Dagblaðið - 23.08.1978, Side 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1978.
........— " '
Ráðþrota og andlega lúnir menn
9
— dómur dr. Braga Jósepssonar um íslenzka alþingismenn
„Á Alþingi Islendinga sitja 60 ráð-
þrota og andlega lúnir menn sem flesta
skortir lífsneista, sjálfsögun og skiln-
ing á því ástandi sem ríkir I þjóðfélag-
inu. Ef til vill skilja þeir ekki heldur að
við lifum á nýrri öld, þar sem fólk gerir
aðrar og meiri kröfur til valdhafa en
tíðkaðist fyrir nokkrum áratugum, svo
ekki sé lengra farið.”
Þetta er dómur Braga Jósepssonar í
blaðinu íslensk réttarvernd, um ný-
kjörna alþingismenn. Raunar munaði
ekki miklu að Bragi kæmist sjálfur inn
á löggjafarsamkundu þjóðarinnar en
hann var í fimmta sæti á lista Alþýðu-
flokksins i Reykjavik i siðustu kosn-
ingum. Af þeim lista fóru fjórir á þing.
En það eru fleiri en þingmenn sem
fá til tevatnsins hjá dr. Braga. Lög-
fræðingar landsins eiga ekki upp á
pallborðið. Bragi segir m.a.: „Raunin
er þó sú að stéttin,” þ.e. stétt lögfræð-
inga, „er bæði áhrifalítil og rislág að
því er varðar umbætur í réttarfarsmál-
um almennt. Þeir sem hafa sig mest í
frammi virðast leggja höfuðáherzlu á
fasteignasölu. innheimtu og ýmiss
konar brask og segir það nokkuð um
ástand og stöðu stéttarinnar í dag.”
í grein sinni segir Bragi einnig: „Á
sama tima og fjármálaspilling, ofbeldi
og valdniðsla ganga sem faraldur yfir
þjóðina eykst sýndarmennskan i rétt-
arkerfinu og stjórnkerfinu. í mörgum
valdamestu embættum landsins sitja
embættismenn af gamla skólanum, i
þess ógeðfelldustu merkingu, stein-
gervingar fortiðarinnar, sem jafnframt
eru siðameistarar þeirra áhrifamanna
sem mestu ráða í þjóðfélaginu í dag.
Við dómstóla landsins, háa sem lága,
starfa gervidómarar sem líta á það sem
heilagt og virðulegt hlutverk sitt að
viðhalda gerviréttlæti méðal þegn-
Eftir þessa ádrepu hvetur dr. Bragi
fólk til þess að nýta sér réttindi þau er
stjórnarskrá landsins veitir.
— JH
Önnur
skák-
keppni
undir
beru
lofti
Útimót i skák verður haldið á
Lækjartorgi á næstunni. Er þetta í
annað sinn sem teflt er úti undir
berum himni. Áætlað er að tefla
annaðhvort föstudaginn þann 25.
eða föstudaginn 1. sept. Eru
hafðar tvær dagsetningar til vonar
og vara ef veðrið skyldi verða eins
og það á oft að sér i Reykjavík.
Eins og í fyrra skiptið verður
teflt á Lækjartorgi. Teflt verður
eftir Monradkerfi og verða veitt 8
verðlaun, þau hæstu hundrað þús-
und en þau lægstu tuttugu þús-
und.
Skákfélagið Mjölnir stendur
fyrir keppninni eins og í fyrra. Eins
og þá fer hún þannig fram að fyrir-
tæki kaupa einstaka skákmenn til
keppni fyrir sig. I fyrra sigraði
Helgi Ólafsson fyrir Þjóðviljann.
Þá tóku allir helztu skákmenn ls-
lands þátt í henni að Friðriki
Ólafssyni undanskildum.
- DS
Handbók
um við-
skipti og
þjónustu
komin út
Út er komin bókin Viðskipti og
þjónusta, sem er uppsláttarrit um
viðskipta-, framleiðslu- og þjón-
ustustarfsemi hér á landi. Er bókin
ætluð jafnt til heimilisnota og fyrir
fyrirtæki. Meira að segja er bókin
að hluta miðuð við að enskumæl-
andi menn geti haft full not af
henni.
Um tiu þúsund aðila er getið i
bókinni. Fyrri hluti bókarinnar
greinir frá ýmsum almennum upp-
lýsingum um þessa aðila. nafni
fyrirtækja þeirra og númeri. iXist
hólfi. söluskattsnúnteri.
telexnúnteri. og fleiru. Seinni
hlutinn cr svo skipting á þvi
hvernig þessi tiu þúsund fyrirtæki
skiptast í starlsgreinar.
Einnig er 4 þúsund umboðsaðila
getið í bókinni. Bókina verður
hægt að fá i bókaverzlunum og
kostar hún 3.500—4.800 krónur.
- DS
' '' \ V /,
- •• j a »
ra BrenV
fa. Uppl i
|1S ok 22 í
'irrti. 50 lil fiO fm
r'IUdnT.n?i' 4!!
Bílaviðskipti
Sunbeam Imp. sendlbíll
árg. 1971 til sölu, þokkalegur bíll.
Uppl. i síma 40434 eftir kl. 18.
til s«
km.
Uppl
Fiat 850 special árg. ’71
til sölu, góðir greiðsluskilmólar.
nýupptekin vél í toppstandi
Uppl. i síma 74917.
Plymouth Belvedere
árg. 1967 til sölu. Tilboð. Uppl. í
síma 42368.
Chevrolet Impala
árg. 1969 til sölu. nýsko^
Tilboð. Uppl. í slma 20.^
Skúlagötu.
Oska eftir vinstri al
á Benz 230. Uppl. i
Rússajeppi
árg. 1956 til si;
10039
Einkamál
l'ngur maður
öskar eftir að kynnast stúlkú
30 ára með saiíjj
hafa börh/ir^
tilboð til l)B
Kinkamál
íd fylgi.
ólygnust
Hún sýnir í hvaða blaði smáauglýsing ber
mestan árangur. Hvaða ástæða önnur skyldi ráða því að
smáauglýsingamagnið er alltaf mest í Dagblaðinu?
Þangað leita viðskiptin, sem úrvalið er mest.
Smáauglýsingar
WBIABSINS
Þverholtill sími 2 70 22
Opið til kl.10 í kvöld