Dagblaðið - 16.11.1978, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1978.
15
Þáttaskil á ferii Smokie
Notum næsta ár til að reyna eitthvað nýtt, segir Chris Norman söngvari
Liðsmönnum hljómsveitarinnar
Smokie leið svo vel i Monreux í Sviss, er
þeir unnu að upptökum á nýjustu LP
plötu sinni, að þeir ákváðu að nefna
hana eftir bænum. Því heitir platan
Montreux Album. t Montreux er prýðis-
gott hljóðver, þar sem margir heims-
þekktir tónlistarmenn hafa unnið. Þeirra
á meðal eru Emerson, Lake og Palmer,
Rick Wakeman og fleiri.
Alls hafa þrjú lög af Montreux
Album náð vinsældum á litlum plötum.
For A Few Dollars More reið á vaðið.
Það náði fyrsta sæti vinsældalista viða
um Evrópu, en gerði enga sérstaka
lukku í heimalandi Smokie, Englandi.
Það gerði lagið Oh Carol aftur á móti.
Það komst á topp tíu þar einmitt sömu
vikuna og Smokie lék hér á Listahátíð,
nánar tiltekið miðvikudaginn 7. júní.
Þriðja lagið af Montreux Album,
Mexican Girl, kom loks út á lítilli plötu í
september. Það náði ekki inn á topp tíu í
Englandi, en I byrjun þessa mánaðar
skreið það i efsta sæti þýzka vinsælda-
listans. Lagið er fallegt og hugljúft,
samið af þeim Chris Norman söngvara
og Pete Spencer trommuleikara. —
Mexican Girl er fyrsta lagið eftir liðs-
menn Smokie sem sett er sem aðallag á
litla plötu. Hin hafa öll verið eftir Nicky
Chinn og Mike Chapman.
Þannig séð er Mexican Girl í raun og
veru tímamótalag fyrir Smokie. Chris
Norman orðaði það svo í nýlegu viðtali:
„í átta ár lékum við saman án þess að
ná nokkrum sýnilegum árangri. Þá
komu þrjú síðastliðin ár sem hafa fengið
allar okkar björtustu vonir til að rætast.
Því þá ekki að nota næstu þrjú árin til að
reyna eitthvað nýtt.”
Þessi orð koma heim og saman við
það sem Chris Norman sagði í einkavið-
tali við Dagblaðið í sumar.
„Á næsta ári kemur til endurskoð-
unar samningur okkar við Chinn og'
Chapman,” sagði hann þá. „Ég veit ekk-
ert um það, hvort einhverjar breytingar
verða gerðar, en það getur allt eins verið
að okkur detti í hug að reyna eitthvað
nýtt.”
Chinn og Chapman eru afkastamiklir
lagasmiðir, sem hafa samið flestöll vin-
sælustu lög Smokie. Þeirra á meðal eru
Living Next Door To Alice, eina lagið
sem Smokie hefur komið inn á topp
tuttugu í Bandaríkjunum. Er Chris
Norman var að þvi spurður síðastliðið
sumar hvers vegna Smokie nyti ekki jafn
mikilla vinsælda í Bandaríkjunum og til
að mynda i Þýzkalandi, svaraði hann:
„Það kann svo að fara að á næsta ári
leggjum við meiri áherzlu á Bandarikin
en við höfum gert fram til þessa. Þangað
til nægir okkur að vera topphljómsveit
annars staðar í heiminum.”
Verkið Börn og dagar
erkomiðút
Magnúsar
viðtexta
Kristjáns
Hljómplatan Börn og dagar er
komin út. Hún er sennilega
dýrasta islenzka verkið sem hljóð-
ritað er á þessu ári. Allur undir-
leikur var tekinn upp i Englandi
undir stjórn Del Newman, þekkts
upptökustjóra og útsetjara.
Söngurinn var siðan hljóðritaður i
Hljóðrita í Hafnarfirði. Hann er i
höndum — nei, munnum,
fyrirgefiði — Björgvins Halldórs-
sonar, Pálma Gunnarssonar,
Ragnhildar Gisladóttur, Magnús-
ar Þórs og Kórs Öldutúnsskóla.
Á Börnum og dögum eru tíu lög
sem Magnús Þór Sigmundsson
samdi við texta sem Kristján skáld
frá Djúpalæk þýddi og endursagði.
Útgefandi er Hljómplötuútgáfan
hf.
-ÁT.
ÁSGEIR
TÓMASSON
Víst er um að vinsældir Smokie eru
víða miklar. í ýmsum Iöndum á megin-
landi Evrópu slá þeir meira að segja
ABBA við. í Þýzkalandi eru þeir
ókrýndir konungar vinsældalistanna og
á hljómleika þeirra flykkist fólk á öllum
aldri, — aðallega þó ungar stúlkur.
1 margra augum eru liðsmenn Smokie
sykursætir strákar, sléttir og felldir, sem
fara snemma að sofa á kvöldin og gera
ekkert ljótt af sér. — t raun og veru eiga
þeir allir stutt i að geta kallazt gamlir
karlar. Meðalaldur hljómsveitarinnar er
28 ár og liðsmenn hennar hegða sér ná-
kvæmlega eins og aðrir popparar. Til að
mynda hafa læknar nýlega bannað Alan
Silson að neyta áfengis, þar sem hann
ætti stutt í að verða alkóhólisti.
„Ég drakk venjulega eina viskíflösku
á dag og þótti sopinn orðinn anzi
góður,” segir Alan. „Læknarsem ég leit-
aði til skipuðu mér þegar í stað að leggja
flöskuna alveg á hilluna meðan ég gæti.
_Að öðrum kosti færi drykkjan að bitna á
SMOKIE — Umkringdir islenzkum Ijósmyndurum stíga þeir Terry Utley bassaleikari, Pete Spencer trommari, Chris Nor-
man söngvari og Alan Silson gitarleikari fyrstu skref sin á islenzkri grund. DB-mynd Ragnar Th. Sigurðsson
spilamennskunni áður en langt um liði.”
Smokie er nú á hljómleikaferð um
Evrópu. Hljómsveitin hefur nýlokið við
að þræða hljómleikasali I Englandi og er
nú komin til meginlands Evrópu. Meðal
landa sem hljómsveitin heimsækir er
höfuðvígið, Þýzkaland, og Júgóslavía.
Ferðinni lýkur rétt fyrir jól. Þá tekur
hljómsveitin sér hlé frá störfum og
hverfur til síns heima, — smábæjarins
Bradford í Englandi.
- ÁT
THE WIZ -
Diana Ross og fleiri
Hér er komið svar btókku-
mannanna við Saturday Night
Fever og Grease, ævintýrið um
galdrakarlinn i Oz. Þetta er
tvöfalt albúm, öU lögin úr kvik-
myndinni, sem nú er verið að
frumsýna viða um heim.
Þarna koma fram ekki ómerk-
arí listamenn en Diana Ross,
Michael Jackson (úr Jackson Flve), Lena Horne (systir Lizu
Minelli) og gamanleikarinn stórkostlegi, Richard Pry or. Siðast en
ekki sizt: Sjálfur Quincy Jones útsetti og stjórnaði aUri tónUstinnL
PIECES OF EIGHT —
Styx
Styx er tvimælalaust ein af
fímm vinsælustu hljómsveitum.
Bandaríkjanna með sítt harða
og drífandi rokk. Gitarteikur
Tommy Shaw á eftir að töfra
marga, og þá ekki siður hljóm-
borðsleikur DeYoungs. Sið-
asta plata Styx, „Grand
Illusion”, seldist í meira en
milljón eintökum i Bandaríkjunum og þar með taUn s.k.
platfnuplata.
CITY NIGHTS -
Nick Gilder
Nick Gilder er nú á toppn-
um í Bandaríkjunum með lag
af þessari plötu, „Hot Chiid In
the City”. Þetta er önnur LP-
plata Gilders á merki Chrysak
is.
Allt að því kvenleg rðdd
hans er engu Uk — samanber
t.d. lögin „(She’s) One of the
Boys” og „Got To Get Out”.
&
£
&
&
&
TOTHE LIMIT —
Joan Armatrading
Joan Armatrading fæddist i
Vestur-Indíum fyrir réttum 28
árum en hefur búið í Bretlandi
lengst af avinni. Hún hefur um
árabil verið uppáhald margra
helstu rokk- og jazztónUstar-
manna þar i landi. Hún ferð-
aðpist um með Lundúnaupp-
færslunni á „Hárinu” i hálft
annað ár. Fyrsta plata hennar kom út 1973. Siðan hafa komið út
fjórar plötur með þessarí nýjustu. Um þriðju plötu hennar, „Joan
Armatrading”, sagði RoUing Stone timarítið að værí ein af mUcU-
vægustu plötum þess árs. New York Times hefur hafið hana upp til
skýjanna.
Upptöku á þessarí plötu og tveimur siðustu stjórnaði Glvn
John, sem hefur m.a. stjórnað upptökum fyrir Rolling Stones,
F.agles, The Who og Eric Clapton.
GREASE -
John Travolta/
Olivia NewtorvJohn
og f leiri
Til þessa dags hafa fímm lög
af þessarí plötu veríð gefín út á
tveggja laga plötum i Bretlandi
og Bandarikjunum. Þrjú hafa
farið í fyrsta sæti, hin tvö hafa
ekki faríð neðar en i fímmta
sæti vinsældaUstanna.
GREASE er upphaflega söngleikur, sem sýndur var á Broadway
við gifurlegar vinsældir árum saman. Það var svo stórlaxinn og
„súper-umbinn” Robert Stigwood, sem stóð fyrir gerð kvikmynd-
arinnar, sem sýnd verður hér á næstunni og vakið hefur ótrúlega
hrifningu víða um heim. Fleiri orðum þarf varla að fara um
GREASE — þeir sem ekki þekkja þetta verk nú þegar munu gera
það áður en langt um Uður.
BAT OUT OF HELL
Meatioaf
Hlunkurinn Meatloaf —
Kjöthleifur — vakti mikla at-
hygU og hrifningu þegar hann
kom fram i sjónvarpsþætti hér
fyrir skömmu, enda ekki á
hverjum degi sem 300 punda
flykki allt að þvi cðla sig heima
í stofu hjá landanum.
En þátturínn sýndi Ifka, að
hlunkurinn Kjöthleifur er rokksöngvarí af beztu tegund. Þessi
plata hans nýtur mikilla vinsælda hérlcndis um þessar mundir og er
nú ein af söluhæstu erlendu plötunum.
&
BÖRN OG DAGAR -
Ragnhildur, Björgvin, Pálmi og fleiri
Þetta er vandaðasta og dýrasta hljómplata, sem komið hefur út á Islandi til þessa. Þarna flytja
RagnhUdur Glsladóttir, Björgvin Halldórsson, Pálmi Gunnarsson, Öldutúnsskólakórinn og fíeiri. lög
eftir Magnús Þór Sigmundsson við þýdda
og endursamda texta Kristjáns frá Djúpa-
læk. Upptökunni stjórnaði Del Newman,
einn virtasti útsetjari og upptökustjóri i
Bretlandi síðustu árin. Við teljum engan
vafa leika á, að þessi plata á eftir að njóta
feikilegra vinsælda hér,hvort heldur er hjá
þeim sem eru fimm ára, eða þeim sem eru 95
ára.
SENDUM
í
PÓSTKRÖFU
JAZZ - JAZZROKK—----------------
Einnig eigum viö mcsta úrval, sem fáanlegt cr hérlendis, af þróuðum jazzi
og jazz-rokki. Má þar ncfna til dæmis:
Al di Meola Allar Tom Scott Allar
Billy Cobham Allar John Klemmer Life Style
Crusaders Allar Herbie Hancock Sunlight
Chick Corea Flestar Joe Sampler Rainbow Seeker
Eric Gale Allar Lee Ritenour Captain's Journey
Weather Report Quincy Jones Allar Aliar Miles Davis Flestar
LAUGAVEQI33- SÍM111508 STRANDGÖTU 37 - SlMI 53762