna Watergatemálsins. Að sögn fyrir að efni Watergatespólanna yrði
Lloyd Johnsons, eiganda hjúkrunar- dreift til almennings sem og öðru efni
stöðvar, hefur forsetinn fyrrverandi úr forsetatíð hans. Er skuldir Nixons
svo miklar tekjur af birtingu sjón- vegna þessa voru hæstar námu þær að
varpsviðtala við sig og nýútgefnum sögn Johnsons um það bil sjö hundruð
endurminningum að söfnunarinnar er og fimmtiu þúsund dollurum. Safnazt
ekki lengur þörf. hafa þrjú hundruð fimmtíu og þrjú
þúsund dollarar á vegum styrktar-
„Nixon telur að hann geti séð um sjóðsins á undanförnum árum. Af þvi
þetta í framtíðinni svo við höfum eru að sögn aðeins ónotaðir fimm þús-
ákveðið að hætta og gera upp söfn- unddollarar.