Dagblaðið - 05.10.1978, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 05.10.1978, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1978. 13 Ml Manch. afford tapaöi í Exeter AstonVilla — Crystal Palace 1-1 Blackpool — Manch. City 1 -1 Chester — Norwich 0-2 Chesterfield — Charlton 4-5 Exeter — Bolton 2-1 Manch. United — Watford 1-2 Oxford — Nottm. Forest 0-5 Meistarar Forest eru nú greinilega að ná sér á strik á Englandi. Þeir unnu stóran sigur gegn Oxford United, 5-0. Þeir Birtle, McGovern, Martin O’Neil, John Robertson og Viv Anderson skoruðu mörk Forest gegn Oxford. Af þeim 11 félögum sem eru komin áfram í 16 liða úrslit eru aðeins 5 félög úr 1. deild. Félög eins og Liverpool og Man- chester United hafa verið slegin út af liðum úr lægri deildum. ;greinilegtaö sóknarleikur áöur lenzka markinu og sendi síðan eidsnöggt inn á markteig þar sem Hoffmann kom eins og elding og þrumaði í netið — inn- siglaði sigur Þjóðverja, sem fögnuðu mjög. Eftir þetta fór að gæta þreytu hjá íslenzka liðinu. Þjóðverjar juku hraðann og sköpuðu sér nokkur færi en voru full- bráðir, skutu f ótíma. Stundum lék þó lánið við landann, eins og þegar Stefán Örn bjargaði á línu rétt fyrir lokin. Leiknum var sjónvarpað og I kvöld voru helztu kaflar sýndir aftur, íslenzku leikmennirnir fengu að sjá aftur beztu og verstu atvikin, eftir því hvor aðilinn átti í hlut. Leikmenn höfðu sitthvað við gjörðir sínar að athuga — svona í léttum dúr. Eru hins vegar staðráðnir I þvi, að láta mistökin sér að kenningu verða og sigra Þjóðverja hér heima. - emm Staðan í 4. riðH er nú þannig: Holland 1 1 0 0 3-0 2 Pólland 1 1 0 0 2-0 2 A-Þýzkaland 1 1 0 0 3-1 2 Sviss 0 0 0 0 — 0 ísland 3 0 0 3 1—8 0 ialle Leppni landsliða >markísumar skora mark og það tókst,” en jafnframt að vera fyrsta mark Péturs i landsleik var þetta fyrsta mark landsliðsins í sumar — is sem Youri Ilitschev var lengi búinn að bíða eftir að brjóta. Brúnin á okkur 5 íslenzku áhorfend- um lyftist að vonum því eftir þetta kom góður leikkafli íslendinga, sem setti Þjóðverja um tima út af laginu. Eða þar til Peter tókst að skora hálfgert heppnis- mark úr þvögu, kastaði sér á knöttinn og tókst að koma honum í netið með hnénu að virtist, 2-1 á 29. minútu. Pétur og Teitur fengu báðir færi á að jafna, en mistókust tvívegis kollspyrnur, í góðum færum. Einnig átti Atli gott færi eftir lúmska aukaspyrnu Guðmundar Þor- björnssonar en markvörðurinn varði lúmskt skot Atla með naumindum í horn. Bezti kafli íslenzka liðsins var í byrjun siðari hálfleiks þegar mest kvað að Karli Þórðarsyni eins og áður var getið en minnstu munaði þá að íslendingum tækist að jafna þegar Árni Sveinsson tók aukaspyrnu rétt utan vítateigs. Knöttur- inn fór yfir markvörð Þjóðverja og virt- ist stefna niður í markið en lenti í þverslá og út á völlinn, en Þjóðverjar náðu að bjarga í horn. Þegar tæpur stundarfjórðungur var eftir fékk Peter, útherji Þjóðverja, knött- inn út við hliðarlínu. Lék í átt að ís- Arnór Guðjohnsen, Vikingurinn frá Lokeren, f góðu færi en skot hans fór yfir. A-þýzkur sigur í A-Berlín Pólverjar sigruðu Sovétmenn 2-1 i landsleik u-21 árs f Evrópukeppni lands- liða f Zamosc. Staðan f hálfleik var 1-1, mörk Pólverja skoruðu Okonski og Cio- lek en Ponomariov svaraði fyrir Sovét- menn. í A-Berlfn sigruðu A-Þjóðverjar Rúmena 1-0 f landsleik u-21 árs. Jahros skoraði fyrir Þjóðverja á 72. mfnútu, áhorfendur voru 2 þúsund. Júgóslavar sigruðu Spánverja 1-0 f Valladolid á Spáni, Con Davrok skoraði þegar á 2. mfnútu með skalla. DB-mynd Bjarnleifur. Celtic tapaði á Park Head Celtic, Uð Jóhannesar Eðvaldssonar, virðist nokkuð vera að missa flugið i Skotlandi. í gærkvöld sigraði Mother- well, enn án sigurs i úrvalsdeildinni, Celtic i Glasgow, 1-0. Sigur Motherwell fylgir 1 kjölfar ósigurs Celtic gegn Burn- ley. Motherwell er nú neðst i úrvalsdeild- inni, með aðeins tvö stig. Leikurinn var i deildabikarnum í Skotlandi, þriðju um- ferð, og var um fyrri leik liðanna að ræða. Meistarar Rangars sigruðu St. Mirren 3-2 á Ibrox Park í Glasgow. Kilmarnock sigraði Morton 2-0, Hibernian vann nauman sigur á 1. deildarliði Clydebank, 1-0 í Edinborg. Þá virðist Ayr United nokkuð vera að rétta úr kútnum eftir að Ally McLeod, fyrrum framkvæmdastjóri skozka lands- liðsins tók við stjórninni — sigraði Falkirk 2-0 á útivelli. Standard beið lægri hlut gegn Anderlecht Spenna í Noregi Mikil spenna er nú á toppnum í 1. deildinni norsku i knattspyrnunni. Á sunnudag sigraði Lilleström Joe Hooleys Steinkjer 3-1 á heimavelli og náði við forustu, þegar Start tapaði fyrir Brann 4-2 í Bergen. Viking Tony Knapp sigraði Bodö-Glimt 2-0 á útivelli. Tvær umferðir eru eftir og staða efstu liða: Lilleström 20 10 9 1 41 —19 29 Start 20 II 7 2 28—13 29 Viking 20 10 7 3 37—20 27 Valerengen 20 8 6 6 41—32 22 Möguleikar Standard Liege, liðs Ásgeirs Sigurvinssonar i Belgfu, á að blanda sér f baráttuna um belgiska meistaratitilinn verða minni með hverri' umferðinni f Belgfu. 1 gærkvöld beið Standard lægri hlut gegn Anderlecht, 2- 0. Anderlecht hefur nú forustu eftir 7 umferðir með 12 stig en Standard er nú fyrir neðan miðja deild með aðeins 7 stig. Annars urðu úrslit í Belgfu í gær- kvöld: Winterslag — Charleroi 1-2 Lokeren — Courtrai 2-0 La Louviere — FC Brugge 2-2 FC Liege — Berchem 3-1 Beringen — Waterschei 2-2 Beershot — Lierse 3-0 Waragem — Molenbeek 1-1 ísland misnotaði góð tækifæri í Laugardal — og Holland sigraði 1-0 í unglingalandsleik þjóðanna Hoilenzku strákanir sýndu mun betri leik cn þeir íslenzku i UEFA-keppni unglingalandsliðs á Laugardalsvelli i gær —en þó voru tækifæri íslands betri og fleiri. Holland vann 1—0. Með smá- heppni hefði íslenzka iiðið svo hæglega getað náð jafntefli. Jafnvel unnið. En upplögð tækifærí fóru forgörðum og möguleikar að komast f úrslitakeppnina f Austurríki næsta vor nánast engir. Hollendingar eru of sterkir fyrir okkur á þessu sviði eins og öðrum i knatt- spyrnunni. íslenzka liðið byrjaði betur en smám saman yfirtóku þeir hollenzku leikinn með nettu spili. Miðherji þeirra Holshuyzen fékk fyrsta opna færi leiksins. Spyrnti laust framhjá. Það kom Karl og Pétur ekki til Twente — Feyenoord nBýður betur” í Reykjavík en þó er óljóst hver áhugi Feyenoord er á Karli Frá Magnúsi Gislasyni, blaðamanni DB i Halle: Skagamennirnir Karl Þórðarson og Pétur Pétursson fengu skilaboð hingað til Halle um að fara ekki til Twente Enchede í Hollandi til að líta á aðstæður — heldur halda heim til Reykjavíkur með öðrum landsliðsmönnum. Ástæðan er sú að formaður Feyenoord hafðirætt við forráðamenn ÍA og boðið mun betur. Hins vegar hringdi faðir Karls út til Þýzkalands I gærkvöld og hvatti Karl til að fara með forráðamönnum Twente til Hollands og lita á aðstæður, óvíst væri hver áhugi Feyenoord væri á Karli. Út- sendarar Twente komu til A-Þýzkalands og horfðu á leikinn en reynt hafði verið að senda skilaboð til Twente um þróun mála, svo menn Twente færu ekki erindisleysu til Þýzkalands en það var of seint. Ekki var vitað annað en þeir hefðu haldið frá Halle í gærkvöld, áleiðis til Hollands. íþróttir Málið virðist allt hið snúnasta en ljóst er, að Feyenoord hefur gert tilboð. Hvernig það lítur út er allt á huldu enn. Karl Þórðarson. í ljós þarna og síðar að skotfimin var veikasta hlið hollenzkra. Skozki dómarinn Valentine þorði ekki að dæma víti á Hollendinga, þegar Lárus Guðmundsson komst inn fyrir vörnina en var brugðið. Rétt á eftir komst Arnór Guðjohnsen í opið færi. Spyrnti yfir. Þar fór gott færi for- görðum og tvívegis síðar komst fyrirliðinn Benedikt Guðmundsson í opin færi eftir aukaspyrnur. Skallaði fyrst beint á hollenzka markvörðinn. Spyrnti I siðara tilfellinu framhjá. Minútu fyrir hálfleik náðu Hollendingar forustu. Heimir Karlsson missti knöttinn á miðju vallarins. Spyrnt var langt fram og Talan, hinn eldsnöggi útherji AZ ’67 hljóp vörnina af sér. Skoraði örugglega. Hann var langbezti maðurinn á vellinum. Framtíðarmaður i hollenzkri knattspyrnu en heppni okkar hve þeir hollenzku nýttu hann lítið í leiknum. í s.h. voru Hollendingar mun meira með knöttinn en markvörður þeirra, Strijkers, þurfti þó að taka á öllu sínu til að verja hörkuskot Ágústs Haukssonar. Ekki var ég sáttur við leikaðferð íslenzka liðsins. Öllu þjappað inn á miðjuna. Engir kantmenn — og það getur ekki gengið, þegar bakverðirnir fara nær aldrei í sóknina. Ágúst Hauks- son var „sweeper” — leikinn og athugull leikmaður, en allt of seinn i uppbyggingu sinni. Oftast spyrnt fram að vitateig mótherjanna. Þeir áttu létt með að verjast því. í þau fáu skipti, sem Ágúst tók þátt í sókninni varð þar meiri broddur. Báðir bakverðir okkar of seinir gegn eldfljótum mótherjum, sem nýttu breidd vallarins vel. Allt annar og betri bragður á leikaðferð hollenzkra — auk meiri leikni og líkamsstyrks. Þó var langt frá þvi að íslenzku strákarnir lékju illa. Síður en svo. Þeir mættu einfaldlega ofjQrlum sinum í leik og skipulagi. Aukaspyrnur ísl. liðsins góðar og sköpuðu mesta hættu hjá Hollendingum. Óheppni að nýta þær ekki betur. Arnór Guðjohnsen, ungi Víkingurinn, sem nú er orðinn atvinnumaður hjá Lokeren í Belgíu, var hinn eini í íslenzka liðinu, sem stóð Hol- lendingum fyllilega á sporði. En hann fékk úr litlu að vinna. Benedikt sterkur leikmaður, svo og Heimir Karlsson. Lárus nettur — en meiðsli háðu honum. Skúli Rósantsson tók aukaspyrnurnar vel — en mest kom á óvart KR- ingurinn Snæbjöm Guðmundsson. Þar er mikið efni á ferð. Dómarinn Valentine dæmdi nokkuð þokkalega nema þegar hann sleppti vitinu augljósa. En sýndarmennska hans á leikvellinum er nær óþolandi. -hsim.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.