Dagblaðið - 23.08.1978, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ: MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1978.
Iþróttir
Iþrottir
íþróttir
Iþróttir
um i leiknum.
DB-mynd FAX
Valsmenn Islandsmeistarar:
En sigurganga þeirra
stöðvuð á Akureyri
Jafntef li 0-0 og KA hlaut gott stig í fallbaráttunni
Frá Stefáni Arnaldssyni, Akureyri.
Valsmenn tryggðu sér íslandsmeist-
aratitilinn í knattspyrnu i gærkvöld hér á
Akureyri i skemmtilegum leik við KA —
langbezta leik KA-manna i sumar. Jafn-
tefli varð án þess mark væri skorað og
þar með töpuðu Valsmenn sínu fyrsta
stigi í 1. deildinni í sumar. Eftir 16 sigur-
leiki í röð glataðist loks stig — en það
skiptir ekki máii. Valur varð Íslands-
meistari i 16. sinn og svo miklir eru yfir-
burðir liðsins að það hefur fjögurra stiga
forustu á Akurnesinga þegar ein umfþrð
er ettir. Verðugir íslandsmeistarar — og
öll þau met sem þeir hafa sett í 1.
deildinni i sumar verða seint slegin, 33
stig af 34 mögulegum komin í höfn, —
ótrúlegt afrek.
KA menn léku á móti vindi í fyrri
hálfleik í gær og byrjuðu af krafti.
Leikurinn varð strax skemmtilegur og
1200 áhorfendur skemmtu sér vel. KA-
menn voru ágengir, fengu tvær
homspyrnur, sem ekki nýttust, og á 13.
min. átti Jóhann Jakobsson fast skot á
mark Vals en beint á Sigurð markvörð.
Þá fóru Valsmenn að koma meira inn
I myndina og á 15. mín. komst
Guðmundur Þorbjörnsson í gott færi
inni á markteig en spyrnti laust fram
hjá. Grasvöllurinn, sá bezti á landinu,
skartaði sínu fegursta en var nokkuð
háll vegna bleytu og það kom fyrir að
leikmenn áttu erfitt með að fóta sig —
og á 35. mín. hitnaði i kolunum hjá flest-
um áhorfenda, þó svo Valsmenn væru
þar fjölmennir.
Áhorfendur og leikmenn KA vildu fá
vítaspyrnu þegar knötturinn fór í hönd
Valsmanns og auk þess var brotið á
Elmari Geirssyni innan vitateigs. En það
var ekkert dæmt. Dómarinn, Kjartan
Ólafsson, var í slæmri stöðu til að sjá at-
vikin — og línuvörðurinn, Rafn Hjalta-
lín, fylgdi þeirri reglu að veifa ekki á at-
vik sem skeðu innan vítateigs. Eftir
leikinn sagði eftirlitsdómari KSÍ: „Það
hefði verið sjálfsagt að dæma víti —
þetta var greinileg vitaspyrna.”
Valsmenn sluppu þar með skrekkinn
og spenna var í leiknum. Á 40. mín. gaf
Ingi Björn fyrir á Guðmund Þorbjörns-
son sem rétt utan markteigs skallaði
beint í fang Þorbergs Atlasonar,
markvarðar KA — og tveimur mín.
síðar átti Atli Eðvaldsson stórhættulegt
skot að marki. Knötturinn fór í varnar-
mann og síðan rétt utan við stöng. Hálf-
leikurinn var mjög jafn — Valsmenn
ivið meira með boltann. KA-menn léku
frekar aftarlega — allan leikinn — en
börðust grimmilega — hreint með
ólíkindum.
Talsverð gola var I s.h. — alveg logn á
milli, frábært knattspyrnuveður — og
nú höfðu KA-menn vindinn með sér.
Valsmenn fengu fyrsta færið — Atli
einn innan vitateigs en Þorbergur varði
laust skot hans. Síðan kom Þorbergur I
veg fyrir að Ingi Björn skoraði. Á 69.
mín. kom bezta tækifæri leiksins.
Ármann Sverrisson gaf fyrir frá hægri
inn í vítateig Vals og þar kom Jóhann á
fullri ferð. Þrumuskot hans úr miðjum
vítateignum sleikti stöng Valsmarksins.
Rétt á eftir hreinsaði Gunnar Gíslason
bakvörður frá I markteig KA þegar
knötturinn var á leið I markið frá
Guðmundi — og lokakafla leiksins var
greinilegt að leikmenn beggja liða sættu
sig við jafntefli. Valsmenn fóru þá hægt
i sakirnar. Fögnuður þeirra var mikill í
leikslok: íslandsbikarinn i höfn. KA lék
mjög vel — leikmenn liðsins léku upp á
að ná stigi og tókst það. Nokkuð sem
öðrum liðum hefur ekki tekizt i sumar.
Þeir börðust grimmilega og það fór
nokkuð í skapið á Valsmönnum. Þor-
bergur var beztur — og Gunnar Gisla-
son, góður, hélt Inga Birni niðri. Vals-
liðið var mjög jafnt, Dýri öruggastur en
mest mæddi á honum þar sem sóknar-
lotur KA gengu oftast upp miðjuna.
Eftir leikinn fengu Valsmenn blómvönd
frá KA fyrir Íslandsmeistaratitilinn —
og leikinn. Valsmenn tolleruðu' þjálfara
sinn — fóru siðan til búningsherbergja
— komu aftur og stilltu sér upp á vellin-
um til myndatöku — sungu hátt og
snjallt og skáluðu í kampavíni I glöðum
vinahópi. AtA.
Staðan
Staðan
Valur
Akranes
Víkingur
Keflavik
Fram
ÍBV
KA
Þróttur
FH
Breiðabl.
er nú þannig:
17 16 1
17 13 3
16
16
16
16
17
15
16
16
Næstu leikir eru i kvöld. Þá leika
Fram og ÍBK á Laugardalsvelli kl. sjö,
og Breiðablik—Þróttur i Kópavogi á
sama tima.
ijargaði
rir ÍBV
á Akranesi — ÍA-ÍBV 0-0
Jón Alfreðsson góður. Eysteinn Guðmundsson
dæmdi auðdæmdan leik vel. Áhorfendur rúmlega
700. -KP.
Forest misnot-
aði tækifærin
en Liverpool heldur sínu stríki
Evrópumeistarar Liverpool hafa byrjað vel I
ensku knattspyrnunni. Í gær sigruðu þeir bikar-
meistara Ipswich 3—0 á útivelli. Kenny Dalglish
skoraði tvívegis — en Graham Souness fyrsta
mark leiksins. Hins vegar náðu meistarar Nottm.
Forest ekki nema jafntefli I Coventry, 0—0. Steve
Elliot, 19 ára miðherji sem lék i stað Peter Withe,
misnotaði þrjú góð tækifæri. Malcolm Mac-
Donald skoraði fyrir Arsenal á Maine Road en
Brian Kidd jafnaði fyrir Manch. City. Tommy
Langley skoraði eina mark leiksins í Wolverhamp-
ton fyrir Chelsea. Ernie Howe sendi knöttinn i
eigið mark og það varð til þess að WBA hlaut
bæði stigin f Lundúnum gegn QPR.
Júgóslavneski landsliðsmaðurinn lvan Golac
lék sinn fyrsta ieik með Southampton — án
samnings — og hollenzki landsliðsmaðurinn
Muhren sinn fyrsta hjá lpswich. Golac gerðist
brotlegur gegn Bolton rétt f lokin og upp úr auka-
spymunni jafnaði Frank Worthington 1 2—2.
Úrslit i leikjum á Englandi f gær:
1. deild. Birmingham—Middlesbro 1—3, Brístol City-Norwich
1—1, Coventry-Nottm. Forest 0—0, Everton-Derby 2—1, Ipswich-
Liverpool 0—3, Man. Gty-Arsenal 1—1, QPR-WBA, 0—1,
Southampton-Bolton 2—2, Wolves-Chelsea 0—1.
2. deild. Bríghton-Cambridge 0—2, Charlton-Burnley 1—1, C.
Palace-Luton 3—1, Fulham-Wrexham 0—1, Notts. Co.-Millwall
1—1, Oldham-Brístol Rov. 3—1, Oríent-Sunderland 3—0,
Preston-Blackburn 4—1.
3. deild. Bury-Southend 3—3, Cariisle-Chesterfield 1—1,
Swansea-Lincoln 3—0.
4. deild. Darlington-Huddersfield 1—0, Halifax-Stockport 2—1,
Newport-Aldershot 1—2, Scunthorpe-Boumemouth 1—0,
Wimbledon-Port Vale 1—0, York-Portsmouth 5—3.
í deildabikamum vann Sheff. Wed. Doncaster 1—0 og leikur á
útívelli gegn Aston Villa I 2. umferð. Peterbro vann HuU 1—0 og
leikur i Middlesborough i 2. umferð.
I Slippfé/agið íReykjavíkhf
MálningarverksmiÖjan Dugguvogi
Símar 33433og33414
Vitretex sandmálning er sendin og fín plastmálning
sem hentar jafnt inni sem úti.
Hún myndar þykka málningarfilmu, þarsem 1 yfirferð
svarar til 3 yfirferða af venjulegri plast-málningu.
Fæst í 12 staðallitum og einnig í hvítu.
Blanda má staðailitunum innbyrðis og fá mismunandi
blöndunarliti eftir óskum.