Dagblaðið - 23.08.1978, Side 15
GUÐMUNPUR ÞORARINSSON: íþróttir
íþrótlir EVROPUMEISTARAMÓTIÐ í PRAG
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1978.
Hverjir verða meistarar?
Það leikur ekki á tveim tungum, að
keppendur Austur-Þýzkalands verða
mjög sigursælir á Evrópumeistara-
mótinu í frjátsum iþróttum, sem hefst í
Prag í Tékkóslóvakíu 29. ágúst og
stendur til 3. september. Ég hef trú á
því, að austur-þýzka frjálsíþrótta-
fólkið sigri í 17 greinum af þeim 38,
sem keppt er í. Þar af verði 10 sigrar
þeirra í kvennagreinum. Á Evrópu-
meistaramótinu 1974 hlutu austur-
þýzku stúlkurnar sex sigra af fimmtán
mögulegum. Á Olympíuleikunum 1976
hlutu þær níu sigra í 14 greinum.
Stefna þeirra er skýr eins og sjá má.
Þá spái ég Vestur-Þjóðverjum fimm
sigrum — öllum í karlagreinum. Sama
fjölda sigra hljóta keppendur frá
Sovétríkjunum, tvo sigra i karla-
greinum — þrjá i kvennagreinum.
Keppendur frá Norðurlöndum verða
ekki mjög i baráttunni um gullið á
mótinu. Þó tel ég, að norska hlaupa-
drottningin Greta Waitz verði
Evrópumeistari i 3000 metra hlaupi —
og það nokkuð örugglega.
Fimm íslendingar keppa á Evrópu-
mótinu. Hreinn Halldórsson, KR, i
kúluvarpi. Jón Diðriksson, UMSB. í
800 og 1500 m hlaupum, . Óskar
Jakobsson, ÍR, í kringlukasti.
Vilmundur Vilhjálmsson. KR, í 100
og 200 m hlaupum og Elías Sveinsson.
KR, í tugþraut.
Hér kemur þá spáin — og við
byrjun á karlagreinum.
100 m hlaup
EM sigurvegari: Eugen Ray, DDR.
EM — ’74: I) Borsov, Rússl. 10,27,
2) Mennea, Ítalíu 10,34, 3) Bieler V.
Þýzkal. 10,35.
gera sér vonir um að sigri bæði I lOOog
200 m.
OL — ’76: 3) Borsov, Rússl. 10,14,
7) Kurrat, DDR 10,31, 8) Petrov,
Búlgaríu 10,35.
Beztur 1977: Ray — Talinn beztur í
heiminum. Hann vann Evrópu-
bikarinn á 10.12 og varð 2. í
heimsbikarnum á 10,15, Það var eina
tap hans á árinu. Steve Williams USA
vann það hlaup.
Ray með 10.29 sek. er ekki beztur í
Evrópu i ár, en ég álít að hann verði
áreiðanlega I sinu bezta forrni á EM —
og þá vinnur hann. En Borsov, 10.22 í
ár, er alltaf hættulegur sem og landi
hans Kolesnikov (10,20 í ár), en hann
sigraði einmitt í EM innanhúss í ár.
En hvað eru þeir eiginlega góðir,
Bretinn Wells. sem á 10.15 i ár og
Belgíumaðurinn Desruelles. sem
fengið hefur tímann 9,9 sek. með
handtimatöku? Þá er Mennea (10,23)
alltaf hættulegur, en við spáum
honum sigri í 200 metrunum.
Mjög erfitt er að spá um úrslit, því
aldrei hafa verið jafnmargir jafngóðir
spretthlauparar í Evropu og nú. Sá.
sem gæti steypt öllurn spám. er
Pólverjinn Woronin, sem á 10,25 i ár.
Vilmundur okkar Vilhjálmsson
verður meðal keppenda og ef honum
tekst að komast áfram i milliriðil i
þessari jöfnu keppni, hvað þá heldur
lengra. er það persónulegur stórsigur.
200 metra hlaup.
EM sigurvegari: Pietro Mennea,
ítaliu.
EM — '74: I) Mennea 20,60 2)
Ommer, V-Þýzkal. 20,76, 3)
Bombach, DDR 20,83.
OL — ’76: 4) Mennea 20,54, 7)
Grzejszczak, Pólland 20,91.
Beztur 1977: Mennea. Talinn
beztur i heimi. Varð ánnar í heims-
bikarkeppninni (20.17) og einnig 2. i
Evrópubikarkeppninni en þá í 100 m á
10,29.
Það verður trúlega ekki hægt að
stöðva Mennea nú frekar en áður.
Hann hel'ur nú náð 20,35 og er sjálft
öryggið persónuklætt I keppnum
sinum. Austur-Þjóðverjarnir Thiele
(20.60) og Kúbeck (20.65) ásamt Pól-
verjanum Licznerski (20.63) gætu þó
veitt honum keppni og samveldis
meistarinn Wells.
Vilmundur keppir einnig i 200 m
hlaupinu og hann mun þurfa að bæta
íslandsmet sitt þó nokkuð til að
komast i milliriðil. Það er ekki alvcg
talið útilokað af þeim sem til þekkja.
400 metra hlaup.
EM sigurvegari: Franz-Peter
Hofmeister, Vestur-Þýzkalandi.
EM — ’74: 1) Honz, Vest-Þýzkal.
45,04, 2) Jenkins, Bretl. 45,67, 3)
Hermann, Vest-Þýzkal. 45,78.
OL — ’76: 4) Brijdenbach, Belgíu
45,04, 7) Jenkins, Bretl. 45,57, 8)
Werner, Póllandi 45,63.
Beztur 1977: Brijdenbach, sem átti
annan bezta árangur heimsins 45.13
og var talinn annar bezti 400 m
hlauparinn í heiminum. Beztur er
Hermann sem varð 1. I Evrópu-
bikarnum á 45.92 meðan Beck DDR
varð fyrstur Evrópubúa í heims-
bikarnum 2. á 45.50.
Hoffmeister (45.81) er dálitið voguð
spá. en þar sem Beck hefur ekkert
komið fram í ár (meiddur?) og sterkir
hlauparar eins og Brijdenbach (46,35),
Podlas frá Póllandi (46,18) og
Hermann (46,27) hafa ekki sýnt eins
mikið i hlaupabrautinni og áður.
veðjum við á Vestur-Þjóðverjann.
Austur Þjóðverjar eiga þó marga
sterka 400 m hlaupara og er Richter
(45,91) sterkastur þeirra. Hinn ungi
Vestur-Þjóðverji Schmid, sem hlaupið
hefur á 45,5 og 45,73 í ár, mun þó að
líkindum einbeita sér að 400 m grind-
inni.
Guðmundur Þórarinsson, hinn
góðkunni þjálfari i frjálsum íþrótt-
um, hefur orðið við þcirri ósk
Dagblaðsins að spá um sigur-
vcgara á Evrópumcistaramótinu í
Prag, sem hefst næstkomandi
þriðjudag, 29. ágúst. Þar verður
mikil keppni og margt af bezta
frjálsíþróttafólki heims meðal
keppenda. Guðmundur þekkir vel
til þessa fólks og er áhugamaður
um árangur — statistik — ekki
síður en þjálfun. Dagblaðið væntir
góðs af þessari samvinnu við hann.
Það er mikill fróðleikur fyrir
áhugafólk um frjálsar iþróttir, sem
kemur fram í greinum
Guðmundar. Hin fyrsta er í hér á
síðunni, fyrst í hverri grein er spá
Guðmundar um sigurvegara.
hsím.
800 metra hlaup
EM sigurvegari: Willi Wúlbeck,
Vestur-Þýzkalandi.
EM — ’74: 1) Susanj, Júgóslaviu
1:44.1, 2) Ovett, Bretl. 1:45,8, 3)
Taskinen, Finnlandi 1:45,9.
OL — 76 2) Van Damrne, Belgíu
1:43.86, 4) Wúlbeck 1:45,26, 5) Ovett
1:45,44.
Beztur 1977: Wúlbeck — sem varð
I. í Evrópubikarnum á 1:47.21 og 3. i
heimsbikarnum á 1:45.5. Var talinn
3ji beztur 800 metra hlaupara
heimsins.
Wúlbeck sem hefur í ár hlaupið á
1:46.1. verður að teljast liklegastur til
að vinna eftir frammistöðu sína sl. ár.
En það koma fjöldamargir aðrir til
greina svo sem hinn 22ja ára Breti
Sebastian Coe, sem hlaupið hefur á
bezta tíma heimsins I ár 1:44,3. hinn
endasprettsharði Breti Ovett (1:45,4).
sem einnig mun hlaupa 1500 á EM.
Hinir ungu Austur -Þjóðverjar. hinn
19 ára Busse (1:45.5) og hinn 21 árs
Beyer (1:45,8) niunu sjálfsagt ekki
gefast upp fyrirfram.
í þessu hlaupi verður Jón Diðriks-
son meðal keppenda, og er hættulaust
að spá þvi að hann komist ekki I milli-
riðla. Er það sagt vegna þess að
undanrásir allra stærri móta I 800 m
hlaupi eru svo til i 100% tilfella
hlaupin frekar hægt fyrri hringur með
feikna endaspretti 2—400 m löngunt.
og ef það er eitthvað sem Jón vantar.
þá er það að geta tekið slikan
endasprett.
1500 metra hlaup
EM sigurvegari: Steve Ovett,
Bretlandi.
EM — ’74: 1) Justus, DDR 3:40.6,
2) Hanscn, Danmörku 3:40,8, 3)
Wessinghahe, Vestur-Þýzkal. 3:41.1.
OL — ’76: 2) van Dammc, Bclgíu
3:39,27, 3) Wellman, Vestur-Þýzkal.
3:39,33,4) Coghlan, írlandi,3:39,51.
Beztur 1977: Ovett. sent sigraði
bæði I Evrópubikarnum á 3:44.97 og
i heimsbikarnum á 3:34,5 og var þar
að auki talinn beztur 1500 mctra
hlaupara heintsins með Wessinghage i
2. sæti.
Þetta getur orðið stórkostlegasta
keppnin á EM. Ovett hefur verið stór
góður I ár (3:37,6) og við álituni að
hinn feiknalegi endasprettur hans
muni færa honum sigurinn. En hann
fær harða keppni og verður örugglega
að berjast um sigurinn alveg I markið.
Mótstöðumenn hans svo sem
Wessinghage 13:37.6), Tékkinn Plachy
(3:39,9) sem njóta mun heimavallar
ins. Austur Þjóðverjinn Straub
(3:36,1) og hinn ungi Írlendingur
Flynn (3:37,6) gefa ekkert eftir fyrr en
i fulla hnefana.
Þá má heldur ekki gleyma hinum
eitilharðr. F nna Loikkanen (3:37,6)
í þessu nlaupi verður Jón einnig
meðal keppenda og fær vafalítið ekki
að hlaupa nema undanrásirnar, en það
ætti ekki að geta komið í veg fyrir að
hann setji nýtt, gott islenzkt met.
jafnvel undir 3:40. mín.
5000 metra hlaup
EM sigurvegari: Ilie Floroui,
Rúmcniu.
F.M — ’74: 1) Foster, Bretl.
13:17,2, 2) Kuschmann, DDR 13:24.0
3) Virén, Finnlandi L3:24,6.
OL - '16: 1) Virén 13:24,76, 3)
Hildchrand, Vestur-Þýzkal. 13:25,38,
5) Foster 13;26,19 mín.
Beztur 1977: Evrópubúa I heims
bikarnum á 13:20.4 Var talinn 4.
bezti 5 km hlaupari hcimsins þaðár.
Floroui var alveg ósýnilegur i fyrra
á stórmótum. en eftir hið feikna góða
hlaup hans nú i ár 13:15.0, sem er
bezti tinii Evrópubúa til þessa. vil ég
spá honum sigri. En keppnin verður
hér mjög mikil og búast ntá við þeim
Mamede. Portúgal (13:17.81
Zimmermann. Vestur-Þýzkalandi
(13:18,21 og Bretunum Rose byrjun
(13:25.2) og Foster (13:25.311 frentstu
röð allt frá byrjun inn i ntark. Þá má
einnig búast við að Hollendingurinn
Herntens 113:21.9) og Svisslend
ingurinn Ryffel (13:20.7) blandi sér í
leikinn. þótt það vari varla nenta í 4—
4.5 km.
10000 metra hlaup.
F'M sigurvegari: Brendan Foster.
Bretlandi.
EM — ’74: I) Kuschmann, DDR
28:25,8, 2) Simmons, Bretl. 28:25,8,3)
Cindolo, Ítalíu, 28:27,2.
OL — ’76: I) Virén, Finnlandi
27:40,38, 2) Lopes, Portúgal 27:45,17,
3) Foster 27:54,92.
Beztur 1977: Foster. sem átti beztan
árangur ársins 27:36.62 og var talinn
be/tur. En þáð var Austur-Þjóöverj-
inn Peter. sem sigraði i Evrópubikarn
um á 27:55.50 og varð 2. i heints-
bikarnum á 28:34.00.
Hér lcikur enginn vafi á þvi
hverjum ég spái sigri þvi eftir hið nýja
Evrópumet sitt 27:30,5 kemur enginn
annar til greina.
En ég álit að það verði mikil barátta
unt næstu sxti milli þeirra Uhlemann.
Vestur Þýzkal. (27:52.1). Treacy.
irlandi (27:55.2). Hollendinganna
Hermens (27:57.3) og Tebroke
(27:58,01 og Peter. DDR. Þá þykir
einnig rétt að vara við Floroui. hinum
rúmenska. sem hlaupiö hefur á
27:47.8.
framhald
Vilmundur — persónulegur stórsigur
ef hann kemst i milliriðil.
Samveldismeistarinn Dave Moorcroft, þegar hann sigraði heimsmethafann Filhert Bayi, Tanzaniu, í 1500 m í Edmonton.