Dagblaðið - 31.10.1978, Side 9

Dagblaðið - 31.10.1978, Side 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1978. „Augljóst að Filippseyingar þorðu ekki að iáta Korchnoi llÍnilO^ — segir einn félaga wIIIIlQ Ananda Marga og Prout „Með einvíginu á Filippseyjum hefur glögglega komið í Ijós að K.G.B. (leyniþjónusta Sovétríkjanna) er á móti Ananda Marga og vill félagsskap- inn dauðan. Okkur grunaði þetta fyrir en nú höfum við fengið sannanir,” sagði Acanja Krsnarjunananda Aradhute, sem er aðalritari Prout hreyfingarinnar, og er hér á ferðalagi á vegum hennar. En Krsnarjunananda er einnig félagi í Ananda Marga eins og Viktor Korchnoi og þekkir hann vel. Þegar einvígið I skák stóð yfir á Filippseyjum veitti sá félagsskapur Korchnoi mikla aðstoð en fékk litlar þakkir fyrir frá stjórn Filippseyja og skáksambandinu þar. „Það er augljóst að stjórn Skáksam- bands Filippseyja þorði ekki að hætta á það að Korchnoi sigraði með hjálp Ananda Marga og því var gömul morðákæra notuð sem skálkaskjól til að ' Visa' félaginu frá einvíginu. Fyrirliði Rússanna var líka K.G.B. maður og ekki vildu Filippseyingar fá hann á móti sér. Það er ekki skrítið að Rússar séu á móti Ananda Marga eins og reyndar líka margar aðrar þjóðir, t.d. Ástralir og Indverjar, þvi hreyfingin býður upp á fyllingu trúarlegra þarfa fólks og einnig lausn á efnahagsvandamálum. Annars er það Prout hreyfingin sem ég er hér til að kynna. Markmið félagsins er að skapa eina alheimsþjóð og höggva á hlekki ójafnvægis. Okkar skoðun er að Sameinuðu þjóðirnar hafi brugðizt hlutverki sínu í þvi að tryggja • friðinn og viljum við. gera betur,” sagði Krsnarjunananda. Hann heldur á morgun og 2. og 3. nóvember fyrirlestra um hreyfinguna sem þegar hefur 80 þúsund stuðnings- menn viða um heim, þar af nokkra tugi á lslandi. -DS. km wm Acanja Krsnarjunananda Aradhute aðalritari Prout: Ástraliu og Indlands.” .K.G.B. er á móti Ananda Marga eins og rcyndar leyniþjónusta DB-mynd Hörður. Slippurinn í Kleppsvíkina Svo kann að fara, að Slippurinn flytjist inn i Kleppsvik. 1 hafnarstjórn Reykjavikur var samþykkt sl. fimmtudag að taka upp viðræður við stálsmiðjurnar I Reykjavík og Slippfélagið um bætta aðstöðu til skipa- viðgerða hér I borginni. Var jafnframt ákveðið að kveðja til aðra hagsmuna- aðila. Einkum koma til greina tveir staðir. Takmarkaðar endurbætur er hægt að gera þar sem Slippurinn er nú, en góð aðstaða er talin vera í Kleppsvik. -BS. „Sverris- braut tókst yf ir 90 prósent” — yf irlýsing f rá Sverri Runólfssyni „Vegna' fréttar í Dagblaðinu 24. október sl., þar sem samanburður er gerður á „Sverrisbraut” og hinum nýja vegi á Kjalarnesi, sem gerður var af Vegagerð ríkisins, Þórisós sf. og Hlaðbæ hf., vildi ég að það væri skýrt í hugum fólks að „Sverrisbraut” var tilraun en nýi vegurinn ekki. Því miður er það eins og sumir vilji aðeins sjá það neikvæða við „Sverris- braut”. 1 skýrslu um úttekt á holum i „Sverrisbraut” frá fyrirtækinu Mat sf. — sem er eftirlit Vegagerðarinnar — frá 17. september 1976 segir: „Skemmdur flötur nú ca 90 mJ.” Niutíu fermetrar eru ca 3 prósent af „Sverrisbraut”. Yfirleitt þætti þaðsæmi- leg útkoma að fá yfir niutiu prósent já- kvæða útkomu úr vegagerðartilraunum. En þegar aðeins er glápt á það nei- kvæða, þá er ekki von á góðu. Að mínu áliti get ég (þvi miður) sannað að þeir sem hafa ráðið framkvæmdum á „Sverris- braut" siðan 26. október 1976 hafi lítið sem ekkert vit á vegagerð — og sizt í frostalandi.” Hér sjáum við nokkra hinna yngstu vegfarenda far; yfir .anebrautina cftir að Ragnar Th. Sig. Ijósmyndari DB hafði stöðvað fsrii |ieim. Hann hefði þó að skaðlansi mátt stöðva fjær gangbrautinni. Gangandi vegfarendum her ekki siður en ökuinonnum að sýna fyllstu aðgæzlu á gangbraulunun * Gangbrautaslysin: Vemdum gangbrautimar Gangandi og akandi vegfarendur taki höndum saman — segir Óskar Ólason yfirlögregluþjónn „Það verður að vera sameiginlegt áhugamál gangandi og akandi veg- farenda að vernda gangbrautirnar. Við erum að segja foreldrum að kenna börnunum að nota gangbrautirnar og þá verða ökumenn að virða rétt þeirra,” sagði Óskar Ólason yfir- lögregluþjónn i viðtali við Dagblaðið. „Við leggjum áherzlu á að öku- menn stöðvi hæfilega langt frá gang- brautinni, tvær til þrjár bíllengdir frá þannig að jafnvel þótt önnur bifreið taki fram úr þeirri er stöðvað hefur hafi ökumaðurinn nægilega yfirsýn yfir gangbrautina. Þá verður heldur ekki eins mikið hik á gangandi vegfar- endum að fara yfir. En það hvilir líka sú skylda á gangandi vegfarendum að hlaupa ekki yfir gangbrautina. Þeim ber líka að sýna fyllstu aðgát. Hér þarf að koma til samspil gangandi og akandi vegfarenda. Það er algjörlega bannað að keyra fram úr við gang- brautir. Á það veröur ekki lögð of þung áherzla. Menn munar ekkert um það að stoppa tvær bíllengdir frá gangbrautinni úr þvi að þeir eru að stöðva á annað borð. Ef menn sjá bil sem hefur stöðvað við gangbraut ættu þaö líka að vera eðlileg viðbrögð manna að álíta sem svo að hann hafi stöðvað til að hleypa gangandi vegfar- endum yfir. Einhver ástæða hlýtur að vera til þess að bifreiðin hafi verið stöðvuð. Það hefur mikið verið rætt um það að gera eitthvert rherki i námunda við gangbrautina til að sýna ökumönnum, hvar þeir eigi að stöðva. í Englandi er gatan máluð með skálinum á nokkru svæði áður en komið er á gangbraut. Þá veit öku- maðurinn að gangbraut er á næsta leiti. Þetta hefur verið mikið rætt í umferðarnefnd Reykjavikur, enda hafa þessi mál verið mjög ofarlega á baugi undanfarið- Umferðamefnd hélt fund eftir slysið við Hallarmúla. Var fundurinn haldinn á slysstaðnum. Meiningin er að færa gangbrautina til móts við dyrnar á Hótel Esju þannig að hún verði ekki alveg á bláhorninu.” Óskar sagðist vilja leggja á það áherzlu í lokin að þaö hlyti að vera aðalatriðið að ökumenn virtu rétt gangbrautanna og minntust þess að algjörlega væri bannað að aka fram úr við gangbrautir. Gangandi og akandi vegfarendur yrðu að taka höndum saman um að vernda gangbrautirnar þannig að menn færu þar yfir en væru ekki að hlaupa yfir götuna þar sem þeim sýndist. -GAJ. Smáýkjur til að þjóna góðum málstað Heildarsala áfengis á timabilinu 1. júlí til 30. september var að upphæð 3.226 milljónir króna eða rúmlega það að sögn Áfengisvarnaráðs, sem hefur tölur sínar úr skýrslum ÁTVR. Sölu- aukning í krónum miðað við sama tíma 1977 er um 41%,segir I fréttatil- kynningu frá Áfengisvarnaráði. Síðan er bætt við að þess beri að geta að áfengisverð hafi hækkað töluvert. Hér fara dagblöðin talsvert betur og itar- legar I sakirnar, því fram hefur komið að magn selds áfengis hefur dregizt saman að undanförnu. Upplýsingar ráðsins eru talsvert ýktar til að þjóna góðum málstað.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.