Dagblaðið - 16.11.1978, Side 23
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1978.
g
Útvarp
Sjónvarp
D
INDÆLISFÓLK—útvarp kl. 21.15:
ÚTVARPSSAGA BARNANNA—útvarp kl. 17.20:
Æsku-
draumar
— eftir Sigurbjörn
Sveinsson
Um þessar mundir les Kristín Bjarna-
dóttir útvarpssögu bamanna, Æsku-
drauma, eftir Sigurbjörn Sveinsson rit-
höfund. Höfundurinn. Sigurbjörn
Sveinsson, var fæddur i Kóngsgarði í
Bólstaðarhlíð 19. október 1878 og átti
hann því aldarafmæli nú fyrir stuttu.
Hann var fyrsti íslenzki barnabóka-
höfundurinn hér á landi og vegna
afmælis hans minnist útvarpið hans með
lestri þessarar barnasögu. Ennfremur
var fjallað um höfundinn í barnatíma
fyrsta vetrardag, 21. október sl„ i þætti
sem nefndist Ég veit um bók, í umsjá
Sigrúnar Björnsdóttur leikkonu.
Sigurbjörn var barnakennari 1908—
1919. eftir það flutti hann til Vest-
mannaeyja og var kennsla hans aðal-
starf þar til ársins 1932. Meðal bóka sem
hann gaf út voru Bernskan og Geislar
sem út kom í tveim bindum, Skeljar var
önnur bók sem hann gaf út og kom hún
út í 4 bindum. Sú bók inniheldur bæði
barnasögur og Ijóð.
Sigurbjörn Sveinsson lézt árið 1950.
Bók hans, Æskudraumar, kom út árið
1921 og fjallar hún um þrjú börn í sveit,
Kára bóndason, Odd stórbóndason og
Þóru sem er munaðarlaus. Bókin segir
frá bernsku þeirra og unglingaástum.
Lesturinn i dag hefst kl. 17,20 og verða
lestrarnir níu.
ELA.
Kristín Bjarnadóttir leikkona les um
þessar mundir útvarpssögu barnanna.
Geimtruflanir, peningar,
trúarbrögð og listir -|gl'
Þorsteinn ö. Stephensen fer
með hlutverk Jónasar Web-
ster i leikriti kvöidsins.
Guðbjörg Þorbjarnardóttir
fer með hlutverk Friðmeyjar
Bláklukku.
Sigurður Skúlason fer með Edda Þórarinsdóttir fer með
hlutverk Owen Webster. hlutverk Agnesar Webster.
I kvöld kl. 21,15 verður flutt í út-
varpinu leikritið Indælisfólk eftir
William Saroyan í þýðingu Torfeyjar
Steinsdóttur. Leikstjóri er Benedikt
Árnason og með aðalhlutverkin fara
Þorsteinn Ö. Stephensen, Edda
Þórarinsdóttir, Sigurður Skúlason og
Guðbjörg Þorbjarnardóttir. Með önnur
hlutverk fara Lárus Pálsson, Rúrik
Haraldsson, Ævar R. Kvaran og Flosi
Ólafsson.
Leikritið fjallar um Jónas Webster
sem er heimspekilega þenkjandi og
mikill mannvinur en aflar sér lifsviður
væris á nokkuð óvenjulegan hátt. Owen,
fimmtán ára sonur hans, telur systur
sinni trú um furðulegustu hluti en
V_____________________________________
sjálfur gerir hann ekki handtak og þykist
vera skáld.
Leikurinn snýst um geimtruflanir,
peninga, trúarbrögð og listir. Málfarið
er einfalt en yfir leiknum öllum hvilir
Ijóðrænn og sakleysislegur blær. Að
dómi höfundar skiptir ekkert jafnmiklu
máliogástin.
Höfundirinn, William Saroyan, er
fæddur i Fresno í Kaliforníu árið 1908,
af armensku þjóðerni. Hann missti
ungur föður sinn og var sendur á
munaðarleysingjahæli. Hann naut
lítillar skólagöngu og vann við margvis-
leg störf áður en hann gerðist blaða-
maður og rithöfundur.
1 verkum hans kemur fram mikil
bjartsýni, hann trúir á alheimskærleik-
ann og það góða i mönnunum.
Smásagnasafn kom út eftir Saroyan árið
1934 og hlaut frábæra dóma en síðan
hefur hann skrifað bæði skáldsögur og
leikrit. Indælisfólk (The Beautiful
People) var frumsýnt í New York árið
1941.
Útvarpið hefur flutt nokkur verka
Saroyans, þ.á m. eru: Hæ þarna úti
1953 (einnig sýnt hjá Leikfélagi Reykja-
vikur) og Maðurinn sem átti hjarta sitt í
Hálöndum sem flutt var 1960. Leikritið
Indælisfólk var áður flutt hjá útvarpinu
árið 1967. Flutningur þess tekur um
fimm stundarfjórðunga.
-ELA.
___________________________________)
23
af alskonar
bamafatnaðí.
• Jólapilsin
koma á föstudag.
• Prjónakjólar
á mömmurnar.
LAUGAVEGI66
SÍM112815
VIKAN
40
ára
í lilefni afmæli» Vikunnar höldum viö afmælia-
veizlu i Hollywood f kvöld.
Hundraöasti hvergestur
fær áskrifaf Vikunni.
Gestir fá gjafir frá Vikunni
t.d. plakat, merki, skyni
ofl.
Afmælis-Vikan veröurá
boöstólnum og Helgi Pét-
ursson les kafla úr nýju
Vikunni. Sérstök lesstund
1
Allir eru
veizluna.
IV
Baldur Brjánsaon
töframaöurlnn mlkll mætir á stað-
^ Innog leikur llstir sínar.
° +
Plata kvöldslns er
Ljósin í bænum
Hln nýja frábæra hljómplata frá
HOLUUVOOD