Dagblaðið - 26.09.1978, Blaðsíða 23

Dagblaðið - 26.09.1978, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1978. 23 I Útvarp Sjónvarp D Silja Aðalsteinsdóttir þjðandi. Útvarp kl. 17,20: Sagan Erfingi Patricks —sem beðið hef ur verið eftir ídagkl. 17.20 byrjarSilja Aðalsteins- dóttir lestur þýöingar sinnar á bókinni Erfingi Patricks eftir K.M. Peyton. Þetta er þriðja bókin í þríleik sem Silja les i útvarpi. Sú fyrsta hét Sautjánda sumar Patricks og önnur Patrick og Rut. Þessar bækur hafa notið gífurlegra vinsælda hérlendis og að sögn þýðanda hefur hún fengið mörg bréf og hringing- ar frá fólki sem bíður spennt eftir næstu bók. Einnig hefur verið hringt niður i út- varp og spurzt fyrir um hvenær lestur á þriðju bókinni hefjist. Þessar bækur eru þroskasaga ungs drengs sem á við að etja óviðráðanlega árásarhneigð og berst einnig við kynhvöt sína. í síðustu bók segir frá er drengurinn lendir i fangelsi, en þegar sú þriðja hefst er nokkuð liðið á þann tima sem hann hefur setið inni. Hann losnar úr fangelsinu og atburðir fara að gerast sem áhrif hafa á framtið hans. Silja sagði aðekki væri ráðlegt að segja neitt nánar frá bókinni þar sem það gæti eyðilagt spennu bókarinnar. Þess má geta að fyrir annað bindið af bókinni fékk Silja Aðalsteinsdóttir þýðingarverðlaun. En það eru verðlaun sem .fræðsluráð veitir beztu þýðingu á barnabók. Silja sagði aðspurð að henni fyndist þessar bækur alveg makalausar og að hún fengi ekki leið á þeim hvað oft sem hún læsi þær. Fyrsta bókin var mjög viðburðarrik og hæfði hún alveg unglingum niður i 12—14 ára. Næsta bók er viðameiri þar sem aðalsöguhetjan er orðinn eldri og er bókin i samræmi við það. Þessar bækur eru jafnt fyrir fullorðna og unglinga en Silja sagði að þessi þriðja bók væri ekki fyrir yngri en 13 ára. Þó væri allt í lagi þó þau læsu hana. Bókin lýsir unglingi eins og hann er, eins og allir unglingar eru, en ekki unglingi sem er eins og barn í sér með engar kynhvatir né hugsunarhátt unglinga. Þar sem svo margir hafa beðið eftir sögu þessari er ekki að efa að margir verða þeir sem hlusta á hana, en hver lestur tekur um hálftima. -ELA. « i Sjónvarp Þriðjudagur 26. september 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Getnaður i glasi (L). Bresk mynd um Louise Brown, frægasta ungbam síðari tíma. Lýst er aðdraganda fæðingarinnar og rætt við vísindamennina, sem gerðu móöurinni kleift að verða þunguð. Einnig er talað við foreldra barnsins og fylgst með þvi fyrstu vikur ævinn- ar. Þýðandi Jón O. Edwald. 21.20 Kojak (L). Mikið skal til mikils vinna. Þýðandi Bogi Arnar Finnbogason. 22.10 Sjónhending (L). Erlendar myndir og mál- efni. Umsjónarmaður Bogi Ágústsson. 22.30 Dagskrárlok. Þriðjudagur 26. september 12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Við vinnuna: Tónleikar. 15.00 Miðdegissagan: „Föðurást” eftir Selmu Lagerlöf. Hulda Runólfsdóttir les (5). ' 15.30 Miðdegistónleikar: Betty-Jean Hagen og John Newmark leika Noktúmu og Tarantellu op. 28 fyrir fiðlu og pianó eftir Szyman- ovsky/Filharmoniusveitin í Ósló leikurSinfón- iska fantasíu op. 21 eftir Monrad-Johansen; öivin Fjeldstad stj. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.16 Veðurfregn- ir). 16.20 Popphorn: Halldór Gunnarsson kynnir. 17.20 Sagan: „Erfingi Patricks” eftir K.M. Peyton. Silja Aðalsteinsdóttir byrjar lestur þýöingar sinnar. 17.50 Víðsjá: Endurtekinn þáttur frá morgnin- um. 18.05 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Um opinn leikskóla. Guðrún Þ. Stephen- senfiyturerindi. 20.00 Samleikur og einleikur. a. Leon Goossens og Gerald Moore leika á óbó og pianó tónlist eftir Fiocco, Paul Piemé, César Franck o.fl. b. France Clidat leikur á píanó Ballöðu nr. 2 eftir Franz Liszt. 20.30 Útvarpssagan: „Fljótt fljótt, sagði fugl- inn” eftir Thor Vilhjálmsson. Höfundur les (2). 21.00 Sjö sonnettur eftir Michelangelo: Sönglög eftir Benjamin Britten. Attila Flllöp syngur. Emmy Varasdy leikur á pianó. (Hljóðritun frá útvarpinu í Búdapest). 21.20 „í sveiflunni milli tveggja andstæðra tiða”. Dagskrá á sextugsafmæli Ólafs Jóhanns Sigurðssonar skálds. Þorsteinn Gunnarsson les smásöguna „Ögmund fiðlara”, Hjalti Rögn- valdsson kafla úr „Vorkaldri jörð” og Óskar Halldórsson og höfundurinn lesa Ijóð. Einnig fiutt lög við Ijóð skáldsins, m.a. frumflutt lag Sigursveins D. Kristinssonar „Draumkvæði um brú" — Gunnar Stefánsson tekur saman dagskrána og kynnir. 22.10 Kórsöngun Ámesingakórinn í Reykjavik syngur islenzk lög. Söngstjóri Þuríður Páls- dóttir. 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. 22.50 Harmónikulög. Horst Wende leikur. 23.00 Á hljóðbergi. „Bergmannen í norsk digtn- ing". Toril Gording leikkona frá National- teatret i Ósló flytur samfellda dagskrá með lestri og leik úr verkum Henriks Ibsens. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. Miðvikudagur 27. september 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. 7.10 Létt lög og morgunrabb. (7.20 Morgun- leikfimi). 7.55 Morgunbæn. 8.00 Fréttir. 8.10 Dagskrá. 8.15 Veðurfr. Forustugr. dagbl. (útdr.) 8.30 Af ýmsu tagi: Tónleikar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: Jón frá Pálm- holti heldur áfram að lesa sögu sína „Ferðina til Sædýrasafnsins” (16). 9.20 Morgunleikfimi. 9.30Tilkynningar. 9.45 Verzlun og viðskipti: Ingvi Hrafn Jónsson stjórnar þættinum. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. , 10.25 Kirkjutónlist: Máni Sigurjónsson leikur á orgel Prelúdíu og fúgu í E-dúr eftir Vincent Lilbeck, Prelúdíu og fúgu í g-moll eftir Dietrich Buxtehude og „Minnt þú, ó maður, á minn deyð” — sálmaforleik eftir J.S.Bach. 10.45 Eins og þér sáið: Evert Ingólfsson tekur saman þátt um jurtir ogjarðyrkju. 11.00 Morguntónleikan Yehudi og Hephzibah Menuhin leika Fiðlusónötu nr. 10 í C-dúr eftir Beethoven/Gervase de Peyer og Melos strengjakvartettinn leika Klarinettukvintett i A-dúr (KS81) eftir Mozart. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar. Útvarp kl. 21,20: ISVEIFLUNNI MILLITVEGGJA AND- STÆÐRA TÍÐA 1 sveiflunni milli tveggja andstæðra tiða nefnist þáttur sem er á dagskrá út- varpsins í kvöld kl. 21.20. Þáttur þessi er á dagskrá á sextugsafmæli Ólafs Jóhanns Sigurðssonar skálds. Ýmislegt verður gert í tilefni af afmælinu og má m.a. nefna að Þorsteinn Gunnarsson les smásöguna ögmund fiðlara, Hjalti Rögnvaldsson leikari les kafla úr Vorkaldri jörð og Óskar Halldórsson og höfundurinn lesa ljóð. Einnig verða flutt lög við Ijóð skáldsins, m.a. frumflutt lag Sigursveins D. Kristinssonar Draum- kvæði um brú. Það er Gunnar Stefáns- son sem tekur saman dagskrána og kynnir hana. Þáttur þessi er tæplega klukkustundar langur. -ELA. u t tilefni af se\tu|.safntæli Ólafs Jóhanns Sigurðssonar rithöfundar, verður þátturinn t sveiflunni milli tveggja and- stcðra rtóa. Gripið simann gerið goð kaup Smáauglýsingar BIABSINS Þverholti11 sími 2 70 22 Opið til kl.10 í kvöld

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.