Dagblaðið - 30.12.1978, Qupperneq 6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 1978.
" 'V
Hvað «r þðr minnisstarðast fra árinu 1978?
— og hvað ar þðr efst í haga á nýja árina?
- .- ■— —
Svavar Gcstsson.
Ríkisstjórnin er
prófsteinninn..
„Ætli það sé ekki þessi ríkisstjórn og
myndun hennar sem mér er hvað
minnisstæðust,” sagði Svavar Gestsson
viðskiptamálaráðherra. „Það hefur tekið
allan minn tíma. allt frá því að fram-
boðið var ákveðið í vor."
„Árið sem er að líða hefur verið sögu-
legt ár að mörgu leyti,” sagði Svavar
ennfremur. „Þessi ríkisstjórn er próf-
steinn á það hvort verkalýðshreyfingin
getur hafl áhrif á gang mála og sá slagur
mun haldaáfram.
Hvað mitt persónulega líf áhrærir
hcfur pólitikin haft mikil áhrif og þetta
nýja starf ekki hvað minnst. Fristundir
nianns hafa nánast engar orðið og allt
daglegt líf komið í sviðsljósið ef svo
mætti segja. Það ætti i rauninni að
skylda alla að gegna ráðherradómi i
svona fjóra mánaði til þess að þeir sæju
hvað þetta er.
Eins og ég sagði áðan heldur slagur-
inn áfram á næsta ári.” sagði Svavar.
„Sjálfstæðismenn og fleiri halda þvi
fram að kaupmáttur launa sé orðinn
meiri en þjóðfélagið þolir, sem er auðvit-
að ekki rétt. Eins vil ég nefna varðandi
árið 1979 að seint á þvi ári fer fram
endurskoðun á samstarfssamningi rikis-
stjórnarinnar og við alþýðubandalags-
menn munum endurskoða þau mál þá.
ef ríkisstjórnin lifir það lengi.”
HP.
Kosningarnar
voru mikið
áfall...
Friðrik Sóphusson.
„Svona í skjótri svipan eru mér kosn-
ingarnar i vor hvað minnisstæðastar,”
sagði Friðrik Sóphusson, alþingismaður.
„Annars vegar vegna þess að ég var
kjörinn á þing og svo hins vegar vegna
þess hversu mikið áfall þær kosningar í
heild sinni voru fyrir okkur sjálfstæðis-
tnenn. Úrslit þeirra eru okkur auðvitað
hvatning um að gera betur.
Hvað næsta ár varðar þá mótast lífið
nú af því að maður er kominn á kaf i
þessa pólitík,” sagði Friðrik ennfremur.
„í raun og veru hefur ekkert verið gert
til þess ið rétta þjóðarskútuna við, allt
mótast þetta af bráðabirgðalausnum
ríkisstjórnarinnar. Það er því mikið starf
framundan.
HP.
Stórmerkileg og
ánægjuleg
bókavertíð...
„Ætli mér sé ekki hváð minnisstæðast
af þessu ári sem er að líða þessi stór-
merkilega bókavertið, sem verið hefur,”
sagði Guðlaugur Arason rithöfundur.
„Þessi skáldsagnavertíð hefur verið sér-
lega ánægjuleg, þá sérstaklega hversu
margir ungir nýir höfundar hafa komið
fram,” sagði G uðlaugur ennfremur.
„Hvað næsta ári viðvikur. verður það
varla „mitt ár". það er orðið nóg i bili.”
sagði Guðlaugur. „Ég vona bara
hvað bókaúlgáfunni viókemur að |x;ssi
þróun haldi áfram og maður bíður
spenntur eftir að sjá hvað kemur út úr
þessu.”
-HP.
Guðlaugur Arason.
Að sjónleikur-
inn endurtaki
sig ekki...
Eggert Haukdal.
„Það er að sjálfsögðu margs að minn-
ast af svo viðburðarríku ári,” sagði
Eggert Haukdal alþingismaður. „Það
hefur orðið mikil breyting á mínum
högum vegna þingmennskunnar.
Varðandi árið sem I vændum er vona
ég að fólk læri af reynslunni," sagði
Eggert ennfremur. „ Það var miklu lof-
að í þessum kosningum i vor sem ekki
hefur verið staðið við og ég vona að fólk
láti ekki þann sjónleik sem settur var á
svið eftir þær endurtaka sig.”
—HP.
Skeyti til USA
eftir alþingis-
kosningarnar
„Mér er minnisstæðast frá árinu 1978
þegar ég fékk skeyti frá islandi, þar sem
ég var ásamt 21 öðrum enskukennara
á námskeiði í Bandaríkjunum, daginn
eftir alþingiskosningarnar í vor," sagði
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir borgarfulltrúi.
„Skeytið var svohljóðandi:
A: 1—4
B: 1—2
D:2—0
G: 1—4.
Fyrir nýja árið er mér efst i huga
Sjöfn Sigurbjörasdóttir.
þakklæti fyrir farsælt liðið ár. Ég finn til
tilhlökkunar vegna fjölmargra mála sem
kemur i minn hlut að vinna að i þágu
Reykvikinga og Reykjavikurborgar."
ÓV.
Sri Lanka-slysið
og niðurlæging
atvinnupólitíkusa
Ólafur Haukur Simonarson.
„Mér dettur fyrst i hug flugslysið á
Sri-Lanka, maður kemst ekki hjá því.
Það sló mann rækilega utanundir,” var
svar Ólafs Hauks Símonarsonar rithöf-
undar.
„lnnanlands er mér efst i huga, að
niðurlæging atvinnupólitikusa er komin
á það stig, að mér er hætt að standa á
sama.
Hvað varðar nýja árið þá vona ég að
bráðum komi betri tið..."
ÓV.
Þingtíminn
hefur verið
spennandi...
Alexander Stefánsson.
„Ég tel að árið scm er að líða hafi
verið gott ár að mörgu leyti, þrátt fyrir
þann bölvald, verðbólguna, sem skyggt
hefur á," sagði Alexander Stefánsson al-
þingismaður. „Kosningarnar I vor og
allt umstangiö i kringum þær og hinar
furðulegu niðurstöður eru mér auðvitað
mjög minnisstæðar. Þá einnig timinn
sem fór I stjórnarmyndunina og sú staða
sem upp kom að flokkur minn skyldi
þurfa að taka að sér stjórnarforystuna.
Fyrir mig persónulega voru það mikil
viðbrigði að taka sæti á Alþingi. Þing-
timinn sem af er hefur verið spennandi
og eins var það mikil reynsla aö eiga sæti
I Fjárveitinganefnd og kynnast starfinu
þar.
Ég vona að ríkisstjórnin geti komið
sér saman um lausnir í baráttunni gegn
verðbólgunni,” sagði Alexander enn-
fremur. „Ég tel, að við höfum alla
möguleika á þvi að sigrast á þeim böl-
valdi og eigum því að standa saman um
þær lausnir sem duga.”
HP.
Guðmundur J. Guðmundsson.
Þavf að taka
upp jóga eða
innhverfa
íhugun
„Ég man ekki eftir neinu sérstöku
framar öðru,” sagði Guðmundur J.
Guðmundsson formaður Verkamanna-
sambands íslands. „önn dagsins er svo
mikil að maður hefur ekki tíma til að lita
um öxl. Ég man að það gekk töluvert á á
árinu en hvað veit maður svo hvað var I
ár og hvað var i fyrra. Líf mitt er ekki
markað áföngum á nokkurn hált. það
eru vonbrigði og sigrar á vixl. Það er
stöðugt veriðaðsnúast i kringum vanda-
mál liðandi stundar.
Ég þarf liklega að fara að snúa mér að
jóga eða innlendri ihugun með hvildar-
stundum til að geta íhugað fortíðina.
Ætli sé ekki bezt að spekúlera í þvi fyrir
nýja árið."
ÓV.
Kosningar og
kærkomið
sumarfrí...
„Mér er efst i huga hinn mikli og
óvænti sigur okkar Alþýðubandalags
manna i borgarstjórnarkosningunum i
vor,” sagði Sigurjón Pétursson forseti
borgarstjórnar Reykjavíkur. „Þvi hcfur
auðvitað fylgt þrotlaust starf en það var
nú mikið fyrir hjá mér, ég er því vanur.
Persónulega get ég lika minnzt á ágætt
Sigurjón Pétursson.
og kærkomið sumarfrí sem ég tók mér
samt í sumar.
Varðandi árið serii nú fer í hönd, vona
ég aðeins að betur takist til I baráttunni
við verðbólguna,” sagði Sigurjón enn-
fremur.
■HP.
Gunnar Þórðarson.
New York og
Los Angeles...
„Vera mín og störf í sambandi við
hljómplötuupptökur í New York og Los
Angeles i sumar, eru mér hvað minnis
stæðast af því sem gerzt hefur á þessu
ári,” sagði Gunnar Þórðarson tónskáld.
„Mér þótti það ákaflega ánægjulegur
tími en alltaf er samt gott að koma heim,
þrátt fyrir ástandið i þjóðmálum hér.
Ég vonast svo til þess að á næsta ári.
rétti hljómplötuútgáfan við, að hún
verið ekki drepin i sköttum, eins og nú er
verið að reyna,” sagði Gunnar enn-
fremur. „Persónulega vonast ég til þess
að ná út úr hugarbúi mínu einhverri
góðri tónlist.”
HP.
Hafsteinn Jóhannesson.
Maraþonhlaup
DB og
Breiðabliks efst
í huga
„Þar sem frjálsu íþróttirnar eru mitt
helzta áhugamál þá kemur náttúrlega
fljótt í hugann hve vel tókst til með
maraþonhlaup Dagblaðsins og Breiða
bliks," sagði Hafsteinn Jóhannesson,
formaður frjálsíþrótiadeildar Breiða
bliks.
„Þetta hlaup gaf okkur langtum meiri
peninga en þeir bjartsýnustu þorðu að
vona. Við fengum alls um 1200 þúsund
krónur fyrir þetta hlaup. Þá er Lands
mótið á Selfossi einnig mjög minnis-
stætt.
í byrjun árs er mér efst i huga að
árangurinn verði ekki minni á næsta ári
en á þvi ári sem er að líða.”
•GAJ