Dagblaðið - 31.10.1978, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 31.10.1978, Blaðsíða 1
frjálst, aháð dagblað 4. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1978 — 242. TBL, RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl 11. - AÐALSÍMl 27022. Beta á að borga skatta sína, segja Bretar — Sjábls.6-7, erlendar fréttir Heyforði vetrarins var i hættu. En siökkviliðið frá Neskaupstað kom að góðu gagni á dögunum, þegar það mætti með froðuefni sitt og slökkti i hinum erfiða eldi á stuttri stundu. Ungur bóndi i Norðfirði fékk þannig bjargað heyjum sinum, en venjulega eyðileggst hey gjörsamlega þegar svo illa viil til að eldur kviknar i þvi. Myndin er frá björgunarstarfinu. DB-mynd Skúli Hjaltason „Grafíkmyndir Dalis eru eftirprentanir” — segir Ríkharður Valt ingojer Jóhannsson graf íklista- maður í grein í DB í dag um Dali-sýninguna á Kjarvalsstöðum — Sjá bls. 10-11 „Ekki trúi ég þvi að þeir, sem standa fyrir þessari sýningu gefivilj- andi rangar upplýsingar, miklu frekar að þekkingu þeirra á grafik og gobelin- vefnaði sé ábótavant,” segir i niðurlagi greinar, sem Ríkharður Valtingojer Jóhannsson, grafiklistarmaður, skrifar í DB í dag um sýningu á verkum Salvadors Dalis á Kjarvalsstöðum. 1 greininni heldur Rikharður þvi fram — og nefnir fjölda dæma máli sínu til stuðnings — að fæstar mynda Dalis á sýningunni séu raunverulegar grafikmyndir, heldur eftirprentanir. Hann segir að fáir þekktir listamenn hafi lært eða unnið í grafik, sem sé seinleg vinna og upplag mjög takmark- að. „Nútima prent- og ljósmynda- tækni hefur leyst þetta vandamál,” sagði Rikharður Valtingojer í grein sinni. „Nú er hægt að taka listaverk, t.d. teikningu, vatnslitamynd eða mál- verk, ljósmynda það og litgreina og prenta á einn eða annan hátt. Lista- maðurinn kemur oftast ekki nálægt því að gera prentmót sjálfur, sem er al- gjört skilyrði þess, að um orginal grafik sé að ræða.” Ríkharður segir ennfremur, að jafn- vel áritun listamannsins á myndir af þessu tagi sé ekki trygging fyrir því að listamaðurinn hafi séð sína eigin „grafikmynd”, því „oft á tíðum áritar hann einfaldlega auðan pappir, sem síðan fer í prentsmiðju.” Hann segir að í sýningarskrá sé aðferðum við gerð myndanna lýst á ónákvæman og bein- línis villandi hátt. Um tiltekið verk, Gobelinteppi ofið í París 1931 eftir fyrirmynd og undir stjórn Dalis, eins og segir í sýningarskrá, segir Ríkharð- ur að sé gróf blekking, því myndin sé prentuð, en ekki ofin. Grein sína nefnir Ríkharöur „Dauða hænan, sem verpir gulleggj- um.” Konráð Axelsson i Myndkynningu, sem gengst fyrir sýningunni á Kjar- valsstöðum, vildi i morgun ekkert láta hafa eftir sér um efni greinar Rjk- harðs. - ÓV Ekki er fært nema vel stigvéluðum mönnum um Miðnesheiðina neðan við Rock- wille stöðina, enda fiæðir þar skolpið og annar óþverri eftir grassverðinum. DB-mynd H.V. Herinn veitir skolpi í átt til Sandgerðis — Óttast um vatnsmengun til viðbótar núverandi yf irborðsmengun ásténisvæði — Sjábls.24 ísland með einn vinning gegn Filipps- eyjum — ein skák íbiö — Sjá íþróttir Albert vill rannsókn á SÍS: OKKAR HLUTDEILD ER 0F LÍTIL Á FLESTUM SVIÐUM —segir Erlendur Einarsson, forstjóri SÍS Síðustu orð flugstjóra hrapandi þotu — Sjábls.6-7, erlendarfréttir Markáloka- sekúndunni færði HKsigur — Sjá íþróttir í opnu „Mér finnst það afar athyglisvert framtak hjá Albert Guðmundssyni alþingismanni að vilja stuðla að þvi, að Alþingi lslendinga komist að raun um, að markaðshlutdeild Sambandsins og samvinnuhreyfingarinnar í saman- burði við aðila innan Verzlunarráðs Íslands og Vinnuveitendasambands- ins, sé allt of litil í fiestum greinum verzlunar og viðskipta,” sagði Erlendur Einarsson, forstjóri Sambands íslenzkra samvinnufélaga, í viðtali við DB i morgun, er hann var spurður álits á þingsályktunartillögu Alberts Guðmundssonar, sem fram kom á Alþingi í gær. „Það þarf víst ekki að efa, að alþingismanninum gangi gott eitt til, enda maðurinn lærður í Samvinnu- skólanum hjá Jónasi Jónssyni frá Hriflu, þeim mikla samvinnu- hugsjónamanni,” sagði Erlendur. í greinargerð með tillögu Alberts, sem nánari grein er gerð fyrir á öðrum stað I blaðinu, má meðal annars lesa: „Rannsóknarnefndin skal hafa rétt til að krefjast skýrslugerða og vitnis- burða, bæði munnlega og bréflega, hjá ihlutaðeigandi aðilum og öðrum fyrir- tækjum, embættismönnum og einstaklingum. Nefndinni skal veitt fjármagn til þess að tryggja sér sérfræðilega aðstoð.”

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.