Dagblaðið - 31.10.1978, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 31.10.1978, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 31.0KTÓBER 1978. 15 Dæmi um einokun Sambandsins: Kaffibaunir fást ekki á Ströndum Regína hress eftir sumarheimsókn Okkar eldhressi fréttaritari á Eskifirði, Regína Thorarensen, kom á ritstjórn blaðsins fyrr í haust á leið úr sinu árlega sumarfríi á Ströndum. Var gott hljóð í Regínu að vanda og sagði hún margt góðra frétta, sem ögn hefur dregizt að koma á framfæri. „Heyskap lauk fyrstu dagana í ágúst i Árneshreppi á Ströndum. Bændur óku þá heyi sínu grasþurru i hinar nýju flatgryfjur sem þeir hafa verið að byggja undanfarin 3 sumur. Gryfjurnar eru áfastar fjárhúsunum og fylgir þvi mikið hagræði umfram það sem verið hefur er gripahúsum, heyhlöðum og súrheystóftum hefur verið dreift um allt tún. Þurrkur var mjög sæmilegur til 20. ágúst, en þá gerði súld og þoku. Rafmagnað þingmaður Árneshreppsbúar fengu rafmagn um siðustu jól og hefur það verið í mjög góðu lagi síðan, aldrei bilað neitt sem heitið getur. Þetta er auðvitað allt annað lif en að hafa dísilrafstöð sem bilar oft og tekur oft mánuði að fá varahluti í. Auk þess skemmdi misjöfn spenna frystikistur og ísskápa og mjög dýrt var á sumrin að kynda dísilvélarnar til þess eins að knýja þessi heimilistæki. Árneshreppsbúar þakka sínum dugmikla alþingismanni, Þorvaldi Garðari Kristjánssyni, fyrir að hafa að lokum komið rafmagni í hreppinn en eftir því hefur verið beðið i mörg ár. Þó að Árneshreppsbúar hafi alltaf talið sig eiga dugmikla alþingis- menn hafa verkin ekki talað fyrir þá i þessum efnum. Grásleppa og hopp og hí Grásleppuveiði var mjög lítil í vor og var það bagalegt þar sem grá- sleppan hefur verið ein aðaltekjulind fólksins. Aftur á móti veiddist vel á handfæri og er það nýlunda því heita má að ekki hafi fengizt hér fiskur i ein 10—15 ár. Hafa hreppsbúar því orðið að fá fisk frá ísafirði og Bolungarvik. Hér var mikið um veizluhöld í sumar. Aðkomufólk segir að Árnes- hreppsbúar kunni að skemmta sér og er það sannmæli. Þeir skemmta sér konunglega. í byrjun júli var haldið upp á 125 ára afmæli Guðmundar heitins Péturssonar bónda i Ófeigs- firði, en sá fjörður er nú i eyði. Komu ættingjar Guðmundar og makar þeirra, alls 172, saman i Ófeigsfirði og dvöldu þar í góðu yfirlæti í þrjá daga. Fjóla Jónsdóttir i Víganesi efndi einnig til mikillar veizlu er hún varð sextug þann 15. júlí. Fjóla á 11 systkini sem búa víðs vegar á landinu og komu þau öll til að heiðra systur sína og hefur hópurinn ekki komið allur saman í mörg ár. Yngsti bróðir Fjólu, er Guðmundur Þ. Jónsson sem var 5. maður á lista Alþýðubanda- lagsins í Reykjavík í vor. Var það hann sem felldi 50 ára meirihluta Sjálfstæðisflokksins. Framkvæmda- mennina vantar 1 Árneshreppi búa núna 140 manns, en þegar flest var voru þar 600. Mér finnst einhvern veginn að Árnes- hreppur hafi sjaldan átt á að skipa dugmiklum og áræðnum forystu- mönnum, nema helzt ef vera skyldi Guðmundur Þ. Guðmundsson, fyrr- verandi skólastjóri á Finnbogastöðum. Hann byggði árið 1929 skóla fyrir eigið fé í hreppnum því honum gramd- ist það að aðeins börn rika fólksins áttu kost á því að læra. Hvorki hrepps- nefnd Árneshrepps né Kaupfélag Strandamanna vildu styrkja Guðmund i nokkru til byggingarinnar og gaf kaupfélagið ekki svo mikið sem eina spýtu i skólann. Þetta skólahús, sem var norskt að gerð og flutt frá Ingólfsfirði, brann i febrúar árið 1933. En Guðmundur gafst ekki upp. Strax um sumarið hóf hann að byggja nýjan skóla, enn fyrir eigið fé. í þetta sinn var húsið steypt og stendur það enn. Á sumrin er það notað sem gistihús fyrir ferðamenn, sem eru aUir mjög hrifnir af því. En á veturna er það enn notað til kennslu. En börnin eru orðin fá. Ég held að þau séu ekki nema 12 til 15 í vetur. Kaupfélag Strandamanna byggði í sumar við verzlunarhús sitt og einnig við ibúðarhúsið. En landrými það sem kaupfélagið á er þegar fullnýtt og verður að fylla upp í sjó fram undir viðbygginguna. Ég hefði haldið að nóg landrýmni væri á Ströndum en Meistaramótinu í billjarð lýkur íkvöld - bæjarkeppni Rvík-Akureyri eftir hálfan mánuð Mikið er um að vera á sviði knatt- borðsiþrótta (billjarðs) þessa dagana. 1 gærkvöld hófst á Billiardstofunni á Klapparstíg í Reykjavik meistara- mótið 1978 og verður því fram haldið í kvöld kl. átta. Ráðast úrslitin í kvöld. Um tuttugu keppendur taka þátt í meistaramótinu. Þá verður háð bæjakeppni milli Reykjavíkur og Akureyrar helgina 11. og 12. nóvember næstkomandi. Eiga Akureyringar þar tækifæri til að jafna metin en Reykvíkingar hafa sigrað í tveim af þeim þremur bæjarkeppnum sem háðar hafa verið til þessa. Bæjar- keppnin fer fram á Júnó í Skipholtinu. Billjarðmenn hyggjast einnig halda firmakeppni um mánaðamótin nóvember/desember. Slik keppni hefur verið haldin áður og verið spennandi. -ÓV. þeir sem stofnuðu kaupfélagið létu sér nægja smáland undir klettum og í sjó fram. Þessir menn sáu ekki fram á við og þó voru íbúar hreppsins um 600 þegar kaupfélagið var stofnað. Bryggja er lika léleg við kaupfélags- byggingunna og geta stór skip ekki lagzt þar upp að. Vængir halda uppi flugsamgöngum við Strandir tvisvar í viku árið um kring. Er þjónusta þeirra einstök við hin afskekktu byggðarlög. Hvar er heima- brennda kaffið? Ég sakna þcss að fá ekki lengur á „Höfuðborg” Strandanna, Hólmavik. Ströndum hið góða heimabrennda kaffi sem húsmæður þar voru sér- fræðingar i. En slík er einokun Sambandsins að það flytur ekki kaffibaunir til kaupfélagsins þrátt fyrir beiðnir. Annað dæmi um jsessa einokun er að eingöngu er hægt að fá keypt Bragakaffi sem er i sjálfu sér ágætt. En ekki er hægt að fá Kaaber- kaffi. Svona er nú farið með þá sem búa afskekkt úti á landi. Ungmennafélagið i Árneshreppi vann gott starf og mikið í sumar. Þeg- ar Adolf Thorarensen bóndi að Gjögri slasaðist í marz og sá fram á að geta ekki heyjað handa skepnum og þurfa jafnvel að farga þeim tók ungmenna félagið heyskapinn að sér og byggði meira að segja súrheystóft líka. Þetta var unnið fyrir tilstuðlan Guðmundar Þorsteinssonar á Finnbogastöðum og Sigurvins Sveinbjör'nssonar í Litlu Ávík. Fleiri ungir bændur tóku þátt i þessu," sagði Regina. Hún bað að lokum fyrir kærar kveðjur til allra Strandamanna fjær og nær. -DS. Tónkvísl og Öóal efna til hljóófærakynningar og JAMSESSION í kvöld þeir slóðuliS daðinn 3íá þaó veróur allt í botní £3íguróur Klarlsson Quómundur Inólfsson jPálmí Qunnarsson Fríórík Karlsson wk n þaó mæta allir í ÓÐALI í kvöld

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.