Dagblaðið - 31.10.1978, Page 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1978.
Erlendar
fréttir
JÓNAS
HARALDSSON
1
REUTER
8
Sá blindi
krækti í
metsummuna
Blindur lífeyrisþegi krækti i þann
stóra í spiiavíti í Las Vegas. Hann var að
fást við spilakassa sem gefur slumpa
annað slagið er togað er í handfang.
Og maskínan tók heldur betur viö sér.
Hún dældi peningum i kallangann og
hann stóð uppi 85 milljónum ríkari.-
Spilavitisforstjórar i Las Vegas töldu
þennanfeng metfeng.
Bretadrottning ætti að
7
N
greiða skatta
—að áliti meirihluta þegna
hennar hátignar
Elísabet Bretadrottning ætti að
greiða tekjuskatt og önnur gjöld til
ríkisins að áliti meirihluta landsmanna
hennar. Þetta kemur fram í niður-
stöðum víðtækrar skoðanakönnunar
sem brezka vikublaðið Woman lét
gera.
Brezka konungsfjölskyldan fær um
1600 milljóriir til ráðstöfunar árlega.
Flestir telja að þessu fé sé skynsamlega
eytt, en með undantekningum þó.
Drottningin sjálf hefur til umráða nær
1300 milljónir króna. Meirihluti lands-
manna er á þeirri skoðun, að því fé sé
skynsamlega varið. En Margrét
prinsessa systir drottningar og Anna
prinsessa dóttir hennar fá um 38
milljónir hvor. Það fmnst mönnum
fullrífiegt.
66% manna töldu að drottningin
ætti að borga skatta, en þeim fannst
þó ekki ástæða til að fá að vita hve
auðug drottningin er. Þriðjungur
spurðra taldi að drottningin ætti að
skipta sér meira af því hvernig landinu
væri stjórnað. Fjórðungur taldi að
börn drottningar ættu að ganga í
almenna skóla í stað einkastofnana.
Tveir þriðju töldu að álit hefði mjög
minnkað á Margréti prinsessu vegna
sambands við Roddy Llewellyn, sem
ætlaði sér að verða poppsöngvari en
tókst ekki sem skyldi.
Kinverjar eru í óða önn að
halda inn í hina glöðu vestrænu
veröld. Eftir tuttugu ára bann
ætlar Vesturlandaklúbburinn í
Peking að halda opinberan
dansleik. Þar munu hinir nýju
vestrænu dansar verða stignir og
diskóhljómlistin hljóma eftir langt
hlé.
DEILT UM FUND
INN FJÁRSJÓD
Sjö ára baráttu um eignarrétt á
fjársjóði, sem fannst í spönsku skips-
flaki, er nú lokið. Fylkisstjómin í
Flórida hefur afhent björgunarfyrir-
tækinu, sem fann fjársjóðinn, hina
fundnu muni. Fjársjóðurinn er métinn á
u.þ.b. 700 milljónir króna.
Meðai hinna fundnu muna eru 1847
siifurpeningar og fjöldi listmuna.
Baráttan um eignarréttin byrjaði árið
1971 er björgunarfyrirtækið fann flak
spánska kaupfarsins Nuestra Senora de
Atocha á hafsbotni úti fyrir ströndum
Flórída. Skipið sökk þarna árið 1622.
Björgunarfyrirtækið undirritaði
samning þess efnis, að Flóridafylki fengi
25 af hundraði ágóðans. Hæstiréttur
dæmdi siðan flakið fyrir utan lögsögu
Bandarikjanna. Björgunarfyrirtækið
taldi þvi samninginn við Flóridafylki
ólöglegan, en fylkisstjórnin neitaði að
faliast á það.
En þótt fylkið þráaðist við, fór svo að
lokum að björgunarfyrirtækinu var
dæmdur allur hluturinn.
Ráöstefna allra
arabaríkjanna
— nema Egyptalands
Ráðstefna allra arabarikjanna
nema Egyptalands mun koma
saman í lrak í dag og er markmið
hennar að ákveða hvernig bregð-
ast eigi við samningum Egypta við
tsraelsmen.i. Á ráðstefnunni
munu verða öll ríki Arababanda-
lagsins nema Egyptaland. Þau eru
þó málefnalega séð mjög tvístruð.
Stefnan er frá Líbýu lengst tii
vinstri og allt til hinnar hægfara og
varkáru rikisstjórnar Saudi-
Arabíu. Hið síðamefnda riki er þó
að líkindum það sem ræður úrslit-
um i þessu máli. Fjármálaleg áhrif
þess eru svo mikil að engin stefna
arabarikjanna sem ekki fær fyigi í
Saudi-Arabíu verður að raunveru-
leika.
„Hvaðveitégsvosemumpáfann?
„Hvað kemur mér það við þótt hann sé kaliaður páfi? Mér Uzt ekki meira en svo á manninn.” Pilturinn var ekkert
sérstaklega hress þótt hann hitti páfa að máU. Viðstaddir reyndu þó að gera gott úr málinu svo, að báðir mættu vel við una,
páfi og stráksi. Það fýlgdi sögunni að um siðir hefði tekizt að kreista út bros hjá guttanum. Menn, aðallega aðstandendur
piltsins, vörpuðu þvi öndinni léttar.
Fallhlífarstökkvarar sluppu
naumlega undan farþegavél
Litlu munaði að flugvél, sem var á
leið frá Washington til Philadelphia með
21 farþega og þriggja manna áhöfn, lenti
á hópi faUhlífarstökkvara.
FaUhlífarstökkvaramir voru níu og
höfðu stokkið út úr vél sinni er farþega-
vélina bar að. Talsmaður bandariskra
flugmálayfirvalda vildi ekki gefa upp
hve nálægt faUhlifarstökkvurunum vélin
hafði verið. Sagði hann að það kæmi í
ljós er frekari skýrslur hefðu verið.
gefnar um atvik þetta. Hann sagði hins
vegar að vélin hefði verið það nálægt að
flugmaður vélarinnar hefði orðið að
taka skyndiákvörðun til að forða slysi.
Talsmaðurinn sagði einnig að viðvör-
un hefði veriö gefin út á þessu svæði
vegna fyrirhugaðra æfinga faUhlífar-
stökkvaranna.
Stóraukió lcsefni
í stækkaðri\iku
Nú verðurwraw 64 bls. f ramvegis
er stækkuö