Dagblaðið - 31.10.1978, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 31.10.1978, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1978. I DB á ne vtendamarkaði Björn Ingi með nýja farsið sitt, sem er talsvert grófara ásýndum heldur en vcniuleet oe hefðbundið fars. VIÐ SELJUM HAIMN I STÖÐUGU SUMRI Komdu með bífínn þinn hreinan og strokinn og hafðu hann í lagi — þá se/st hann f/jótt OPIÐ9-7 EiNNiG LAUGARDAGA NUERKOMHt KJÖTFARS ÚR „HBLSUKORNI" Ódýrara er að kaupa farsið en að búa það til heima Neytendur hafa fengið aukinn áhuga á að borða þann mat sem búinn er til úr grófu korni og heilhveiti frekar en úr hvítu hveiti. Það sýnir m.a. aukin notkun grófra brauða og minnkandi neyzla á hvitu hveiti- brauði. — En það er hveiti eða mjöl i fleiri matartegundum en brauði. Einn af kjötkaupmönnum borgarinnar, sem sjálfur framleiðir flesta þá unna kjöt- vöru sem hann hefur á boðstólum, hefur hafið framleiðslu á kjötfarsi sem inniheldur ekkert hvítt hveiti, heldur heilhveiti og gróft korn. Það er Björn Ingi Björnsson í Kjötbúð Suður- vers. Sagði Björn að fars þetta hefði strax fengið góðar viðtökur og eru nú á boðstólum þrjár tegundir af farsi i verzlun hans. í nýja farsinu, sem er búið til úr nýju kjöti, er ekkert hvítt hveiti, heldur heilhveiti, undanrennuduft og gróft korn. Verðið á þvi farsi er það sama og á venjulegu farsi úr nýju eða söltuðu kjöti, sem einnig er á boðstól- um.eða 798 kr. kg. Neytendasíðan reyndi þetta fars og matreiddi það eins og kjötbúðing, bakaði það í hringformi i ofni í um það bil 1 klst. Kjötbúðingurinn var mjög ljúffengur og i Ijós kom að það var mun ódýrara að baka farsið i kjöt- búðing heldur en að búa það til sjálfur. Við birtum uppskrift að kjötbúðingi 24. okt. sl. og sögðum frá kjötbúðingi sem búinn var til úr keyptu kinda- hakki. Þá kostaði búðingurinn 248 kr. á mann, en úr aðkeyptu farsi kostar skammturinn 200 kr. á mann. — Þetta er gleðileg staðreynd. — Auð- vitað á að vera ódýrara að farsið sé búið til í stórum stíl heldur en að hús- móðirin búi til hæfilegan skammt heima fyrir. En það hefur bara ekki alltaf verið þannig hér á landi. Benda má á að verð á unnum kjötvörum hefur ekki hækkað i haust, lækkaði aftur á móti við niðurfellingu sölu- skattsins af vörunum. - A.Bj. Flestar unnar kjötvörur sem eru á boðstólum í Kjötbúð Suðurvers eru unnar á staðnum. Þar er hægt að fá þrjár tegundir af farsi, bæði saltað og nýtt (með hvitu hveiti) og loks „nýtt” úr grófu hveiti og með undanrennudufti. DB-myndir Hörður. Sjóðið rauðkálið eins og venjulega og frystið síðan Húsmóðir hringdi og bað okkur um uppskrift að niðursoðnu rauðkáli. Þar sem vizka okkar nær ekki til „niðursoðins” rauðkáls hringdum við i Sigríði Haraldsdóttur hjá Leiðbeiningastöðinni og spurðum hana ráða. Sigríður sagði að ekki væri hægt að sjóða niður rauðkál í heimahúsi. Hins vegar væri langheppilegast að sjóða rauðkál eftir venjulegri uppskrift, láta það síðan annaðhvort í plastpoka eða plastilát og frysta það. Út í eitt kg af rauðkáli fer eftir- farandi: um 25—30gsmjörl. um 1 dl edik 1 dl ribsberjasaft (eða önnur saft) 1/2 dl vatn I tsk salt sykureftirsmekk. Rauðkálið er skorið í þunnar ræmur. Kálið er soðið í um það bil einn klst., fyrst í smjörlíkinu áður en neytenda edik, vatn, saft og salt er látið út í pottinn. Gott ' getur verið að gripa til rauðkáls, t.d. ofan á kæfubrauðsneið eða með sviðasultu. -A.Bj. SILUNGUR EN EKKIÞORSKUR Páll Arason hríngdi: Vildi hann gera athugasemd við mynd sem birtist á Neytendasíðunni á laugardaginn af „þeim gula”. Það var alls ekki þorskur sem á myndinni var heldur silungur og eru lesendur beðnir velvirðingar á þessum ruglingi um- sjónarmanns.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.