Dagblaðið - 16.11.1978, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1978.
Tegund: Tjara(mg): Nikótín: Tegund: Tjara(mg): Nikótin:
Camel 25 1,7 Peter Stuy vesant 14 1,2
Camel Filter .19 1,3 Raleigh Filter 16 1,0
Chesterfield 23 1,4 Raleigh 24 1,4
Eve Super Long 16 1,0 Salem 17 1,1
Kgnt 13 1,0 Salem Light 11 0,8
Kent Super Long 14 1,1 Tareyton 17 1,2
Kool 17 1,3 Vantage 11 0,8
Lark 18 1,2 Viceroy Light 10 0,8
L&M 15 0,9 Viceroy 14 1,0
Marlboro 17 1.0 Viceroy Super Long 15 1,1
Merit 9 0,7 Winston Light 14 1,0
More 24 1,8 Winston Super Long 19 1,3
Pall Mall Super Long 18 1,3 Winston 19 1,4
Pall Mall 18 1,2
Ef þessi listi er ekki tekinn i fimm gerðir í efstu sætunum: Merit, Viceroy Light, Vantage, Salem Light
starfrófsröð heldur ofanfrá og byrjað á eina tegundin með tjöruinnihald undir ogTCent.
þeim tjöruminnstu verða eftirtaldar tíu og jafnframt minnsta nikótínið, -GJS.
Eftirlýstur:
Er Kákasusgerillinn enn við lýði?
Mismunandi tjöruinnihald í sfgarettum á markaðnum:
Nær þrefaldur munur
á hæstu og lægstu
Margir hafa hætt að reykja að
undanförnu, aðrir treysta sér ekki til
þess og enn aðrir vilja ekki hætta. í
kjölfar mikils áróðurs um skaðsemi
reykinga, einkum vegna tjörunnar i
sígarettunum, hafa margir reykinga-
menn snúið sér að léttari sigarettum,
sem ekki voru fáanlegar hér til
skamms tíma. Til glöggvunar fyrir þá
sem vilja draga úr tjörnuneyzlunni án
þess að hætta að reykja birtum við hér
lista yfir tjöruinnihald þeirra 27 sígar-
ettutegunda sem eru á markaði hér.
Tölur þessar eru fengnar frá Banda-
riska verzlunarráðinu. Tölurnar sýna
milligrömm tjöru í einni sígarettu af
hverri tegund. Jafnframt birtum við
hér nikotíninnihald hverrar sígarettu.
Fyrir um það bil tveimur árum gekk
mikil gerilalda yfir íslenzku þjóðina.
Þá átti DB sinn þátt í að miðla af þess-
um dáindis gerli, sem ættaður var frá
Kákasus, milli lesenda sinna og vel-
gjörðarmanna. — Smám saman virtist
áhuginn á gerlinum þó fjara út og ekk-
ert hefur heyrzt um hann í langan
tima, þar til nú í gær. Hringdi þá einn
af lesendum Neytendasíðunnar og
spurðist fyrir um hvort gerillinn væri
enn til.
Lesandi þessi sagðist á sínum tíma
hafa átt þennan dáindis geril og hefði
hann gert meira gagn en margar víta-
mínpillur. Hins vegar hefði gerillinn
tapazt við utanlandsferð. Nú langar
þennan lesanda til þess að vita hvort
Neytendasíðan geti útvegað annan I
staðinn.
Þar sem gerill Neytendasíðunnar
hefur einnig tapazt, langar okkur að
spyrjast fyrir um hvort einhver af les-
endum okkar á enn geril í pokahorn-
inu. Ef svo er, er sá hinn sami beðinn
að hringja til okkar fyrir hádegi á
morgun.
- A.Bj.
H
Við á ritstjórn DB höfðum milligöngu
I gerilmálinu fyrir tveimur árum, og
birtust þá m.a. þessar myndir af Höllu
Jónsdóttur sem þarna er að gera gerl-
inum til góða. Á ekki einhver einhvern
af afkomendum þessa góða gamla DB-
gerils?
DB-myndir Bjarnleifur
Fiskbuff úr sfld
Fiskbuff er hægt að búa til úr hvaða 1/8 tsk. pipar
fiski sem vera skal, ýsu, þorski eða síld.
1 bókinni Við matreiðum er eftirfar-
andi uppskrift:
500 g hakkaður fiskur
(ýsa, þorskur eða sild)
2—3 msk. hveiti
I tsk. salt
2 laukar
50 g smjörl.
eða 2—3 msk. matarolía
3 dl fisksoð eða vatn
2 msk. hvciti
1 dl mjólk eða vatn.
Blandið hveiti og kryddi saman við
fiskinn og hnoðið í aflangt deig á
bretti. Skiptið deiginu í átta jafnstóra
bita og mótið í kringlóttar flatar buff-
kökur.
Skerið laukinn i sneiðar og brúnið í
helmingnum af feitinni. Brúnið buffin
í því sem eftir er af feitinni og takið
þau af pönnunni.
Hellið vatninu (soðinu) á pönnuna
og jafnið með hveitijafningi (2 msk. í 1
dl mjólk eða vatn). Sjóðið í 3—5 mín..
Bætið sósulit, kryddi, tómatsósu eða
soðkrafti í sósuna ef vill. Látið buffin
út i sósuna, laukinn yfir og sjóðið í 3—
5 mín.
Uppskrift
dagsins
Berið buffin fram með soðnum
kartöflum og hrásalati.
Veró: (Með því að nota 1/2 kg af
flökum) í kringum 455 kr. eða 114 kr.
á mann. -A.Bj.