Dagblaðið - 16.11.1978, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1978.
(S
13
Iþróttir
Eþróttir
Iþróttir
Iþróttir
D
Jóhannes skoraði 3ja mark Celtic.
Jóhannes skoraði þegar Celtic
komst í undanúrslit bikarsins
— Celtic sigraði Montrose 3-1 í skozka deildabikarnum í gærkvöld.
Danny McGrain með á ný.
HALLUR
SiMONARSON
Danny McGrain, sem af flestum er
talinn bezti bakvörður Skota gegnum
árin, lék sinn fyrsta leik með Ceitic í heilt
ár í gærkvöld, þegar Celtic lék við Mont-
rose á Parkhead í deildabikarnum.
McGrain var fyrirliði liðsins og fagnað
mjög af tugþúsundum áhorfenda, þegar
hann birtist í fararbroddi liðs síns á vell-
Lelkmenn Celtic komust strax i mikið
stuð og skoruðu þrjú mörk á fyrstu 37
min. leiksins. Hið fyrsta skoraði
McAdam, þá Andy Lynch úr vítaspymu
og á 37. mín. skallaði Jóhannes Eðvalds-
son knöttinn i mark Montrose. Það er
fyrsta markið, sem Jóhannes skorar fyrir
Celtic á leiktimabilinu. Hann var mark-
hæsti leikmaður liðsins á síðasta leik-
tímabili en hefur í haust verið aftasti
maður i vörn liðsins. Fleiri urðu Celtic-
mörkin ekki í leiknum en í síðari hálf-
leiknum skoraði Montrose eitt mark.
Celtic.vann þvi 3—1 og samanlagt 4—2
i báðum leikjunum. Jafntefli var 1 — 1 i
leik liðanna i Montrose.
Úrslit í skozka deildabikarnum í gær
urðu þessi:
Aberdeen — Ayr 3—1
Arbroth — Rangers 2—1
Celtic—Montrose 3—I
Hibernian — Morton 2—0
Aberdeen vann santanlagt 4—2,
Rangers 3—1 og Hibernian 2—1. I
undanúrslitum leika því Aberdeen,
Celtic, Hibernian og Rangers.
Norðmennirnir Isak Arne Refvik og
Svein Mathiesen léku báðir með
Hibernian i gær — og mörk Refvik
tryggðu Hibernian sæti i undanúrslitum.
Hann skoraði eitt mark i hvorum hálf-
leik.
Rangers tókst að tryggja sér sigur
gegn Arbroth fimm mín. fyrir leikslok,
þegar Bobby Russel skoraði. Það var
annað mark Rangers, sem vann 2—I.
Gordon Smith skoraði fyrra markið en
Fletcher mark Arbroth. Jafnt var i hálf-
leik i leik Aberdeen og Ayr 1 —I en
mörk Joe Harper og Archibald i siðari
hálfleik tryggðu sigur heimsliðsins.
Sviss átti varla skot á
mark Pólverjanna!
Pólverjar höfðu mikla yflrburði gegn
Sviss í 4. riðli Evrópukeppni landsliöa i
Wroclaw í Póllandi í gær. Sigraði þó
aðeins 2—0 en svo miklir voru yfirburðir
liðsins að Svisslendingar áttu varla skot
á pólska markið. Pólska liðið var nær al-
veg eins skipað og í september, þegar
Pólland vann ísland í riðlinum 2—0 á
Laugardalsvelli.
Karl Engel átti stórleik i marki Sviss og
það var ekki fyrr en á 38. min. að
Zbigniew Boniek tókst að koma knettin-
um framhjá honum í mark Sviss. Engel
lék i marki vegna meiðsla Erich
Burgener.
Á 57. mín. skoraði Roman Ogaza
siðara.mark Póllands og þar við sat.
Fleiri urðu ekki mörkin til vonbrigða
fyrir 45 þúsund áhorfendur. Svo getur
farið að markatala ráði úrslitum i riðlin-
Staðan í riðlinum er nú þannig:
Holland 3 3 0 0 9—1 6
Pólland 2 2 0 0 4—0 4
A-Þýzkaland
Sviss
ísland
2101 3—4 2
2 0 0 2 1-5 0
2 0 0 2 1-8 0
Sviss öruggt
í B-keppnina
Sviss sigraði ísrael 27—20 <17—7) i
C-keppninni i heimsmeistarakeppninni í
handknattleik i Zúrich í gær og hefur
svo gott sem tryggt sér sæti í B-keppn-
inni. Hins vegar er keppnin um önnur
sæti mjög tvísýn því Portúgalar komu
mjög á óvart og sigruðu Norðmcnn 20—
16 í gær. 10—8 fyrir Portúgal í hálfleik.
Liðin sex, sem eftir eru í úrslitum C-
keppninnar, berjast harðri baráttu um
sætin fjögur í B-keppninni. Aðeins Italía
virðist enga möguleika hafa. I gær
fapaði ílalia fyrir Austurriki 20—16
eftir 12—7 í hálfleik fyrir Austurríki.
Staðan eftir þrjár umferðir af fimm er
þannig:
Sviss 3
Noregur 3
ísrael 3
Austurriki
Portúgal
3 0 0 81-54 6
2 0 I 58-50 4
2 0 I 60-57 4
3 10 2 47-54 2
3 10 2 58-66 2
Italía
3 0 0 3 45-68 0
SUMARHUSfe/f KYNNA
Viö bjóöum upp á
heilsárs hús frá
12-73 ferm.
Einnig
eldhúsinnréttingar,
furuhúsgögn o.fl.
Ég óska eftir að fá sendan
kynningabækling um
Romsdalssumarhús.
Nafn
Heimilisfang
Þriggja ára ábyrgð.
Sýningarhús við Meðalfellsvatn
SUMARHÚSfe/f
Ármúla 23 - Sími 30880 - Heimasímar: 40210 og 75541