Dagblaðið - 26.09.1978, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 26.09.1978, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1978. 7 Egyptaland: HEFJUM VffiRÆDUR ER ÍSRAEL FELLST Á SÍNAÍBROTTFLUTNING Erlendar fréttir i REUTER 8 — segir Sadat Egyptalandsforseti Egyptar munu hefja viðræður i fram- haldi af Camp David samkomulaginu um leið og ísraelsmenn hafi fallizt á að flytja alla landnema sína af Sínaí land- svæðinu að sögn Al-Ahram hálfopinbers málgagns egypzku stjórnarinnar í morgun. Sadat tilkynnti í gær að undirbúnings- viðræður væru þegar hafnar. Begin lagði samkomulagið fyrir Knesset ísraelska þingið í gær og er búizt við að atkvæða- greiðsla um það fari fram á morgun. Þó vitað sé að engir flokkar á þinginu séu fullkomlega ánægðir með Camp David samkomulagið og kannski sízt flokks- menn Begins sjálfs er talið nær fullvíst að það verði samþykkt með miklum meirihluta atkvæða. Al-Ahram sagði að brottflutningur Ísraelsmanna frá Sinaí svæðinu mundi auka samkomulagslíkur á vesturbakka árinnar Jórdan og á Gazasvæðinu. Blaðið sagði einnig að Egyptar biðu nú skilaboða frá Carter Bandaríkjaforseta varðandi búsetu ísraelsmanna á vesturbakkanum. Túlkun ísraelsmanna og Egypta hefur verið misjöfn hvað varðar það landsvæði. Segist Begin aðeins hafa lofað því að stöðva landnám ísraelsmanna þar í þrjá mánuði en bæði Bandaríkjamenn og Egyptar skildu sam- Vestur- veldin ræöaneit- unSuður- Afríkuí Namibíu- máli Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Kanada og Vestur-Þýzkaland hafa kallað sendiherra sína í Suður-Afríku til New York. Eiga þeir að bera saman bækur sínar með utanríkisráðherrum landanna um hvað gera skuli í málefn- um Namibiu eða Suðvestur-Afriku eins og þessi nýlenda Suður-Afriku er kölluð. Er fundurinn vegna ákvörðun- ar stjómar Suður-Afriku um að hafna kröfu Sameinuðu þjóðanna um að Namibía fái sjálfstæði. Stjórn Suður- Afríku tilkynnti þessa ákvörðun sína í síðustu viku en búizt er við að örygg- isráð Sameinuðu þjóðanna taki málið til meðferðar á næstu dögum. Fulltrúi Bandarikjanna Donald McHenry tilkynnti að farið yrði þess á leit við öryggisráðið að það féllist á samþykkt allsherjarþingsins um að komið yrði upp liði á vegum samtak- anna með sjö þúsund og fimm hundr- uð manna herliði, 360 manna liði lög- reglu og rúmlegaeitt þúsundóeinkenn- isklæddra eftirlitsmanna til að hafa eftirlit með frjálsum kosningum í Namibíu. McHenry vildi ekkert segja um hvað gerast mundi ef stjórn Suður- Afríku neitaði að fallast á þessar sam- þykktir Sameinuðu þjóðanna. komulagið svo að landnám yrði stöðvað i fimm ár. Ráðherra í stjórn Sadats mun i dag hefja viöræður við sendimenn ýmissa arabaríkja og annarra til að útskýra stjórnmálasamskiptum við Egypta. Camp David samkomulagið. Alsir, Vöktu stjórnmálaslitin nokkra furðu þvi Libýa, Sýrland og Suður-Jemen hafa að Egyptar höfðu þegar fyrr á árinu slitið visu ákveðið að slíta öllum efnahags- og stjórnmálasambandi við ríki þessi. Verkfall hjá brezka Ford Framleiðsla stöðvaðist í Ford bifreiðaverksmiðjunum brezku, er verkamenn höfnuðu tilboði stjórn- ar fyrirtækisins um launahækkun, sem var innan þeirra marka, sem ríkisstjórnin hefur sett. Starfa 57.000 manns hjá fyrirtækinu, sem hingað til hefur verið stærsta fyrirtæki sinnar tegundar I Bret- landi. Þykja þetta mjög alvarleg tíð- indi fyrir James Callaghan for- sætisráðherra, sem stefnt hefur að því að halda launahækkunum niðri til að minnka verðbólguna. Hefur hún undanfarið verið 8% í Bretlandi. Krafa verkamanna er um 27% launahækkun en Ford fyrirtækið boðið 5%, sem er hámark þess sem ríkisstjórnin vill fallast á. Þykir ljóst að úrslit þessarar launabar- áttu muni skera úr um hvorir eru valdameiri á þessum vettvangi, rikisstjórn landsins eða verkalýðs- leiðtogarnir. Hinir síðarnefndu veifa stöðugt kröfunni um frjálsan samningsrétt. Stjórnin hefur aftur á móti tilkynnt að hún muni refsa þeim fyrirtækjum sem semji um meiri launahækkanir en 5%. Fyrir Ford fyrirtækið gæti það kostað 100 milljónir punda afturköllun á samningum við opinbera aðila. SÍÐASTI onnssHfin IIMNRITUNARDAGUR nsivninssnnnn Innritun daglega frá 10-12 og 13-19 i simum: 20345 76624 38126 24959 74444 Kennslustaðir: REYKJAVÍK Brautarholt 4 Drafnarfell 4 Félagsheimili-Fylkis KÓPAVOGUR Hamraborg 1 Kársnesskóli SELTJARNARNES Félagsheimilið HAFNARFJÖRÐUR Góðtemplarahúsið Kennum alla samkvœmisdansa, nýjustu tóningadonsa, rokk og tjútt. Beat-dans fyrir dömur. Sérstakir eftirmið- dagstimar fyrir dömur sem vilja fá góðar hreyfingar. DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS 000

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.