Dagblaðið - 26.09.1978, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 26.09.1978, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1978. 9 Breiðþota f lugleiða: Gæti fíutt alla íslendinga til New York á árí Verði af leigukaupsamningi Flug- leiða um DC-10 breiðþotu, er fræði- legur möguleiki á að hún geti flutt alla íslendinga til New York á einu ári og að sjálfsögðu einnig til baka. Þotan getur tekið allt að 380 far- þega og er þá reiknað með 11 manna áhöfn, eða 391 manneskju um borð. Miðað við hámarksnýtingu þotunn- ar þyrfti hún að fara eina og hálfa ferð á dag til að ná áðurnefndu dæmi. Það yrðu þrír leggir frá Keflavík til New York, þaðan aftur til Keflavíkur og aftur til New York. Þar sem þotan er um fimm tíma hvern legg á 870 km hraða í 31 þús. feta hæð gæti þetta gengið upp. Hér er að sjálfsögðu ekki tekið tillit til skoð- ana né neinna bilana, en þetta dæmi gefur nokkra hugmynd um afkasta- getu þotunnar. Til skýringar á hugtakinu kaup- leigusamningur þýðir það í stuttu máli að leigutaki hefur rétt til kaupa á við- komandi hlut eftir tiltekinn leigutima og rennur þá hluti leigunnar upp í kaupverð, sem ákveðið er við upphaf samnings. -G.S. Þessi mynd af DC-10 breiöþotu 1 LoftleiðaHtum er að vlsu ekki alveg heiðarleg þvf yfirlitsmyndina tók Ásgeir Tómasson, blaðamaður, úr loftbelg 1 hittifyrra en Hörður Vilhjálmsson tók myndina af þotunni og likani og skeytti inn i myndina. wmm m »nm. íS**] i«Kiy Ju-N.on CHiMern f'f mUM ORVOG' -VSKUNNA,,. £1 Konurnar i JC-klúbbnum Vik sýna hér miðana, sem dreift verður viða um borgina á næstunni. Miðinn sést innlimdur undir myndinni af konunum. DB-mynd Hörður „Á eftir bolta kemur bam" —J.C. félagar vekja athygli á barainu íumferðinni „Með slagorðinu „Á eftir bolta kemur barn,” viija J.C. Vik konur i Reykjavík, ásamt öðrum J.C. félögum á landinu, vekja athygli á barninu i umferðinni. Við vitum að börn að leik eða starfi gleyma sér oft og má segja að viðbrögð þeirra séu óútreiknanleg. Sérfróðir menn telja að 90% barna i umferðinni hiaupi hugs- unarlaust út á akbrautina á eftir bolta sinum,” sagði Þórhildur Gunnarsdóttir, forseti J.C. Vik kvenna f Reykjavik. Lögberg-Heimskringla: STÓRSÓKNÁ SfÐASTA ÁRI Vikublað Vestur-tslendinga og áhuga- ist ekki, enda verðbólga smávægileg manna hér á landi um samskipti við vestra miðað við Island. Blaðiö er nú að frændur vora vestra, Lögberg-Heims- fiytja í nýjar skrifstofur og hefur bætt kringla er greinilega vaxandi blað. Á við sig blaðamanni, Sharron Wild, sem einu ári hefur áskrifendum fjölgað um er vestur-ízlenzk. 235.3% og er þá einvörðungu átt við Dreifing á Íslandi hefur vaxið mikið skuldlausa áskrifendur vestanhafs. Aug- en hana annast Birna Magnúsdóttir, lýsingatekjur hafa og aukizt gífurlega Dúfnahólum 4. Sími hennarer 74153. eða um 77.4% en auglýsingaverð breytt- - JBP Þessi herferð sem fer I hönd er undir- búin og unnin af J.C. konum og i sam- ráði við Umferðarráð hefur félagið látið útbúa sérstaka limmiða og er upplag þeirra tuttugu þúsund. J.C. konur skora á ökumenn að Uma miðann á bilrúður sinar og minna þannig á slysahættuna í umferðinni. J.C. konur hafa fengið til Uðs við sig J.C. félögin á landinu til dreif- ingar á miðum þessum. - HJ Island íaugum útlendings — eftir Harry Vedoe UMTUNGUMÁLIÐ Sem Dani er það nokkuð furðulegt að koma til lslands og komast að raun um að bömin læra dönsku í skólanum. En það er líka alveg yfirnáttúrlegt hversu margir íslendingar tala móður- mál mitt svo til lýtalaust. Ég vildi óska að ég talaði íslenzku. Það er bara ekk- ert björgulegt fyrir mig þegar telefon heitir ekki telefon heldur sími, heli- kopter er kallaður þyrla, sjónvarp er orðið fyrir fjernsyn. Þessi dönsku og alþjóðlegu orð lætur enginn íslend- ingur sér um munn fara ef honum er umhugað um heiður sinn og hinnar þúsund ára sögu landsins. Eitt er þó það orð af erlendu bergi brotið sem si- fellt liggur laust á vörum íslendings- ins. Maður heyrir þetta orð hvað eftir annað. Ég vona því að íslendingum finnist það ókei, að ég reisi þessu orðið eilítið minnismerki. Ókeiið á það skil- ið, þvi þessum tveim bókstöfum hefur tekizt að ryðjast í „landhelgi” íslenzks máls. Sjálfum finnst mér að stytta til heiðursókeiinu ætti að verða „allt I lagi. Bókmenntaverölaun Norðurhjarans Erfiðar aðstæður rithöfunda á norðurhjara heimsins voru til umræðu á ráðstefnu rithöfunda frá jaðarsvæðum Norðurlanda í Rovaniemi í N-Finnlandi í lok júli. í lokaályktun fundarins er fagnað stofnun samtaka grænlenzkra rithöfunda og lýst því áliti að Samarit- höfundar eigi að verða þátttakendur i samnorrænum samtökum, enda sé menning Samanna sjálfstæður þáttur i norrænu menningarsamfélagi. Þá er því skotið til Norðurlandaráðs til umfjöllunar hvort ekki skuli úthluta til viðbótar bókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs sérstökum bók- menntaverðlaunum Norðurhjarans. Fulltrúi íslands var Eyvindur Eiríks- son cand. mag, rithöfundur. - J BP

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.