Dagblaðið - 05.10.1978, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1978
Bandaríkin:
Kissinger kominn
i knattspymuna
— orðinn formaður Knattspyrnusambands Bandaríkjanna og er að hugsa um
að kaupa sérfélag
— stef nir í að fá heimsmeistara-
keppnina árið 1990
Henry Kissinger fyrrum utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna hgfur verið
kjörinn formaður knattspyrnusam-
bands Bandaríkjanna. Mun höfuð-
verkefni hans verða það að reyna að
skipuleggja uppbyggingu knattspyrn-
unnar í Bandaríkjunum svo vel að þeir
geti og fái að sjá um heimsmeistara-
keppnina árið 1990.
Knattspyrna átti lengi vel erfitt upp-
dráttar í Bandarikjunum og stóð lengi
algjörlega í skugganum af baseball,
körfuknattleik og bandariskum fót-
bolta. Hefur þetta breyzt mjög hin
síðari ár og meðal annars vegna heims-
frægra knattspyrnumanna, sem leikið
hafa með bandarískum liðum. Má þar
nefna Pele frá Brasilíu og Becken-
bauer frá Vestur-Þýzkalandi.
í viðtali við Kissinger sagðist hann
alltaf hafa haft mikinn áhuga á knatt-
spyrnu. Hefði honum oft tekizt að eiga
erindi þar sem stórleikir fóru fram, er
hann gegndi stöðu utanríkisráðherra.
„Ég tel að knattspyrnan eigi eftir að
verða vinsælasta íþróttagreinin í
Bandaríkjunum og það með réttu,”
sagði stjórnvitringurinn.
Kissinger hefur fest kaup á einhvers
konar heimild til að kaupa meirihluta
hlutafjár í knattspyrnufélagi einu.
Segist hann þó vera alveg óráðinn i því
hvort úr verður og í það minnsta ekki
fyrrenánæstaári.
--------------------------►
„Hafði oftast lag á að vera að funda
þar sem stórleikir voru i knattspyrn-
unni,” segir Kissinger fyrrum utan-
ríkisráðherra Bandarikjanna, sem nú
nýverið hefur snúið sér að knattspyrn-
unni, enda minna um að vera hjá
honum í opinberu lifi en áður. Sagt
hefur verið um Kissinger, aö hann
kunni bezt við sig i sviðsljósinu og
verður knötturinn því væntanlega til
að lýsa hann upp á næstu árum.
Erlendar
fréttir
REUTER
Svíþjóð:
NÓBELS
VERÐ
LAUN
TILKYNNT
ÍDAG
Tilkynnt verður um hver hljóta
muni bókmenntaverðlaun Nóbels í
dag. Að venju verður það gert í
Stokkhólmi en sænska akademian
velur þann sem hnossið hlýtur.
Verðlaunin eru að þessu sinni jafn-
virði 165.000 dollara. eða rúmlega
fimmtíu milljónir íslenzkra króna.
Varer med gren
rkering pá prísmæi
ermcl.18% moms.
;•: 'tT'vTxT
lægges til ved kassen.
.. > ■5
Danir hækka
momsinn
—8% atvinnuleysi og lítil hrifning
yf ir horf um í ef nahagsmálum
Danir voru að hækka hjá sér „moms-
inn” eins og þeir kalla virðisaukaskatt-
inn, sem leggst á vöruverð 1 stað sölu-
skatts eins og hjá okkur. Danskir neyt-
endur gera þó á þessum nöfnum litinn
mun og eru heldur fúlir yfir þvi að
þurfa að greiða sihækkandi skatta.
Hækkun virðisaukaskattsins hefur
mjög verið til umræðu í Danmörku aö
undanförnu og hefur tengzt beinum
umræðum um kjaramál og laun. Mjög
mikið atvinnuleysi er i Danmörku og
eru atvinnuleysingjar taldir um það bil
8% af vinnufæru fólki. Tuttugu þús-
und manns söfnuðust fyrir utan þing-
húsið i Kaupmannahöfn í gær er Anker
Jörgensen forsætisráðherra flutti
stefnuræðu ríkisstjórnar sinnar. Kom
hann þá mjög inn á efnahags- og at-
vinnumál eins og við mátti búast.
Líbanon:
ALLT/BAU OG BRANDI
Miklir bardagar hafa verið í
Líbanon í nótt og í gærkvöldi.
Berjast þar kristnir hægrisinnar
sem neitað hafa að hleypa her-
sveitum Sýrlendinga inn í borgar-
hverfi sín í Beirút. Sýrlendingar
eru á vegum Arababandalagsins í
landinu og eiga að gæta þar friðar.
Talið er að um fimm hundruð
manns hafi fallið í nótt og vitað er
að sjúkrahús hafa ekki haft undan
aðhlú aðsærðum.
Öryggisráð Sameinuðu þjóð
anna kom saman til óformlegs
fundar um Líbanonsmálið. Var
þar tekið vel tillögu Frakka um
leið til friðar í þessu stríðsþjáða
landi.
Danmörk:
Danir reiðir Bretum
vegna fiskveiðimála
— verðum að hætta samvinnu við Ef nahagsbandalagið
Danska ríkisstjórnin mun i dag
ræða þá ákvörðun Breta að færa út
fiskveiðilandhelgi sína við
austurströnd Skotlands. Danskir
fiskimenn hafa um langt skeið veitt
stóran hlut af afla sínum á því haf-
svæði, sem nú hverfur inn fyrir
umráðasvæði Breta.
Svend Jakobsen, fiskimálaráðherra
Dana, sagði í gær að stefna Breta i
fiskveiðimálum væri í algjörri and-
stöðu við hinar átta þjóðirnar í
Efnahagsbandalaginu. Ógnaði þessi
hegðan þeirra öllu samstarfi innan
þess. Vegna afstöðu brezku ríkis-
stjórnarinnar hefur bandalaginu ekki
tekizt að mynda heildarstefnu um
fiskveiðimál og einnig hafa samningar
við ríki utan þess strandað.
Kent Kirk, formaður danskra
fiskimanna, sagði í gær að ef
Efnahagsbandalaginu tækist ekki að
fá Breta til að gangast inn á stefnu
annarra ríkja innan þess þá yrði
danska ríkisstjórnin að hætta allri
samvinnu við bandalagið í
fiskveiðimálum. Því meir sem Bretar
'æru út á þá braut að ákveða fiskveiði-
svæði sín einhliða yrði þetta mál
erfiðara, sagði Kirk. Danir yrðu að
fara að huga að því að ná undir sig
eina þeim litlu svæðum, sem þeir
hefðu enn möguleika á i Norður-
Atlantshafinu og Norðursjónum.
ef Bretar hætta ekki einleiknum