Dagblaðið - 16.11.1978, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1978.
/
5
\
Á SJÖnA HUNDRAÐ
LANDAR ERLENDIS
UM JÓL OG ÁRAMÓT
— Kanaríeyjar enn vinsælastar
Töluverður hópur íslendinga dvelur
fjarri ættjörð sinni um jólin og ára-
mótin. Þannig eru líkur til að á milli
400—500 manns verði á
Kanarieyjum, hundrað manns á
Miami, 40 i ísrael, 50—60 í Austurriki
á skíðum og um 40 i Noregi á skiðum.
Fyrir svo utan alla þá sem dvelja í
smærri hópum annars staðar.
Flugleiðir áætla að fara með 200
manns til Kanarieyja og hundrað til
Miami. Til Austurríkis er áætlað að
fara með 23 og 40 til Noregs. En allar
þessar tölur eru birtar með mikilli
varúð því landinn er óvenju seinn fyrir
að pantasérferðiriár.
Sunna fer með aðra 200 til
Kanaríeyja. Er það svipaður fjöldi og í
fyrravetur á sama tima. Sunna býður
upp á nýjan ferðamannastað um jólin,
ísrael. Þangað fara um 40 manns ef
áæltanir standast. Þá fara 25 manns á
skíði í Austurríki.
Frá ferðaskrifstofunni Atlanticu
fara líklega um 40 manns á skíði í
Jólaparadis 400 Íslendinga, Kanarieyjar.
Austurriki.
Alls verður þvi fjöldi þeirra sem á
þessum stöðum dveljast kringum
560—70 manns. .ds.
/
j
Laugardalur:
Hagur trimmara vænkast
Ellert og Friðrik
vilja umboðsmann
íþróttaaðstaðan i Laugardalnum er að
verða til mikillar fyrirmyndar. Þar er
ekki einungis séð fyrir þörf keppnis-
iþróttanna heldur fá trimmararnir líka
eitthvað til að glíma við eins og sjá má
á myndinni hér að ofan. í Laugar-
dalnum er 360—370 metra löng
trimmbraut og nú hefur verið komið
fyrir meðfram henni alls kyns áhöldum
fyrir þrekæfingar. Þannig geta
trimmararnir gert hinar Qölbreytileg-
ustu æfingar sér til heilsubótar. Eftir
þvi sem DB veit bezt hefur
almenningur ekki notfært sér þessa
aðstöðu mikið en fyllsta ástæða er til
að mæla með henni.
-DB-mynd Sveinn Þorm.
„Alþingi ályktar að skora á ríkis-
stjórnina að leggja fram frumvarp til
laga um umboðsmann Alþingis,” segir i
þingsályktunartillögu, sem Ellert B.
Schram (S) og Friðrik Sophusson (S)
lögðu fram í gær.
Kristján Thorlacius, sem þá var vara-
þingmaður Framsóknar, bar fram til-
lögu um þetta ásamt fleirum á þinginu
1966—67. Siðan bar sjálfstæðis-
maðurinn Pétur Sigurðsson fram slíka
tillögu á þinginu 1970—71. Hún var
samþykkt sem ályktun þingsins i mai
1972. Fieiri tillögur hafa komið fram í
svipaða átt. Umboðsmaðurinn er
ókominn.
„í seinni tíð hefur mönnum orðið
Ijóst að með aukinni stjórnsýslu og
viðameira framkvæmdavaldi þyrfti að
tryggja betur en áður að réttur væri ekki
brotinn á einstaklingum, að rangindum
verði ekki beitt, þótt þau séu ekki
beinlinis lögbrot, og að löggjafarvaldið
geti haft nánara eftirlit með þvi að
lögum sé fylgt,” segja Ellert og Friðrik i
greinargerð. Skoðun rannsóknarnefnda
Bflþjófar
áferð
Tilraun var gerð til bílþjófnaðar í
nótt. Var það á Mýrargötunni um kl.
1.00. Tveir piltar, sem að sögn
Guðmundar Hermannssonar yfir-
lögregluþjóns voru þarna að verki og
höfðu keyrt bílinn út úr stæðinu og á
nærstaddan bil þegar umráöamann
bílsins bar að garði. Piltarnir sem voru
ölvaðir lögðu á flótta en annar þeirra
náðist og var tekinn í vörzlu lögregl-
unnar. En lögreglan telur sig vita,
hver hinn er. -GAJ.
þingsins geti verið háð tilviljununt og
pólitiskum valdahlutföllum. ÞingiAsjálft
geti ekki tekið að sér cftirlitshlutvcrk.
Heppilegast sé að sett verði á stofn
embætti umboðsmanns Alþingis. scm
nteðal annars taki við kvörtunum út af
rangindum stjómvalda eða eigi sjálfur
frumkvæði að könnun á atferli stjórn-
valda. Hann rannsaki mál á hlutlausan
hátt, afli skjala og vitneskju nteð
skýrslum stjórnvalda og cinstaklinga og
sé almennt athugull um hvort ekki sé
einhvers staðar að finna brotalamir eða
ósamræmi i lögum og reglugcrðum og
geri tillögur til úrbóta. -HH.
Fertug
Vika i
Hollywood
Vikan er fjörutiu ára á morgun.
föstudag. og i dag kentur út mikið
hátiðarlölublað í tilcfni þess.
Fjörtiu ár eru ekki svo hár manns-
aldur en telst til tiðinda i
blaðaheiminum.
Og til þess að sanna að cngin
ellimörk séu á sér heldur Vikan
hóf mikið i Hollywood i kvöld. Þar
verður margt til skcmmtunar.
gestir hennar fá afmælisgjafír og
trúðar og loddarar bregða á leik.
Skemmtunin hefst kl. 19.00 og
þess má geta, aö hundraðasti hvcr
gestur fær ársáskrift af Vikunni að
gjöf.
-ÓG.
Aldrei önnur eins sala
á jólahannyrðum
„Ég man ekki aðra eins sölu i ein 5
ár.” sagði Guðrún Erla Skúladóttir,
eigandi hannyrðaverzlunarinnar Erlu,
er hún var spurð um hvort menn væru
farnir að kaupa til jólanna.
„Núna kaupa konur mun meira af
efnum og garni og sauma út eftir
munstrum úr dönsku blöðunum. Kaup á
pökkum með öllu tilbúnu i hafa þó litið
minnkað, en hlutfallið hefur breytzt.
Þannig eru eru efnin og garnið um 60%
á móti hinu.
Það er ýmislegt sem menn kaupa
eingöngu til að sauma fyrir jólin. Má þar
nefna borðdregla, klukkustrengi með
jólamyndum, póstpoka og fleira,” sagði
Guðrún.
•DS.
Sfldveiðarnar:
Veiðitími nótabát-
anna ekki lengdur
— þótt þeir veiði ekki upp í kvótann
Veiðitimi hringnótabátanna á sild-
veiðunum rennur út á mánudaginn og
verða ekki veittar undanþágur eins og i
fyrra, þótt þeir hafi að öllum likindum
ekki náð kvóta sínum þá, að sögn Þórðar
Eyþórssonar, fulltrúa í sjávarútvegs-
ráðuneytinu.
Veiðarþeirra hafa gengið verr nú en i
fyrra og vantar þá nokkuð á að vera
búnir að afla jafnmikið og á sama tima
þá. Munu undanþágur ekki veittar nú
m.a. af þeirri ástæðu að ekki eru fyrir-
liggjandi neinir áhugaverðir samningar
umfram það magn sem þegar er veitt.
Reknetaveiðarnar verða stöðvar á há-
degi i dag þar sem þeir bátar hafa aflað
uppí kvóta sinn.
List-
skautar
Svartir og
hvítir
Póstsendum
Stærðir: Hvítir 27-43, verð kr. 13.700 til 14.600
Svartir 31-46, verð kr. 14.100 til 14.900
Glæsibæ—Sími 30350
-G.S.