Dagblaðið - 18.11.1978, Page 6

Dagblaðið - 18.11.1978, Page 6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1978. Ensk kvennahljómsveit komin til landsins: ÞÆR GERA GRÍN AÐ TÓNLIST „KARLVELDISINS” Sally Potter til vinstrí, Lindsav Cooper til hægrí. „Karlaheimurinn er svo beyglaður, við konur verðum strax að búa til nýjan.” Hvernig endar þetta allt saman? Er karlveldið að hruni komið? Hingað til hafa þeir þó að minnsta kosti ráðið öllu í tónlistarheiminum. En nú er komin hingað til lands hljómsveit, eingöngu skipuð konum og það eldhressum. Við hittum tvær þeirra í gærmorgun, Lind- say Cooper og Sally Bowles, og var ekki annað að sjá en þeim þætti gaman að lifa, þótt þær á hinn bóginn væru sann- færðar um að heimurinn væri algjörlega beyglaður. „öll tónlistersamin af karlmönnum,” sögðu þær. „Konurnar hafa þar — eins og annars staðar — verið ósýnilegar. Þess vegna er í okkar menningu fátt sem þær geta eignað sér. Húr»er hönnuð af körlum fyrir karla.” Stúlkurnar í hljómsveitinni eru niu, en aðeins fimm þeirra koma hingað til landsins. Þær eru á aldrinum 25—28 ára, allar ógiftar, en ein þeirra er fráskil- inogáeittbarn. Þegar maður spyr þær hvernig þær ætli að haga lífi sinu næstu tíu árin, gifta sig eða helga sig músíkinni, þá ætla þær að deyja úr hlátri. Ég hefði eins getað spurt á hvaða elliheimili þær hygðust panta pláss. — Þið eruð náttúrlega eins og söng- fuglarnir, hugsið ekki til morguns. „Jú, til morguns,” svarar Lindsay, „en dagurinn þar á eftir er í órafjarska.” Oft verða kvennahljómsveitir þannig til að nokkrar konur taka sig saman til að flytja baráttusöngva. En þessar stúlkur, The Feminist Improvising Group, hafa allar hlotið undirstöðugott tónlistaruppeldi, ýmist í hefðbundnum tónlistarskólum eða með rokk- og jass- hljómsveitum, nema hvort tveggja sé. Og þær láta sig ekkert muna um það að leika af fingrum fram eða „spinna”, sem er nýyrði fyrir að improvisera. „Við leitum víða fanga,” segir Sally, „tökum stef úr sígildum verkum, djass og dægurtónlist, og leikum okkur að þeim af hjartans lyst. Við hikum ekki við að snúa út úr og gera grín að við- teknum hefðum, til dæmis yfirmáta rómantískum lögum. Það skemmtilega við spunann er ein- mitt að þá getur tónlistarmaðurinn gert hvað sem andinn innblæs, rétt þá stund- ina. Áður en við förum inn á sviðið vitum við stundum ekkert hvað við ætlum að gera. Ein byrjar á stefi og síðan getur hver sem vill haldið áfram hvernig og hvenær sem hún vill.” Þær halda því fram að konur vinni betur saman en menn. „Því að karlmenn eru I stöðugri samkeppni. Einmana á sál- inni vinna þeir að því að reyna að halda heiminum áfram i baklás. En konur vinna í sátt og samlyndi að því að skapa nýjan og betri heim,” segir Sally. Gagnrýnandi Le Monde í París komst að þeirri niðurstöðu eftir að hafa hlýtt á tónleika þeirra, að liklega væri einmitt spuninn eða improvisationin i eðli sínu kvenlegtform. „Því konur sjá miklu fleiri hliðar á öll- DB-mynd Ragnar Th. Sig. um hlutum heldur en karlmenn,” segir Lindsay. „En þeim er þrýst til að lifa eftir ákveðnu munstri, þar sem útlitið skiptir öllu máli. Og þær mála sig og punta sig — og læsast inni í gervinu eins og gildru.” „En hvernig finnst ykkur þá að sjálf- stæð kona ætti að lifa lifinu?” Þær horfa á mig þegjandi dálitla stund, unz Lindsay getur ekki stillt sig lengur. Hrekkjaleg á svip læðir hún út úr sér: „Væri fjarri lagi að ímynda sér að hún mundi líkjast Sally Potter!” Og viðtalið leysist upp t hlátri, af frek- ari tilraunum til að skilgreina hina spennandi veru, konu framtíðarinnar, verður ekkert. En verði þær stöllur jafn frjálslegar á tónleikunum sínum er ótrúlegt að nokkrum leiðist þar. Þær spila klukkan 4 í dag i Menntaskólanum við Hamrahlíð og á sama tíma á morgun í Félagsstofn- un stúdenta. ■ IHH Viðar með pressunni — gegn landsliðinu íhandknattleik ídag kl. 15.30 íLaugardalshöll Pressuleikur í handknattleik verður háður í Laugardalshöll í dag kl. 15.30. Leikur þessi er til að búa isl- enzka landsliðið í handknattleik und- ir Frakklandsferð. Jóhann Ingi Gunnarsson, einvaldur landsliðsins, hefur valið eftirtalda tólf leikmenn: Markmenn: Jens Einarsson ÍR Ólafur Benediktsson Val. Aðrir leikmenn: Páll Björgvinsson Víking Árni Indriðason Víking Ólafur Jónsson Víking Þorbjörn Guðmundsson Val Stefán Gunnarsson Val Bjarni Guðmundsson Val Steindór Gunnarsson Val Hannes Leifsson Þór, Vestmanna- eyjum Hörður Harðarson Haukum Andrés Kristjánsson Haukum. Hilmar Björnsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari, valdi Pressuliðið, sem er skipað eftirtöldum leikmönnum: Markmenn: Brynjar Kvaran Val Kristján Sigmundsson Víking Aðrir leikmenn: Geir Hallsteinsson FH Viðar Símonarson FH Guðmundur Magnússon FH Jón Pétur Jónsson Val Jón H. Karlsson Val Þorbjöm Jensson Val Viðar Sfmonarson leikur sinn fyrsta leik I handknattleik i vetur með pressunni i dag. Stefán Jónsson Haukum Ingimar Haraldsson Haukum Sigurbergur Sigsteinsson Fram Sigurður Gunnarsson Viking Tvo varamenn hefur Hilmar einnig valið: Erlend Hermannsson Víking Janus Guðlaugsson FH. UMFERÐARVIKAN 78 SVFÍ [ 1 AUKIÐ ORYGGII UMFERÐINNI Á mánudaginn hefst „umferðar- vika” Slysavarnafélags íslands. Munu félagsmenn á hverjum degi vikunnar taka fyrir ákveðna þætti umferðar- málanna með ýmiss konar ábendingum og hugleiðingum í fjöl- miðlum og að beina athygli fólks að vandamálunum. Þættirnir sex sem teknir verða fyrir, einn á hverjum degi, eru: tillitssemi i umferðinni, vetrarumferðin, hraðinn í umferðinni, gangandi umferð, einkum með tilliti til barna og eldra fólks, gangbrautir, ölvun við akstur. SVFÍ heitir á alla ábyrga einstaklinga að gefa sér tima til að staldra við í önn dagsins og hugleiða þessi mál. Markmið umferðar- vikunnar er: Aukið öryggi í umferðinni. -ASt. Bíllinn týndur í nærviku Cortina bifreið sem stolið var af bílastæði við Kleppsveg 52 aðfaranótt sunnudagsins er enn ófundin. Hefur lögreglan hugað að bílnum en einskis orðið vör og nú eru allir beðnir að hafa augun hjá sér. Bifreiðin er af árgerð 1967 og ber dökkgrænan, sanseraðan lit. Bifreiðin er þokkalega útlítandi og m.a. með dráttarbeizli. Sæti bílsins eru klædd með Ijósrauðu pluss- áklæði. Skráningarnúmer bílsins er R-34628. Þeir sem upplýsingar gætu gefið eru beðnir að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu. ,ASt. Útvarpið kemur sér upp stúdíói á Akureyri „Jú, við erum aö taka á leigu litið hús sem Tónaútgáfan sf. hafði áður til upptöku,” sagði Hörður Vilhjálmsson, fjármálastjóri Ríkis- útvprpsins, er DB spurði hann hvort Ríkisútvarpið væri að koma sér upp stúdiói á Akureyri. „Það hefur lengi verið vilji hér á útvarpinu að gera landsbyggðinni sem hæst undir höfði og þetta er viðleitni til að ná betur til hennar.” Húsið sem útvarpið er að taka á leigu er á Norðurgötu 2B og er á tveimur hæðum sem hvor um sig er um 60 m2. Mun útvarpið leigja þetta húsnæði til tveggja ára. Hörður sagði að þessi aðstaða yrði verulega til bóta því hún hefði nánast engin verið fram að þessu. Hann sagði að þessi aðstaða yrði tilbúin á næstu vikum. Tæknileg aðstaða yrði eitthvað bætt en nokkur tækjakostur væri til hjá tæknimanni útvarpsins á Akur- eyri, Björgvin Júníussyni. Er DB spurði Hörð hvort þetta gæfi möguleika á beinum útsend- ingum frá Akureyri sagði hann að vonir stæðu til að hægt væri að fara inn á örbylgjukerfið suður en það sagði hann beztu flutningsleið sem til er. Það mál er nú í athugun hjá Pósti og sima. - GAJ Greenpeaceekki meðíað skvetta rauða litnum Allan Thronton fulltrúi Greenpeace samtakanna hafði samband við DB í gærkvöldi. Vildi hann taka fram að enginn frá Greenpeace hefði komið nálægt aðförinni að skrifstofustjóra sjáv- arútvegsráðuneytisins í fyrradag. Lýsteftir sjónarvottum Ekið var á bifreiðina Y 1611 þar sem hún stóð við verzlunina Kaupgarð við Smiðjuveg i Kópa- vogi. Bifreiðin er af Volvo station gerð, árgerð 1974. Bifreiðin var dælduð á vinstri afturhurð. Sá sem valdur var að tjóninu forðaði sér af vettvangi. Lögreglan í Kópavogi óskar að hafa -tal af þeim sem kunna að hafa orðið varir við áreksturinn, en hann varð á milli kl. 11.15 og 11.27 á fimmtudag. Skákmótinað hefjast - Mjölnir byrjarámorgun Vetrarskákmót Mjölnis hefst á morgun kl. 14. Teflt verður i riðlum og fer keppnin fram í félagsheimili Ármanns við Sigtún. Keppt verður á sunnudögum og miðvikudögum nema á morgun, sem fyrr segir. Unglingamót Mjölnis hefst á morgun en annars verður teflt i þvi á laugardögum í Fellahelli. -GS.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.