Dagblaðið - 16.11.1978, Side 1
4. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1978 — 256. TBL. RITSJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.— AÐALSÍMI27022.
f^
LOFTLEIÐAÞOTA FORST:
NÆR 200 BK)U BANAB
ÞAR AF 8 ÍSLENDINGAR
Flugleiðaþota af
gerðinni DC-8 með
262 innanborðs, þar
af 13 íslendinga í
áhöfn, fórst á Sri
Lanka (Ceylon) í
gærkvöld, um kl. 18
að ísl. tíma. Að
minnsta kosti 170
manns biðu bana,
flestir indónesískir
pílagrímar. Fimm af
áhöfninni komust
líf s af.
Vélin var í leiguflugi á leið frá Jedda
í Sádi-Arabíu til Surabaya á austur-
hluta Jövu, þegar hún í aðflugi skall
niður á kókoshnetuakur um sex km
frá flugvelli borgarinnar Colombo.
Veður var afleitt, þrumur og eldingar.
Um leið og vélin skall niður kom upp í
henni mikill eldur.
Vélin hafði fengið lendingarleyfi
þrátt fyrir þrumuveðrið, að því er segir
í fréttaskeyti frá Reuters-fréttastof-
unni í morgun. Pilagrimarnir voru á
heimleiðfrá Mekka.
Rúmlega tuttugu manns sluppu
með skrámur úr slysinu. Aðrir sextíu
voru fluttir í skyndi á sjúkrahús í fiski-
þorpinu Negombo þar í nágrenninu.
Tullugu dóu þar fljótlega. og aðrir 23
fengu að fara þegar gert hafði verið að
sárum þcirra.'Enn aðrir voru fluttir á
hersjúkrahús á Colombo-flugvelli og
til borgarsjúkrahússins þar.
Björgunarsveitarmenn sögðu frétta
mönnum i morgun að lik hinna látnu
væru flest ennþá föst í flugvélarflak-
inu. Önnur lik voru dreifð um svæðið.
Talsmaður Flugleiða í New York
sagðist í niorgun hafa fengið fréttir af
þvi, að fimm úr áhöfninni hefðu lifað
slysið af.
ÓV
Þau fórustí flugslysinu:
Átta flugliðar Flugleiða h.f. létu liflð i flugslysinu mikla við C olombo
flugvöll á Ceylon i gærkvöldi.
Ásgeir Pétursson, yfirflug-
stjóri, 48 ára, kvæntur.
Olafur Axelsson, deildar-
stjóri, 47 ára, kvæntur.
Haukur Hervinsson, flug-
stjóri. 42 ára, kvæntur.
Guðjón Rónar Guðjónsson,
flugmaður, 38 ára, kvæntur.
Ragnar Þorkelsson, flugvél-
stjóri, 55 ára, kvæntur.
Erna Haraldsdóttir, flug-
freyja, 38 ára, gift.
Sigurbjörg Sveinsdóttir, flug-
freyja, 37 ára, gift.
Þórarinn Jónsson, forstöðu-
maður flugdeildar, 52 ára,
kvæntur.
Þaukomustaf:
Harald Snæhólm, flugstjóri.
Jónína Sigmarsdóttlr, f lugfreyja.
Kristín E. Kristíeifsdóttír, flugfreyja.
Oddný Björgóffsdóttir, flugfreyja.
Þuríður Vilhjálmsdóttir, flugfreyja.
DB ræðir við flugstjóra á Shri Lanka:
TÆPAN KM SKORTT A
AD VÉUN NÆÐIBRAUT
Fjóriraf fimm Islendingum sem björguðust eru ísjúkrahúsi
Dagfinnur Stefánsson flugstjóri var
staddur í Ngombo á Shri Lanka er flug-
slysið varð í gær. i samtaii við DB sagði
Dagfinnur að það væri rangt i frétta-
skeytum að sex km hafi skort upp á að
vélin næði á brautarenda. Vegalengdin
sem á skorti var um hálf míla eða tæpur
kílómetri.
„Hér var mikið þrumuveður er slysið
varð en vélin hafði ferigið lendingar-
_leyfi,” sagði Dagfinnur.
Hann staðfesti að fimm Íslendingar
hefðu lifað af flugslysið. Fjórir þeirra
væru í sjúkrahúsi en ein stúlka hefði
sloppið svo til ómeidd og dveldist nú á
hóteli þar i borg. Um heildartölu þeirra
sem fórust rneð flugvélinni var ekki ná-
kvæmlega vitað. Rannsókn slyssins er
þegar hafin en ekkert liggur enn fyrir
um hugsanlegarorsakirslyssins.
-ASt.
Hér er flugleiðin sem áhöfn D i pilagríma- Sri Lanka
flutningum Flugleiða flaug þegar slysið varð.
Haldið var frá Jedda í Sádi-Arabíu til Sri Lanka.
Þaðan átti að fljúga áfram til Surabaja á Jövu.
Slysið varð um kl. 18 i gærdag að íslen/kum tíma,
en þá var nær liðið að miðnætti á Sri Lanka
(Ceylon).
ÍLAGIÁ PAPPÍRNUM
_ Surabaja
— viðhald flugleiðsögutækja f ólestri segir starfsmaður Flugleiða,
sem þekkir vel til á Colombo-flugvelli
Að sögn starfsmanns Flugleiða, er
reynslu hefur af flugi á þeim slóðum,
sem slysið á Ceylon varð og margoft
hefur lent á flugvellinum á Loiompo,
er völlurinn allþokkalega búinn
tækjum „á pappirunum” eins og hann
orðaði það.
Aðflutningsleiðbeiningatæki þurfa á
stöðugri leiðréttingu að halda, sem
ekki er sinnt sem skyldi, auk þess
að bili einhver mikilvæg leiðbeininga-
tæki dregst oft i marga mánuði að lag-
færa þau.
Þá dynja oft yfir þrumuveður á
þessum slóðum með miklum vind-
sveipum, en að sögn er auðvelt að
bregðast við slíku á DC-8, jafnvel
örskömmu fyrir lendingu. Sumar
þotur eru þannig að rétt fyrir
lendingu verður lítið eða ekkert að
gert við óvæntum aðstæðum.
Aðhylltist starfsmaðurinn fremur
að villandi leiðsögutæki hafi ollið
slysinu en alvarleg vélarbilun, án þess
að leggja neinn dóm á málið. Skammt
er til varaflugvallar frá umræddum
flugvelli, þannig að óliklegt er að vélin
hafi neyðzt til að lenda á vellinum
vegna alvarlegrar vélarbilunar og þvi
teflt á tvísýnu i þvi slæma veðri sem
gekk yfirerslysið varð.