Dagblaðið - 26.09.1978, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 26.09.1978, Blaðsíða 10
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1978. FramkvwndaMlóri: 8v«lnn R. EyJóHMon. Rrtvtjód: JAnaa Krtstlónsson. FrStustJóri: Jón Blrglr Pttursson. Rrtstjómarfultiúl: Haukur Hslgason. Skrtfstofustjóri rttstjómsr J6- harmss RsykdsL Iþróttln Hslur Sknonsrson. Aðstoðarfrtttastjórar Atll Stalnarsson og Ómsr VskH- msrvson. MsnnlngarmJJ: Aðalstslnn Ingólfsson. Handrit: Aagrtmur PAIsson. Blaðamsnn: Anna BJamason, Asgak Tómasson, Bragl Sigurðsson, Dóra Stafónsdóttlr, Eln Afcarts- dóttir, Qlssur Stgurðsson, Gunnlaugur A. Jónsson, Hahir Halsson, Halgl Pttursson, Jónas Haraldsson, Ólafur Gatrsson, Ólafur Jðnsson. Hönnun: Guðjón H. PHsson. LJósmyndk: Art Kristinsson, Aml Ptl Jóhannsaon, BJamlslfur BJamlslfsson, Hðrður Vlhjtlmsson, Ragnar Th. Slgurðsson, Svsinn Þomióðsson. Skrtfstofustjóri: Ólafur EyJóHsson. GJaldksri: Þrtlnn Þortelfsson. Sókistjóri: Ingvar Svslnsson. DraHlng- arstjóri: Mtr E.M. Haldórsson. Ritaljóm SJðumúla 12. Afgralðsla. tskrtftadald, auglýslngar og skrifstofur ÞvaihoM 11. Aðalsiml blaðslns ar 27022110 Knuri. Askrift 2000 kr. t mtnuðl innanlands. i lausasöki 100 kr. slnfaklð. Satning og umbrot Dagblaðið hf. Slðumóls 12. Mynda- og plötugsrð: Hfcnk hf. Slðumúla 12. Pranfun: Arvakur hf., SkaHunni 10. Noregur: Er byggð á Jan Mayen næg til að Norðmenn tryggi sér landhelgi? Vinsælar sjónhverfingar Almenningur lætur fremur vel af ríkis- ' stjórninni. Skammir, gagnrýni og * viðvaranir stjórnarandstæðinga og óháðra hafa lítinn hljómgrunn um þessar . mundir. Fólk trúir ekki Morgunblaðinu, sem \ segir lífskjör margra hafa versnað og hverja höndina vera uppi á móti annarri í herbúðum stjórnarsinna. Fólk trúir tæpast hinum, sem flytja sanngjarnari gagnrýni. Almenningi finnst lífskjör sín hafa batnað. Menn telja, að dregið hafi verið úr svonefndu „kaupráni”. Og verðlækkun neyzluvara hefur ekki farið fram hjá neinum. Hér á landi er afar sjaldgæft, að vörur lækki í verði. Menn kunna vel að meta sjaldgæfa atburði. Þess nýtur ríkisstjórnin núna. Mönnum finnst hún hafa reynt eitthvað nýtt og efnilegt. Ríkisstjórnin þarf á þessu andrúmslofti að halda. Það skapar henni vinnufrið til raunhæfra aðgerða, ef hún skyldi þora. Vonandi safnar hún kjarki, þótt þess sjáist enn ekki merki. Ríkisstjórnin hefur tekið nokkra slagi í upphafi spils. En hún hefur líka kastað flestum trompunum til þess að ná slögunum. Hún hefur því lítið svigrúm til frekari sjónhverfinga á næstu mánuðum. Enn sem komið er hafa hærri skattar lítil áhrif á viðhorf fólks. Þeir eru bara tölur á blaði. í næsta mánuði byrja menn hins vegar að borga. Þá er hætt við, að margir vakni upp með andfælum. Þá kemur í ljós, að það eru ekki tómir stórlaxar, sem fá á baukinn. Það er einkum launafólk, að vísu hálauna- og miðlungsfólk, en launafólk samt. Margir hinna auðugu sleppa hins vegar, af því að tekjúr þeirra eru þess eðlis, að þær mælast illa á skatt- skýrslum. í næsta mánuði munu opnast augu margra fyrir þessari dapurlegu staðreynd. Margir eru þegar farnir að átta sig á, að það var peningafólkið, sem græddi mest á tímabili hins lága kjöt- verðs. Það var fólkið með handbært fé og handbærar frystikistur. Láglaunafólkið hafði hins vegar ekki ráð á að græða. Eitt af náttúrulögmálum efnahagsmála er, að hvers konar krukk stjórnvalda í verðlagi og krónutölum gerir hina ríku ríkari og hina fátæku fátækari. Menn vissu, að þetta gilti um gengislækkanir, en áttuðu sig ekki á, að verðlækkanir lúta sama lögmáli. Ríkisstjórnin kann að auka vinsældir sínar við lækkun vaxta afurðalána. Hvers kyns lækkanir eru jafnan vinsælar. Við megum samt ekki gleyma því, að í verðbólgunni eru allir vextir á íslandi neikvæðir. Lækkun þeirra eykur misræmið milli aðgangs að lánsfé og skorts á aðgangi að lánsfé. —tuttugu til þrjátíu karlmenn hafa þar vetursetu en engar f jölskyldur né konur Norðmenn eru almennt á þeirri skoðun að þeir hafi rétt á 200 mílna fiskveiði- og landgrunnsyfirráðum umhverfis eyjuna Jan Mayen, sem liggur á milli íslands og Spitsbergen. Á nýafstaðinni hafréttarráðstefnu i New York var m.a. deilt um hvort eyjar sem ekki eru byggðar eða hafa skilyrði til búsetu i venjulegum skilningi geti gert tilkall til umtalsverðra fiskveiði- eða landgrunnsréttinda. Ef Jan Mayen uppfyllir ekki skilyrðin, þá tapa Norðmenn feikilega stóru auð- lindasvæði, sem þeir hafa gert sér vonir um að ráða einir yfir. Fréttamaður Verdens Gang I Osló, sem fylgdist með ráðstefnunni, sagði I grein I blaðinu að það værí ljóst, að tslendingar myndu sækja fast að fá yfirráð yfir hafi og landgrunni langt norður fyrir miðlinu milli Jan Mayen og íslands, (eða nánar sagt ekki gefa eftir neitt af 200 milna svæð- inu). t dag ná 200 mílna mörk tslend- inga ca 25 þús. kvaðratkílómetra inn- fyrir miðlinuna, og þeir viðurkenna i dag enga miðlínu á þessu svæði. ts- lendingar rökstyðja mál sitt með þvi að Jan Mayen sé i venjulegum skiln- ingi lítil óbyggð eyja, sem liggi langt frá fastalandi. En eitt er hvað litla tsland segir, heldur fréttamaður VG áfram, eða hvað aðrir segja. Mun alþjóðaréttur úrskurða Jan Mayen sem byggða eyju, Noregsbréf: Sigurjón Jóhannsson þar sem þar hafa vetursetu 20—30 manns, sem fá allan sinn viðurgjörn- ing frá fastalandinu? Ljóst er að það er þungt á metunum, Jan Mayen í óhag, að þeir sem þar starfa og dvelja eru allir karlkyns — þar eru engar fjöl- skyldur búsettar, þar er enginn skóli eða sjúkrahús, og þar hefur enginn verið grafinn svo vitað sé. Þar hefur heldur enginn nýr borgari séð dagsins ljós. Kannski ætti hafréttarráðherra okkar að fara að dæmi Brasilíu- manna, sem sendu konu, sem var komin að því að ala bam, flugleiðis til Suðurheimskautsins. Þar ól hún barn- ið og Brasilíumenn telja sig þar með hafa betri grundvöll til að krefjast haf- og landréttinda á Suðurheimskautinu. Norskir fiskimenn hafa lýst þvi yfir, að þeir vilji að rikisstjómin ákveði sem fyrst einhliða fiskveiðiútfærslu við Jan Mayen. Frammámenn í norsk- um fiskiðnaði benda þó jafnframt á, að enda þótt norski flotinn geti óhindr- að stundað veiðar við Jan Mayen i ná- inni framtið muni það ekki breyta verulega heildarafkomu norskra fiski- manna, þar sem kostnaður við slikar veiðar er í dag svo hár, aö útgerðar- menn myndu varla senda skip í stór- um stíl til veiða þar — norskir sjó- Að gera eitt- hvað fyrir aldraða Vaxtalækkun er dæmigert krukk stjórnvalda, ættað úr sjónhverfingasmiðju Lúðvíks Jósepssonar, og gerir hina ríku ríkari, hina fátæku fátækari. Þverbrestirnir í ríkisstjórninni munu koma betur í ljós um miðjan næsta mánuð, þegar alþingi hefur tekið til starfa. Við erum núna í logninu fyrir storminn. Vinsældir ríkisstjórnarinnar byggjast á sjónhverfingum,sem endast henni ekki fram eftir vetri. Hún ætti því að hlusta á þá stjórnarþingmenn, sem munu á þingi reyna að beina henni inn á betri brautir. Ríkisstjórnin má ekki láta eins og hver dagur sé hennar síðasti. Fremur ætti hún að spá í stöðu sína að loknu fjögurra ára kjörtímabili. Fæstir þeirra, sem lita á fyrirsögn þessarar greinar, svo ósköp hversdags- leg sem hún nú er, munu taka eftir þvi, að í rauninni er hún samt dálitið undarleg. Það villir okkur sýn hve oft við höfum heyrt þessi orð. Ef við segðum t.d. að við ættum að gera eitthvað fyrir unga fólkið, eða jafnvel að gera eitthvað fyrir hina sjúku. myndum við strax taka eftir því, að orðalagið er æði óákveðið, lofar ekki miklu, háttvirtum borgur- um, háttvirtum kjósendum. Gömlum lifsreyndum mönnum gæti komið í hug gamall talsháttur: Það þarf ekki að vanda torfið undir hlandketilinn. Bakvið orðalagið. að gera eitthvað fyrir gamla fólkið. felst hvorutveggja í senn. ráðaleysi og óvirðing. og þar að auki vond samviska. Hvers vegna búa menn ekki sjálfir svo vel i haginn að elliaðstoð sé sjálfsagður hlutur? Hvernig væri nú að fara að breyta þessari alkunnu setningu, og að hinir öldruðu og að þeir ungu eða miðaldra sem ætla sér að verða gamlir, segðu: Hvað getum við sjálf gert til þess að búa öldruðum sómasamlegt lif i nú- tímaþjóðfélagi? Fyrst er nú að varpa fram þessari spurningu i fullri alvöru, og síðan að svara henni. Loks barf að ... ekki gera eitthvað, heldur er einmitt nauðsynlegt að átta sig á breyttum þjóðfélagsháttum og gera einmitt það. sem að bestu manna yfir- sýn er nauðsynlegt og verður að gera. Og við sem nú erum. eða erum að verða, aldraðir, verðum að sjá um að stórfelldar breytingar verði á högum aldraðra. nú strax, áður en það verður of seint fyrir okkur sem nú lifum. Og við undirstrikum orðin: fyrir okkur. Um leið höfum við unnið þýðingar- mikil verk fyrir aldna og óborna. Ef við höldum áfram að tönnlast á orðunum „gera eitthvað" mun allt sitja í sama horfi.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.