Dagblaðið - 23.09.1978, Síða 5
sögðu að það væri ekkert undarlegt.
„Hingað koma framleiðendurnir beint
með sina vöru og það er ekkert óeðlilegt
að hún sé á eitthvað mismunandi verði.”
Þeir sögðust vera mjög ánægðir með
undirtektirnar og þeim fannst sérstak-
lega skemmtilegur bragur yfir þessum
„gamaldags viðskiptaháttum.”
Heildverzlun Ástþórs Magnússonar
var þarna með sinn bás annan föstudag-
inn í röð. Þar voru peysur, mussur, kjól-
ar og buxur á boðstólum „undir heild-
söluverði” eins og afgreiðslumennirnir
orðuðu það. „Já. Þetta gekk flott síðast.
Annars hefðum við ekki komið aftur.”
Rétt í þessu bar að unga stúlku er spurði
um verðið á kjól sem þarna hékk. „10
þús., 9.500 ef þú kaupir hann strax.”
Þarna var markaðsbragurinn kominn en
ekki vildu þeir Ástþórsmenn viðurkenna
að mikill möguleiki væri á aö „prútta”
þó að vel mætti reyna það.
Ýmislegt fleira var þama á boöstólum
í hinum ýmsu deildum, s.s. lopapeysur,
hljómplötur, vasabrotsbækur, keramik,
antikmunir o.m.fl.
Þótt kalt væri i veðri og hráslagalegt
virtist afgreiðslufólkið ekki láta það neitt
á sig fá og allir virtust vera sammála um
að þetta lífgaði mikið upp á bæjarlifið og
vonuðu að eitthvert framhald yrði á
þessum verzlunarháttum.
-GAJ-
Oóal
I RVOLD
HVAÐ
annaó?
DAGBLADIÐ. LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1978.___5
Markaðsbragur á Lækjartorgi
Viðskiptavinirnir voru á öllum aldri. Þessi litli snáði var i þann mund að tryggja
sér búnt af guirótum.
—EINKARITARASKÓLINN'
1 Vcitir nýliöum starfsþjálfun og öryggi.
' Endurhœfir húsmæður til starfa á skrifstofum.
• Stuðlar að bctri afköstum, hraðari afgreiðslu.
1 Sparar yfirmönnum vinnu við að kenna nýliðum.
• Tryggir vinnuvcitcndum hæfari starfskrafta.
• Tryggir nemendum hærri laun, bctri starfsskilyrði.
• Sparar námskostnað og erlendan gjaldeyri.
jr
MIMIR, Brautarhohi 4 - Sími 11109 (kl. 1-7 e.h.)
— þrátt fyrir að haust væri í lofti
Vasabrotsbækurnar voru eins og annað
á niðurscttu verði.4—5 bækur i búnti
voruá 1400 kr.
Það var heldur hráslagalegt veður og
haust í lofti er tíðindamenn Dagblaðsins
komu á útimarkaðinn á Lækjartorgi í
gærmorgun. Ekki var þó að sjá á klæðn-
aði fólks að það gerði sér grein fyrir
haustkomunni, þvert á móti var fólk
fremur léttklætt og kuldalegt á að líta.
Fólk virðist lita á þetta sem kær-
komna tilbreytingu í lifi miðborgarinnar
og þyrptist að tjöldunum tveimur sem
þarna hafði verið komið fyrir. Margir
virtust vera þarna fyrst og fremst fyrir
forvitnis sakir en aðrir koma þarna
greinilega staðráðnir í þvi að gera góð
kaup, og við lauslega athugun okkar
DB-manna kom í ljós að þarna mátti
gera ágæt kaup á ýmsum hlutum.
Einna mest var ösin fyrir framan bás-
inn sem Blómaval var með. Þar gaf að
líta alls kyns grænmeti og ávexti en
einnig blóm. „Hvað kostar búntið af rós-
unum?” spurði kuldaleitur bankastarfs-
maður á jakkafötum. Svarið kom um
hæl: „950 krónur. KjarakaupBanka-
starfsmaðurinn virtist þvi sammála og
Fjárhagurínn kannaður. Jú, ætli maður
láti sig ekki hafa það.
festi kaup á einu búnti og hélt upplits-
djarfur til vinnu sinnar.
Það vakti athygli okkar rannsóknar-
blaðamannanna að þama var hægt i
sumum tilfellum að fá sömu vöruteg-
undirnar á mismunandi verði. Þannig
sáum við t.d. að tómatamir kostuðu 810
kr/kg hjá Blómavali en u.þ.b. tveimur
metrum frá fengust tómatar frá Sól-
heimum á 500 kr /kg. Það vakti ekki sizt
athygli okkar að dýrari tómatarnir virt-
ust seljast mun betur, enda í stærri verzl-
un. Við spurðum verzlunarmennina í
Blómavali hvort það væri ekki undarlegt
að vera með sömu vöruna á svona mis-
munandi veröi þarna á torginu. Þeir