Dagblaðið - 05.10.1978, Síða 15
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5.0KTÓBER 1978.
15
c
Almennt fagnaðarefni leigubflstióra
Reykingabann í leigubflum:
— en einstaka bflstjóri bíður
þó eftir leyfisveitingum
yf irvalda til klósettferða
Mörgum finnast boð og bönn keyra
úr hófi fram í þjóðfélaginu og kættust
því litt er út spurðist enn eitt bannið:
bann við reykingum í leigubifreiðum. Til
þess að heyra hljóðið I leigubílstjórum
'gerði DB sér ferð á tvær leigubifreiða-
stöðvar í gær, Hreyfil og Bæjarleiðir.
Greinilegt var að þetta var eitt af
aðalumræðuefnum bílstjóranna og
sýndist sitt hverjum. Þó virtust flestir á
því að þetta bann væri mjög þarft og
þeim kærkomið.
William Tracey bílstjóri hjá Hreyfli
sagðist mjög hrifinn af þessu banni. „Ég
reyki ekki,” sagði William. „Taki ein-
hver upp sígarettu í bíl minum, bendi ég
hinum sama á bannið, sem er í gildi og
yfirleitt er tekið vel I það. Ef maðurinn
sættir sig hins vegar ekki við reykinga- •
bannið, keyri ég hann ekki.
Ég lít þannig á, að lögreglan geti
sektað okkur, ef við framfylgjum ekki
þessu banni. Þá erum við sjálfsagt rétt-
lausir, ef eitthvað er skemmt fyrir okkur
með reykingum i bílnum. Eftir þetta er
allt annað að þrifa bílana, svo ekki sé
talað um dvölina í bílunum. Það getur
verið mjög erfitt að vera I bíl ef reykt er
vegna þess hve húsið er lítið og loftið
mettast fljótt.”
Af samræðum annarra bílstjóra á
stöðinni rrtátti ráða að ekki voru allir
sammála um ágæti reykingabannsins.
Einum bílstjóranum fannst þetta
skerðing á persónufrelsi og framvegis
þyrfti líklega að biðja um leyfi yfirvalda
til þess að fara á klósettið.
Skjöldur Eyfjörð bílstjóri hjá Bæjar-
leiðum sagði að þetta reykingabann væri
alveg sjálfsagt. „Ég reyki sjálfur,” sagði
Skjöldur „og reyki raunar í bilnum líka,
þ.e. ef farþegar eru ekki í bilnum. Eftir á
reyni ég að lofta út eins vel og ég get og
opna alla glugga.
Ég myndi þó leyfa farþega, sem
reykti, að reykja á langri leið, t.d. til
Akureyrar. Það verður að vega og meta
í hverju tilviki, hvað ber að gera. Færi ég
hins vegar þessa sömu leið með mann
sem ekki reykti, myndi ég ekki reykja í
bílnum, heldur á áningarstöðum.
Ég hef ekki orðið var við það,” sagði
Skjöldur, „að lögreglan fylgist með þvi
hvort reykt sé í bilunum. Hins vegar eru
þeir liðlegir við okkur, ef við leitum til
þeirra í vandræðum. Það er þó eftirtekt-
arvert, hve fólk er tillitssamara en áður i
þessum efnum og flestir spyrja áður en
þeir setjast upp í bílinn, hvort þeir megi
reykja.
Ég veit ekki til þess að sektir séu við
brotum á þessu banni, okkur hefur
a.m.k. ekki borizt nein tilkynning .um
það frá okkar bandalagi. Því hefur þó
verið fleygt að við þessu broti sé 5
þúsund króna sekt, en um sönnur þess
veit ég ekki.”
Steindór Steindórsson bílstjóri hjá
Bæjarleiðum sagðist aldrei hafa reykt.
„Mér finnst því gott að geta borið þetta
fyrir mig. Einum manni hef ég þó leyft
að reykja siðan þetta bann var staðfest.
Þetta verður að vega og meta í hvert
skipti. Reykingar fara illa i mig og ég
verð slæmur I augum, ef reykt er í bíl hjá
mér. Það á sérstaklega við sterka og
daunilla vindla.
Eg get ekki annað séð en það sé alger
Borgarstjórnin
komin úr sumarfrfi
—fyrsti fundurídag
Fyrsti fundur í borgarstjórn Reykja- borgarfulltrúa verður lagt til aö kosið
víkur eftir sumarleyfi verður haldinn i verði 7 manna framkvæmdaráð.
dag kl. 5. Verða þá tekin fyrir allmörg Undir það heyra meðal annars: Gatna-
mál. Meðal þeirra er tillaga frá méiri- og holræsagerð, byggingadeild, hreins-
hluta borgarstjórnar um að setja fram- unardeild, garðyrkjudeild, vélamið-
kvæmdaráð yfir alla þætti, sem heyra stöð, áhaldahús, grjótnám, malbiks-
undir embætti borgarverkfræðings, og stöð, pipugerð svo eitthvað sé nefnt.
ekki eru þegar orðnir sjálfstæðar Verði tillagan samþykkt, sem ætla má,
stofnanir svo sem vatnsveita og hita- þar sem ráð er fyrir henni gert I sam-
veita. starfssáttmála meirihlutans, verður
Að sögn Björgvins Guðmundssonar kosið í ráðið eftir hálfan mánuð. BS
Óbreyttur rekstur á Hóte! Sögu:
Við getum dansað
þar íallan vetur
Sumartíminn erfiðastur í veitingarekstri á Sögu
„Engar breytingar eru fyrirhugaðar
á rekstri Hótel Sögu í vetur,” sagði
Konráð Guðmundsson hótelstjóri i
viðtali við DB. „Salirnir verða reknir
með nákvæmlega sama sniði og verið
hefur að vetrarlagi.”
Orðrómur hefur heyrzt um að
skemmtanahaldið að Hótel Sögu væri
heldur ábatab'tið og það jafnvel heyrzt
að það ætti að leggja niður.
Ólafur E. Stefánsson, sem er for
maður Hússtjórnar Bænda-
hallarinnar, vísaði spurningu DB hér
um algerlega til hótelstjóra og kvað
ekkert slíkt mál hafa verið rætt I hús-
stjórninni.
Konráð Guðmundsson leiðrétti
orðróminn og kvað eins og i upphafi
segir engar breytingar fyrirhugaðar á
rekstri veitingasala Hótel Sögu.
Konráð taldi hugsanlegt að
orðrómurinn stafaði af þvi að oft væri
síðsumars rætt um erfiðleika í
veitingarekstrinum og þá heyrðust
kannski þær raddir að leggja ætti árar
í bát. „Sumartíminn er alltaf erfiður
og öðruvísi en veturinn,” sagði
Konráð og Reykvíkingar sem aðrir
geta dansað að Hótel Sögu að minnsta
kosti i allan vetur.
A.SL
William Tracey bilstjórí á HreyBi.
Skjöldur Eyfjðrð bilstjórí á Bæjarleiðum.
Steindór Steindórsson bilstjórí á Bæjar-
leiðum.
óþarfi að reykja, þótt skotizt sé á milli
húsa í bíl. En það er eðlilegt að veita
undanþágur á lengri leiðum ef beðið er
sérstaklega um það.
Þá er þess ógetið að oft hafa orðið
brunaskemmdir í leigubílum vegna reyk-
inga, bæði á sætum, hurðum og í toppi
bílsins. í þessum efnum hefur reynzt
erfiðast að eiga við drukkið fólk og er oft
eina ráðið að neita að taka slíkt fólk upp
í bilana.”
• JH
Gripið simann
gcriðgóð
kaup
Smáauglýsingar
BIADSINS
Þverholti11 sími 2 70 22
Opið til kl.10 í kvöld