Dagblaðið - 16.11.1978, Side 9

Dagblaðið - 16.11.1978, Side 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1978. 9 Verður kúlan að atvinnu- brúðarrekkju? — komnar fyrirspurnir um smíði á fleiri lokrekkjum „Það hefur komið til tals og er i athugun að koma kúlunni upp á einu hótelanna hér í borg og leigja hana brúðhjónum til að halda þar brúðkaupsnaetur,” sagði Ingvar Þor- steinsson í húsgagnaframleiðslunni Ingvar og Gylfi, er hann var spurður um afdrif lokrekkjunnar frægu sem var til sýnis á húsgagnasýningu nýlega og kostar liðlega fimm milljónir með öllum tækjabúnaði. Ingvar sagði að tilgangurinn með smiði kúlunnar, eins og hann kallar lokrekkjuna, hafi verið að varpa fram hugmynd til að framkalla nýjar hug- myndir. Það hefur tekizt vonum framan og mikil umræða skapazt um kúluna, að hans sögn. Hafa a.m.k. tveir aðilar lýst áhuga að á láta smíða þess háttar grindur fyrir sig og innrétta að eigin smekk. Þeir sem skoðuðu rekkjuna á sýningunni töldu margir að ekki væri neinu við bætandi, en Ingvar sagði að maður nokkur sé að hugleiða enn frek- ari búnað í slíka rekkju. -S.G. Ingvar Þorsteinsson: „Við komum með þessa hugmynd til að framkalla nýjar hugmyndir”. — DB-mynd R. Th. Ekki samræmi í hlutunum, segja Greenpeacemenn: VIUIÐ HVALAVERND EN STYÐJIÐ MESTU HVALA- DRÁPARANA Forsvarsmenn Greenpeace samtakanna telja misræmi I þeirri afstöðu íslendinga að telja flestar aðrar þjóðir stunda ofveiði á hvölum en þá sjálfa. Jafnhliða séu íslenzkir fulltrúar i samtökum Alþjóðahvalveiðiráðsins einir af helztu stuðningsmönnum Japana og Sovétmanna, sem séu einir hörðustu andstæðingar friðunar hvalastofna. Greenpeace samtökin hafa fylgzt með atkvæðagreiðslum hjá Alþjóðahval- veiðiráðinu. Samkvæmt þeim at- hugunum eru fulltrúar íslands í hópi þeirra fimm rikja sem oftast greiða at- kvæði gegn tillögum um verndun hvala- stofna. Samkvæmt skýrslu Greenpeace er Japan þar i efsta sæti, siðan koma Sovétríkin, Noregur, Danmörk og ísland. næðist og tækju þá ekkert tillit til friðunar einstakra hvalategunda. Eins væri því farið með Spánverja, sem ekki væru meðlimir i Alþjóðahvalveiðiráðinu og færu því ekki eftir reglum þess. Hvalveiðiskipin sem veiddu á Norður- Atlantshafinu fyrir utan öll lög og reglur væru skráð í ýmsum Afrikulöndum en grunur væri á því að þau lönduðu afla sínum í einhverjum Miðjarðarhafs- höfnum á Spáni eða annars staðar. Talið væri að japanskir aðilar stæðu á bak við þessa ólöglegu útgerð. Greenpeace samtökin og skyld náttúruverndarsamtök láta sig ekki einvörðungu varða verndun hvala- stofna. í sumar reyndu samtökin að koma i veg fyrir að brezkt skip losaði geislavirk úrgangsefni í Atlantshafið. Félagar úr Greenpeacesamtökunum að reyna að hindra Hval 9 við veiðar við Islandsstrendur siðastliðið sumar. Lengst til vinstri eru tveir þeirra á gúmbát með utanborðsvél i siglingastefnu hvalbátsins. t baksýn er skip samtakanna, Rainbow Warrior. Á fundi með fréttamönnum í gær lýstu fulltrúar Greenpeace samtakanna þvi yfir að þeir teldu að aðgerðir þeirra gegn hvalveiði við Island, sem fram fóru í sumar, hafi tekizt vel og mundu þeir mæta aftur á skipi sinu Rainbow Warrior við byrjun næstu hvalvertiðar og trufla veiðar íslenzku hvalbátanna. Segjast forsvarsmenn samtakanna ætla að koma hér árlega þar til íslendingar hafi samþykkt tiu ára hvalveiðibann i samræmi við samþykktir Sameinuðu þjóðanna. Fulltrúar Greenpeace samtakanna sýndu i gær kvikmynd af störfum sinum hér við land i sumar og einnig frá baráttu sinni gegn spænskum hvalveiðimönnum. Sögðu þeir að vitað væri um þrjú eða fjögur hvalveiðiskip á Norður-Atlants- haftnu sem veiddu þann hval sem til Var þetta um það bil sex hundruð milur suður af Islandi. Var þar um að ræða um það bil fimm þúsund og fimm hundruð tunnur eða rúmlega tvö þúsund lestiraf úrgangsefnum. Næsta sumar er ætlunin að reyna að koma í veg fyrir að itölsk skip sökkvi þúsundum tonna af eiturefnum frá verk- smiðjum þar í landi i Miðjarðarhaftð. Talsmenn Greenpeace samtakanna sögðust vilja itreka jsá staðreynd að starfsemi Alþjóðahvalveiðiráðsins i friðunarmálum hefði verið ein sorgar- saga frá byrjun. Sem dæmi mætti taka sögu steypireyðar. Visindamenn hefðu, þegar árið 1949, bent á að nauðsynlegt væri að friða stofninn en úr því hefði ekki orðið fyrr en sautján árum síðar. Ekkert benti aftur á móti til þess að þær friðunaraðgerðir hefðu komið nægilega fljótt tilaðbjargasteypireyðinni. -ÓG. —á fundum Alþjóðahvalveiðiráðsins, segja Greenpeacemenn um af stöðu íslendinga NuovaAjfXa? lipur í umferðinni .. er nískur á bensínið rúmgóður að innan ... skemmtilegur smábíll með frábæra aksturseiginleika þægindum og aukaútbúnaði Nú er það „kúpp“að kaupa Lancia A112 Þar sem verðið á LANCIA A112 er bundió skráðu gengi Bandaríkjadollars sem er í öldu- dal þessa stundina, — þá er það sannkallað ,,kúpp“ að kaupa LANCIA A112. Nokkrir bílar fyrirliggjandi. BJÖRNSSON A£o BÍLDSHÖFÐA 16 SÍMI81530 REYKJAVÍK

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.