Dagblaðið - 26.09.1978, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 26.09.1978, Blaðsíða 4
4 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1978. Kílóvattstundin f rá lkrónuuppí25 BDÖRNSSON Aco BiLDSHÖFÐA 16 SlMI 81530 REYKJAVIK Óttar Ingimarsson á Bíldudal hringdi og var óhress með verö á raf- magni bæði til almennra heimilisnota og upphitunar á Vestfjörðum. Sagðist Óttar borga 23,50 krónur fyrir kíló- vattstundina til almennra nota en 3,40 stundina á rafmagnsofna. Vildi hann fá samanburð við menn viðar á land- inu. Á Eyrarbakka, Selfossi, Hveragerði og Stokkseyri kostar kílóvattstundin, 17 krónur og hitastundin 10,50 enda er það þá skilyrði að straumurinn sé Á Akureyri kostar kílóvattstundin 15,76 og. hitastundin 4,88 enda megi rjúfa strauminn i 3 tima á sólarhring. Á Sauðárkróki kostar kílóvatt-. stundin 20,70 og hitastundin 5,07 enda má þar rjúfa strauminn tvisvar á Verðið á mat 1 mötuneytum er mjög misjafnt. 1 Hafnarhúsinu, þar sem þessi mynd var tekin, kostar fiskur 460 krðnur og kjöt 540. DB-mynd Hörður. rofinn í klukkutíma á hverjum sólar- hring. t Reykjavík kostar kílóvattstundin 19,82 og hitastundin 7,68. t Hafnarfirði kostar kilóvattstundin 17,50 og hitastundin 13,90. sólarhring í hálfan annan tíma hvort sinn. Á Suðurnesjum kostar kílóvatt- stundin 19,73 krónur og hitastundin 8,70. Hjá Rafmagnsveitu ríkisins kostar' kílóvattstundin 22,44 og hitastundin 15,91. Landsvirkjun selur Álverinu í Straumsvík kilóvattstundina á 5,60 US-mills (US-mills er einn þúsundasti úr dollar) sem samsvarar 1,56 krónu íslenzkri. DS Lifur með beikoni ogspaghettfi Nú er um að gera að borða nóg af nýjum innmat því þótt hann sé •dálitið dýr inniheldur hann verulega mikið af næringarefnum, sem fjölskyldan þarf á að halda fyrir vetur- inn. 1 dag skulum við borða lifur og hafa spaghettí með. 250 gr dilka- eða kálfalifur (ca 400 kr.) 2—3 msk. matarolia salt og pipar 50—100 gr beikon (ca 300 kr.) 1 laukur um 100 gr spaghetti (ca 80 kr.) 50 gr rifinn ostur Sjóðið spaghettiið í saltvatni í 10— 15 mín. Skéríð beikonið 1 smábita og saxið laukinn. Hreinsið lifrina með þvi að skola hana úr köldu vatni og taka úr henni stærstu gallganga og æðar. Takið einnig himnuna af ef þiö notið kálfalifur. Skerið síðan lifrina í fingurþykkar sneiðar og síðan í fingurþýkkar ræmur eins jafnar og hægt er. Þerrið vel. Hitið matarolíuna á pönnu og brúnið lifrina vel á öllum hliðum. Kryddið. Steikið í hálfa aðra til tvær minútur og bætið hálfum dl af vatni á tolli lifrin við pönnuna. Látið lifrina á fat og haldið henni heitri á meðan beikonið er steikt. Því er svo raðað yfir lifrina og lauknum lika. Stráið rifnum osti yfir spaghettiið eða berið hann með. Alls kostar þessi réttur 880 krónur og er ætlaður fyrir 2. Hann kostar því 440 krónur á mann. -DS Á Akureyrí, þar sem þessi mynd er tekin, kostar kilóvattstundin af rafmagni til almennra heimiíisnota 15,76 og er þar etana lægst verðið. Kilóvattstundin til upphitunar kostar þar 4,88 krónur. Hvað kostar matur í mötuneytum? Frá 300 til 2000 —eftir meðlagi Dagblaðiö óskar eftir umboðsmönnum: Reykjahlíð v/Mývatn IMeskaupstað Upplýsingar í síma 91—22078. BUUJIÐ Sórhæfum okkur í M Seljum í dag: Saab 96 árg. 1972 ekinn 88 þ. km. Saab 96 árg. 1973, ekinn 74 þ. km., góð dekk og felguð snjódekk. Saab 99 árg. 1974, ekinn 64 þ. km. Höfum kaupanda að: Saab 99 árg. 75/76 Látið skrá bíla, höfum kaupendut að ýmsum árgerðum. Strákar úr Vélskólanum höföu samband við Neytendasíðuna og kvörtuðu yfir því að maturinn sem þeir geta keypt 1 mötuneyti skóla síns væri dýr og báðu um samanburð við fleiri mötuneyti. Hótel- og veitinga- skóli Islands sér um matinn í Vélskólanum og borga nemendur allan kostað sem fylgir matseldinni nema húsnæðið eitt. I Vélskólanum kostar fiskur 1200 kr, kjöt ýmist 1500 eða 1700, súpa 250 kr. og kaffi 100 kr. 1 fyrravetur var mönnum boðið upp á að kaupa matar- miða sem lækkuðu verðiö um 15% en aðeins 3 sáu ástæðu til þess. Mjög mis- jafnt er hve margir borða en hins veg- ar en kostnaður sem næst sá sami. Hjá Matsölu háskólastúdenta er verðið á mat mjög svipað og í Vélskólanum. Þannig kostar fiskur 1100— 1500 kr og kjöt 1500—2200 kr. Súpa kostar 250 kr. og kaffi 100 kr. Þar geta menn keypt sér matarkort sem endast þeim í einn mánuð, eina máltíð á dag fimm daga vikunnar. Slíkt kort kostar 15 þúsund og dugar fyrir 22 máltíðum, þannig að meðalverð er um 750 krónur fyrir mál- tiðina. Einnig geta menn keypt sér vikukort á 5 þúsund og kostar þá hver máltiö eitt þúsund krónur. Háskóla- stúdentar borga allan þann kostnað sem fylgir matseldinni. Nær alls staðar niðurgreitt í þeim mötuneytum sem rikið og stór fyrirtæki reka er nær alltaf um niðurgreiðslur á verði að ræða. Er oft svo að þeir er borða matinn borga .aðeins hráefniskostnaðinn við hann. Vinnulaun og aöstöðu greiðir hins vegar fyrirtækið. Sláturfélag Suðurlands bauð upp á ódýrasta matinn sem við fundum. Þar kostar máltíðin 350 krónur, hvort sem um er að ræða kjöt eða fisk. Aðeins er boðið upp á einn rétt í einu og aðeins einu sinni á dag. Súpa er ekki á boðstólum en kaffi geta menn fengiö og borga fyrir það 80 krónur á dag. Eimskipafélag tslands hefur mötuneyti á nokkrum stöðum fyrir starfsfólk sitt og kaupir mat frá Miðfelli h.f. Menn þurfa því að láta vita um það fyrirfram hyggist þeir borða. Verð á máltíð er 410 krónur, hvort sem um er að ræða kjöt eða fisk. Súpa fylgir með i því verði og kaffi geta menn keypt sér en það er misjafnt eftir hverju möturieyti hvað það kostar. Menn kaupa sér matarmiða á hverjum föstudegi fyrir alla vikuna en detti einhver úr eða bætist einhver við er það tilkynnt jafnóðum til Miðfells. Þeir sem borða í mötuneytum Eimskips borga bara fyrir hráefnið í matinn. Fyrirtækið borgar hitt. Hjá Mjólkursamsölunni kaupa menn sér matarkort með 22 miðum á 9 þúsund. Er kortið fyrir 13 kjöt- máltíðum og 9 fiskmáltiðum. Meðalverð á máltíð er þvi um 400 krónur. Súpa er innifalin en kaffi geta menn keypt sér fyrir 1.500 krónur á mánuði. 1 því er hafragrautur og skyr á morgnana innifalið. Þeir sem eru i fæði borga bara hráefnið. í Hafnarhúsinu 1 Reykjavík er mötuneyti fyrir alla þá sem vinna í húsinu. Fyrir síðustu verðlækkun kostaði fiskur 460 kr., kjöt 540 og var súpa og kaffi innifalið. Ef menn keypti sér kaffi án þess að kaupa mat kostaði það 90 krónur. Alir þeir sem borða í mötuneytinu verða að kaupa sér matarmiða en borga á móti bara hráefnisverð. Hin ýmsu fyrirtæki hjá borginni borga hitt. Yfirleitt er boðið upp á einn rétt í einu en stundum er þó tviréttað. Eins og vélskólanemar sjá af þessu er ákaflega erfitt að bera saman mötuneyti af neinu viti. Sú starfsemi sem dýrust er fyrir þá er hana kaupa er á vegum skólanna en aftur á móti borga fyrirtæki með mat ofan í vinnulýðinn. Ríkið líka. -DS.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.