Dagblaðið - 26.09.1978, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 26.09.1978, Blaðsíða 5
5 \ DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1978. .... Félagsmálaráðherra um undirbúning lagaf rumvarpa um fasteignasölu og húsaleigumál: „Finnst núverandi kerfi of dýrt fyrir neytendur” — nef nd um málið á að skila niðurstöðum fyrir áramót „Okkur finnst núverandi fasteigna- sölukerfi dýrt fyrir neytendur og telj- um það einnig geta virkað hvetjandi á verðlagið,” sagði Magnús H. Magnús- son félagsmálaráðherra i viðtali við DB í gær er hann var inntur eftir væntanlegu nýju lagafrumvarpi um fasteignasölu. Alveg á næstu dögum mun þriggja manna nefnd skipuð fulltrúum frá Leigjendasamtökunum, Húseigenda- félagi Reykjavíkur og félagsmálaráðu- neytinu, hefja störf til undirbúnings lagafrumvarps um leigjendavernd, eða húsaleigumál og annars frumvarps um fasteignasölu. Sagði Magnús að stefnt væri að því að nefndin skilaði niðurstöðum fyrir áramót svo unnt yrði að leggja fram ný frumvörp strax að jólaleyfi þir.g- manna loknu. Að svo stöddu vildi hann ekki ræða sinar hugmyndir í þessum málum svo þær virkuðu ekki bindandi á nefndina. Þyrlan kemur ofan úr fjalli til að fá fyllt á steyputunnuna. Hluti byggðarinnar I Ólafsfirði I baksýn. DB-mynd Árni PáU H Landhelgisgæzlan: Þyrlan ískíða- lyftubyggingu Nú er verið að byggja skíðalyftu í fjallshlíð skammt fyrir ofan Ólafsfjörð, en ókleift mun vera að koma bílum þar að. Var því úr vöndu að ráða hvernig koma ætti steypunni í undirstöðurnar á sinn stað. Var vandinn óieysanlegur þar til Landhelgisgæzlan hljóp undir bagga í síðustu viku og lánaði þyrlu sína til verksins. Tók hún steypuna í tunnu, festa á taug niður úr þyrlunni, og sel- flutti hana til síns staðar. Gekk þetta verk vel. - G.S. Áhugamenn um kvik- myndagerð stofnafélag „Tildrögin að þessari félagsstofnun eru i rauninni bréf sem Þorsteini Jóns- syni kvikmyndagerðarmanni barst frá norrænum samtökum, Nordisk Smal- film. Þar var Islendingi boðið að taka þátt í kvikmyndahátíð samtakanna og Þorsteinn bað mig að fara,” sagði Karl Jeppesen kennari í samtali við Dag- blaðið. Hann ásamt Kristberg Óskars- syni og Valgarð Guðjónssyni hafa boðað til stofnfundar Samtaka áhuga- manna um kvikmyndagerð næstkom- andi laugardag. Þremenningamir hafa útbúið drög að lögum fyrir félagið. Þau verða lögð fyrir stofnfundinn, sem haldinn verður í Tjarnarbíói. Karl Jeppesen benti sérstak- lega á liðinn um tilgang félagsins, þar sem meðal annars segir að félagið skuli gangast fyrir námskeiðum meðal félags- manna sinna. Allir geta oröið félagar i Samtökum áhugamanna um kvik- myndagerð, bæði einstaklingar og hópar. „Á kvikmyndahátiðinni var fast lagt að mér að stofna samtök sem þessi hér á landi. Mér var sagt að búið væri að leita að íslenzkum kvikmyndagerðarmanni í um tuttugu ár til þess starfa,” sagði Karl. Stofnfundurinn hefst í Tjarnarbiói klukkan tvö næstkomandi laugardag og er öllum opinn. - ÁT Nýverzluní 1 IAFNARFIRDI Höfum opnað nýja verzíun að TRÖNUHRAUNI6 undirnafninu \ ísn E> Peysurfrákr. 1200.- Sokkafrákr. 700.- Nærfötfrákr. 1385,-settiö Vinnugallafrákr. 9000.- Viðbjóðum: Koddafrákr. 2797.- Vinnusloppafrákr. 7459.- Metravöru frá kr. 600.- pr. meter Úlpurbarnafrákr. 8800.- Sængur frá kr. 9324.- og margt fleira GOn VERD - GOD VARA fyrir fólk á öllum aldri Fyrst um sinn opið: Mánudaga tilfimmtudagafrá kl. 1-6 Föstudagakl 1-lOoglaugardagafrákl. 9-12 V RUI IÚSI D 1 FRÖNUHRAUNI6 IAFNARFIRDI

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.