Dagblaðið - 31.10.1978, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 31.10.1978, Blaðsíða 6
DAGBLAÐIÐ. Fjöldainnköllun Fordverksmiðjanna Fordverksmiðjurnar í Bandaríkjun- um ákváðu i gaer að innkalla nær 190 þúsund bíla til lagfæringar. Bílarnir eru af gerðinni Ford Fairmont og Mercury Zephyr af árgerð 1978. Þeir eru allir með 3,3 lítra sex strokka vél og sjálfskiptingu. Galli í bilunum getur leitt til þess að dragi úr vélarafli og eyösla aukist. Verksmiðjurnar sögðust einnig kalla inn 16.100 bíla í Kanada og 1300 i Bretlandi, V-Þýzkalandi, Grikklandi, Panama, Mexico og Taiwan. Ekki var nefnt í Reutersfréttum 1 morgun að slíkir bílar hefðu borizt til Islands. Þá hafa Fordverksmiðjurnar einnig afturkallað 18000 bíla af Fiestagerð vegna smágalla. t júní sl. innkölluðu Fordverksmiðjurnar eina og hálfa milljón bíla af Pintógerð til þess að endurbæta eldsneytiskerfi bílanna. Bílar af þessari gerð höfðu lent í árekstrum og kviknað í þeim vegna staðsetningar bensíntanks. AFRAMHALDANDIÓEIRDIR í ÍRAN Ekkert lát virðist á óeirðum í Iran. Tveir ráðherrar, Mohammed Baheri dómsmálaráðherra og Manouchehr Amzun aðstoðarráðherra, sögðu af sér í gær. Það hafa þvi fjórir ráöherrar sagt af sér siðan Jaafar Sharif-Emami forsætisráðherra myndaði stjórn sína í ágúst sl. Mótmælafundir hafa verið haldnir víða um landið og skorizt hefur í odda með mótmælendum og öryggissveit- um keisarans og lögreglu. Bollalagt hefur verið hvort forsætisráðherrann muni segja af sér. Neðri deild þingsins Stórlækkun verðbréfa Verðbréf seldust sem aldrei fyrr á markaði í Wall Street i gær. Talin er of mikil hætta að eiga hlutabréf. Þau skiptu því ótt um eigendur og snarlækk- uðu í verði. Orsök þessa er talin hækk- andi vextir og lítill árangur Bandaríkja- stjórnar gegn verðbólgunni. Dollarinn er á stöðugri niðurleið og hefur aldrei verið láegri frá seinna stríði. hefur vantrauststillögu til meðferðar, en talið er að stjórnin muni standa hana af sér. Myndin hér að ofan var tekin í Teheran, höfuðborg Irans. Þar fara bílar hlaðnir hermönnum og skrið- ’drekar, sem notaðir eru til að sigrast á andstæðingum stjórnar keisarans. 500látast afheilabólgu Illviðráðanleg heilabólga hefur gripið um sig í indverska ríkinu Uttar Pradesh og vitað er um fjögur hundruð og nítján manns sem látizt hafa úr sjúkdómi þess- um, sem virðist vera af völdum veiru. 1 gærkvöldi hafði verið til- kynnt um meira en eitt hundrað tilfelli á síðasta sólarhring. Sjúk- dómurinn hefur borizt víðar og vitað er um tuttugu og sjö dauðs- föll i rikinu Biharthis en það liggur að Uttar Pradesh. ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1978. Þessi einstæða mynd sýnir Boeing þotuna nokkrum sekúndum áður en hún skall i jörð. Annar vængurinn er illa farinn og eldtungur standa aftur úr vélinni. „MAMMA, ÉG ELSKA ÞIG” —voru síðustu orð flugstjórans Hver eru síðustu orð flugmanns í brennandi flugvél, sem hrapar til jarðar? Svarti kassinn í bandarísku Boeing 727 farþegaþotunni sem fórst eftir árekstur við smávél í San Diego leiðir það í ljós. Samtöl flugmanna þotunnar og flug- turnsins í San Diego hafa nú verið gerð opinber. Eftir að smávélin rakst á þotuna kviknaði í henni. Flugstjórinn reyndi árangurslaust að ná stjórn á þotunni. „Rólegur, bara rólegurheyrist hann segja. „Þetta er búið spii ”, grípur að- stoðarflugmaðurinn inn í. „Mamma, ég elska þig ”, voru síðustu orð flugstjórans. Allir sem voru í þotunni, 142, fórust. Auk þess fórust tveir i smávélinni og tveir létust á jörðu niðri er brak dreifðist úr vélinni.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.