Dagblaðið - 23.09.1978, Qupperneq 6
6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1978.
Byggingakrani
Til sölu Linden-Alimak byggingakrani,
gerð 30-38, sjálfreisandi og -feUandi á
hjólum. Upplýsingar í síma 54022 frá kl.
1—5 og í símum 52826 og 53410 á
kvöldin.
Hjúkrunarskóli
íslands
Staöa fóstru við dagheimili skólans er laus til umsóknar.
Hér verður um lifandi og fjölbreytilegt starf að ræða.
Viðkomandi myndi byrja á ýmsum skipulagsstörfum
þar sem heimilið verður opnað fljótlega. Laun sam-
kvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Allar nánari
upplýsingar veitir skólastjóri.
íslands
Stöður hjúkrunarkennara við skólann eru1
lausar til umsóknar:
Kennslugreinar:
Hjúkrun á handlœkningadeildum.
Hjúkrun á lyflœkningadeildum.
Geðhjúkrun.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfs-
manna. Ath. dagheimilisaðstaða fyrir börn er
til staðar.
Skólastjóri.
Kef lavík —
Eyjabyggð
Hef kaupanda að stærri gerð af húsum í Eyja-
byggð. Upplýsingar hjá Fasteignasölunni,
Hafnargötu 27 Keflavík, sími 92—1420.
2ÍS1íMLOlI |
Njibgötu n - fimi 15105 |
28611
Opið í dag kl. 2—5.
Holtsgata.
2ja herbergja, 55 ferm., nýstandsett ibúö á annarri hæö í steinhúsi.
Holtsgata
3ja herbergja ibúö á annarri hæð, nýstandsett.
Kóngsbakki
4ra herbergja, 105 ferm íbúð á efstu hæö, góð greiðsla við samning
nauðsynleg.
Rauðagerði
Eldra einbýlishús. Skipti á einbýlishúsi i gamla borgarhlutanum koma
til greina.
Nýlenduvöruverzlun til sölu.
Eignarhúsnæði. Verð 12 millj.
Efnalaug til sölu,
mjögfullkomin tæki. Eignarhúsnæði. Verð 21,5 millj.
Eignariand (2 hektarar)
í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur. Verð um 2 millj.
Einbýli, sórhœð.
Höfum kaupanda að einbýli eða sérhæð í Reykjavik eða Seltjarnar
nesi, til greina koma skipti á góðri 4ra herbergja fbúð i Hraunbæ.
HÚS OG EIGNIR
Fasteignasalan,
Bankastræti 6. Sími 28611.
Lögmaflur Lúflvfk Glzurarson hrl.
Reykingar og íþróttir
fara ekki saman
—landsþekktir íþróttamenn öðrum fordæmi
—veggspjaldidreiftumalltiand
íþróttir og reykingar fara ekki saman.
Um það munu flestir sammála. Á
vegum iþróttaháskóla í Vestur-Þýzka-
landi var nýiega gerð könnun á afreks-
getu íþróttamanna. Hún náði til 750
íþróttamanna og 80 þeirra reyktu.
Niðurstöðurnar urðu þær, að þeir sem
reyktu höfðu 35% minna þrek en hinir,
miðað við að allir þátttakendurnir æfðu
jafnmikið.
Samstarfsnefnd um reykingavamir
hefur nú hafíð dreifingu litprentaðs
veggspjalds, þar sem fimm landsþekktir
iþróttamenn lýsa því yfir að þeir reyki
ekki. íþróttafólkið sem prýðir vegg-
spjaldið eru þau Hreinn Halldórsson,
íslandsmeistari i kúluvarpi, Lára Sveins-
dótttir, Islandsmeistari í fimmtarþraut,
Hugi Harðarson, Islandsmeistari i 400
metra baksundi, Guðmundur Þorbjöms-
son, landsliðsmaður í knattspyrnu, og
Þórunn Alfreðsdóttir, sem á Islandsmet
í öllum vegalengdum í skriðsundi, flug-
sundi og fjórsundi.
Með þessu vill afreksfólkið sýna öðru
ungu fólki gott fordæmi, að reykja ekki.
Veggspjaldinu verður dreift frá skrif-
stofu Samstarfsnefndar um reykinga-
varnir að Lágmúla 9 i Reykjavik og fyrir
milligöngu umboðsmanna nefndarinnar
úti um allt land. Einnig munu Krabba-
meinsfélag Reykjavikur og íþróttasam-
band Islands taka þátt i dreifingunni.
- JH
Litprentuðu veggspjaldi með afreks-
mönnum i iþróttum sem ekki reykja
verður dreift um allt land.
Liðsmannafundur herstttðvaandstæðinga í dag:
ÞJÓDARATKVÆÐAGREIÐSLA
OG EINANGRUN HERSINS
— meðal umræðuefna
Miðnefnd Samtaka herstöðvaand-
stæðinga hefur boðað til opins liðs-
mannafundar i Félagsstofnun stúdenta
við Hringbraut í dag kl. 13.
Tilgangur fundarins er að koma af
stað umræðu um hugsanlegar baráttu-
leiðir herstöðvaandstæðinga. Jafnframt
er fundurinn hugsaður sem liður i undir-
búningi fyrir landsráðstefnu SHA sem
haldin verður helgina 21 —22. október.
Á liðsmannafundinum í dag ræðir
Halldór Guðmundsson um þjóðarat-
kvæðagreiðslu um brottför hersins, Þor-
bjöm Guðmundsson ræðir um verka-
lýðshreyfinguna og baráttuna gegn
hernum og NATO og Gils Guðmunds-
son alþingismaður ræðir um einangrun
hersins og friðlýsingu Norður-Atlants-
hafsins.
Kynntar verða tillögur til breytinga á
lögum og stefnuskrá Samtaka herstöðva-
andstæðinga.
„Allar framsögur verða stuttar og við
það miðaðar að vekja upp umræðu, frek-
ar en að gera hverju efnisatriði skil,”
segir i frétt um þennan fund.
-GM
VALDAMAÐUR HVERFUR FRA ASI
Ásmundur Stefánsson hagfræðingur
hættir hjá Alþýðusambandinu og gerist
lektor i viðskiptadeild Háskóla íslands
frá 1. október. Þetta eru nokkur tiðindi,
þar sem Ásmundur hefur verið manna
valdamestur i ASt.
Margir hafa spáð Ásmundi pólitískum
Sýningu
Örlygs
lýkur um
helgina
Siðasta tækifæriö til að sjá hina ágætu
myndlistarsýningu örlygs Sigurðssonar
á Kjarvalsstöðum er nú um helgina.
Opið er frá klukkan 14 siðdegis til 22 á
kvöldin.
Sýningunni lýkur á sunnudaginn.
frama í Alþýðubandalaginu. Hann var þingmannsefni flokksins fyrir siðustu
meðal annars nefndur sem hugsanlegt kosningar. -HH