Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 31.10.1978, Qupperneq 13

Dagblaðið - 31.10.1978, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1978. 13' íttir íþróttir íþróttir Íþróttir Iþróttir Höröur Sigmarsson 1 kröppum dansi og varnarmenn HK gefa ekkert eftir. DB-mynd Ragnar Th. Sigurösson. Fyrsti sigur HK í 1. deild — Mark á lokasekúndunni færði HK sigur yfir Haukum, 20-19. í Hafnarfirði „HK er stemmningarliö og i höröum leikjum sem þessum kemur styrkleiki liösins i ljós. Viö vildum sýna hinum dyggu áhangendum okkar og hinn göði leikur okkar gegn 'bikarmeisturum Vikings var engin tilviljbn. Strákarnir gáfust aldrei upp gegn Háukum, frekar en gegn Vfking á dögunum og uppskáru sigur, meö stórkostlegri baráttu — HK hefur metnað, strákarnir hafa metnað,” sagði Axel Axelsson hinn góökunni þjálfari HK, hiqs unga handknattleiks- félags úr Kópavogi, eftir mjög óvæntan sigur HK á Haukum í Hafnarfirði, 20— 19. Baráttuleikur var í Hafnarfirði frá upphafi til enda og hinir um það bil 400 áhorfendur voru sannarlega með á nót- unum, hvöttu ákaft sína menn. Og HK skoraði sigurmark sitt aðeins einni sek- úndu fyrir leikslok — eftir að Einar Þor- varðsson hafði variö vitakast frá Herði Sigmarssyni 23 sekúndum fyrir leikslok. Já, svo naumt var það, spennan í Hafnarfirði gifurleg og leikirnir í 1. deild gefa sannarlega góð fyrirheit. Þegar aðeins ein minúta var til leiks- loka var staðan jöfn í Hafnarfirði, 19— ! 19. HK var með knöttinn og hinir ungu leikmenn reyndu ótimabært skot, um 40 sekúndum fyrir leikslok. Haukar brun- uðu upp, Árni Hermannsson komst i gegn en illa var brotið á honum, viti! Sigur Hauka virtist loks i höfn, eftir ! harða baráttu gegn „litla” HK. Hörður Sigmarsson tók vítið en Einar Þorvarðs- son varði, knötturinn barst til Harðar aftur. En það var dæmd lína, — Hauk- arnir reyndu að tefja og sekúndurnar tif- uðu hver af annarri. Þegar aðeins 13 sekúndur voru eftir stoppuðu dómar- amir klukkuna. HK með knöttinn, og HK hafði 13 sekúndur til að tryggja sigursinn. Þeir brunuðu upp, knötturinn gefinn inn í bláhornið á Vigni Baldursson sem kastaði sér inn — úr bláhorninu vel að Kr. X.073.000 181.479 220.500 Kr. 1.474-979 Kr. 348.000 971.627 269.400 94.565 246.950 Kr. 814-574 II 800.000 II 262.300 íl 371-611 II 9.600 II 23-757 II 25.293 1.930.542 2.307.135 ■ » 1.101.941 %r. 6.814.597 merkja. Og rétt i þann mund er flautan gall fór knötturinn yfir línuna, af fæti Ólafs Guðjónssonar, markvarðar Hauka. Ótrúlegt mark — sigur HK í höfn, fyrsti sigur HK i 1. deild og í nokkrar sekúndur var sem leikmenn HK áttuðu sig ekki alveg — þeir bara stóðu. En Vignir Baldursson áttaði sig, hann stökk hæð sína í loft upp, og þá brutust út gífurleg fagnaðarlæti meðal leik- manna HK, já, fagnaðarlæti þeirra voru innileg — aldrei hef ég séð leikmenn fagna sigri jafn innilega og suður í Hafnarfirði i gærkvöld. HK fagnaði sigri, en er fyrri hálf- leikur var hálfnaður virtist flest benda til sigurs Hauka. Þeir komust i 7—3 en náðu aldrei upp baráttu í vörninni og markvarzlan var i molum. Já, Gunnar Einarsson fyrrum markvörður Hauka er nú fjarri góðu gamni, það sannaðist í gærkvöld er beinlinis öll skot HK höfn- uðu i netmöskvunum. En það verður líka að segjast að vörn Hauka veitti i markvörðunum ekki mikla vernd. HK náði að minnka muninn fyrir leikhlé i tvömörk, 11—9. Og þegar á fjórðu minútu síðari hálf- leiks komst HK yfir, 12— 11, en Haukar náðu aftur tveggja marka forustu, 15— 13 og síðan 16—14 og um 10 mínútur eftir. HK jafnaði 16—16. Haukar svöruðu -17—16 en tvö mörk HK fylgdu í kjölfarið, 18—17. Þegar fjórar mínútur voru eftir komust Haukar aftur yfir, 19—18 en Björn Blöndal jafnaði fyrir HK á 27. mínútu. Ósigur í gærkvöld var mikið áfall fyrir Hauka. Við miklu hefur verið búizt af liðinu í vetur, Haukar hafa fengið þrjá snjalla leikmenn til liðs við sig — þá Hörð Sigmarsson, nafna hans Harðar- son og Árna Sverrisson. Hörður Sig- marsson hefur að vísu enn ekki náð sér fyllilega á strik, ekki sami krafturinn og áður. En Haukar misstu Gunnar Einarsson — þann snjalla leikmann — og það virðist ætla að verða liðinu ör- lagarikt. Gunnar varði snilldarlega i fyrra, og var maSurinn á bak við óvænta og góða frammistöðu Hauka. Nú er Haukanna að sýna að ósigurinn þjappi þeim aðeins saman. Einar Þorvarðsson, markvörður HK, var snjall í gærkvöld og hann skóp ef til vill öðrum fremur sigur liðsins með snjallri markvörzlu, þrátt fyrir að vörn liðsins sé ekki alltaf mjög þétt. Mikið efni þar — en í liðinu eru ungir leik- menn er gefa ekki fyrr en í fulla hnef- ana. Hilmar Sigurgíslason, Ragnar Ólafsson og Stefán Halldórsson. Þá er Björn Blöndal i mikilli sókn. Hann skoraði 8 af mörkum HK, Hilmar 6, Bergsveinn Þórarinsson 2, Ragnar Ólafsson 2 og Stefán Halldórsson, Vignir Baldursson og Kristinn Ólafsson 1 mark hver. Hörður Harðarson skoraði 6 af mörkum Hauka, 2 víti, Hörður Sigmarsson 5, 2 viti, Andrés Kristjánsson og Ingimar Haraldsson 2 hvor, Sigurgeir Marteinsson, Árni Her- mannsson, Þórir Gíslason og Andrés Kristjánsson 1 mark hver. Leikinn dæmdu Ólafur Steingrímsson og Gunnar Kjartansson. Einn leik- manna HK var rekinn af velli, Haukar fengu 5 viti — HK ekkert. H Halls tommu Æwfa með fjarstýringu Æm W aðeins kr. 467 þús. Til afgreiðslu STRAX. Erum að fá sendingu af 22 tommu — takmarkaö magn — 1terö ca kr. 395.000.- Snertírásaskipting — spennuskynjari — In-iine myndiampi — ka/t kerfi 2 — möguieiki fyrir plötu — og myndsegulband — Aöeins 6 einingar i staö 14 sem eru í öörum tækjum sem auðveldar alla þjónustu — stór hátalari sem gefur skýrt hljóÖ RAIMK—MERKIÐ ER HEIMSÞEKKT GÆÐAVARA SJÖIMVARP og RADÍÓ, Vitastíg 3. Sími 2574s>. Haukar sigruðu KR Haukar sigruðu KR 10—81 1. deild Íslandsmótsins i kvennahandknattleik i gærkvöld i Hafnarfirði. Haukar voru mun sterkari i síðari hálfieik og dugði það þeim til sigurs. Haukar skoruðu fyrsta mark leiksins er KR svaraði með fjórum mörkum og virtist stefna í sigur KR. En Haukar náðu að jafna, 4—4 og staðan í leikhléi var 6—5 KR í vil. Haukar skoruðu þrjú fyrstu mörk síðari hálfleiks, komust í 8—6. Hansína Melsted svaraði með tveimur mörkum fyrir KR, 8—8. En Haukastúlkurnar voru sterkari á enda- sprettinum og sigruðu 10—8. Margrét Theódórsdóttir skoraði 7 af 10 mörkum Hauka. Hjá KR bar mest á Hansinu Melsted, hún skoraði 4 mörk fyrir KR, Jónína Ólafsdóttir 2 mörk. H.Jóns. Badminton Per Kjeldsen sigraði Sigfús Ægi Árnason, TBR, i úrslitum badminton- keppni TBR og skandinaviska flug- félagsins SAS, 15—2, 15-2. Per hafði áður sigrað Íslandsmeistarann Jóhann Kjartansson, 15—9, 15—11 en Sigfús Ægir lagði Peter Hojland 15—2, 16— 17,15—9. Kristin Magnúsdóttir sigraði Sif Frið- leifsdóttur KR i einliðaleik kvenna i úr- slitum, 11—5, 11—6.1 tviliðaleik karla sigruðu þeir Per Kjeldsen og Henrik Kyhl þá Peter Hojland og Hans Jörgen Dahl 17—18, 15—2, 15—3 en þeir Pcr og Henrik höfðu áður sigrað Jóhann Kjartansson og Harald Korneliusson 15—6, 15—18, 15—8. Þeir Peter og Hans Jörgen sigruðu Sigfús Ægi og Sigurð Kolbeinsson 15—3, 15—11. I tviliðaleik kvenna sigruðu þær Kristin Magnúsdóttir og Hanna Lára Pálsdóttir þær Lís Hansen og Ritu Wingsö 15—2, 10—15, 15—1. í tvenndarleik sigruðu Sigurður Kolbeinsson og Hanna Lára Pálsdóttir þau Jóhann Kjartansson og Vigdisi Guðmundsdóttur, 15—13, 15— 7. Getraunir í 10. leikviku komu fram 6 seðlar með 11 rétta leiki og var vinningur á hvern seðil kr. 174.000. Af þessum seðlum voru 4 úr Reykjavik, 1 úr Garðabæ og einn var nafnlaus. Með 10 rétta var 91 röð og vinningur fyrir hverja kr. 4.900. Siðustu vikurnar hefur vinningsupp- hæðin verið um 1,5 millj. kr. og þátttaka alls um 3 millj. kr. Af þessari upphæð fá iþróttafélögin 25% i sölulaun eða um 750 þúsund kr. Hluti iþróttafélaganna í Reykjavík er um 71 % en félaganna utan höfuðborgarinnar um 29%. Sé landinu skipt í kaupstaði ogdreifbýli, eru iþrótta- bandalögin með um 86% af sölunni en héraðssamböndin með um 14%. Næsti seðill lítur þannig út: Arsenal — Ipswich Aston Villa — Manch. City Bolton — Coventry Derby — Wolves Liverpool — Leeds Manch. Utd. — Southampton Middlesbro — Bristol City Norwich — Tottenham Notth. For. — Everton QPR — Chelsea WBA — Birmingham Sunderland — Stoke Hólmbert með Fram 1. deildarlið Fram hefur ráðið þjálfara fyrir næsta sumar i knattspyrnu. Það er Hólmbert Friðbertsson, margreyndur ’þjálfari, og hann þjálfaði ÍBK fyrir tveimur árum með góðum árangri þá. Guðmundur Jónsson þjáifaði Fram siðastliðið sumar en liðið gaf mjög eftir undir lok mótsins, fékk aðeins 1 stig úr sex sfðustu leikjum. Heyrzt hafði að Fram hefði haft mikinn hug á að ráða Youri Ilitschev landsliðsþjálfara en vegna ósvissuþátta þar, mun hafa verið horfið frá þvf. Fram bætist mikill styrkur næsta sumar, en landsliðsmiðvörðurinn Marteinn Geirsson mun aftur leika með Fram eftir dvöl f Belgiu og leik með Royale Union.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.