Dagblaðið - 05.10.1978, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1978.
Við Holtsgötu
2ja til 3ja herb., 65 ferm íbúð á annarri hæð til
sölu. íbúð þessi er sem ný. Allar innréttingar
nýjar og vandaðar. Öll sameign afhendist ný-
frágengin. íbúðin er tilbúin til afhendingar.
HÚS OG EIGNIR
Fasteignasalan,
Bankastræti 6. Sími 28611.
Lögmaflur Lúflvfk Gizurarson hrl.
Laus staða
Starf yfirullarmatsmanns á Suður- og Vestur-
landi er laust til umsóknar.
Starfið er 13,75% af ársstarfi og árslaunum.
Umsóknir er tilgreini aldur og störf umsækj-
enda skulu berast ráðuneytinu eigi síðar en 1.
nóvember 1978.
Landbúnaðarráðuneytið,
3. október 1978.
Akureyri
Umboðið á Akureyri óskar eftir blaðberum í eftirtalin
hverfi:
Miðbæ, Oddeyri og
neðri hluta Brekkunnar.
SMEBIABIB
Sími 22789
Handlang
Viljum ráða verkamenn í handlang hjá
múrurum. Uppl. á skrifstofunni,
Hramaborg, 1, 3. hæð.
Byggung Kópavogi.
Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur
óskar að ráða eftirtalið starfsfólk:
Hjúkrunarfræðing við barnadeild og heilsugæzlu í
skólum. Getur verið fullt starf eða hluti úr starfi, eftir
samkomulagi, dagvinna.
Skólalækna við nokkra skóla í borginni.
Meinatækni. Fullt starf, sem mætti skipta milli tveggja.
Upplýsingar gefa hjúkrunarforstjóri og aðstoðarborg-
arlæknir í síma 22400.
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
Rcykjavik, 3. október 1978.
Vatikanið:
PÁn KVADDUR
í HELLIRIGNINGU
— nýtt páfakjör hefst 14.október
Jóhannes Páll páfi var jarðsettur í
gær. Þar með geta hinir rúmlega eitt
hundruð kardinálar rómversk kaþólsku
kirkjunnar snúið sér að undirbúningi
kjörs nýs páfa, sem verður hinn tvö
hundruð sextugasti og fjórði i röðinni.
Stöðug rigning var í Róm í gær og
þungbúið loft eins og undanfarna daga.
Á annað hundrað þúsund manns voru á
torginu fyrir framan Péturskirkjuna,
þegar kardinálarnir fylgdu yfirmanni
sinum og staðgengli Krists á jörðinni
siðasta spölinn hérna megin grafar.
Jóhannes Páll ríkti aðeins í þrjátiu og
þrjá daga og við dauða hans verður nú
að velja nýjan páfa i annað sinn á aðeins
tveim mánuðum.
Heimildir i Róm telja að kardinálarnir
vilji flestir fá kennimann með svipaða
starfsreynslu og Jóhannes Páll hafði. Er
þá átt við kardinála, sem starfað hefur
sem kennimaður utan Vatikansins í
Róm.
Kjöreftirmanns Jóhannesar Páls mun
hefjast 14. október næstkomandi.
Rigningin hefur hellzt úr loftinu i Róm siðan Jóhannes Páll páfi lézt og ekkert lát varð á þvi meóan jarðarför hans fór fram i
gær. Á annað hundruð þúsund stóðu á torginu fyrir utan Péturskirkjuna á meðan kardinálar kvöddu páfa.
Bandaríkin:
Olíuskattur stendur
í Bandaríkjaþingi
— sér fyrir endann á orkuf rumvarpi Carters
Nefndir öldunga- og fulltrúadeildar
Bandarikjaþings felldu í gær frumvarps-
drög sem gerðu ráð fyrir að draga mjög
úr ráðagerðum Carters Bandaríkjafor-
seta um að minnka innflutning olíu til
Bandaríkjanna.
1 dag eru ráðgerðir fundir um þá hug-
mynd forsetans að gefa þeim aðilum,
sem leita nýrra oliulinda í Banda-
ríkjunum, verulegar skattaivilnanir.
Meðal annars sem deilt er um í þing-
nefndunum er sérstakur skattur á
bensinfrekar bifreiðir en þingnefndirnar
gátu ekki komið sér saman um það mál
og tillaga um lægri skatt á slíkar bif-
reiðar en forsetinn vill, náði ekki fram
aðganga.
Sérstakur olíuskattur á notkun og
skattaivilnanir vegna olíuleitar eru einu
stóru atriðin, sem ekki hafa fengið loka-
afgreiðslu í nefndum Bandaríkjaþings og
eru tilbúnar til afgreiðslu i öldunga-
deildinni.
SLAPP ÚR HALDI
MANNRÆNINGJANNA
Tuttugu og tveggja ára gamall
sonur italsks iðjuhölds flúði í gær-
kvöldi úr höndum mannræningja með
þvi að brjóta upp farangursgeymslu
bifreiðar sem hann var geymdur í og'
hlaupa á brott. Gerðist þetta í Napolí,
en piltinum var rænt í Mílanó kvöldið
áður.
Talið er að mannræningjarnir hafi
verið á leið til Suður-ltaliu en þar eru
taldar höfuðstöðvar ýmissa samtaka
mannræningja, sem tengsl hafi við
glæpasamtök Mafiunnar.
Mannrán þetta var hið þritugasta
og annað á ítaliu i ár. Hafa mörg
fórnardýranna eða aðstandendur
þeirra orðið að greiða stórar fjárhæðir
til að kaupa frelsi sitt úr höndum ræn-
ingja sinna. Mannrán á Ítalíu hafa
verið svo tugum skiptir árlega á þess-
um áratug. Flest þeirra hafa eingöngu
verið í auðgunarskyni. Munu þeir
aðilar sem valið hafa sér stöðu hinum
megin við lögin telja mannrán ein-
hvern arðvænlegasta glæp sem hægt
eraðstunda i nútíma þjóðfélagi.