Dagblaðið - 31.10.1978, Blaðsíða 12
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1978.
ísland með
einn vmning
gegn Filipps-
eyjum
— Ingvarábiðskák
íslenzka skáksveitin mætti 1 nótt sveit
Filippseyja á ólympiuskákmótinu 1
Argentinu. Þremur skákum lauk, og
hafa Filippseyingar hlotið tvo vinninga,
tsland einn, Torre og Friðrik Ólafsson
skildu jafnir, svo og Rodrigues og Mar-
geir Pétursson. Jón L. Árnason tapaði
fyrir Bornoda en skák Victor Torre og
Ingvars Ásmundssonar fór i bið.
Victor Kortsnoj kom til Buenos Aires
1 gær. Hann tefldi i nótt á fyrsta borði og
tefldi við Chi Ching-Hsuan frá Kína. Sú
skák fór i bið, Sviss hefur forustu, 1—0,
en þremur skákum var frestað.
Úrslit i 4. umferð: England —
Búlgaría 2.5—1.5, Miles — Radulof
jafnt, Stean vann Ermenkov, Mestel
tapaði fyrir Tringov, Nunn vann
Spassov.
Sovét — Kúba 2.5—0.5 (Spassky
vann Hernandes, Petrosjan og Rod-
rigues jafnt, Polugayevsky vann Videlo,
Vaganian og Lebredo í bið.)
Ungverjaland — Spánn 2.5—1.5 (De
Correll vann Portisch, Ribli vann
Pomar, Sax vann Calvo, Adorjan og
Bellon biðskák).
USA — Ástralía 2—1 — ein skák i
bið. Júgóslavía — Danmörk 1.5—1.5
(Gligoric — Hamann jafnt, Ljubojevic
— Jakobsen jafnt, Velimirovic —
Kristiansen í bið, Parma — Fedder
jafnt).
Holland — Argentína A 1.5—1.5
(Timman — Emma í bið, Sosonko vann
Hase, Rae — Campora jafnt, Langeweg
tapaði gegn Szmetan).
Chile — Sviþjóð 1.5—1.5, ein skák í
bið. Indónesía — Rúmenía 1.5—1.5, ein
í bið. Mexíkó — Uruguay 2—1, ein bið-
skák. Paraguay — Argentína B 2— 1, ein
í bið. Sýrland — Bermúda 3—0, ein í
bið. Luxembourg — Jamaica 1—1, 2 i
bið. Trinidad — Japan 1.5—0.5, 2 i bið.
Bólivía — Arabísku furstadæmin 4—0,
Puerto Rico — Jómfrúreyjar 3—0, ein í
bið. V-Þýzkaland — Finnland 3—1,
Israel — Kanada 2.5—1.5. Pólland —
Brasilía 2—0, 2 í bið. Malasía — Libía
2.5—0.5, ein í bið. Andorra — Mári-
tania 1.5—1.5, ein í bið. Zaire — Brezku
Jómfrúreyjar 3—0, ein í bið. Kólombía
— Hong Kong 4—0, Skotland —
Guyana 4—0, Perú — Færeyjar 3.5—
0.5. Wales — Belgía 3.5—0.5, Dómin-
iska lýðveldið — Marokkó 2—0 2 i bið.
Túnis — Jórdanía 1—0, 3 i bið. Vene-
zuela — Ekvador 1—1, 2 í bið, Guate-
mala — Sri Lanka 2.5—0.5,1 í bið.
ísland vann Paraguay 3—1 i 3. um-
fcrðinni á ólympiumótinu i skák. Þeir
Margeir Pétursson og Ingvar Ásmunds-
son unnu skákir sinar. Jón L. Árnason
og Guómundur Sigurjónsson gerðu jafn-
tefli. Skák Guðmundar fór i bið og var
tefld i gær. Guðmundi tókst að halda
jafntefli þrátt fyrir lakari stöðu.
Anthony Miles tókst ekki aö sigra
Bronstein, Argentínu, í biðskák þeirra
frá 3. umferð jjó svo skákin væri talin
unnin fyrir hann, þegar hún fór i bið.
England vann því Argentínu með 2.5 v.
gegn 1.5 v.
Úrslit í þriðju umferð eftir að biðskál
ir höfðu verið tefldar í gær.
Kúba — V-Þýzkaland 3—1. G.
Garcia og Húbner gerðu jafntefli en S.
Garcia sigraði Hecht.
Búlgaría — Frakkland 2.5—1.5 v.
Radulov og Hair gerðu jafntefli.
Sovétrikin — Rúmenía 3—1. Roma-
nishin vann Ghinda og hefur sigraö í öll-
um skákum sínum hingaö til.
Austurríki — Skotland 2.5—1.5. Dur
vann Reid.
Túnis — Perú 2—2.
Kína — Dóminíska lýðveldið 3.5—
0.5.
Nýja-Sjáland — Luxemborg 3.5—0.5.
Equador — Puerto Rico 4—0.
Chile — Indónesía 2.5—1.5.
Ástralla — Færeyjar 3.5—0.5. Shan
vatin Ziska, Woddhams vann Midjord
en Fuller og Apol gerðu jafntefli.
Finnland — Argentína B 2.5—1.5.
Sviss — Mexikó 2.5—1.5.
Sviþjóð — Belgia 3.5—0.5.
Pólland - Hong Kong 2.5-1.5.
Ragnar Magnússon, formaður Leiknis.
Ragnar Magnússon, f ormaður Leiknis:
,.HVAÐ ER HÆGT AÐ
HAFA UT UR LEIKNI?”
Aðferðir manna til að vekja á sér
athygli, eru æði misjafnar. Sverrir
Friðþjófsson, fyrrverandi skipaður for-
maður handknattleiksdeildar íþrótta-
félagsins Leiknis, skrifar grein f D.B. 27.
okt. sl. er hann nefnir. „Á að ganga af
félaginu dauðu”? Þessi fyrirsögn er
merkileg fyrir þær sakir, að Sverrir er
eini maðurinn sem talað hefur um það
við formann félagsins að leggja félagið
niður. t upphafi greinarinnar talar
Sverrir um að hann hafi starfað fyrir
félagið frá upphafi, en nú sé svo komið,
að hann telur rétt, aö ibúar Breiðholts 3
fái smá innsýn i vitleysuna, sem er að
ganga af félaginu dauðu.
Þegar Iþróttafélagið Leiknir var
stofnað var ástæðan fyrst og fremst sú,
að mikill fjöldi barna og unglinga myndi
verða hér í hverfinu og því full þörf fyrir
iþróttafélag. Með hliðsjón af því var
Skúli Óskarsson, keppir á NM.
Valið á HM ílyftingum
Dagana 4. og 5. nóvember nk. verður
NM unglinga i lyftingum haldið i
Danmörku. Eftirtaldir aðilar hafa verið
valdir i landslið unglinga, en það heldur
utan 2. nóv. nk.:
60 -kg. fl. Þorvaldur B. Rögnvaldss.
KR,
67.5 kg. fl. Haraldur Ólafsson ÍBA,
75 kg. fl. Þorst. Leifsson KR,
75 kg. fl. Freyr Aðaisteinsson ÍBA,
82.5 kg. fl. Guögeir Jónsson Á,
82,5 kg. fl. Guðm. Helgason KR,
90 kg. fl. Birgir Þ. Borgkþórsson KR,
90 kg. fl. Sigmar Knútsson ÍBA,
100 kg. fl. Óskar Kárason KR og
110 kg. fl. Ágúst Kárason KR.
Fararstjóri verður Björn Hrafnsson.
Keppnin fer fram i Engholmskolen i
Lillered, sem er í 30 km í norður frá
Kaupmannahöfn.
Heimsmeistaramótið i kraftlyftingum
verður haldið 2. til 5. nóv. nk. i Turku í
Finnlandi. Keppendur frá tslandi, er
halda utan 2. nóv. nk. verða Skúli
Óskarsson i 75 kg. flokki, en hann
keppir laugardag og Öskar Sigurpáls-
son, sem keppir i 110 kg. flokki á sunnu-
dag.
fólk almennt sammála um það, aö hér'
yrði fyrst og fremst lögð áherzla á að
byggja upp yngri aldursflokka félagsins.
Um þetta atriöi hefur aldrei verið
ágreiningur i aðalstjórn félagsins á
hverjum tíma, þrátt fyrir það, að af átta
stjórnarmönnum, sem eiga sæti í aðal-
stjórn Leiknis hverju sinni, þá eru það
aðeins þrír sem hafa setið í stjórninni frá
stofnun félagsins. Aftur á móti hefur
verið ákaflega erfitt að fá ýmsa aðra,
sem þó hafa þótzt réttbornir til forystu
til að skilja þessa þörf að byggja upp og
hlúa að þeim yngri.
Einn af þeim mönnum sem aðalstjórn
var samfærð um, að myndi sinna þessu
verkefni, sér í lagi vegna menntunar
sinnar, er Sverrir Friðþjófsson. Sverrir
getur réttilega um það í grein sinni að
ekki hafi verið hægt að halda aðalfund
handknattleiksdeildar haustið 1977, en
hvers vegna? Ástæðan er sú, að
þáverandi deildarstjórn hafði ekki
innheimt árgjöld og staöreyndin er sú að
deildarstjórnir, sem setið hafa frá
upphafi í handknattleiksdeild, hafa ekki
ofreynt sig á því að innheimta árgjöld.
Þannig var staðan haustið 1977 að
enginn löglegur félagi var í handknatt-
leiksdeild og þvi ekki hægt að halda
aöalfund deildarinnar samkvæmt lögum
félagsins. Aðalstjórn tók þá í taumana
og skipaði nýja deildarstjórn með Sverri
Friðþjófssyni sem formanni. Það þarf
ekki að fara mörgum orðum um það,
Sverrir hefur gjörsamlega brugðizt því
hlutverki sem hann var settur í. Fyrst og
fremst hefur hann brugðist ungu kyn-
slóðinni, því með sinni menntun hefði
hann getað gert hér góða hluti.
Ungur maður, sem ber hag félagsins
fyrir brjósti, sagði fyrir stuttu. Ef hann
(Sverrir) hefði sinnt málefninu (hand-
knattleiknum) fyrst og fremst, en ekki
ávallt verið með vangaveltur um mál-
efni annarra í félaginu, þá væri ekki þessi
staða i handknattleiksmálum félagsins í
dag. Það er dálítið erfitt að átta sig á þvi
i grein Sverris hvað það er sem er að
ganga að félaginu dauðu. Varla getur
það verið hvatningarbréf frá aðalstjórn1
um að hefjast/nú handa og vinna aö
málefnum handknattleiks innan
félagsins. Að mati Sverris skiptir engu
þótt það sé dregið í nokkrar vikur að
svara bréfum. Nöldur Sverris um, að
aðalstjórn hafi yfirtekið málefni deildar-
innar og lýsingar hans á þessum óvitum
og framagosum látum við liggja á milli
hluta um sinn, en Breiðholtsbúum er
hægt að segja það, að frá síðasta ári eru
ekki til nöfn yfir löglega félaga I hand-
knattleiksdeild og reyndar eru upplýs-
ingar deildarstjórnar af mjög skornum
skammti. Hefði Sverrir Friðþjófsson haft
einhvern áhuga á því að vinna félaginu
gagn, þá átti hann ekki að láta þetta
tækifæri framhjá sér fara, þegar hann
var skipaður formaður handknattleiks-
deildar. Sverrir veit vel, að hann hefur
brugðizt vonum manna. Þegar svo er
komið reyna menn ýmislegt til að breiða
yfir mistök sín. Ekki er hægt að skilja
við grein Sverris án þess að minnast á
fjármálin.
Ekki er alveg víst að Herði Sigmars-
syni sé gerður mikill greiði að draga
málefni hans inn í blaðagrein.
Staðreyndin er sú, að Sverrir Friðþjófs-
son tók við lokagreiðslu til Harðar Þ.
28. feb. 1978 samkvæmt kvittun. Orðin
sem ætluð eru gjaldkera, að svona fyrir-
tæki eigi að reka með gróða eru ekki
rétt, en hann mun hafa sagt, að réttast
væri að reka félagið eins og hvert annað
fyrirtæki sem yrði að standa undir sér.
Þar sem hann starfar að viðskiptum í
sínu starfi er honum ljóst, að algjört
ábyrgðarleysi er að reka, hvort heldur er
fyrirtæki, stofnun eða félag með fyrir-
sjáanlegu tapi og telur það reyndar
varða við landslög. Það sem aðalstjórn
hefur gert nú í haust er það, að reyna að
forða félaginu frá stórtapi á húsaleigu,
með þvi að fylla alla þá tíma sem félagið
fékk úthlutað frá Í.B.R. og hefur það
tekizt, að undanskildum tímum á sunnu-
dagseftirmiðdögum. Húsaleigugreiðsla
Leiknis á viku hverri er kr. 122.400.
Því miður eru dregin tvö fyrirtæki inn
i mál Sverris. Þessi fyrirtæki hafa engan
tíma á leigu hjá félaginu, heldur iþrótta-
klúbbar starfsfólks þessara fyrirtækja.
„Old Boys’ timi aðalstjórnar er eitthvaö
sem Sverri hefur dreymt um og er ekki
raunveruleiki. Núverandi gjaldkeri
Leiknis tók við gjaldkerastörfum 29.
marz 1977, og frá þeim degi hefur full-
komið bókhald verið haldið um fjármál
félagsins. Endurskoðun hefur farið fram
af löggiltum endurskoðanda, Sveini
Jónssyni, ásamt félagskosnum endur-
skoðendum. Ekki hafa komið fram
athugasemdir frá ofangreindum aðilum.
Einnig hefur Sverrir fengið að fylgjast
með bókhaldi þessu. Til þess að ekkert
fari á milli mála er hér siðasti árs-
reikningur félagsins.
Hérfylgja
reikningar Leiknis
— sjá neðst á síðu
Bókhald félagsins er að öllu leyti
tilbúið fyrir árið 1977—1978, að undan-
skildu þvi, að vantar uppgjör frá t.B.R.
sem er nauðsynlegur liður í loka
uppgjöri.
Að lokum þetta. Fjármál félagsins
voru i höndum deilda fram til 29. marz
1977. Það stendur því næst Sverri
sjálfum að svara þeirri spurningu, hvar
peningar deildarinnar eru frá þeim tima.
Nær hefði verið fyrir Sverri að ræða
þessi mál, málefnalega innan félagsins
og jafnvel á breiðari grunni með þátt-
töku áhugamanna um starfið.
f.h. aðalstjórnar Leiknis
Ragnar Magnússon formaður
l1>!!ÖTTAFfiLAGrP LKIKNIU.
________A D A L R E K S T R A R R E I K N I N G U U F R A______________________
C.JÖLD:
Kennsla og þ.jálfun:
Þjálfarlaun .................................. Kr. 2.165.166
Húsaleiga .................................... " 2.426.590
Búningar og áhöld ............................ " 456.686
Sjúkravörur .................................. "________15.098 Kr. 5-063.540
Iþróttamót:
Þáttöi.utjöld ................................ Kr. 105.950
Feröakostnaður ............................... " 1.287.284 " 1.393.234
Annar lcostnaður:
Fundir ....................................... Kr. 17-492
Prentun, ritföng, blöð, bælcur ............... " 102.442
Alcstur ...................................... " 11.300
Auslýsingar .................................. " 12.888
Innheimta .................................... " 15-850 -
Verðlaun og heiðursgjafir .................... " 46.300 •
Gjöld til ráða og sambanda ................... " 12.900
Vaxtagjöld ................................... " 101.563
tmis gjöld ................................... '2_______37.088 " 357.823
1. OKTQBER 1976 T I L 30. S E P 1
TEKJUR:
Opinber framlög v/rekstrar:
Iþróttabandalag Reykjavíkur ...................
Iþróttasamban Islands .........................
Styrkir frá sérráðum ..........................
Argjöld félaga o.fl.
Argjöld .......................................
Æfingagjöld ...................................
Þátttaka í feröalcostnaðir v/móta .............
Söliaun getraunaseðla .........................
Gjafir og styrktarfé ..........................
Aðrar tekjur, nettó:
Af vörusölu ...................................
Auglýsingar á völlum og búningum ..............
Blaðaútgáfa ...................................
Happdrætti, hlutaveltur .......................
Minjagripasala ................................
Vaxtatekjur ...................................
tmsar tekjur ..................................
Rekstrarhalli ..................................
Kr. 6.814.597